Þjóðviljinn - 27.03.1990, Side 11

Þjóðviljinn - 27.03.1990, Side 11
í DAG ________SKÁK_______ Fróðlegt endatafl úr fjórðu umferð Reykjavíkurmótið er nú rúm- lega hálfnað og línur farnar að skýrast nokkuð. P.e.a.s. stór- meistararnir hafa raðað sér í efstu sætin en í næstu sætum fer fram hörð barátta um að komast í raðir þeirra. í svona fjölmennu móti og jafnsterku er nánast ómögulegt að segja fyrir um úrslit. Þau munu ekki ráðast fyrr en í loka- umferðinni. Tveir útlendingar hafa nú helst úr lestinni vegna veikinda og þarf það í sjálfu sér ekki að koma á óvart. Þeir eru flestir Mið- Evrópumenn en þar er vorið nú víðast komið og hlýtur að vera heljarmikið „sjokk“ að koma hingað í vetrarharðindin. Maður finnur til með þeim þegar þeir klöngrast yfir skaflana og svell- bunkana á gangstéttunum í mið- bænum en kuldinn nístir áð beini. Því þótt skákmenn séu allra manna framsýnastir á skákborð- inu er þeim mörgum hverjum ó- sýnt um praktíska smámuni, eins og að koma sér upp lopapeysum og ullarnærbrókum, sem þeim væri full þörf á eins og nú viðrar. Veturinn hér bítur þó ekkert á Sovétmennina því þeir eru vetrarhörkunum vanir. A.m.k. var ekki að sjá nein slappleika- merki á Polúgaéfskí daginn sem hann lagði landa sinn Azmajpar- asvíli í fjórðu umferð. Upp kom lærdómsríkt endatafl þar sem báðir kreistu úr stöðunni það sem unnt var. Á endanum munaði að- eins einum leik að Polu ynni en það var líka nóg. Hvítt: Polúgaévskí Svart: Azmajparasvfli Kóngsindversk vörn 1. d4- d6 5. e4 - exd4 2. Rf3 - g6 6. Rxd4 - Rc6 3. c4 - Bg7 7. Be3 - Rg-e7 4. Rc3 - e5 8- Rxc6 - bxc6 Hugmynd svarts er að ná tökum á d4-reitnum með c6-c5 og Re7-c6 en hvítur kemur í veg fyrir það með 12. leik sínum. 9. Bd4 - 0-0 12. c5 - dxc5 10. Bxg7 - Kxg7 13. Dxc5 - Dd6 11. Dd4+ - f6 abcdefgh Staðan er að mótast. Ekki er ráðlegt fyrir hvít að hörfa með drottninguna því hann er á eftir í liðskipan. T.d. 14. De3 Db4 15. b3 He8 16. Be2 Rd5 og vinnur. Svartur fær nú tvö peð á opnum línum sem hvítur getur herjað. 14. Dxd6 - cxd6 15. 0-0-0 - d5 Petta er þvingað fyrr eða síðar. Ef svartur léki Hd8 mundi hvítur tvöfalda hrókana á d-línunni og binda svart við að valda peðið. Nú máhvíturekki takapeðið: 16. exd5 Rxd6 17. Rxd5 cxd5 18. Hxd5 Be6 19. Ha5 Ha-c8+ 20. Kd2 (ekki 20. Kbl vegna Bf5 og mátar) Hf-d8+ 21. Ke3 Hcl og Hd-dl og svartur vinnur mann. 16. Be2 - Be6 18. exd5 - Rxd5 17. Bf3 - Hf-d8 19. Bxd5 - cxd5 Peðastaðan breytist ekki í grundvallaratriðum frá þessu til loka skákarinnar. Hvítur hefur tvö peð gegn einu á drottningar- væng en svartur stakt frípeð á miðborðinu. Hvítur á möguleika á að skapa sér fjarlægt frípeð á drottningarvæng og skákin væri unnin ef aðeins væru kóngar á borðinu. Svarturgetur merkilega lítið aðhafst því hann er bundinn við að valda stöku peðin sín en reynir þó að skapa sér mótfæri á kóngsvæng. Framhaldið þarf þó að tefla af mikilli nákvæmni og gaman að sjá í næstu leikjum hvernig Polu kemur riddara sín- um og drottningarhrók í góðar stöður áður en hann snertir hrók- inn á hl. 20. Hd4 - Ha-c8 24. Ha4 - Bf7 21. Kd2 - Hc4 25. Rd4 - He-c8 22. Re2 - He8 26. Hel - g5 23. b3 - Hc7 Svartur byrjar að skapa sér mótfæri á kóngsvæng. Polúgaév- skí einfaldar nú taflið með smá- brögðum. 27. He6 - Bxe6 Svartur má ekki leyfa He6-a6 því þá fellur a-peðið fyrr eða síð- ar. 28. Rxe6+ - Kg6 29. Rxc7 - Hxc7 30. Ha5 - Hd7 31. g4 - h5 32. h3 - h4 abcdefgh Hvítur hefur neglt niður peðin á kóngsvæng en svartur komið peði til h4. Á því byggjast allar vonir hans um mótspil. Hér hefðu flestir minni spámenn leikið hvíta kónginum til d4 til að “virkja kónginn“ en hvítur er engu nær eftir t.d. 33. Kd3 Kf7 34. Kd4 Ke6 35. Ha6+ Kf7 36. Ha5 Ke6. Polu lætur kónginn standa á d2, því þar valdar hann borðið og þriðju reitaröðin, en einbeitir sér að því að skapa sér frípeð á drottningarvæng. 33. b4 - Kf7 34. Ha6 - ... Ekki má hafa of mikinn asa á. Eftir a2-a4 og b4-b5 á svartur færi á gegnumbrotinu f6-f5 (gxf5) g6- g5 (hxg4) h4-h3 og peðið rennur upp. Hvítur verður alltaf að reikna með þessum möguleika. 34. ... Hc7 Nú sést að hvíti kóngurinn valdar alla mikilvæga reiti á c- línunni. 35. b5 - d4 36. a4 - Ke7 37. a5 - Hb7 38. b6 - axb6 39. Hxb6 - Hc7 Leiðin 39. ... Ha7 40. a6 er al- veg vonlaus. 40. Hb3 - fS 41. D - Ke6 42. a6 - Ha7 43. Ha3 - Ke5 Hér er rétt að staldra við. Hvíti hefur orðið mikið ágengt, á fjar- lægt frípeð sem hrókurinn valdar aftan frá en svarti hrókurinn múl- bundinn við að skorða það. Svartur má ekki fara í peðakaup með fxg4 (fxg4) og hvítur getur með hægu móti haft vald á h- peðinu. Mótspil svarts byggist á að leika Ke5-f4-g3 og sækja að peðinu en það kostar að hann verður að sleppa valdi á f-peði sínu. Nú þykir Polu loks kominn tími til að kóngur hans fari að láta að sér kveða. 44. Kd3 - Kf4 46. gxf5 - Kxh3 45. Kxd4 - Kg3 47. Kc5 - ... Lykilleikur í stöðunni. Manni sýnist hættuspil að láta kónginn fara svona langt frá kóngsvængn- um en hann á að leysa hrókinn af og Polu hefur reiknað allt ná- kvæmlega. Eftir 47. f6 Kg3 48. f7 Hxf7 49. a7 Hxa7 50. Hxa7 Kxf3 getur hvítur ekki unnið. 47. ... - g4 Ef 47. ... Kg2 48. Kb6 Ha8 49. a7 h3 50. Kb7 Hf8 51. a8D Hxa8 52. Hxa8 h2 53. Hh8 hlD 54. Hxhl og f-peðið rennur síðan upp í borð. Þarnar munar aðeins einum leik en það er að vísu nóg. 48. Kb6 - Ha8 Ekki mátti 49. fxg4 Kxg4 50. f6 Hf8 51. a7 Hxf6+ 52. Kc5 Hf8 53. a8D Hxa8 54. Hxa8 h3 og svartur heldur jöfnu. 49. Kb7 - Hf8 52. Hxa8 - g2 50. a7 - g3 53. Hg8 51. a8D - Hxa8 Og svartur gafst upp því hvítur lætur hrókinn fyrir g-peðið og f- peðið rennur upp í borð. Ef til vill hefur þessi ósigur orð- ið Azmajparasvíli tilefni til að líta einu sinni enn í endataflsbækurn- ar sínar því í næstu umferð á eftir tefldi hann við Karl Þorsteins og fékk upp mjög áþekka lokast- öðu, en var að þessu sinni í sæti sigurvegarans. Hvítt: Azmajparasvíli Svart: Karl Þorstcins Þessi staða kom upp eftir 49. leik Karls g6-g5. Eftir 50. fxg5 Kxg5 er staðan jafntefli en hvítur nýtir sér þrönga stöðu svarta kóngsins til máthótana. 50. Hal - g4+ 51. Kg2 - g3 52. Kf3 - g2 Því miður er þetta allt þvingað og hvítur vinnur létt. 53. Kxg2 - Kg4 56. f5 - h3 54. Ha4 - h4 57. Ha3+ 55. Kgl - Kg3 og svartur gafst upp. Jón Torfason tUÓÐVIUINN FYRIR50ÁRUM Akstureinkabílaleyfður. Bílar þessir voru stöðvaoir þann tíma sem vant er að hafa þá lokaða inni í skúrum. Stöðvunin var enn ein þjóðstjórnarblekkingin. Hvað finnst atvinnubílstjórum um svona ráðstafanir? 27. mars þriðjudagur. 86. dagurársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 7.04- sólarlag kl. 20.04. Viðburðir Þórarinn Guðmundsson tón- skáld fæddur árið 1896. DAGBÓK APÓTEK Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúöa vikuna 23. til 29. mars er í Laugarness Apóteki og Árbæjar Apóteki. Fyrmefnda apótekiö er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22 til 9 (til 10 frídaga). Síöarnefnda apótekiö er opið á kvöldin 18 til 22 virk daga og á laugardögum 9 til 22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík............sími 1 11 66 Kópavogur............sími 4 12 00 Seltjarnarnes........sími 1 84 55 Hafnarfjörður........sími 5 11 66 Garðabær.............sími 5 11 66 Slökkviliö og sjukrabilar: Reykjavík............sími 1 11 00 Kópavogur............sími 1 11 00 Seltjarnarnes........simi 1 11 00 Hafnarfjörður........simi 5 11 00 Garðabær.........:.... sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes, og Kópavog er I Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur alla virka dagafrá kl. 17 til kl. 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, síma- ráðleggingar og tímapantanir í sima 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja- þjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Borgarspftalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eöa ná ekki til hans. Landspítal- Inn: Göngudeildin er opin kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn slmi 696600. Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garöabær: Heilsugæslan Garðaflöt sími65666, upplýsingar um vaktlækna sfmi51100. Akureyri: Dagvakt kl 8 til 17 á Lækna- miðstöðinni sími: 23222, hjá slökkvilið- inu sími 22222. hjá Akureyrar Apóteki sfmi 22445. Farsimi vaktlæknis 985- 23221. Keflavfk: Dagvakt. Uppjýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna sími 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar. Landspftaiinn: Alla daga 15 til 16 og 19 til 20. Borgarspftal- inn: Virka daga 18:30 til 19:30, um helg- ar 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæö- Ingardeild Landspítalans: 15 til 16. Feðratími 19.30 til 20.30. Öldrunar- lækningadeild Landspitalans Hátúni 10 B. Alla daga 14 til 20 og eftir samkomu lagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka daga 16 til 19, helgar 14 til 19.30. Hellsu verndarstööin við Barónsstig opin alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.30. Landakotsspítali: Alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19. Barndeild: Heimsóknirann- arra en foreldra kl. 16 til 17 daglega. St.Jósefsspítali Hafnarfirði: Alladaga 15 til 16 og 19 til 19.30. Kleppsspftal- inn: Alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19. Vestmannaeyjum: Alla virka daga 15 til 16 og 19 til 19.30. Sjúkrahús Akra- ness: Alla daga 15.30 til 16 og 19til 19.30. Sjúkrahúsiö Húsavfk: Alladaga 15 til 16 og 19.30 til 20. YMISLEGT Hjálparstöð RKÍ: Neyöarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allan sólarhrínginn. Sálfræöistöðin. Ráðgjöf i sálfræði- legum efnum. Slmi: 687075. MS-f élaglð, Álandi 13. Opið virka daga frá kl. 8 til 17. Síminn er 688620. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vest- urgötu 3. Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga 13.30 til 15.30 og kl. 20 til 22, sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra, sem orðið hafa fyrir sifjaspellum, sfmi 21500, sím- svari. Upplýsingar um eyðni. Sfmi 622280, beint samband við lækni/hjúlrunarfræð- ing á miðvikudögum kl. 18 til 19,annars simsvari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrirnauðgun. Samtökin 78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er 91 -28539. Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: sfmi: 27311. Raf magnsveita bilanavakt sími: 686230. Rafveita Hafnarfjaröar: Bilanavakt, sfmi: 652936. Vlnnuhópur um sif jaspellamál. Sími 21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Lögf ræöiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt f síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmls- vandann sem vilja styðja smitaðaog sjúkaog aðstandendur þeirra. Hringið f síma 91 -2240 alla virka daga. Stfgamót, miðstöð fyrir konur og böm sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, f ræðsla, upplýsingar. - Vestur- götu3, R. Sfmar: 91 -626868 og 91 -626878 allan sól- arhringinn. GENGIÐ 26. mars 1990 Bandaríkjadollar........... 61,70000 Sterlingspund................. 99,47900 Kanadadollar............... 52,41000 Dönsk króna.................... 9,42340 Norsk króna.................... 9,31180 Sænsk króna.................... 9,97090 Finnskt mark.................. 15,24770 Franskur franki............... 10,68210 Belgískur franki............... 1,73630 Svissneskur franki............ 40,55210 Hollenskt gyllini............. 31,96480 Vesturþýskt mark.............. 35,96930 Itölsk líra.................... 0,04885 Austurrískur sch............... 5,11080 Portúg. escudo................. 0,40690 Spánskur peseti................ 0,56210 Japanskt jen................... 0,39535 Irskt pund.................... 96,02700 KROSSGÁTA Lárétt:1 hár4horfa6 skjót 7 lappi 9 kofi 12 fjölda 14 sjór 15 tryllt 16 kjass 19 hestur 20 heiti 21 riðar Lóörétt: 2 spil 3 gárar 4 tíndu 5 traust 7 hræðslu 8öl10krafsar11 rödd- ina 13 duft 17 trylli 18 eira Lausn á sfðustu krossgátu Lárétt: 1 gláp4gust6 eir 7 basl 9 óþæg 12 valur 14 góa 15 áli 16 Ieitt19lauf20átak21 tvístra Lóörétt: 2 lóa 3 pela 4 Gróu5snæ7bagall8 svalur10þrátta11 grikks 13 lúi 17 efi 18 tál Þriðjudagur 27. mars 1990 pJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.