Þjóðviljinn - 06.03.1990, Side 6
ERLENDAR FRETTIR
Lagabreyting
Sovéskur séreignarréttur
Æðstaráð Sovétríkjanna sam-
þykkti í gær ný lög um
eignarrétt sem heimila sovéskum
borgurum mcðal annars að eiga
verksmiðjur og önnur fram-
leiðslutæki.
Athygli vekur að forðast er að
tala um séreignarrétt í lögunum
jafnvel þótt lagabreytingin felist í
raun í því að leyfa séreign á fram-
írland
Skallasjónvaip
í þingsölum
Irskir þingmenn hafa áhyggjur
af að beinar sjónvarpsútsending-
ar frá þingsölum komi til með að
afhjúpa hárleysi virðulegra
stjórnmálamanna.
Sendinefnd þingmanna, sem
send var til Bretlands til að kanna
reynsluna af sjónvarpsútsending-
um frá breska þinginu, komst að
þeirri niðurstöðu að þær gerðu
skalla þingmanna óþarflega
augljósa.
Brendan Howlin þingmaður
írska verkamannaflokksins fjall-
aði um þetta í gær. Hann nefndi
Neil Kinnock leiðtoga Breska
verkamannaflokksins sem dæmi.
Sjónvarpsmenn séu í stökustu
vandræðum með skallann á hon-
um. Howlin segir einn sjónvarps-
mann hafa trúað sér fyrir því að í
hvert skipti sem hann sjái svitann
spretta af skallanum á Kinnock
fái hann óstjórnlega löngun til að
rjúka inn í þingsal til að púðra
hann.
Howlin segir nauðsynlegt að
koma í veg fyrir slíkt í írska þing-
inu. Best sé að koma myndavél-
unum fyrir sem næst gólfi til að
þingskallarnir myndist ekki.
Reuter/rb
leiðslutækjum. Róttækir um-
bótasinnar eru óánægðir með
þetta en segja að það skipti kann-
ski ekki höfuðmáli þar sem lögin
heimili í reynd séreignarrétt þótt
hann sé ekki kallaður því nafni.
Þeim tókst hins vegar að fella
tillögu íhaldssamra kommúnista
um að tekið yrði fram í lögunum
að sósíalísk sameign væri grund-
völlur sovéska hagkerfisins.
T
Jeltsín
Boris Jeltsín einn helsti forystu-
maður róttæks andstöðuarms
innan sovéska kommúnista-
flokksins lýsti því yfir í gær að
hann hefði hug á að bjóða sig
fram til forseta Rússneska sam-
bandslýðveldisins.
Jeltsín sagðist vonast til að
lýðræðisöfl næðu rúmlega helm-
ingi þingsæta til rússneska þing-
sins. Tækist það myndi hann
bjóða sig fram í forsetaembætti í
Rússlandi.
Róttækir umbótasinnar hlutu
mikið fylgi í fyrrihluta fylkiskosn-
inganna sem fóru fram um helg-
ina. En vegna mikils fjölda fram-
bjóðenda fékk enginn löggilda
kosningu í rúmlega helming kjör-
dæma. Þar verður að kjósa aftur
þann 18. mars á milli þeirra
tveggja frambjóðenda í hverju
kjördæmi sem fengu mest fylgi.
í nýrri bók eftir Jeltsín, sem
birtist í Bandaríkjunum í gær sak-
ar hann sovéska kerfið um að
hata sig. Hann lýsir meðal annars
ítarlega umdeildu atviki í október
á síðasta ári þegar hann hélt því
fram að honum hefði verið sýnt
banatilræði. Síðar dróg hann
framburð sinn til baka og neitaði
að ræða ásakanir um að hann
hefði logið til um banatilræðið.
Harðar deilur urðu um ákvæði
í lögunum um að arðrán manns á
manni sé óheimilt og sömuleiðis
firring verkamanna í fram-
leiðslunni. Þetta tvennt eru
grundvallarkennisetningar í
marxískri hugmyndafræði fyrir
sósíalískt þjóðfélag.
Róttæklingar reyndu árangurs-
laust að fá þessi ummæli felld nið-
ur úr lögunum. Yuri Boldyrev
þingfulltrúi frá Leníngrad segir
að harðlínukommar hafi ekki
getað útskýrt hvað átt væri við
með arðráni og firringu. Verka-
maður sem átti sæti á þinginu
sagðist hins vegar gera sér
fullkomna grein fyrir hvað um
væri að ræða þar sem hann gæti
einmitt sjálfur orðið fórnarlamb
arðráns.
Reuter/rb
Rússland
vill forsetatign
Boris Jeltsín náði kosningu til rússneska þingsins með áttatíu prós-
enta kjörfylgi í heimaborg sinni Sverdlovsk. Nú gerir hann sérvonirum
að verða kosinn forseti Rússlands.
Nú segir Jeltsín að bifreið hafi að það hafi beinlínis verið bana-
verið ekið upp að honum og hann tilræði heldur hafi markmiðið
neyddur til að stökkva í jökul- verið að kasta rýrð á mannorð
kalda Moskvuá. Hann efist um hans. Reuter/rb
Þýskaland
Kohl fellst á óbreytt landamæri
Helmut Kohl kanslari féllst í
gær loksins á að þýsku ríkin
gætu ábyrgst óbreytt landmæri
við Pólland með yfirlýsingu
jafnvel þótt Þýskaland hafi ekki
verið sameinað í eitt ríki.
Flugþol
Albatrosar
óþreytandi
Franskir vísindamenn hafa
sannreynt með aðstoð gervi-
hnatta að albatrosinn, stærsti sjó-
fugl veraldar, hefur sjö sinnum
meira flugþol en áður var álitið.
Hann flýgur oft vikum saman
með allt að 50 km hraða á
klukkustund.
Vísindamennirnir notuðu
gervihnetti til að fylgjast með sex
flökkualbatrosum. Þeir komust
að því að fuglarnir flugu 16.500
km vegalegnd á 33 dögum. Þeir
flugu oft með 50 km hraða á
klukkustund tímunum saman í
myrkri og hvfldu sig aðeins stutta
stund að næturlagi.
Þetta er miklu meiri vegalengd
og miklu meiri hraði en menn
höfðu talið mögulegt fyrir nokkra
fuglategund.
Reuter/rb
Áður hélt hann því fram að
vestur-þýska þingið hefði ekkert
umboð til að gefa út yfirlýsingar
um hvernig austurlandamæri
Þýskalands skuli vera. Einungis
sameinað Þýskaland geti samið
um landamæri þýska ríkisins.
Eftir heimsstyrjöldina síðari
fengu Pólverjar stór svæði sem
áður tilheyrðu Þýskalandi í stað-
inn fyrir enn stærra pólskt land-
svæði sem var innlimað í Sovétr-
íkin.
Pólverjar hafa verið mjög ugg-
andi vegna þess hvað Kohl var
tregur til að lýsa því yfir að landa-
mærunum við Pólland yrði ekki
haggað við sameiningu Þýska-
lands.
Málamiðlunin sem Kohl féllst
loksins á í gær eftir skyndifund í
samsteypustjórn hans felst í því
að þing Vestur- og Austur-Þýska-
lands samþykki samhljóða álykt-
un strax eftir þingkosningarnar í
Austur-Þýskalandi 18. mars. Þar
verði því lýst yfir að landamærin
skuli haldast óbreytt enda sé slíkt
forsenda fyrir friði í Evrópu. Síð-
an verði formlega gengið frá
landamærasamningum eftir sam-
einingu þýsku ríkjanna.
Reuter/rb
Afganistan
Valdaránstilraun
mistekst
Tilraun klofningshóps innan af-
göngsku stjórnarinnar til að
stcypa Najibullah forseta úr stóli
og taka völdin í sínar hendur mis-
tókst í gær.
Hersveitir hliðhollar Shanaw-
az Tanai fyrrverandi varnarmála-
ráðherra gerðu árás á forsetahöll-
ina og harðir bardagar brutust út
á götum höfuðborgarinnar Ka-
búl.
Svo virðist sem Tanai hafi gert
leynilega samninga við skæru-
liða, sem njóta stuðnings Banda-
ríkjamanna, um bandalag gegn
Najibullah. Skæruliðasamtökin
Hezb-i-íslam sem hafa höfuð-
stöðvar í Pakistan lýstu yfir
stuðningi við uppreisnartil-
raunina.
Hlutar stjórnarhersins tóku
líka þátt í uppreisninni sem hófst
með loftárás herflugvéla á for-
setahöllina. Þorri hersins virðist
samt hafa haldið tryggð við for-
setann.
Þrátt fyrir allharða bardaga í
Kabúl fram eftir degi herma frétt-
ir þaðan að stjórnarherinn hafi
ekki orðið fyrir teljandi mann-
falli.
Útgöngubanni var lýst yfir í
Kabúl í gærkvöldi og ríkisútvarp-
ið skýrði frá því að Tanai hefði
flúið burt frá borginni.
Reuter/rb
:6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlövlkudagur 7. mars 1990
Búlgaría
Verkföll
loksins
lögleg
Búlgarska þingið samþykkti á
þriðjudag lög sem gefa lagalega
heimild fyrir verkfallsboðun í
fyrsta skipti í sögu Búlgaríu.
Lögin setja reglur um samn-
inga og vinnudeilur. Ef beinar
samningsviðræður milli verka-
lýðsfélaga og iðnrekenda skila
ekki árangri skal opinber sátta-
semjari reyna að miðla málum í
allt að fjórtán daga. Dugi það
ekki geta verkamenn boðað
verkfall með viku fyrirvara.
Verkföll verða eftir sem áður
bönnuð í her, lögreglu, póstþjón-
ustu, orkuframleiðslu og sjúkra-
þjónustu.
Þrátt fyrir að verkföll hafi ekki
verið leyfð samkvæmt búlgörsk-
um lögum hafa skæruverkföll
verið algeng þar á undanförnu
enda eiga Búlgarar við mikinn
efnahagsvanda að stríða.
Búlgarska þingið samþykkti
líka í gær lög um eignarrétt sem
ganga enn lengra en ný eignar-
réttarlög Sovétmanna. Sam-
kvæmt þeim eru engar takmark-
anir á einkaeign búlgarskra ríkis-
borgara. Þeir mega eiga ótark-
markað lausafé og fasteignir og
selja þær að vild á frjálsum mark-
aði;
Áður máttu Búlgarar í mesta
lagi eiga eina íbúð, einn sumar-
bústað, einn bflskúr og tvö öku-
tæki. Þeir mátt ekki selja þessar
eignir nema fyrir milligöngu op-
inberra aðila á föstu verði.
Reuter/rb
Filippseyjar
Enríle
sleppt
úr haldi
Juan Ponce Enrilc fyrrverandi
varnarmálaráðherra Filippseyja
var látinn laus úr fangelsi í gær
samkvæmt fyrirmælum hæsta-
réttar.
Enrile var handtekinn í síðustu
viku sakaður um aðild að upp-
reisnartilraun stuðningsmanna
sinna innan hersins í desember.
Hann var látinn laus gegn 100
þúsund pesóa tryggingu (um 270
þús. kr.). Honum var ennfremur
fyrirskipað að fara ekki úr landi á
meðan rannsókn stendur yfir í
máli hans.
Enrile er eini stjórnarand-
stöðuþingmaðurinn í öldunga-
deild filippseyska þingsins.
Ákvörðun hæstaréttar um að láta
hann lausan gerir honum kleift að
taka þátt í þingstörfum í dag.
Enrile var varnarmálaráðherra
Filippseyja í sautján ár lengst af
undir stjórn Marcosar. Hann átti
síðan þátt í að koma Corazon Aq-
uino til valda 1986 og var varnar-
málaráðherra í stjórn hennar
fyrstu mánuðina. En hún rak
hann fljótlega úr henni fyrir
meinta aðild að uppreisnartil-
raun hersins.
Aðalsaksóknari Filippseyja
hefur lýst yfir áhyggjum vegna
fleiri uppreisnartilrauna hersins
úr því að Enrile hefur verið sleppt
úr haldi. Nú síðast um helgina
gerðu stuðningsmenn hans enn
eina tilraunina til uppreisnar.
Reuter/rb