Þjóðviljinn - 27.03.1990, Síða 2
FRÉTTIR
Nýtt álver
Ráðherra ósammála Jóhanni
Jón Sigurðsson: Niðurstöður Jóhanns Rúnars Björgvinssonar varð-
andi þjóðhagsleg áhrif nýs álvers gefa ekki rétta mynd af málinu.
Virkjanaframkvæmdir munu standa undir sér
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra er ekki sammála þeim
niðurstöðum sem Jóhann Rúnar
Björgvinsson starfsmaður Þjóð-
hagsstofnunar kemst að í riti sínu
um áhrif nýs álvers á þjóðarbú-
skapinn, og sagt var frá í Þjóðvilj-
anum á laugardag. Sagði iðnað-
arráðherra niðurstöður Jóhanns
byggja á mjög háum raunvaxta-
hugmyndum á erlendum lánum
vegna virkjanaframkvæmda og
hann teldi hugmyndir hans alls
ekki gefa réttvísandi mynd af
málinu.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Jón að von væri á áliti frá Þjóð-
hagsstofnun og Byggðastofnun
um áhrif frekari uppbyggingar
stóriðju á framvindu efnhags-
mála næstu 5-10 árin. Þar muni
koma glöggt fram að verði þessar
hugmyndir að veruleika sé verið
að bæta hagvaxtarmöguleika og
lífskjör um 1% næstu 5 árin og
sagðist ráðherrann ekki enn hafa
séð rök sem hrektu þær niður-
stöður.
Ráðherrann sagðist einnig
vilja vekja athygli á nýlegri grein
Ingva Harðarsonar starfsmanns
Þjóðhagsstofnunar í Morgun-
blaðinu, þar sem hann hrekti
með góðum rökum málflutning
Jóhanns Rúnars. Hann fagnaði
hins vegar umræðu um þessi mál.
„Það er víst að ekki verður ráð-
ist í virkjanaframkvæmdir sem
eingöngu eru nauðsynlegar
vegna stóriðjunnar, nema þær
standi fullkomlega undir sér sjálf-
ar og verði þar með engin íþyng-
ing fyrir hinn almenna orkunot-
anda,“ sagði Jón. Þetta skilyrði
væri bundið í lögum og hann sem
ráðherra myndi aldrei gera aðra
samninga en þá sem uppfylltu
þetta skilyrði.
Ráðherrann sagðist telja mjög
lfklegt að lán á bestu kjörum
fengjust til virkjanafram-
kvæmda, miðað við að samningar
næðust um byggingu nýs álvers
sem væri í raun hin eiginlega tryg-
ging fyrir málinu í heild. Jóhann
Rúnar segir líkleg vaxtakjör vera
um 9% en því vísaði Jón á bug án
þess að vilja þó nefna einhverjar
aðrar tölur. Hann sagðist líka
telja að tölur Jóhanns varðandi
kostnaðinn við þessa uppbygg-
ingu þyrftu nánari skoðunar við.
Að sögn Jóns eru sérfræðingar
nú að taka saman ýmsar upplýs-
ingar um hvernig best verði að
haga byggingu nýs álvers og
framkvæmdum í kringum hana
ásamt staðsetningu og mengun-
arvörnum og fleira. Góð niður-
staða myndi fást í málinu en hún
lægi að öllum líkindum ekki fyrir
fyrr en um mánaðamótin maí-
júní.
-hmp
„Saltfiskur er sælgæti" er kjörorð saltfisksvikunnar, enda bar ekki öðru við opnun hennar í Naustinu í gær.
Frá vinstri: Svanfríður Jónasdótttir, Óiafur Ragnar Grímsson, Árni Benediktsson, Bryndís Schram og
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍF. Mynd: Jim Smart.
Sjávarfang
Sælgæti á saltfisksviku
SIF-Sölusarnband íslenskra
flskframleiðenda, sem er
stærsta fyrirtæki sinnar tegundar
í heiminum, efnir nú til
saltfisksviku og kynnir á henni
nýja framleiðsluvöru og lostæta
fiskrétti. 7 veitingahús og 4 versl-
anir í Reykjavík og á Akureyri
taka þátt í þessu átaki. Auk þess
sem gæði saltfísksins hafa aukist
undanfarið er nú miðlað hingað
reynslu suðlægra þjóða í matseld-
inni. Kjörorð saltfisksvikunnar
er: „Saltfískur er sælgæti“.
í Reykjavík verður fjölbreytt
úrval saltfiskrétta á hlaðborði í
hádegi hjá veitingastöðunum
Þrem Frökkum, Naustinu, Við
Tjörnina, Hótel Sögu, Múlakaffi
og Lauga-ási, en auk þess vöru-
kynningar í Miklagarði við Sund
og í Hagkaupum í Kringlunni. Út
hefur verið gefinn bæklingur með
nýstárlegum uppskriftum frá
mörgum löndum.
Á Akureyri geta menn kynnt
sér þetta vöruþróunar- og þjón-
ustuátak í Fiðlaranum á þakinu
og í verslunum Hagkaupa og
KEA.
Vöruþróun hefur verið ör hjá
saltfiskframleiðendum undanfar-
ið og söltunaraðferðir breyst.
Magnús Gunnarsson sagði í ræðu
við opnun saltfiskvikunnar í gær
að fáar greinar íslensks sjávarú-
tvegs hefðu þróast jafn mikið og
ört og saltfiskvinnslan. Tandur-
fiskurinn hefur styrkt stöðu ís-
lendinga, t.d. gagnvart Norð-
mönnum á Spánarmarkaði. Og
nú hefur SÍF efnt til samkeppni
meðal matargerðarmeistara á
Spáni um skyndibita úr saltfiski,
sem stefnt er að að selja á Ól-
ympíuleikunum í Barcelona og
heimssýningunni í Sevilla.
ÓHT
Akureyri
Óbreytt í
efstu sætum
Núverandi bæjarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins á Akureyri,
Sigríður Stefánsdóttir og Heimir
Ingimarsson, verða áfram í fyrsta
og öðru sæti G-listans. Listinn
var samþykktur samhljóða á fé-
lagsfundi á sunnudaginn.
Fyrir síðustu kosningar kom
nýtt fólk í nokkur efstu sæti list-
ans og sá hópur gefur nú áfram
kost á sér. Sigríður verður áfram í
fyrsta sæti og Heimir í öðru, en
annars skipar þetta fólk ellefu
efstu sætin:
3. Sigrún Sveinbjörnsdóttir
sálfræðingur, 4. Þröstur Ás-
mundsson kennari, 5. Elín Kjart-
ansdóttir iðnverkamaður, 6.
Guðlaug Hermannsdóttir kenn-
ari, 7. Hilmir Helgason vinnuvél-
stjóri, 8. Kristín Hjálmarsdóttir
formaður Iðju, 9. Hulda Harðar-
dóttirfóstra, 10. GuðmundurÁr-
mann Sigurjónsson myndlistar-
maður og í 11. sæti listans er Guð-
mundur B. Friðfinnsson húsa-
smiður.
-gg
Alþýðuflokkurinn
AB félagar
útilokaðir
Alþýðubandalagsfélagar sem
vilja sýna sameiningarvilja sinn
með inngöngu í Alþýðuflokkinn
koma að lokuðum dyrum.
Þjóðviljanum er kunnugt um
félaga í Alþýðubandalaginu í
Reykjavík sem gerði tilraun til að
ganga í Alþýðuflokkinn en fékk
ekki. Flokkslög Alþýðuflokksins
banna flokksmönnum að eiga að-
ild að öðrum stjórnmálaflokkum.
Það er hins vegar ekki bannað í
flokkslögum Álþýðubandalags-
ins. Félagar í Alþýðuflokknum
ættu samkvæmt því að geta
gengið í Alþýðubandalagið en
ekki öfugt.
Þrátt fyrir yfirlýstan vilja Al-
þýðuflokksmanna í Reykjavík til
samstarfs við óánægða Álþýðu-
bandalagsmenn í framboðsmál-
um er því ljóst að Alþýðuflokkur-
inn býður útsendara Alþýðu-
bandalagsins ekki velkomna í
raðir sínar enn sem komið er.
-rb
Hrafninn
verðlaunaður
Kvikmynd Hrafns Gunnlaugs-
sonar, f skugga hrafnsins, fékk
sérstök verðlaun dómnefndar á
alþjóðakvikmyndahátíðinni í
Valenciennes í Frakklandi nú um
helgina. Formaður dómnefndar
var leikstjórinn og rithöfundur-
inn José Giovanni, en auk hans
sátu í dómnefndinni m.a. franska
leikkonan Catherina Alric, rit-
höfundurinn Alphonse Bondard
auk bandarískra og þýskra kvik-
myndagerðarmanna. Þá fékk
rússneski leikstjórinn Alexandre
Prochkine verðlaun fyrir kvik-
mynd sína Hart vor 1953.
Sjóréttarfélagið
og vátryggingar
Hið íslenska sjóréttarfélag boðar
til fundar fimmtudaginn 29. mars
kl. 17.15 í stofu 102 Lögbergi.
Frummælandi á fundinum er
Arnljótur Björnsson prófessor
og mun hann ræða vátryggingar
gegn bótakröfum á hendur út-
gerðarmanni. Fundurinn er op-
inn öllum áhugamönnum um
sjórétt.
Frá heimsókn nokkurra bókaútgefenda á Landsbókasafnið til að
kynna sér alþjóðlega bóknúmerakerfið.
Alþjóðlega bóknúmerakerfið
1. mars. sl. var alþjóðlega bóknúmerakerfið tekið formlega í notkun
hér á landi og við það tækifæri heimsóttu nokkrir bókaútgefendur
Landsbókasafn íslands. Þjóðdeild Landsbókasafnsins hefur tekið að
sér umboð fyrir kerfið hér á landi og annast kynningu og útbreiðslu
þess. Bókaútgefendur erlendis hafa um árabil látið prenta bóknúmer á
allar bækur en númerið er tíu stafa tala sem skiptist í fjóra mislanga
þætti. Megintilgangurinn er að greina hvert rit sem best frá öðru en
hvert númer er einstakt. Með samræmdri tölumerkingu rita skapast
möguleikar á aukinni notkun tölva jafnt hjá útgefendum, seljendum
og bókasöfnum. Regína Eiríksdóttir bókavörður á Þjóðdeild Lands-
bókasafnsins hefur umsjón með úthlutun bóknúmera á íslandi.
Óréttlát umræða
um Breiðholtið
Fulltrúaráð nemendaráða
grunnskólanna í Breiðholti vilja
koma eftirfarandi ábendingum á
framfæri vegna frétta í fjölmiðl-
um undanfarna daga: „Við sætt-
um okkur ekki við óréttláta um-
ræðu um Breiðholtið og
könnumst ekki við að hverfið
okkar sé fíkniefnabæli. Við vilj-
um í því sambandi minnast á
blaðagrein er birtist í Dagblaðinu
Vísi 20. mars 1990. Þar koma
fram forkastanleg vinnubrögð af
hálfu blaðamannsins ÓTT. Við
teljum þessa grein vera uppfulla
af rangfærslum og mannorðs-
skemmandi alhæfingum. T.d. er
þar sagt að fimmti hver níundi-
bekkingur í Breiðholti neyti ólög-
legra fíkniefna. Þar sem við
þekkjum mjög vel til þessara
mála hér í Breiðholti þá fullyrð-
um við að þetta eru ósannindi.
Við teljum að vandamál
Breiðholtshverfisins séu ekki
meiri en annarra borgarhluta.
Við viljum lýsa frati okkar á
þessa blaðamennsku og finnst
hún ekki á háu plani og lýsir það
sér best í því að blaðamaður
ræðst á einn borgarhluta og einn
skóla. Það er von okkar að í fram-
tíðinni verði fjallað um mál ung-
linga á jákvæðari hátt. í
Breiðholti er t.d. blómlegt félags-
líf hjá unglingum sem fjölmiðlar
sýna lítinn áhuga. Við erum opin
fyrir allri umræðu en neitum að
láta dæma okkur eftir orðum eins
vandræðagemlings.“ undir þetta
skrifa Nemendaráð Breiðholts-
skóla, Fellaskóla, Hólabrekku-
skóla, Seljaskóla og Öldusels-
skóla.
Sönglög á
Haskolatónleikum
Hrönn Hafliðadóttir óperusöng-
kona mun flytja sönglög eftir
Gustav Mahler við texta eftir
Ruckert og úr Des Knaben
Wunderhorn við undirleik Þóru
Fríðu Sæmundsdóttur píanó-
leikara á Háskólatónleikum í
Norræna húsinu á morgun, mið-
vikudag, kl. 12.30.
Ténleikar
Ténfræðideildar
Árlegir tónleikar tónfræðideildar
Tónlistarskólans í Reykjavík
verða haldnir í Bústaðakirkju í
kvöld kl. 20.30. Frumflutt verða
verk eftir nemendur.
2 S(ÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. mars 1990