Þjóðviljinn - 31.01.1990, Qupperneq 11
LESANDI
í því landi búa 400.000
konur og 1.200.000 karlar
Ég er að lesa „Svo kvað Tóm-
as“ viðtalsbók sem Matthías Jo-
hannessen skrifaði með Tómasi
Guðmundssyni, og hef gaman af.
Þar fyrir utan glugga ég í stóra
sögu-atlasinn sem Times gaf út.
Þar eru saman komin bæði
fróðleg kort og góður texti í veg-
legri bók.
Hvað lestu helst í rúminu á
kvöldin?
Ég les mjög sjaldan í rúminu.
Mér finnst þægilegast að lesa sitj-
andi við borð.
Hver er uppáhaldsbarnabókin
þín?
Maður las yfirleitt allt sem
maður komst í, en ég var mjög
hrifinn af Lfnu langsokk og
myndskreyttum ævintýrum H. C.
Andersens sem Setberg gaf út.
Það voru 2-3 ævintýri í hverri
bók, og ég á einar fjórar svona
bækur, sem ég kíki reyndar enn-
þá í.
Hvers minnistu helst úr Bib-
líunni?
Það er ýmislegt fallegt í þeirri
bók og sumt ljótt. Ég man ekki í
svipinn eftir neinu sem ég tek
fram yfir annað. En þegar ég var
strákur las ég í 3. Mósebók, því
það var það eina sem ég fann þar
sem skrifað var um homma. Nú
þarf enginn að lesa Biblíuna á
þennan hátt, vegna þess að tím-
arnir eru breyttir og auðveldara
að fá staðfestingu á því að fleiri
eru til.
Segðu mér af ferðum þínum í
leik- og kvikmyndahús í vetur.
Ég er búinn að sjá bæði Ljós
heimsins og Höll sumarlandsins í
Borgarleikhúsinu og var ánægður
með báðar sýningarnar. Að vísu
þurftum við að sitja uppi í litla
salnum og þótti það miður. Mað-
ur sá ekki allt sem fram fór á svið-
inu og þar af leiðandi var erfitt að
fylgjast með á stundum. Eina
myndin sem ég hef séð í
kvikmyndahúsunum er Pelle
sigurvegari.
Fylgistu með einhverjum
ákveðnum dagskrárliðum f út-
varpi og sjónvarpi?
Ef ég kem því við hlusta ég á
Dagskrá á Rás 2 og fylgist með
fréttum í útvarpi. Er eiginlega al-
veg ónæmur fyrir sjónvarpi.
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
Nei, ég held að ég hafi kosið
fimm mismunandi flokka.
Ertu ánægður með frammi-
stöðu þess flokks sem þú kaust
síðast?
Nei, eiginlega ekki. Ég sé samt
ekki eftir því, hann hefur gert
gagn og er listi sem á rétt á sér. En
ég býst eins við að ég kjósi hann
ekki aftur.
Er jafnaðarmönnum að fjölga
á Islandi, eða er fólk loks að átta
sig?
Islendingar eru upp til hópa
jafnaðarmenn, sama í hvaða
flokki þeir eru. Þeir vilja borga
skatta og fá fjölbreytta þjónustu
fyrir.
Eru til hugrakkir stjórnmála-
menn og -konur?
Já, þeir eru til.
Viltu nafngreina þá?
Nei.
Er landið okkar varið land eða
hernumið?
Landið okkar er náttúrlega
hluti af varnarkerfi Banda-
ríkjanna, og þeir myndu kannski
þess vegna verja okkur. Að því
leyti erum við varið land. En þeir
færu ekki héðan þótt við skipuð-
um þeim það. Að því leyti erum
við hernumið land.
Nú virðist sem íbúar austan-
tjaldsríkjanna fái aukin
mannréttindi. Hefur fólk á Vest-
urlöndum fullnægjandi mann-
réttindi?
Nei, það finnst mér ekki, og
það sem skortir mest á er að fólk á
Vesturlöndum átti sig á að það
hefur ekki full mannréttindi. Ég
myndi vilja sjá að fólk flykktist í
félög um ýmis mannréttindamál-
efni, það er af svo mörgu að taka.
Þannig er hægt að opna augu al-
mennings og fá fylgi við úrbætur.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Engan sem ég man eftir.
Hvaða eiginleika þinn flnnst
þér skrítnast að aðrir kunni ekki
að meta?
Hvað ég get verið fljótur að
taka ákvarðanir.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
Mér finnst allur matur góður.
Held reyndar alltaf upp á rjúpur
og silung. Það eina sem ég borða
lítið af eru kökur, og ég er ekki
hrifinn af sætum mat.
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á íslandi?
Ég gæti hugsað mér að prófa að
búa á meginlandi Evrópu, frá
Frakklandi norður um til
Vestur-Þýskalands. Þar er stutt í
alla hluti og samt ekki svo ólíkt
því að vera á íslandi.
Hvernig flnnst þér þægilegast
að ferðast?
Ég ferðast mikið á hjóli sem er
kannski ekki þægilegasti ferða-
mátinn. Annars slaka ég alltaf vel
á hvort sem ég ferðast með flug -
vél, lest eða skipi. Líkar sennilega
síst að ferðast í einkabíl.
Hvert langar þig helst til að
ferðast?
Ég hefði ekkert á móti því að
ferðast aftur um Ítalíu og Spán og
svo langar mig dálítið til Suður-
Ameríku. En þá þyrfti ég að eiga
nóg af peningum og hafa góðan
tíma, því ég myndi vilja fara í
slíka ferð á eigin vegum. Ég ferð-
aðist í Asíu fyrir rúmu ári og það
var fróðleg ferð. Á leið okkar
austur komum við við f Samein-
uðu Arabafurstadæmunum og
fyrir Hagstofumann er það
merkilegt land að því leyti, að þar
búa 400.000 konur en aftur á móti
1.200.000 karlar. Umfram-
mennirnir eru sem sagt
farandverkamenn frá Pakistan.
Indlandi, íran og fleiri löndum. I
Víetnam urðum við aftur á móti
varir við það, sem með réttu kall-
ast óðaverðbólga. Um áramótin
‘87-‘88 kostaði dollarinn 80 dong,
en þegar við vorum þarna á ferð í
nóvember ‘88 kostaði dollarinn
aftur á móti 3.600 dong. Þegar ég
ætlaði að skipta 50 dollurum í
anddyri hótelsins, svona til að
hafa vasapeninga, þurfti stúlkan
hreinlega að setjast niður; þetta
var sama upphæð og hún hafði í
árslaun.
Hvaða bresti landans áttu erf-
iðast með að þola?
Þröngsýni og hugsunarleysi.
En hvaða kosti íslendinga
metur þú mest?
Þegar á reynir eru þeir mjög
hjálpsamir.
Hverju vildir þú breyta í ís-
lensku þjóðfélagi?
Auka opinbera umræðu um
þjóðmálin og hún ætti ekki að
vera tengd flokkapólitík. Við
höfum dregist aftur úr nágranna-
löndunum á ýmsum sviðum, eða
aldrei fylgt þeim, og ef við viljum
ná þeim er aukin þjóðmála-
umræða ein af forsendunum.
Húsnæðismál og ýmis réttinda-
mál til dæmis eru í lamasessi, og
ef fólk á að vilja búa hér í framtíð-
inni verður að koma þeim í betra
horf.
Hvaða spurningu hef ég
gleymt?
Ég veit það ekki, en þú mátt
spyrja mig seinna þegar þú manst
eftir henni.
Guðrún
VIKUNNAR
Hvað ertu að gera núna,
Guðni?
Ég vinn á Hagstofu íslands við
að búa til tölur sem aðrir geta
síðan notað á ýmsan hátt. Eins og
er erum við að vinna úr mann-
fjöldatölum ársins 1989. Einnig
er að hefjast undirbúningur fyrir
kosningar í vor. Það þarf að búa
til tölur í sambandi við þær, bæði
á undan og eftir.
Hvað varstu að gera fyrir 10
árum?
Vinna við það sama. Sjálfur
var ég að undirbúa ferð til Spánar
og Hollands sem ég fór í mars það
ár.
Hvað gerirðu helst í frístund-
um?
Ég hjóla mikið og syndi, svo les
ég talsvert. Yfirleitt er það útlent
efni sem ég les, bæði tímarit og
skáldskapur.
Segðu mér frá bókinni sem þú
ert að lesa núna.
Guðni Baldursson
deildarstjóri. Mynd: Jim Smart
þlÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Mestallur verkalýður íslands býr
við skort. Samt þröngva valdhaf-
arnir enn kosti hans - eins og nú
meðkjöthækkuninni. Einaráðið
gegn þessari sívaxandi dýrtíð er
að verkalýðsfélögin brjóti
kauphækkunarbannið með verk-
falli. Hitler ræðst heiftarlega á
Breta. Ræða hans í gær kom er-
lendis mjög á óvart. Sovétflu-
gvélargerafjölda loftárása á her-
stöðvar Finna.
I DAG
30. janúar
miðvikudagur. 30. dagur ársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl. 10.11
-sólarlag kl. 17.12.
Viðburðir
Fyrsta útvarpssendingin á ís-
landi 1926. Verkamannafélagið
Farsæll á Hofsósi stofnað árið
1934. Flugvélin Glitfaxi ferst á
leið f rá Vestmannaeyjum árið
1951.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöa vikuna
26. jan.-1. febr. 1990 er í Lyfjabergi og
Ingólfs Apóteki.
Fyrrnefnda apótekið er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Siðarnefnda apótekiö er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliöa hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
' Reykjavik sími
Kópavogur..............sími
Seltj.nes..............sími
Hafnarfj...............sími
Garðabær...............sími
Slökkviliö og sjúkrabílar:
Reykjavík..............sími
Kópavogur..............slmi
Seltj.nes..............sími
Hafnarfj...............sími
Garöabær...............simi
1 11 66
4 12 00
1 84 55
5 11 66
5 11 66
1 11 00
1 11 00
1 11 00
5 11 00
5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráöleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sim-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eöa ná ekki til hans. Landspit-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akurey ri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Kefíavik: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
v 1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknaqtímar: Landspitalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðinvið
Barónsstíg opin alla daga 1 b-16 og
18.30-19.30. Landakotsspitali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en f oreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítall Hafnarfiröi:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spitallnn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. SjúkrahúsAkraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alladaga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf tyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagið Álaridi 13. Opið virka daga frá
kl. 8-17. Síminn er 688620.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu3.Opiðþriðjudagakl.20-22, ;
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22.
sími21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðiö hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500,símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa veriö ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun
Samtökin ’78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
■23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bilanavakt rafmagns- og hiíaveitu: s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími
’1260allavirkadaga kl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, erveitt i síma 11012 millikl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opiðhús” krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða ogsjúka
og aðstandendurþeirra. Hringiðísíma91-
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
30. jan. 1990
kl. 9.15.
Sala
Bandarikjadollar.............. 60.17000
Sterlingspund.............. 101.35900
Kanadadollar.................. 50,68000
Dönsk króna.................... 9.30700
Norskkróna..................... 9.29840
Sænsk króna.................... 9.84780
Finnsktmark................... 15.26190
Franskurfranki................ 10.59140
Belgískur franki............... 1.71950
Svissneskurfranki............. 40.66910
Hollenskt gyllini............. 31.92470
! Vesturþýskt mark............. 35.97610
j Itölsklira.................... 0.04835
Austurriskursch................ 5.11040
Portúg. Escudo................. 0.40850
Spánskurpeseti................. 0.55580
Japansktyen.................... 0.41976
Irsktpund..................... 95.26400
Hafirðu
smakkað vúi
- láttu þér þá AUDREI
detta í hug
að keyra!
IFERÐAR
Miðvikudagur 31. janúar 1990 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11