Þjóðviljinn - 31.01.1990, Síða 2
FRETTIR
Fíkniefni
Atvinnuleysingjar fjölmennastir
Fíkniefnalögreglan lagði haldá62 vopnífyrra, munfleirienl988. Málum hefur heldur fœkkað
Útflutningur
Batnandi
samkeppnis-
staða
Atvinnuleysingjar og verka-
menn eru langstærstu hópar
þeirra sem komu við sögu hjá
fíkniefnalögreglunni á síðasta ári.
Heildarfjöldi grunaðra á árinu
var 439. Þar af voru atvinnu-
leysingjar 159 en verkamenn 126.
Þriðji stærsti hópurinn var nem-
endur, alls 29. Fjöldi grunaðra
var heldur minni en árið 1988, en
þá var hann 473. Hinir grunuðu
voru flestir á aldrinum 22-25 ára,
eða 100. Næst fjölmennastur var
aldurshópurinn 26-29 ára, eða
88. Fjöldi þeirra sem voru yfir 37
ára aldri var 42.
Málafjöldinn hjá fíkniefnalög-
reglunni í fyrra var 205, sem er 16
málum færra en árið á undan.
Lögreglan lagði hald á efni í 146
tilvikum. Við innflutning var lagt
hald á efni 29 sinnum en fíkniefn-
in komust í dreifingu 121 sinni.
Efni fundust á kærðum við hand-
töku í 153 tilvikum og í húsnæði
Skáís
Þriðjungur
óákveðinn
Ef kosið yrði núna til alþingis
mundi Sjálfstæðisflokkurinn fá
26,7% atkvæða, Framsókna-
rflokkurinn 9,6%, Alþýðubanda-
lagið 6,1%, Alþýðuflokkurinn
5,3%, Kvennalistnni 5% en aðrir
flokkar minna. Um 30,8% að-
spurðra voru óákveðin í sinni af-,
stöðu.
Þetta eru niðurstöður skoð-
anakönnunar sem Skáís gerði en
alls voru þátttakendur 832. Sé
hins vegar tekið mið af þeim sem
tóku afstöðu í könnuninni fær
Sjálfstæðisflokkurinn 49,7% at-
kvæða, Framsókn 17,9%, Al-
þýðubandalagið 11,3%, Alþýðu-
flokkurinn 9,9% og Kvennalisti-
inn 9,3%. Aðrir flokkar mun
minna.
Ennfremur var spurt um stuðn-
ing við ríkisstjórnina. Nei sögðu
55,6%, jásögðu 27,7% en 15,3%
voru óáicveðin. Af þeim sem tóku
afstöðu sögðu 66,8% nei og
33,2% já. -grh
kærðra í 73 tilvikum. Fíkniefni
voru tekin af 45 flugfarþegum,
þrisvar sinnum í vörusendingum,
sjö sinnum á tollpóststofu og
innvortis hjá tveimur einstak-
lingum.
Sautján voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald vegna fíkniefna-
misferlis á síðasta ári í samtals
361 dag, sem er ríflega 40 dögum
fleira en árið á undan.
Vopnafjöldinn sem fíkniefna-
lögreglan lagði hald á í fyrra var
heldur meiri en árið á undan.
r
Eg hef ekki komið heim í viku
frá því óveðurskaflinn byrj-
aði. Enda hef ég kannski lítið
þangað að sækja því vegna snjó-
flóðahættu er mér meinað að fara
í íbúðina mína við Ólafstún sem
ég keypti fyrir fjórum árum,
sagði Jón Fr. Jónsson flugvallar-
vörður á Flateyri.
Byssufjöldinn var hinn sami,
fjórar, en hnífum fjölgaði úr 28 í
58. Lagt var hald á 199 skot í
fyrra, en 665 árið 1988. Lögregl-
an hafði einnig nokkurt fé upp úr
krafsinu, alls 385 þúsund krónur.
Fíkniefnalögreglan fram-
kvæmdi 141 húsrannsókn, þar af
88 þar sem ekki þurfti að leita
eftir úrskurði dómstóla.
Röntgenrannsóknir voru 25, þar
af aðeins ein þar sem viðkomandi
gekkst ekki sjálfviljugur undir
hana og leita þurfti úrskurðar.
heim
Enn hœttuástand
í gær geisaði enn hið versta
veður í Onundarfirði og seinni
partinn í gær fór rafmagnið af
þorpinu. Svipað veður var þá
einnig á ísafirði; þreifandi bylur
og skyggni lítið sem ekkert. Síð-
ast var flogið til Flateyrar á
sunnudag en þar á undan 22. jan-
úar.
Athygli vekur í yfirliti frá fíkni-
efnalögreglunni að sprautunotk-
un virðist hafa minnkað milli ára.
í fyrra komust 19 manns í kast við
lögregluna vegna sprautunota en
árið á undan var fjöldinn 30.
Af öllum þeim sem fíkniefna-
lögreglan hafði afskipti af 1989
höfðu 242 komist í kast við hana
áður, en 197 manns í fyrsta skipti.
Síðarnefndi hópurinn var heldur
fjölmennari en 1988, en sá fyrr-
nefndi mun fámennari.
í viku
Eins og gefur að skilja hafa línu-
bátar lítt getað róið og togarinn
Gyllir, sem og aðrir togarar á
norðanverðum Vestfjörðum,
hefur lítið getað verið við veiðar
sökum óveðurs. Því hefur lítið
verið að gera í fiskvinnu á svæð-
inu.
-grh
Seðlabankinn.Meðalverð sjáv-
arafurða erlendis komið upp
úr þeirri lægð sem það var í
árið!988. Meðalgengi er-
lendra gjaldmiðla hækkaði á
síðasta ári um tæplega 31%
sem jafngildir 23,6% gengis-
lækkun krónunnar
Umtalsverð raunlækkun krón-
unnar á síðasta ári ásamt veru-
legri gengislækkun hennar miðað
við erlenda gjaldmiðla leiddi til
þess að samkeppnisstaða útflutn-
ingsgreina batnaði til muna.
Þannig er meðalverð sjávaraf-
urða erlendis að komast á svipað
stig og í ársbyrjun 1987 og er þar
með komið úr þeirri lægð sem
það var á árinu 1988.
Þetta kemur fram í Hagtölum
mánaðarins fyrir janúar sem
Hagfræðideild Seðlabanka ís-
lands gefur út. Þar kemur fram að
meðalgengi erlendra gjaldmiðla
samkvæmt viðskiptavog hækkaði
um tæplega 31% á árinu 1989 sem
jafngildir 23,6% gengislækkun
krónunnar. Til samanburðar má
nefna að á árinu 1988 féll gengi
krónunnar um 17,9%, árið 1987
var gengisfallið 1,9% og 5,4%
árið 1986. Á milli áranna 1988 og
1989 féll meðalgengi um 20%
samanborið við um 18% gengis-
fall frá 1987 til 1988.
Vísitala fyrir raungengi krón-
unnar er mælikvarði sem sýnir af-
stöðu verðlags eða launakostnað-
ar hér á landi og í helstu viðskipt-
alöndunum mælt í sömu mynt.
Verðlag erlendrar framleiðslu
hækkaði í krónum talið um tæp-
lega 37% á árinu 1989, það er
margfeldi gengisbreytinga og er-
lendrar verðbólgu, samanborið
við um 24% hækkun á framfærs-
luvísitölu. Þetta jafngildir því, að
mati Hagfræðideildar Seðla-
banka að raungengi krónunnar á
mælikvarða verðlags hafi fallið
um 9,5% á síðasta ári. Á sama
hátt má reikna raungengi á mæl-
ikvarða launakostnaðar og er
niðurstaðan þá að raungengi
krónunnar hafi lækkað um tæp-
lega 18% á árinu 1989. Um-
skiptin eru enn meiri þegar litið
er á hlutfallslegan launakostnað
og er áætlað að raungengi á þenn-
an mælikvarða hafi verið tæplega
20% lægra í árslok 1989 en að
jafnaði á árinu 1988. -grh
-gb
Græna húsið rifið. Búið er að rífa húsið við Tjarnargötu 5b sem gekk undir nafninu Græna húsið en þar
höfðu AA-samtökin aðstöðu til fundahalda. Mynd: Jim Smart.
Flateyri
Brautskráning á Akranesi
47 nemendur fengu burtfararskírteini sín afhent á svonefndri Þorláks-
vöku sem venja er að halda í skólanum í lok haustannar fyrir jól. Af
þessum nemendum sem burtskráðust í desember voru 34 stúdentar, 9
luku prófum af tæknisviði og 4 luku verslunarprófi. 10 nemendur hlutu
viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur. Bestum árangri stúdenta
náðu Einar Gunnar Einarsson, Ingi Steinar Ingason og Jón Tryggvi
Njarðarson, allir af eðlisfræðibraut.
150 íslenskir
fjárhundar
Aðeins eru skráðir 150 íslenskir
fjárhundar á landinu öllu, segir í
fréttatilkynningu frá Hundavina-
félagi íslands, hinsvegar mun ís-
lenski hundurinn vera kominn í
ræktun víða um lönd þar sem
hann nýtur mikilla vinsælda og
virðingar vegna fjölhæfni sinnar.
í Noregi og Danmörku fjölgar ís-
lenskum fjárhundum mun meira
en hér á landi. S1 sunnudag var
haldin ráðstefna um ræktun ís-
lenska fjárhundsins á vegum
ræktunardeildar hans í Hunda-
vinafélaginu. Þar var einkum
fjallað um uppruna hundsins og
aðferðir við ræktun hans og
vandamál í ræktuninni. „íslenski
fjárhundurinn er þjóðargersemi
sem ekki má glatast og það er
skylda allrar þjóðarinnar að
varðveita hann til frambúðar
með aukinni áherslu á ræktunar-
starfinu og bættum aðbúnaði ís-
lenska fjárhundsins í landinu,"
segir í fréttatilkynningunni.
Stjórnmálasam-
band við
Maldiveyjar
Ríkisstjórnir íslands og Maldiv-
eyja hafa tekið upp stjórnmála-
samband. Ekki hefrir verið
ákveðið hvenær skipst verður á
sendiherrum.
Skógræktarmenn
segja frá Sovétferð
Laugardaginn 3. febrúar verða
þeir Sigurður Blöndal fyrrver-
andi skógræktarstjóri ríkisins og
Arnór Snorrason skógfræðingur
áætlunarfulltrúi Skógræktar
rfkisins gestir MÍR í félagsheimil-
inu Vatnsstíg 10, kl. 14 síðdegis..
Þar munu þeir greina frá kynnis-
för til Sovétríkjanna sem þeir
fóru í sl. sumar. Þeir komu m.a.
til borgarinnar Arkangelsk við
Hvítahaf í norðurhluta Rússlands
og skoðuðu tvö skógræktarsvæði
þar í héraðinu. Þeir munu segja
frá ferð sinni, heimsókn á skógar-
svæðin og viðræðum við sovéska
kollega og sýna jafnframt lit-
skyggnur teknar í ferðalaginu.
Kaffiveitingar á boðstólum.
Anglia endurvakin
Starfsemi félagsins Anglia hefur
verið endurvakin, en fyrsti fund-
ur félagsins var sl. mánudags-
kvöld. Breski sendiherrann, Mr.
Richard Best kom á fundinn en
aðal ræðumaður kvöldsins var
prófessor Alan Boucher, fyrrum
formaður Anglia. Breski sendi-
herrann fagnaði endurvakningu
félagsins, en tilgangur þess er að
viðhalda og efla bresk-íslensk
tengsl.
Sigrún ekki með
Þjóðviljanum hefur borist bréf
frá dr. Sigrúnu Stefánsdóttur og
Gísla Reynissyni vegna auglýs-
ingar þar sem Sigrún er sögð
skólastjóri Fjölmiðlaskóla Is-
lands. Það mun ekki rétt vera
heldur hefur hún ákveðið að hafa
engin afskipti af skólanum. Hún
mun hafa ætlað að vera forstöðu-
maður skólans í byrjun en vegna
mikilla anna sá hún sér það ekki
fært. Þá var hún ráðin ráðgjafi til
skólans, en áður hafði hún unnið
að drögum að uppbyggingu
námsins í tímavinnu. Síðan segir
orðrétt: „Vegna þeirra óþæginda
sem Sigrún Stefánsdóttir hefur
orðið fyrir vegna þeirra villandi
upplýsinga sem komu fram í fyrr-
greindum auglýsingum hefur hún
ákveðið að hætta sem ráðgjafi
skólans og kennari."
2 SfÐA - ÞJÖÐVILJINN Miðvikudagur 31. janúar 1990