Þjóðviljinn - 06.03.1990, Síða 1

Þjóðviljinn - 06.03.1990, Síða 1
Þriðjudagur 6. mars 1990 44. tölublað 55. árgangur. Kjaramál Allt fast í álverinu * _____________________ Agreiningurumjólauppbótogfleira.Enginnfundurboðaður.Enn ósamið við sjómenn, starfsfólk í flugiog stóriðju Samningaviðræður starfsfólks og stjórnenda álversins í Straumsvík eru í gangi en miðar lítið. I fyrradag var haldinn ár- angurslaus samningafundur en nýr fundur hefur ekki verið boð- aður. Sigurður T. Sigurðsson for- maður Verkamannafélagsins Flugeftirlits- nefnd Nýjung í neytenda- málum Hefur eftirlit með því aðflugfélög á sérleyfis- leiðum uppfylli þœr þjónustukröfur sem þeim ber að inna af hendi „Þetta er í fyrsta skipti sem nefnd sem þessi er sett á stofn hér- lendis og trúlega er engin sambærileg nefnd að störfum i nálægum löndum. Verksvið hennar er að hafa eftiriit með þjónustu sérleyfishafa, bæði í innanlands- sem og í millilanda- flugi og taka til meðferðar rök- studda gagnrýni frá neytendum,“ sagði Halldór Kristjánsson í sam- gönguráðuneytinu. Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra ákvað að setja á fót þessa nefnd samkvæmt reglu- gerð seint á síðasta ári og var það í tengslum við úthlutun sérleyfa til einstakra flugfélaga. Samkvæmt reglugerðinni hefur nefndin heimild, ef ástæða þykir til, að áminna flugfélag sem ekki upp- fyllir þá þjónustu sem því ber að inna af hendi. Sömuleiðis að leggja það til við ráðherra að flugfélag verði svipt sérleyfinu ef sýnt þykir að brot þess á þjónust- unni sé það alvarlegt að ekki verði hjá því komist. Þá mun nefndin einnig athuga flugfar- gjöld og hafa eftirlit með því að þar sé enginn maðkur í mysunni. Starfssvið nefndarinnar hefur þegar verið kynnt fyrir flug- rekstraraðilum, sveitarstjórnum og Neytendasamtökunum en fram til þessa hefur mestur tími hennar farið í að móta starfið og koma sér niður á ákveðnar vinn- ureglur. Búist er við að ráðherra muni staðfesta þær mun bráðar. Formaður Flugeftirlitsnefndar er Birgir Þorgilsson ferðamála- stjóri, varaformaður er Halldór Kristjánsson í samgönguráðu- neytinu og aðrir í nefndinni eru þeir Georg Ólafsson verðlags- stjóri og Jóhann A. Jónsson frá Flugmálastjórn. -grh Hlífar í Hafnarfirði sagði í sam- tali við blaðið í gær að nokkur meiningarmunur væri uppi milli deiluaðila. „Við viljum fram- lengja síðasta kjarasamning með þeim ákvæðum sem um var samið í heildarsamningunum í febrúar. Þeir vilja hins vegar fella niður ákvæði um eingreiðslur sem við teljum að eigi að halda sér frá fyrri samningi. Þar er um að ræða desemberuppbót og fleiri greiðslur. Við teljum einsýnt að þessar greiðslur haldi sér en þeir eru á annarri skoðun. Við ætlum okkur ekki að gefa neina forgjöf í þessum samningaviðræðum," sagði Sigurður. Hann vildi ekki gefa neitt út á það hversu langur tími gæti liðið þar til samningar næðust en mál- inu hefur enn ekki verið skotið til sáttasemjara. Þegar samningur Alþýðusam- bandsins og atvinnurekenda var undirritaður á dögunum var sett í hann ákvæði þess efnis að gengið skyldi frá öllum samningum sérs- ambanda og hópa innan ASÍ fyrir 5. mars. Enn er þó ósamið við sjómenn, bæði farmenn og fi- skimenn, starfsfólk allra stóriðj- ufyrirtækja nema Sementsverks- miðjunnar og starfsfólk í fluginu. Viðræður þessara hópa við at- vinnurekendur eru í fullum gangi. -ÞH „Gestir" Kvenna gegn klámi horfðu með hryllingi á brot það sem konurnar sýndu úr klámmynd sem þær öfluðu sér í gegnum smáauglýsingu í DV. Mynd: Kristinn. Klám Konur skera upp herör Konurgegn klámi vekja athygli á hversu auðvelterað nálgastklám- myndir á Islandi með því að sýna fjölmiðlum og þingmönnum eina slíka. DV hœttir að auglýsa klámmyndir til sölu Konur gegn klámi kölluðu fjöl- miðla og ráðamenn á sinn fund á Hótel Sögu í gær til að sýna þeim brot úr klámmynd sem þær höfðu aflað sér með auðveldum hætti I gegnum smáauglýsingar DV. A fundinum var síðan lesið bréf frá Ellert B. Schram ritstjóra DV, þar sem hann tilkynnti að klámmyndir yrðu ekki lengur auglýstar til sölu í smáauglýsing- um blaðsins. Ingibjörg Hafstað er meðlimur í „Konur gegn klámi“. Hún sagði Þjóðviljanum að með sýningu myndarinnar vildu konurnar fyrst og fremst vekja athygli á fyrirbærinu. Þær grunaði að ráða- menn þjóðarinnar vissu afskap- Iega lítið um klámmarkaðinn á íslandi og hvers konar varningur væri þar á boðstólum, aðgengi- legur jafnt börnum sem öðrum. Konur gegn klámi vildu reyna að skapa umræðu um klám í landinu en sú umræða hefði mikið legið í þagnargildi. „Klám er nánast tákn um frelsi og fjálslyndi og því erfitt að skapa þessa umræðu og við sem viljum ræða þessi mál fáum á okkur stimpil fyrir að vera hysterískar kerlingar með ritskoðun,“ sagði Ingibjörg. Konur gegn klámi vildi fá almenningsálitið á móti klámi. „Fullorðinsmyndir“ hafa um nokkurt skeið verið auglýstar til sölu í DV. Ingibjörg sagðist hafa heyrt tröllasögur um að hægt væri að verða sér úti um klám á mynd- bandaleigum. Þetta dæmi væri sínu verra þar sem nánast hver sem væri gæti orðið sér úti um klámmyndir undir nafnleynd. Einnig væri erfiðara að fara á myndbandaleigu og biðja um klámmynd en að panta sér hana í pósti. Klám er hættulegt bæði kon- um, börnum og karlmönnum, að mati Ingibjargar. Klámmyndir væru oft og tíðum eina kynfræðsl- an sem ungir drengir fengju og spurning væri hvers konar hug- myndir þeir fengj u um kynlíf með þeim hætti. „Eins og Helga Sigur- sjónsdóttir benti á hér á fundin- um er þessi varnirngur seldur undir því yfirskyni að um erótík sé að ræða,“ sagði Ingibjörg. Klám væri hins vegar ofbeldi og mannfyrirlitning en erótík væri það ekki. Með klámi væri verið að aflífa Eros. íslensk lagaákvæði um klám eru skýr. Ingibjörg sagði aftur á inóti nauðsynlegt að bæta inn í lögin grein sem skilgreindi klám þannig að auðveldara væri að spyrna gegn því. -hmp Akureyri Fyrstu búsetamir Búseti á Akureyri hefur gert samning um kaup á fyrstu búsetaíbúðunum á Akureyri. Fjórar fjölskyldur hafa keypt sér búseturétt í fjölbýlishúsi við Múlasíðu og verða íbúðirnar af- hentar í desember á þessu ári. Að sögn Heimis Ingimars- sonar, formanns Búseta, hefur félagið sótt um lán fyrir 20 aðra. „Það er búist við að umsókn- irnar verði afgreiddar fljótlega og við vonumst til þess að fá sem flest lán. Ef við fáum lán fyrir 10-12 manns kemur til greina að byggja fjölbýlishús," sagði Heimir í samtali við Þjóðviljann í gær. Búseti á Akureyri var stofnað- ur árið 1984 og að sögn Heimis eru um 110 manns í félaginu. -gg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.