Þjóðviljinn - 18.01.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR
Byggðastofnun
Vanskil tvöfaldast
Reksturinn erfiður á síðasta ári en umsvifin engu að síður veruleg.
Vanskil námu íárslok 1.064 miljónum króna. Heildarútlán 1989 voru
8.464 miljónir króna og höfðu aukist um 28%
Rekstur Byggðastofnunar var
mjög erfiður á síðasta ári en um-
svif stofnunarinnar voru engu að
síður veruleg. Vanskil á árinu
1989 tvöföiduðust frá árinu áður
og námu í árslok rúmum einum
miljarði króna.
Petta kom fram á stjórnarfundi
Byggðastofnunar í fyrradag sem
haldinn var norður á Akureyri en
þar voru lögð fram drög að
ársreikningi stofnunarinnar.
Samkvæmt þeim námu heildar-
útlán Byggðastofnunar á síðasta
ári 8.464 miljónum króna og
höfðu aukist um 28% á árinu.
Hlutur sjávarútvegs var 63% og
hafði minnkað nokkuð frá fyrra
ári vegna aukins hlutar fiskeldis í
útlánum. Samtals voru útborguð
lán á árinu 1989 1.544 miljónir
króna og var hlutafé keypt fyrir
117 miljónir króna. Styrkir voru
veittir fyrir samtals 50 miljónir
króna og þar af var niðurgreiðsla
á loðdýrafóðri 20 miljónir króna.
Á síðastliðnu ári voru afskrifuð
lán samtals að upphæð 26 miljón-
ir króna og ennfremur varð stofn-
unin að leysa til sín allmörg veð á
árinu og höfðu þau ekki öll verið
seld á ný um áramót.
í fyrra tók Byggðastofnun í
fyrsta skipti milliliðalaust lán á
erlendum fjármagnsmörkuðum
og tók stofnunin samtals 1.670
miljónir króna að láni erlendis frá
en 132 miljónir innanlands.
Framlag af fjárlögum til Byggða-
stofnunar var 125 miljónir króna
en með fjáraukalögum var það
aukið um 50 miljónir króna. Á
fundi stjórnarinnar var samþykkt
að taka að láni frá Norræna fjár-
festingarbankanum lán að upp-
hæð 300 rniljónum króna sem er
ætlað til almennrar starfsemi
stofnunarinnar. Jafnframt ákvað
stjórnin að veita fiskeldisstöðv-
unum Miklalax í Fljótum og Silf-
urstjörnunnar í Kelduhverfi 85
miljón króna rekstrarlán til bráð-
abirgða. Stofnunin á 20% hlut-
afjár í þessum fyrirtækjum og
nema skuldir þeirra við stofnun-
Nordjobb 1990
Reiknað er með að um hundrað
íslensk ungmenni fari til starfa á
hinum Norðurlöndunum í ár og
að svipaður fjöldi norrænna ung-
menna komi til starfa hér á landi.
Nordjobb hefur starfað í fimm ár
og er samstarfsverkefni Norður-
landanna. Nordjobb sér um miðl-
un sumarvinnu milli Norður-
landa fyrir fólk á aldrinum 18-26
ára og eru störfin sem boðið er
upp á í Iöndunum öllum svo og á
sjálfstjórnarsvæðunum á Norð-
urlöndum. Margvísleg störf bjóð-
ast og eru launakjör svipuð og
tíðkast í viðkomandi störfum á
ina samtals 500 miljónum króna.
Á sfðasta ári veitti Byggða-
stofnun stofnlán til smábáta-
eigenda. Alls voru veitt 179 lán í
þessum lánaflokki samtals 255,2
miljónir króna og telur stjórn
stofnunarinnar að þar með sé
lokið afgreiðslu lána úr þessum
lánaflokki. -grh
Íí
%sm
Kvennalistakonur þinga um setu Kristínar Sigurðardóttir í bankaráði Landsbankans í gær. Mynd: Kristinn.
Kristín Sigurðardóttir
hjá Kaupþingi
Hættir
Kristín Sigurðardóttir mætir á
fyrsta fund bankaráðs Lands-
bankans í dag eftir að hafa sagt
upp störfum hjá Kaupþingi. Ingi-
björg Hafstað starfsmaður
Kvennaiistans segir að grund-
völlur hafi verið fyrir tortryggni á
störfum Kristínar í bankaráði
vegna starfa hennar hjá
Kaupþingi og hugsanlega hefði
Kristínu verið gert erfitt að sinna
sínum störfum.
Ingibjörg sagði Þjóðviljanum
að það væri Kvennalistanum
mikilvægt að þrjú mismunandi
álit hefðu komið fram í þessu
máli, þar sem aðeins í einu þeirra
væri sagt að seta Kristínar í
bankaráðinu væri ólögmæt. En í
áliti Sigurðar Líndal lagaprófess-
ors segir að Kristín teljist al-
mennt vanhæf til setu í banka-
ráðinu vegna starfa sinna hjá
Kaupþingi. Skrifstofustjóri Al-
þingis, Friðrik Ólafsson, sagði
setu hennar verða að teljast
óeðlilega þegar virt væru almenn
lagarök en Bankaeftirlit Seðla-
bankans taldi Kristínu ekki van-
hæfa.
Ástæðan fyrir afstöðu Kvenna-
listans er fyrst og fremst sú að
búið væri að gera Kristínu tor-
tryggilega, að sögn Ingibjargar
og árekstrar væru hugsanlegir,
sérstaklega vegna þess að stjórn
Landsbréfa tengdist Landsbank-
anum meira en lög gerðu ráð
fyrir. Kristín Sigurðardóttir nyti
áfram fyllsta trausts Kvennalist-
ans.
-hmp
staðnum. Starfstíminn getur ver-
ið allt frá einum mánuði til
þriggja mánaða. Það eru norr-
ænu félögin á Norðurlöndunum
sem sjá um atvinnumiðlun hvert í
sínu landi. Á íslandi sér Norræna
félagið um Nordjobb atvinnu-
miðlunina, en í því felst að félagið
veitir allar upplýsingar, tekur við
umsóknum frá íslenskum ung-
mennum og kemur þeim áleiðis
og sér um atvinnumiðlun, útveg-
un húsnæðis og tómstundadag-
skrá fyrir norræn ungmenni sem
koma til íslands. Allar upplýsing-
ar, þar á meðal umsóknareyðu-
blöð, fást hjá Norræna félaginu,
Norræna húsinu, 101 Reykjavík,
sími 19670.
Samkirkjuleg
guðsþjónusta
Samkirkjuleg guðsþjónusta verð-
ur haldin á vegum Samstarfs-
nefndar kristinna trúfélaga á ís-
landi, í Dómkirkjunni nk. sunnu-
dag kl. 14. Hafliði Kristinsson
forstöðumaður í Hvítasunnukir-
kjunni predikar, sóknarprestar
þjóna fyrir altari, fulltrúar Að-
ventista, Hjálpræðishersins og
Kaþólsku kirkjunnar fara með
ritningarorð. Dómkórinn syng-
ur. Stjórnandi er Marteinn Frið-
riksson.
Styrkurinn gefinn
Kvenréttindafélaginu
Haukur Halldórsson myndlistar-
maður færði Kvenréttindafélagi
íslands grafíkmynd að gjöf á jóla-
fundi félagsins í desember sl.
Myndin er af tveimur konum og
nefnist Styrkurinn. Formaður
félagsins, Gerður Steinþórsdótt-
ir, veitti myndinni viðtöku og
þakkaði listamanninum höfðing-
lega gjöf. Á myndinni sést
Haukur afhenda Gerði og Birnu
Guðjónsdóttur í fulltrúarráði fé-
lagsins myndina.
Leið til betra lífs
Hugleiðslukennarinn Acharya
Ananda Gaorii frá Japan heldur
fýrirlestur í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi, Breiðholti, í
kvöld kl. 20. Fyrirlesturinn fjallar
um hugleiðslu og hvernig finna
megi leið til betra lífs. Hann er
fluttur á ensku og þýddur á ís'-
lensku. Þá mun Didi Ananda Ga-
orii halda helgarnámskeið í
hagnýtum jólafræðum. Þátttak-
endum verða kynntar slökunar-
æfingar og hugleiðsla og rætt
verður um skilning jóga á tilgangi
andlegra æfinga. Námskeiðið
verður haldið 20.-21. janúar í
Akureyri
Vaxandi
atvinnu-
leysi
Iðja: Iðnaðurinn hrun-
inn. Sigríður Stefánsdótt-
ir: Framtíðin liggur ekki í
byggingu álvers
„Atvinnuleysið hefur farið vax-
andi hér í bænum að undanförnu
og ástæður þess má efiaust rekja
til þeirrar staðreyndar að það
hefur verið samfelldur samdrátt-
ur í iðnaði. Miðað við það sem sú
atvinnugrein var og hét fyrir
nokkrum árum má segja að iðn-
aðurinn sé nánast hruninn,“
sagði Ármann Helgason varafor-
maður Iðju félags verksmiðju-
fólks á Akureyri.
í desember voru alls 238 manns
skráðir atvinnulausir á Akureyri
og þar af voru konur 99. í mánuð-
inum á undan voru 200 einstak-
lingar atvinnulausir og af þeim
voru konur 87. Sem dæmi um þær
breytingar sem orðið hafa í iðn-
aðinum á Akureyri má nefna að
fyrir nokkrum árum unnu að
jafnaði um 300 manns hjá Sam-
bandsverksmiðjunum en í dag
vinna aðeins 117 manns hjá Ála-
fossi. Þar munar mestu um að
ullariðnaðurinn var fluttur suður
yfir heiðar og þá er fataiðnaður-
inn ekki nema skugginn af sjálf-
um sér frá því sem áður var.
Að sögn Sigríðar Stefánsdótt-
ur bæjarfulltrúa er ástand
atvinnumála í bænum mjög erfitt
og þá sérstaklega í iðnaðinum af
einstökum atvinnugreinum. Sig-
ríður sagði að von væri til þess að
þetta mundi lagast á næstunni ef
ástandið batnar í sjávarútvegin-
um og þá möguleika sem stofnun
sjávarútvegsbrautar við Há-
skólann á Akureyri getur haft til
nýsköpunar atvinnulífs á staðn-
um. „Hins vegar liggur framtíðin
ekki í byggingu álvers hér við
Eyjafjörðinn," sagði Sigríður
Stefánsdóttir.
-grh
Leikskólanum Sælukoti, Þorra-
götu 1, Skerjafirði. Nánari upp-
lýsingar veittar í síma 24235 milli
kl. 15 og 18. Námskeiðið er á veg-
um Ananda Marga.
Hæfnispróf Sameinuðu
þjóðanna
Hæfnispróf á vegum Sameinuðu
þjóðanna fyrir umsækjendur um
störf á vegum Sameinuðu þjóð-
anna verður haldið í Reykjavík
dagana 10. og 11. maí. Prófið er
haldið í samvinnu við íslensk
stjórnvöld og er þetta í fyrsta
skipti sem slíkt próf er haldið á
íslandi. Prófað verður í stjórnun,
hagfræði, tölvufræði og
fjölmiðlun/útgáfustarfsemi. Um-
sækjendur um þátttöku skulu
vera íslenskir ríkisborgarar og
fæddir eftir 1. janúar 1958. Þeir
skulu hafa lokið háskólaprófi og
hafa annað hvort tveggja ára
starfsreynslu eða framhalds-
menntun á háskólastigi. Einnig
er krafist góðrar þekkingar á
ensku eða frönsku. Pierre Pel-
anne deildarstjóri prófdeildar
Sameinuðu þjóðanna er væntan-
legur til landsins. Hann mun
halda fyrirlestur um hæfnisprófið
nk. laugardag í stofu 101 í Lög-
bergi, Háskóla íslands, kl. 14,
fyrir þá sem hafa áhuga á þátt-
töku.
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. Janúar 1990