Þjóðviljinn - 06.03.1990, Page 11
LESANPI
VIKUNNAR
Monika Karlsdóttir, aðstoðar-
stúlka í sjúkraþjálfun á Grensás-
deild. Mynd: Jim Smart.
Hvað ertu að eera núna Mon-
ika?
Ég vinn hér á Grensásdeildinni
allan daginn og sinni svo heimilis-
störfum. Mikið af tíma mínum fer
í að fylgjast með því sem er að
gerast í Austur-Pýskalandi. Pó að
Íiað séu 25 ár síðan ég flutti til
slands, en ég er fædd rétt fyrir
utan Leipzig, þá á ég mínar rætur
þar og áhuginn er mikill á fram-
gangi mála. Breytingarnar hafa
verið mjög snöggar og hafa snert
mig mikið. Ég starfa einnig innan
BSRB og er í nefnd á þess vegum
sem fjallar um afstöðu verkalýðs-
samtaka til Efnahagsbandalags-
ins og mögulegs samstarfs þess og
íslendinga. Pað hefur orðið
nokkurs konar sprenging í þess-
um málum undanfarin misseri og
það er skylda hvers íslendings að
kynna sér þessi mál vel og taka
afstöðu. Mér finnst íslensk verka-
lýðsfélög hafa gengið of langt í að
lýsa yfir fögnuði sínum yfir við-
ræðunum við Efnahagsbanda-
lagið. Það er hreinlega ótíma-
bært. Ég get að vísu ekki séð að
ísland geti haldið sér alveg fyrir
utan bandalagið, en þeir verða að
fara sér ákaflega hægt og skoða
málið vel og vandlega frá öllum
hliðum. ísland hefur sérstöðu og
við verðum að sjá til þess að hún
verði virt og tillit tekið til smæðar
landsins. Við erum eins og miðl-
ungs borg í Evrópu, og ég er t.d.
dálítið smeyk við það ef opnað
verður fyrir fjármagnsstreymi,
það gæti orðið hættulegt ef ekki
er farið varlega.
Hvað varstu að gera fyrir 10
árum?
Ég var heimavinnandi hús-
móðir. Við vorum þá nýflutt inn í
húsið sem við höfðum verið að
koma upp og erum eiginlega enn
að, og um haustið fór ég reyndar
að vinna aftur, og einmitt hérna á
Grensásdeildinni.
Hvað gerirðu helst í frístund-
um?
Ég vildi að ég hefði meiri frí-
stundir. Ég hef mikinn áhuga á
félagsmálum og starfa í stéttarfé-
laginu mínu. Ég reyni alltaf að
fara eina langferð á ári með Úti-
vist eða Ferðafélaginu. Það á vel
við mig að ferðast á þann hátt og
færi mjög gjarnan fleiri slíkar
ferðir ef ég gæti.
Segðu mér frá því sem þú ert að
lesa núna.
Síðasta bók sem ég las var Eva
Luna eftir Isabel Allende. Bókin
hreif mig mjög, mér fannst hún
alveg stórkostleg. Þetta var í
fyrra en síðastliðna mánuði hef
ég haft nóg með að lesa Der Spi-
egel, til að geta fylgst eins vel og
mér er unnt með því sem er að
gerast í Austur-Þýskalandi.
Hvað lestu helst í rúminu á
kvöldin?
Allt sem ég næ í um atburðina
austantjalds.
Hver er uppáhaldsbarnabókin
þín?
Það hafa verið ævintýrabækur
aðallega, Grimmsævintýri og
þess háttar. Þegar börnin voru
minni var það fastur liður í jóla-
undirbúningnum að fara í bóka-
búðir, helst barnabókadeild Máls
og menningar og skoða allt sem
var á boðstólum og velja úr það
sem okkur leist vel á. Erlendis er
ekki eins sjálfsagt að gefa bækur
og hér, hvorki börnum né full-
orðnum.
Hvers minnistu helst úr Bibl-
íunni?
Spurðu mig ekki um Biblíuna,
ég hef aldrei lesið hana til enda.
Segðu mér af ferðum þínum í
leik- og kvikmyndahús í vetur.
Ég hef ekkert farið f leikhús, en
við tökum stundum bíóskorpur.
Nú síðast sáum við Þegar Harry
hitti Sally. Það er ágætis afþrey-
ingarmynd.
Lestu gagnrýni um t.d. bækur
og leiklist í blöðum, og hvaða
áhrif fínnst þér hún hafa á þitt
eigið álit?
í vetur fannst mér óvenju erfitt
Hér á eg heima
að velja bækur og þá kíkti ég á
umsagnir í blöðum og þær hjálp-
uðu auðvelduðu mér dálítið val-
ið. Annars stýrir gagnrýni mér
ekki, ég læt hana sem sagt ekki
ráða fyrir mig.
Fylgistu með einhverjum dag-
skrárliðum í útvarpi og sjón-
varpi?
Fréttum. Klukkan sjö í útvarp-
inu, 19:19 á Stöð tvö og klukkan
átta í sjónvarpinu.
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
Já, það hef ég gert.
Ertu ánægð með frammistöðu
þess flokks?
Það er erfitt að svara þessu.
Auðvitað er hægt að gera betur
en ég held þó að það bjóðist ekki
betri flokkur í dag. A.m.k. sam-
svarar hann mínum hugsjónum
best.
Eru til hugrakkir stjórnmála-
menn og konur?
Auðvitað!
Viltu nafngreina þá?
Mandela virðist alveg ótrúlega
hugrakkur, og Gorbatsjov einn-
ig-
Eiga hugtökin hægri-vinstri
rétt á sér í (íslenskum) stjórnmál-
um í dag?
Já, í mínum huga. Ég nota
þetta hugtak í pólitískum skil-
greiningum. Að vísu hefur þetta
eitthvað riðlast, en ég sé þetta
enn svona og er þeirrar skoðunar
að þetta verði áfram í okkar
þjóðfélagi. Þessar andstæður eru
fyrir hendi, og fyrir mig er þetta
spurning um lífsviðhorf.
Eftir umbyltingu austantjalds
er útlit fyrir að Vesturlönd muni
veita þeim löndum aðstoð. Er það
ekki vandasamt ef vel á að takast,
og hvað gætum við aftur á móti
lært af þeim?
f fyrsta lagi skil ég ekki afstöðu
þess fólks sem virðist vilja af-
skrifa 40 ár af sögu Austur-
Evrópu. Það er sárt að hugsa til
þess og myndi verða til þess að
austantjaldslöndin gætu átt á
hættu að missa hluti sem vel hafa
verið gerðir. fbúar þeirra landa
vita að þeir verða að láta ýmislegt
af hendi, en það eru ýmis félags-
leg málefni sem eru sjálfsögð þar
en óhugsandi hér og hjá mörgum
öðrum þjóðum vestantjalds.
Námsfólkið þar kemur t.d. ekki
stórskuldugt út í atvinnulífið. Þar
hefur verið styrkjakerfi í langan
tíma. Kröfur eru harðari enda
leggja nemendur oft harðar að
sér. Ákveðnir hlutar af heilbrigð-
iskerfinu eystra standa líka fram-
ar. Ég er fullviss um það að
verkalýðsfélög á Vesturlöndum
væru ekki eins sterk og þau eru í
dag ef ekki hefði verið barist
þeirri baráttu sem gert var í
Austur-Evrópu. Þaðan hafa þeir
dregið mikið af sínum lærdómi.
Vesturlönd búa yfir ýmsu sem
austantjaldslöndum væri aðstoð í
að fá, en hitt er alveg ljóst að þeir
sem vilja veita fjárhagsaðstoð
koma til með að vilja eitthvað í
staðinn. Það gefur enginn pen-
inga nú til dags án þess að vilja fá
að minnsta kosti jafn mikið í stað-
inn.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Fjótfærnina.
Hvaða eiginleika þinn fínnst
þér skrítnast að aðrir kunni ekki
að meta?
Kannast ekki við neinn slíkan
eiginleika.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
Það tók mig langan tíma að
venjast fiskinum og lambakjöt-
inu. Ég ólst upp svo langt inni í
landi að ég var ekki vön fiskmeti.
Ég vandist líka lambakjötinu
smám saman og borða þetta allt
með bestu lyst í dag. En þýskur
matur er auðvitað alltaf í miklu
uppáhaldi hjá mér, þá sjaldan ég
kemst í hann. Til dæmis þýskt
kartöflusalat.
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á Islandi?
Ég vil halda áfram að búa á
íslandi. Heimili mitt er hér. Þá
sjaldan ég fæ heimþrá er það eftir
trjám. Ekkert frekar skógi, en
stórum og stæðilegum kastaníu-
trjám til dæmis.
Hvernig fínnst þér þægilegast að
ferðast?
Mér finnst gaman að ganga, ég
kemst auðvitað ekki langt þann-
ig. Ef ég mætti velja myndi ég
ferðast í fólksbíl, og svo er prýði-
legt að ferðast með langferðabíl-
um.
Hvert langar þig helst til að
ferðast?
Það eru tvö lönd efst á listan-
um. Fyrst er Austurríki en þang-
að fer ég í sumar, og svo Noregur.
Hvaða bresti landans áttu erf-
iðast með að þola?
Mér hefur alltaf fundist skrítin
þessi árátta þeirra að fara allir á
span í það sama. Fiskeldi og loð-
dýrarækt eru gott dæmi um þetta.
Mér finnst þetta mjög sérkenni-
legt.
En hvaða kosti Islendinga
metur þú mest?
Hvað þeir eiga auðvelt með að
aðlaga sig. Maður hittir íslend-
inga úti um allan heim, þar sem
þeir hafa fest rætur og virðast allir
ánægðir. Nú og íslendingar sem
búa hér eru eins. Það er að-
dáunarvert hvað fólk aðlagast
fljótt breyttum aðstæðum. Gosið
í Vestmannaeyjum og afleiðingar
þess er gott dæmi.
Hverju vildir þú breyta í ís-
lensku þjóðfélagi?
Ég var viðbúin ákveðinni
stéttaskiptingu þegar ég flutti
hingað, en gat glaðst yfir því að
hún var ekki mjög áberandi. Nú
virðist þetta því miður vera að
breytast, en þar sem allt er svo
nátengt og viðkvæmt á íslandi þá
held ég að þjóðfélagið þoli þetta
illa.
Hvaða spurningu hef ég
gleymt?
Engri, og ég er ósköp fegin að
þurfa ekki að svara því hvaða
karlmað mér þyki fallegastur.
Guðrún
í DAG
þJÓÐVILIINN
FYRIR50ÁRUM
Ársskýrsla KRON 1939: Kaupfé-
lagið selur um fjórðapart allra
nauðsynjavara í Reykjavík og
Hafnailirði. Sjóðeignirfélagsins
hafa vaxið um nær 100 þúsund
krónur á árinu. Bretar ætla að
hindra flutning sænska
járnmálmsinsyfirNarvik. Deilur
Bretaog ítala harðna.
7. mars
miðvikudagur. 66. dagur ársins.
Imbrudagar. Sólarupprás í
Reykjavíkkl. 8.15-sólarlag kl.
19.04.
Viðburðir
Útvegsbanki íslands stofnaður
árið 1930. Áburðarverksmiðjan
hóf framleiðslu árið 1954.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna
2. mars-8. mars er í Lyfjabúðinni Iðunni og
Garðs Apóteki.
Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur sími 4 12 00
Seltj.nes sími 1 84 55
Hafnarfj sími 5 11 66
Garðabær sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík sími 1 11 00
Kópavogur sími 1 11 00
Seltj.nes sími 1 11 00
Hafnarfj sími 5 11 00
Garðabær sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, simaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sim-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vaktvirka dagakl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspit-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
simi 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsimi vaktlæknis 985-23221.
Kefiavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
„ 1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspitalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
ogeftirsamkomulagi Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeiid
Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar
14-19.30. Heiisuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspitali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
. heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarf irði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spitalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahus Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alladaga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjáiparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagiðÁlandi 13. Opiðvirkadagafrá
kl. 8-17. Síminn er 688620.
Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum Vestur-
götu3. Opiðþriðjudagakl.20-22, :
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annarssím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauögun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
Æ3. Simsvari á öörum timum. Síminn er
91-28539.
Bilanavakt rarmagns- og hifaveitu.s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
sími 652936.
Vinnuhópurum sifjaspellamál. Slmi
21260allavirkadagakl. 1-5.
.ögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlið 8 er „Opiö hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um ainæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
6. mars 1990
Bandaríkjadollar............. 60,91000
Sterlingspund................100,31900
Kanadadollar............... 51,27800
Dönsk króna................... 9,36360
Norsk króna................... 9,30630
Sænsk króna................... 9,94610
Finnskt mark................. 15,23700
Franskur franki............. 10,563190
Belgískur franki.............. 1,72970
Svissneskur franki........... 40,74660
Hollenskt gyllini............ 31,91090
Vesturþýskt mark............. 35,95000
Itölsk líra................... 0,04871
Austurrískur sch.............. 5,10540
Portúg. escudo................ 0,40780
Spánskur peseti............... 0,55870
Japanskt jen.................. 0,40798
(rskt pund................... 95,78400
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 gráða 4 tryllta
6 upptök 7 hvetja 9 feiti
12 ílát 14 hljóð 15 hross
16 fýll 19 rola 20 fyrrum
21 staura
Lóðrétt: 1 hreinn3
gróður 4 eyktarmark 5
tunga 7 visst 8 hlýr 10
glundroði 11 blaðra 13
fálm 17vökva 18glöð
Lausn á siðustu
krossgátu
Lrétt: 1 labb 4 föst 6 afl
7fikt9ómak12linna
14púa 15kál 16 messa
19sepi20áðan21
angri
Lóðrrétt: 2 asi 3 bati 4
flón5sía7fipast8
klampa10makaði11
kæling 13 nes 17 ein 18
sár
Mlövikudagur 7. mars 1990 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11