Þjóðviljinn - 31.01.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 31.01.1990, Blaðsíða 6
_________________ERLENDAR FRETTIR______ Bandaríkjaforseti Óverulegur hemiðurskurður Forystumenn demókrata í bandaríska þinginu hafa látið í fjós vonbrigði vegna þess hve fjárlagafrumvarp Bush Banda- ríkjaforseta gerir ráð fyrir iitlum niðurskurði til hermála. Samkvæmt frumvarpinu, sem var kynnt á mánudag, er gert ráð fyrir að Bandaríkjamenn verji 306,9 miljörðum dollara til her- mála. Það er 2,5 prósent sam- dráttur frá fyrra ári þegar tekið hefur verið tillit til verðbólgu. Margir bandarískir þingmenn segja óeðlilegt að draga ekki meira úr hernaðarútgjöldum í ljósi breytinganna í Austur- Evrópu og minnkandi spennu í heiminum. Jim Sasser demókr- ati, sem er formaður fjárlaga- nefndar öldungadeildarinnar, Bangladesh Skotvopn í skólatöskum Kazi Zafar Ahmed forsætis- ráðherra Bangladesh segir að skammbyssur og hríðskotarifflar hafi komið í stað skriffæra og bóka í háskólum landsins. Ráðherrann sagði í ræðu á Bangladeshþingi í fyrrakvöld að stúdentar skiptust ekki iengur á skoðunum með skynsamlegum rökum heldur með ruddaskap og valdbeitingu. Hann gagnrýndi stjórnmálaflokka í Bangladesh fyrir að reyna ekki að koma í veg fýrir ofbeldið í háskólum og sak- aði þá um að ýta undir það. Nærri tvö hundruð manns hafa fallið í bardögum milii andstæðra stjórnmálaafla í háskólum í Bangladesh á tveimur árum. Þar af hafa tíu látið lífið í Dhaka- háskóla sem eitt sinn var ein virt- asta menntastofnun Asíu. Þá var skólinn gjarnan kallaður Oxford austursins. Reuter/rb segir að Bush hafi borið á borð kaldastríðsleifar frá Reagan for- vera sínum. Samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu á að auka útgjöld til kjarn- orkuvígbúnaðar og stjörnustríðs- áætlunarinnar sem felst í því að koma upp geimvörnum gegn kjarnorkustríði. Framlög til hefðbundins herafla minnka hins vegar nokkuð og lagt til að 69 bandarískum herstöðvum verði lokað eða umsvif þeirra minnkuð mikið á næstu árum, þar af 14 erlendis. Herstöð Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli er ekki meðal þessara fjórtán herstöðva. En umdeild herstöð þeirra í Greenham Common er ein þrig- gja bandarískra herstöðva sem lagðar verða niður á Bretlandi. Þar hafa kjarnorkuvopn verið geymd í aðeins hundrað kfló- metra fjarlægð frá Lundúnum og hafa friðarsinnar árum saman barist fyrir því að herstöðinni yrði iokað. Sovéski sendiherrann í Was- hington hefur látið í ljós von- brigði yfir hvað útgjöld til her- mála minnka lítið samkvæmt frumvarpinu. Hann kallaði það sóun á fjármunum en sagði að Sovétmenn myndu samt halda ótrauðir áfram að skera niður eigin útgjöld hermála. Reuter/rb Forystumenn bandarískra demó- krata saka Bush Bandaríkjafor- seta um að bera kaldastríðsleifar frá Reagan á borð. Gorbatsjov Þýsku ríkin sameinist Gorbatsjov Sovétleiðtogi sagði í gær að hann efaðist ekki um ágæti þeirrar hugmyndar að þýsku ríkin yrðu sameinuð. Hins- vegar yrði að nálgast þetta vanda- mál á rökréttan hátt og vega og meta allar kringumstæður í Evr- ópu og í heiminum. Gorbatsjov sagði þetta á fundi Chile Ævintýralegt fjöldastrok Stór hópur vinstrisinnaðra skæruliða slapp úr fangelsi í Sant- iago í gær. Alls sluppu 49 fangar í gegnum áttatíu metra löng göng sem þeir höfðu grafið út úr fangelsinu. Upphaflega var tilkynnt að fimmtíu fangar hefðu sloppið en síðar fannst einn þeirra fastur í göngunum. Fangamir voru allir nema einn með austur-þýskum blaða- mönnum í Moskvu áður en hann ræddi við Hans Modrow forsætis- ráðherra Austur-Þýskalands þar í gær. Modrow sagði eftir viðræðurn- ar við Gorbatsjov að raunhæfur möguleiki væri á sameiningu þýsku ríkjanna. En hún væri háð félagar í Föðurlandsfylkingu Manuels Rodriguez sem árum saman hélt uppi skæruhernaði gegn herforingjastjórninni í Chile. Þeim er gefið að sök að hafa átt aðild að banatilræði við Pinochet herforingja árið 1986. Reuter/rb Sovéthamborgarar McDonald‘s í Moskvu Skyndibitahringurinn McDon- ald‘s opnar í dag fyrsta veitinga- stað sinn í Sovétríkjunum. Veit- ingastaðurinn, sem er í Moskvu, stuðningi annarra Evrópuþjóða og því erfitt að setja ákveðin tímamörk. Þetta er breyting frá fyrri af- stöðu Modrows. Aður var hann talsmaður þess að þýsku ríkin færðust nær hvort öðru með auknu samstarfi en væra áfram tvö aðskilin ríki. Reuter/rb verður jafnframt stærsta McDon- ald‘s veitingahús í heimi. í veitingahúsinu era sæti fyrir sjö hundrað manns. Það er rekið af sameignarfélagi borgaryfir- valda í Moskvu með alþjóðafyr- irtækinu McDonaid's. Allt hrá- efni verður innlent en forsvars- menn fyrirtækisins ábyrgjast að sovéskir hamborgarar verði jafngómsætir og bandarískir. Hamborgaramáltíðin kostar fimm rúblur sem er talið nokkuð sanngjamt miðað við að meðal- laun í Moskvu era um 230 rúblur á mánuði. Reuter/rb F-16 Ósýnilegar omistuþotur Bandarískar orrustuþotur af gerðinni F-16 hafa verið útbúnar felutækni þannig að þær hverfa því sem næst af ratsjá að sögn breska hermálatímaritsins Jane‘s Defence Weekly. í nýjasta tölublaði tímaritsins eru birtar myndir af orrastuþot- unum með gylltum flugmanns- klefum sem ragla ratsjárgeisla. Efni sem borin era á vélarnar era sögð minnka ratsjárendurvarp þeirra um fjörutíu prósent. Tímaritið segir að svo virðist sem allar F-16 orrastuþotur Bandaríkjamanna hafi verið endurnýjaðar með þessari feiu- tækni og sömuleiðis 150 F-16 þot- ur sem Belgar eiga. Ekki er vitað um vélar annarra þjóða. F-16 þotur eru uppistaðan í' flugflota margra bandamanna Bandaríkjamanna, þar á meðal ísraelsmanna. Felutæknin gerir loftvarnar- kerfi margra ríkja óvirk vegna þess að þau byggja á ratsjár- tækni. Bandaríkjamenn hafa áður tekið í notkun F-117 feluorr- ustuþotur sem vora notaðar í innrásinni í Panama í desember. Og nýjar B-2 sprengjuflugvélar þeirra era líka því sem næst ósýnilegar á ratsjám. Reuter/rb A ustur-Þýskaland Honecker frjáls Erich Honecker fyrrverandi ríkisleiðtoga í Austur-Þýskalandi var sleppt lausum úr varðhaldi í gær eftir að borgardómstóllinn í Austur-Berlín skar úr um að hann væri of veikburða til að þola fangavist. Saksóknari hafði krafist þess að Honecker yrði fangelsaður þar til réttarhöld yfir honum og þremur öðram fyrrverandi leið- togum kommúnista hefjast í mars. Þeir eru sakaðir um landráð með því að hafa fótum- troðið mannréttindi, sóað al- mannafé og hylmt yfir kosninga- svik. Reuter/rb I MINNING Halldór Karisson trésmíðameistari, frá Seyðisfirði F. 23. september 1930 - D. 22. janúar 1990 Kveðja frá Seyðfirðingafé- laginu í Reykjavík. Hver harmafregnin af annarri breytir um þessar mundir skammdegisrökkri í hryggðar- sorta því að hinn slyngi sláttu- maður reiðir nú hart og ótt til höggs. Mánuði eftir lát Gríms, Helgasonar gengur annar mætur Seyðfirðingur fyrir ætternisstapa, Halldór Karlsson trésmíðameist- ari aðeins 59 ára að aldri. Halldór fæddist á Seyðisfirði 3. september 1930, sonur hjónanna Kristínar Halldórsdóttur og Karls Sveinssonar verkamanns. Hann ólst upp í kreppunni miklu sem reið yfir vestrænan heim á fjórða áratug þessarar aldar. Líf manna á þeim tíma var enginn dans á rósum heldur hörð barátta fyrir daglegu viðurværi, baráttan um brauðið. Atvinna var þá mun- aður eins og Kristján heitinn Ing- ólfsson komst að orði í minning- argrein um Kristínu móður Hall- dórs 1970. En þrátt fyrir erfiða tíma tókst foreldrum Halldórs með þolgæði, nýtni og sparsemi að koma börnum sínum fimm vel á legg. Halldór hleypti heimdragan- um ungur að árum og hélt til Reykjavíkur. Þar lærði hann tré- smíði og kom á fót fyrirtæki að námi loknu, trésmíðaverkstæði í Reykjavík. Hann byrjaði með tvær hendur tómar en starfsemin dafnaði vel undir öruggri stjórn eigandans því einstök atorka og ráðdeild réð för í rekstri og upp- byggingu fyrirtækisins. Halldór gerði sérlega vel við starfsmenn sína, bar velferð þeirra mjög fyrir brjósti, og það kunnu þeir að meta. Halldór var kvæntur mikilli dugnaðar- og ágætiskonu, Fann- eyju Sigurjónsdóttur frá Kópa- reykjum í Reykholtsdal, sem lifir mann sinn. Þau kynntust í Reykjavík, felldu hugi samán, og gengu í hjónaband árið 1954. Haft var á orði hve óvenju glæsi- leg hjónaefnin væru, há og grönn bæði, fríð sýnum og fönguleg. Þau hjón voru barnrík eins og sagt var stundum. Þau eignuðust sjö mannvænleg börn sem öll era á lífi. Nærri má geta að það útheimti mikinn dugnað og ómælda þolin- mæði að ala upp svo mörg börn og koma þeim til manns. En þau hjón voru samhent og samstiga í uppeldinu sem og öllu öðra. Heimili þeirra við Fögra- brekku 15 og síðar Vallhólma 16 í Kópavogi er orðlagt fyrir ein- staka gestrisni og myndarskap. Það var sannarlega ekki í kot vís- að að koma til þeirra hjóna þar sem veggir era þaktir listaverkum eftir nafntoguðustu málara þjóð- arinnar. En undanfarin 20 ár hef- ur Halldór safnað miklum fjölda málverka af smekkvísi og ein- stakri elju. Hann var listrænn og listelskur og lét sig dreyma um að reka myndlistarsal á efri árum. í þessu söfnunarstarfi sínu reyndist hann ófáum listamönnum stoð og stytta enda orðlagður fyrir örlæti og rausn. Römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til segir mál- tækið. Það á vel við um Halldór heitinn Karlsson. Hann var mikill og góður Seyðfirðingur er sýndi hug sinn til átthaganna ósjaldan í verki. Hann var t.d. áhugamaður um skák og var sjálfur skákmað- ur góður. Hann sendi eitt sinn Seyðisfjarðarskóla töfl og skák- klukkur svo og fleiri skólum á Austurlandi. Hann gaf Seyðfirðingafélaginu stórgjafir. Mér er það minnis- stætt þegar við Seyðfirðingar hér syðra samþykktum á félagsfundi í Domus Medica 16. nóvember 1986 að kaupa húseignina Skóga á Seyðisfirði. Þá kom Halldór til mín og hvíslaði að mér: Ég ætla að gefa eldhúsinnréttingu í húsið. Þarna var Halldór lifandi kom- inn. Hann kvaddi sér ekki hljóðs og lýsti þessu yfir með pomp og pragt heldur hvíslaði hann orðun- um í eyra mér. Slíkt var látleysi þessa öðlings og lítillæti hjartans. Höfðingslund og hógværð ein- kenndu hann alla tíð. Og hann lét ekki þar við sitja að gefa innréttinguna heldur keypti 15 gjafabréf, fleiri bréf en nokkur annar einstaklingur í félaginu og gerðu þó margir vel í því efni. Við öfluðum fjár til húsakaupanna með sölu slíkra bréfa. Og enn kom hann mér á óvart er hann sendi innréttinguna austur og lét setja hana í húsið hvort tveggja á sinn kostnað og tilkynnti mér svo eins og í framhjáhlaupi að hann ætlaði að gefa félaginu myndir í húsið. Halldór var stór í sniðum. Ógleymanlegur öllum er kynnt- ust honum. Við ótímabært fráfall þessa öðlings sakna margir vinar og velgerðarmanns, ekki síst Seyðfirðingar nær og fjær. Hve- nær kemur annar slíkur? En sárastur er söknuður eigin- konu, barna og barnabarna. Ég sendi þeim innilegar samúðar- kveðjur. Á góðum stundum varð Hall- dóri tíðrætt um átthagana austur á Seyðisfirði. Hvergi birtist hon- um dýrð sköpunarverksins betur en í einstæðri náttúrafegurð fjarðarins þar sem tignarleg fjöll- in, hreggbarin í sjó fram á vetrum og græn upp í miðjar hlíðar á sumrum, standa vörð um íbúana ár og síð. Nú er hann horfinn í dýrð ann- ars heims og nýtur þar hvfldar og næðisstunda hjá því almætti sem öllu ræður. Ingólfur A. Þorkelsson 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 31. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.