Þjóðviljinn - 18.01.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 18.01.1990, Blaðsíða 6
Kvikmyndaklúbbur íslands Besta bíómynd Evrópu 1989 í kvöld - Við vorum búin að tryggja okkur sýningarrétt á grísku myndinni „Landslag í þoku“, áður en hún fékk evrópsku Felix- verðlaunin í París í vetur, segir Guðmundur Karl Björnsson, talsmaður klúbbsins. - Hún hefur sópað að sér verðlaunum auk þess að vera valin þarna besta kvikmynd Evrópu 1989. Við sýn- um líka aðra mynd eftir leikstjór- ann, Theo Angelopoulos, í lok janúar, Ferðina til Kithira. Áður höfum við sýnt Býflugnabóndann eftir hann. Kvikmyndaklúbbur íslands er öllum opinn og sýningar hans fara fram við ágætar aðstæður í Regnboganum við Hverfisgötu. Þar kaupa félagsmenn skírteini á 1000 kr., en síðan kostar 300 kr. inn á hverja sýningu, sem er lægra verð en á almennar sýning- ar. Fastir sýninartímar eru á fimmtudagskvöldum kl. 21 og 23:15 í litlum sal, en á laugar- dögum kl. 15:00 í stórum sal. Kvikmyndaklúbburinn sýnir alls 20 myndræmur frá 7 löndum á þessu 3. sýningartímabili sínu. Megináherslan að þessu sinni er lögð á „film noir“, myndir frá Bandaríkjunum og á sænskar myndir frá 2. og 3. áratug aldar- innar. Loks verða í lokin sýndar 3 hryllingsmyndir, tvær eftir Roger Corman og ein frá Andy Warhol, þrívíddarmynd um Frankestein. Áhorfendur verða þá að leggja leið sína í Laugarásbíó, vegna þrívíddaráhrifanna sem hægt er að ná þar. Ein íslensk mynd er á Frá Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála Starf forstöðumanns Staða forstöðumanns Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála er laus til umsóknar. Umsækjandi skal upp- fylla hæfniskröfur sem gerðar eru til prófessora. Hann skal hafa staðgóða þekkingu á rannsóknaraðferðum félagsvís- inda og hafa sannað hæfni sína m.a. með rannsóknum á sviði uppeldis- og menntamála. Umsækjendur um stöðu forstöðumanns skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Forstöðumaöur er ráðinn tili fjögurra ára og er gert ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. júlí 1990. Umsóknarfrestur er til 1. mars 1990. Umsóknir skulu sendar til Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála, Kennaraskólahúsinu við Laufásveg, 101 Reykjavík. Stjórn Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála 12. janúar 1990 Snæfellingar Upplýsingafundur um Evrópska efnahagssvæðið, EES, verður haldinn á vegum utanríkisráðuneytisins, þann 19. jan. kl.21.001 Félagsheimilinu íólafsvík. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra hefur framsögu og mun ásamt emb- ættismönnum utanríkisráðuneytisins svara fyrirspurnum um viðræður Fríverslunars- amtaka Evrópu, EFTA, og Evrópubandal- agsins, EB, um myndum sameiginlegs markaðar í Evrópu. Utanríkisráðuneytið Það verður að teljast heppni eða sérstök forsjálni hjá Kvikmyndaklúbbnum að vera búinn að tryggja sér „Landslag í þoku“, en í kvöld og á laugardaginn gefst kostur á að sjá í Regnboganum þessa nýju grísku verðlaunamynd, sem fékk Silfurljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 1988 og Felix-verðlaunin í París 1989. dagskránni, Rokk í Reykjavík eftir Friðrik Þór Friðriksson. Kvikmyndasafn fslands styður klúbbinn, í samræmi við lagafyr- irmæli, með fundaraðstöðu og fleiru, en allt starf í þágu hans vinna sjálfboðaliðar með eld- legan áhuga á þessari listgrein og iðn. / kvöld: Landslag í þoku Myndina sem hlaut kvikmynd- averðlaun Evrópu 1989, Lands- lag í þoku, gerði Grikkinn Theo Angelopoulos 1988. Höfundur- inn er hálfsextugur og stúndaði nám í lögfræði og kvikmynda- gerð, en var reyndar rekinn úr franska skólanum IDHEC á sín- um tíma. Hann segist hrifnastur af danska kvikmyndaleikstjórun- um Carl T. Dreyer og þeim franska Jean-Luc Godard, en þykir lítið til um Svíann Berg- mann. Angelopoulos þykir eitt skýrasta dæmi samtímans um sanna höfunda (auteaur) kvik- myndagerðarinnar. Landslag í þoku fékk Silfur- ljónið fyrir bestu leikstjórn í Fen- eyjum 1988 og Felix-verðlaun Evrópu 1989: Hún er rúmlega tveggja stunda löng og sýnir ferðalag yfir þvert Grikkland, en ferðir eru uppáhaldsefni Angel- opoulosar. Systkini, 14 og 5 ára, hyggjast leita föður síns í Þýska- landi en verða fyrir margs konar reynslu á leið sinni að landamær- unum og hitta marga kynlega kvisti. Sama tækniliðið vinnur yfir- leitt með Theo Angelopoulos og skapar það sterkt yfirbragð myndanna. Sagt er um Landslag í þoku, að þar sanni Angelopoulos enn snilli sína við að kalla fram söknuð og minningar, nái því að gæða veröld gærdagsins sérstæðri fegurð og neyði áhorfandann til að framkalla sína eigin sýn af því liðna. ÓHT VIÐHORF Framhald af bls. 5 ið verða að vera til fyrirtæki sem binda þessa þekkingu í vélum, tækjum og skipulagi. Fyrirtæki sem hafa tök á slíku eru nú orðin allmörg og margir starfsmenn þeirra hafa með einum eða öðr- um hætti verið tengdir Háskólan- um eða rannsóknastofnunum at- vinnuveganna. Sömu sögu er að segja um framleiðsluvörurnar, þær hafa verið þróaðar í tengslum við stofnanir. Nægir að nefna frumgerðir Marelsvoganna, en þær voru unnar innan veggja Há- skólans, kör Sæplasts á Dalvík og allmargar vélar unnar í samvinnu við Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins. Meka og Marel vinna nú að viðamiklu verkefni ásamt tveimur dönskum fyrirtækjum auk Iðntæknistofnunar og Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins og er markið sett á vinnslulínu fram- tíðarinnar. Eureka verkefnið Ha- lios hefur einnig verið starfrækt í nokkur ár. Rannsóknir og atvinnulíf Tölvuvogir fyrir frystihús væru óhugsandi án náinnar samvinnu framleiðenda og notenda og sama gildir um færavindur DNG á Akureyri. Sérhæfð þekking og frumframleiðsla fer þegar saman hér á landi eins og ör vöxtur þess- arar iðngreinar er ótvírætt dæmi1 um. Tengslin hafa myndast m.a. vegna aukinnar áherslu á þjónustuverkefni sem ívar hefur svo mikla skömm á. Samstarf að1 lausn hagnýtra verkefna er lykill- inn að þeirri nýsköpun sem hann leitar að, en þykist ekki finna, og slíkt samstarf er síðan forsenda raunsærra langtímaáætlana sem hann lýsir eftir. Fréttir af líftækni eru ekki jafn mikið á forsíðum blaðanna nú og fyrir nokkrum árum. Starfsemi á þessu sviði er þó orðin blómleg. Búið er að byggja líftæknihús Há- skólans á Keldnaholti og þar er m.a. unnið að örveruræktun og hagnýtingu ensíma til himnu- losunar og roðflettingar svo dæmi séu nefnd. Samstarf um líftækni er gott dæmi um samhæfingu dreifðra krafta. Hingað til lands voru komnir allmargir sérfrðingar sem höfðu sótt þekkingu sína til frem- stu rannsóknastofnana heims. Þeir sameinuðust um ákveðin rannsóknarverkefni. Rann- sóknaráð ríkisins styrkti rannsóknirnar enda samræmdist það langtímaáætlun þess. Nú hafa aðstandendur, bæði rann- sóknastofnanir atvinnulífsins og þar með talinn Háskólinn og fjöl- mörg fyrirtæki, þ.á m. í sjávarút- vegi, stofnað fyrirtæki um hag- nýtingu rannsóknanna. Ég er sannfærður um að ekki líður á löngu þar til afurðirnar verða að framleiðsluhæfum vörum. Hæfnisuppbygging á sviði líf- tækni er skólabókardæmi um framsækna stefnumörkun og hafa margir aðilar komið þar við sögu eins og áður sagði. Samt sem áður held ég að ekki sé á neinn hallað þegar fullyrt er að styrkveitingar Rannsöknaráðs hafi skipt sköpum. Fleiri dæmi mætti nefna því af nógu er að taka, s.s. fisknasl, sem er samstarfsverkefni Fiskmars á Ólafsfirði, Iðntæknistofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiðnað- arins, nána samvinnu Háskólans og Lýsis h/f um vöruþróun á lýsis- afurðum og grunnrannsóknir þeim tengdar, rannsóknir á sviði fiskeldis og mjölvinnslu. Einnig eru ótalin verkefni sem tengjast langtíma stefnumótun og unnin eru að hluta til í Háskólanum. Má þar nefna verkefni á sviði fisk- veiðistjórnunar, mat á stofn- stærðum, reiknilíkön fyrir útgerð og vinnslu. Ég vil leyfa mér að halda því fram að Háskólinn og rannsóknastofnanir atvinnu- veganna hafi tengst beint eða óbeint flestum umfangsmeiri ný- sköpunarverkefnum sem unnin hafa verið hérlendis á undan- förnum árum. Raunhœf nýsköpun Síðustu ár hafa verið umskipta- tímabil í atvinnulífinu. Fyrirtæki í 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 18. janúar 1990 Athugasemd við Gunnar Karisson Mikið var ég hissa þegar ég sá að Gunnar Karlsson var að gera mér upp skoðanir í Þjóðviljanum 16. janúar sl. Nefnilega að ég skipi sagnfræðiverkum skör lægra en skáldverkum. Og þetta þykist hann lesa út úr orðum sem ég lét falla við blaðamann DV sem spurði mig hvort væri ekki erfitt að vega á sömu vog fræðirit og skáldrit. Svar mitt var á þá lund að það væri alltaf snúið að gera upp á milli bóka, jafnvel skáldverka innbyrðis og klykkti út með því að varðandi bók- menntaverðlaunin þá hlyti bók- menntalegt gildi verkanna að skera úr. Hvernig í dauðanum Gunnar les út úr þessu svari að hér sneiði ég að fræðiritum er mér hulið. Telur hann þá að fræðirit og bók- menntalegt gildi geti ekki farið saman? Nei, raunar fjallar grein hans í löngu máli um hið gagn- stæða.Af hverju er honum þá í mun að klína þessu viðhorfi á mig? Er hér einber vígagleði sem stjórnar pennanum? Listrænir fræðimenn eru hval- reki, en þeir mega þó ekki þurrka gersamlega af sér áminningu Ara um sannleiksskylduna. Pétur Gunnarsson öllum greinum hafa farið í gegn- um miklar þrengingar sem ekki er séð fyrir endann á. Þrátt fyrir þetta hafa fjölmörg fyrirtæki lagt stóraukna áherslu á þróunar- starfsemi. Vissulega hefur sú þróunarvinna að uppistöðu til verið vöruþróun og tæknivæðing fremur en langtíma rannsókna- starfsemi, en það er einmitt mun- urinn á útópíum og raunsærri framkvæmd; verkefnin verður að vinna stig af stigi. Röksemdir háskólamanna sem hafa andmælt stofnun HA eru mjög í anda þeirra sem ívar sjálf- ur setur fram í grein sinni. Ann- ars vegar aukið mikilvægi þver- faglegra rannsókna og hins vegar að þverfaglega vinnu verði að byggja á haldgóðri sérþekkingu á fjölmörgum sviðum. Rökin fyrir því að starfrækja ætti sjávarút- vegsnám við Háskóla íslands voru einmitt þau að sú aðstaða sem ívar vill setja upp á Akureyri væri þegar fyrir hendi við Há- skólann. Ég held að allir þeir sem þekkja til þess frumherjastarfs, sem unnið hefur verið á sviði líf- tækni undanfarin ár, geti verið sammála um að fásinna væri að endurtaka það þrekvirki í nafni byggðastefnu. Slíkt væri bæði sóun á fé og fyrirhöfn. Einnig sé ég lítinn tilgang með því að stofna sérstakt Rannsóknaráð fyrir landsbyggðina. Aftur á móti eru næg verkefni fyrir’hendi á öðrum sviðum. Nú er búið að stofna háskóla fyrir norðan og eins og ívar bend- ir á þá skapar það tækifæri á öðr- um áherslum. Staðsetningin gef- ur ákveðna möguleika, en raun- sæ atvinnustefna, með eða án suðvesturhornsins, hlýtur að byggja á samhæfingu þeirra krafta sem fámenn þjóð hefur yfir að ráða. Annað er einhvers konar nútíma útgáfa af helminga- skiptareglunni sálugu. í upplýs- ingasamfélaginu er staðsetning ekki hindrun fyrir haldgóðri sam- vinnu. Örn Jónsson er forstöðumaður Sjávarútvegsstofnunar Háskóla ís- lands

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.