Þjóðviljinn - 28.04.1990, Side 11
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Vinnufundir - Opið hús
Kosningaundirbúningur frambjóðenda Alþýðubandalagsins í
Eyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar er hafin. Vinnufundir
verða haldnir öll fimmtudagskvöld frá klukkan 20.30 í húsi félags-
ins við Bárugötu. Stuðnir.gsfólk er hvatt til að mæta og hafa áhrif á
stefnumótunina. Opið hús verður álla laugardaga frá klukkan 13 -
15. Frambjóöendur AB
Alþýðubandalagið í Keflavík
Kosningaskrifstofan
Búið er að opna kosningaskrifstofu á Hafnargötu 37A og verður
hún opín fyrst um sinn frá 15 til 19 og 20.30 til 22.
Sími: 11061.
Stuðningsmenn eru hvattir til að líta við á skrifstofunni og fá fréttir.
Frambjóðendur verða til viðtals á kvöldin.
G-listinn í Keflavík
Alþýðubandalagið Kópavogi
Opið hús
í Þinghól, Hamraborg 11 kl. 10-12 alla laugardaga fram yfir bæjar
stjórnarkosningar.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Stuðningsmenn G-listans í Reykjavík! Hafið samband við skrif-
stofu félagsins að Hverfisgötu 105, sími 17500 og gerist félagar í
Alþýðubandalaginu í Reykjavík. Styrkjum þannig stjórnmálastarf
félagsins. Stjórnin
Svanfríður Jóhann Sólveig
k ''æL
Kjartan Bjargey
Suðurnes
Námsstefna um
sveitarstjórnarmál
Alþýðubandalagsmenn og aðrir framfarasinnaðir kjósendur á
Suðurnesjum efna til námsstefnu um sveitarstjórnarmál laugar-
daginn 28. apríl nk. í húsi Iðnsveinafélagsins að Tjarnargötu 7
Keflavík og hefst hún kl. 10 fyrir hádegi.
Framsöguerindi:
1. Svanfríður Jónasdóttir aðstoðarmaður fjármálaráðherra:
Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga og sveitarstjórnarmál al-
mennt.
2. Jóhann Geirdal deildarstjóri Keflavík: Málefni Keflavíkur og
samvinna sveitarfélaga á Suðurnesjum.
3. Sólveig Þórðardóttir Ijósmóðir Njarðvík: Heilbrigðismál og mál-
efni Njarðvíkur.
4. Kjartan Kristófersson bæjarfulltrúi Grindavík: Málefni Grinda-
víkur.
5. Bjargey Einarsdóttir fiskverkandi: Atvinnumál á Suðurnesjum.
Að framsögum loknum verða umræður í hópum.
Hádegisverður verður snæddur á staðnum. Kaffi eftir þörfum.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 11061 í Keflavík.
Alþýðubandalagið í Borgarnesi
Minnir á kosningaskrifstofuna
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Borgarnesi er opin alla
virka daga í Röðli frá kl. 20.30 til 22.00. Laugardaga frá kl. 14-17.
Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí nk. verður
opið hús í Röðli frá kl. 20.30. Frjálsar stjórnmálaumræður- kaffi-
veitingar.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Sauðárkróki
Félagsfundur
Fundur í Villa Nova kl. 13. laugardaginn 28. apríl.
Umræðuefni: Málefni sveitarfélaga, reynslan af verkaskipting-
unni.
Gestir fundarins verða Ólafur Ragnar Grímsson og Ragnar Arn-
alds. Stjórnin
Utankjörfundarskrifstofa
Alþýðubandalagsins
Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík
Símar: 629982 og 629983
Myndsendir: 17599
Utankjörfundarskrifstofa Alþýðubandalagsins er í Miðgarði,
Hverfisgötu 105, 4. hæð.
Skrifstofan veitir upplýsingar um kjörskrá og aðstoöar við kjör-
skrárkærur.
Athygli er vakin á því að kærufrestur vegna kjörskrár rennur út 11.
maí n.k.
Símar aðalskrifstofu Alþýðubandalagsins eru: 17500 og 629971
og 72.
Alþýöubandalagið hvetur alla þá kjósendur sem staddir
verða utan heimabyggðar á kjördag 26. maí að kjósa
snemma. Alþýðubandalagið
Húsavík
Fjörutíu
ára
afmæli
Húsvíkingar minnast þess í
dag að bœrinn hefur verið
kaupstaður í fjörutíu ár
Það verður mikið um dýrðir á Húsavík í
dag þegar bæjarbúar gera sér dagamun í
tilefni af því að í ár eru liðin 40 ár frá því
bærinn fékk kaupstaðarréttindi. Lög þar að
lútandi sem mæltu svo fyrir að Húsavík yrði
gerður að kaupstað eru frá 30. desember
1949. Fyrstu kosningar til bæjarstjórnar
Húsavíkur fóru fram í janúar 1950 og fyrsti
bæjarstjórnarfundur hins nýja kaupstaðar
var svo haldinn 31. janúar sama ár.
Þann sama dag í ár var ákveðið í bæjar-
stjórn Húsavíkur að halda upp á afmælið
þann 28. apríl sem er í dag. Ennfremur var
samþykkt á þessum merka bæjarstjórnar-
fundi að setja á stofn sjóð sem hafi þann
tilgang að kaupa listaverk til að prýða um-
hverfi bæjarins sem og stofnanir og fyrir-
tæki hans. Stofnframlag bæjarsjóðs var 500
þúsund krónur og framvegis mun bæjar-
sjóður veita 0,1% af tekjum sínum til sjóðs-
ins.
Glæsileg dagskrá
Húsvíkingar munu halda daginn hátíð-
legan með ýmsu móti með glæsilegri dag-
skrá sem hefst í fyrramálið þegar forseti
fslands, frú Vigdís Finnbogadóttir kemur í
heimsókn. Hátíðarsamkoma verður í
Húsavíkurkirkju klukkan 10,30 og að henni
lokinni verður forseta íslands og fleirum
boðið til hádegisverðar. Um klukkan 14
verður síðan opnuð yfirlitssýning í Safna-
húsinu á málverkum Ásgríms Jónssonar og
klukkutíma seinna verður hátíðarsamkoma
í íþróttahúsi bæjarins þar sem boðið verður
uppá ýmis skemmtiatriði fyrir unga sem
aldna. Að auki fá allir viðstaddir að kitla
bragðlaukana því þar verður boðið uppá
stóra og mikla afmælistertu. Heimildir ny-
rðra herma að mikil tilhlökkun sé meðal
bæjarbúa að vita hvernig afmælistertan
muni líta út og þá ekki síst hvernig hún muni
verða á bragðið. Um kvöldið mun bæjar-
stjórn Húsavíkur bjóða gestum sínum til
kvöldverðar og seinna um kvöldið verður
svo hátíðarsýning hjá Leikfélagi Húsavíkur
á leikverki Kjartans Ragnarssonar Land
míns föður.
Atvinnumál
Á tímamótum sem þessum er mönnum
gjarnt á að líta um öxl en ekki síður að spá í
framtíðina. Bjarni Þór Einarsson bæjar-
stjóri segir að mál málanna í bænum í dag
séu atvinnumálin og staða þeirra, en um
síðustu mánaðamót voru 67 á atvinnuleysis-
skrá í bænum. Bæjarstjórinn segir að þetta
sé há tala á mælikvarða bæjarfélagsins sem
stafi að hluta til af því gæftaleysi sem verið
hefur þar nyrðra sem og einmuna lélegu
tíðarfari.
Að öðru leyti telur Bjarni Þór að staða
mála í Húsavík sé að mörgu leyti góð miðað
við landsvísu. Það sem háir Húsvíkingum
sem og öðrum landsbyggðarmönnum sem
lifa á sjávarfangi er sú staðreynd að sífellt er
verið að skerða þann kvóta sem úthlutað er
til skipa og báta og það hefur sín áhrif á
atvinnuástandið og nýtingu þeirrar fjárfest-
ingar sem fyrir er í sjávarútveginum. Að
auki hafa Húsvíkingar notið góðs af nábýli
við sveitirnar í nágrenninu þó svo að meira
hafi verið að gera við vinnslu landbúnaðar-
afurða og þjónustu en var hér á árum áður.
Þessa þróun hefur mátt sjá í afkomu
Kaupfélags Suður Þingeyinga á Húsavík
sem var rekið með umtalsverðum tapi árið
1988 en á síðasta ári var þeirri þróun snúið
myndarlega við á þann hátt að lítilsháttar
hagnaður var af rekstri þess.
Ekki má skilja svo við Húsavík á þessum
tímamótum án þess að geta þess að þar reis
af grunni fyrsta húsið á íslandi. Það gerði
sænski víkingurinn Garðar Svavarsson sem
hafði þar vetursetu, samkvæmt því sem
segir í Landnámu.
-grh
í DAG
þlÓÐVILJINN
fyrir 50 árum 28. apríl
Bretland og Bandaríkin hafa við- urkenntsjálfstæði íslands. Pétur Benediktsson fulltrúi íslands með diplomatísku umboði í London. Vilhjálmur Þór aðalræð- ismaður íslands I Bandaríkjun- um. Breskursendiherra og bandarískur aðalræðismaður væntanlegir. Erekki vonáviður- kenningu fleiri ríkja? Laugardagur. 118. dagurársins. Sólarupprás I Fteykjavík kl. 5.11 - sólarlagkl. 21.42. Viðburöir Bæjarbardagi 1237. Jafnaðar- mannafélag Reykjavíkur klofnar í annað sinn árið 1926 vegna ágreinings milli Ólafs Friðriks- sonarog kommúnista.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 27. apnl til 3. maí er í
Breiðholts Apóteki og Apóteki Austur-
bæjar.
Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22 til 9
(til 10 frídaga). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18 til 22 virk daga og á
laugardögum 9 til 22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík............simi 1 11 66
Kópavogur............sími 4 12 00
Seltjarnarnes...... sími 1 84 55
Hafnarfjörður .......sími 5 11 66
Garðabær..............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík.............sími 1 11 00
Kópavogur.............sími 1 11 00
Seltjarnarnes.........sími 1 11 00
Hafnarfjörður.........sími 5 11 00
Garðabær..............sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrlr Reykjavík, Seltjarn-
arnes, og Kópavog er í Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17
til kl. 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, síma-
ráðleggingarog timapantanir í sima
21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja-
þjónustu eru gefnar í símsvara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga frá kl.
8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspítal-
inn: Göngudeildin eropin kl. 20 til 21.
Siysadeild Borgarspítalans er opin all-
an sólarhringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt
simi65666, upplýsingar um vaktlækna
sími51100.
Akureyri: Dagvakt kl 8 til 17 á Lækna-
miðstöðinni sími: 23222, hjá slökkvilið-
inu sími 22222. hjá Akureyrar Apóteki
sími 22445. Farsimi vaktlæknis 985-
23221.
Keflavfk: Dagvakt. Uppjýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna
sími 1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar. Landspftalinn: Alla
daga 15 til 16 og 19 til 20. Borgarspítal-
Inn: Virka daga 18:30 til 19:30, um helg-
ar 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæð-
Ingardeild Landspítalans: 15 til 16.
Feðratimi 19.30 til 20.30. Öldrunar-
læknlngadeild Landspítalans Hátúni 10
B. Alla daga 14 til 20 og eftirsamkomu
lagi. Grensásdeild Borgarspitala: Virka
daga 16 til 19, helgar 14 til 19.30.
Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg
opin alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.30.
Landakotsspitali: Alla daga 15 til 16 og
18.30til 19. Barndeild: Heimsóknirann-
arraenforeldrakl. 16til 17daglega.
St.Jósefsspftall Hafnarfirði: Alladaga
15 til 16 og 19 til 19.30. Kleppsspital-
inn: Alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.
Vestmannaeyjum: Alla virka daga 15 til
16 og 19 til 19.30. Sjúkrahús Akra-
ness: Alla daga 15.30 til 16 og 19til
19.30. Sjúkrahúsið Húsavík: Alladaga
15 til 16 og 19.30 til 20.
YMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjarnargötu 35. Sími: 622266,
opið allan sólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræði-
legum efnum. Sími: 687075.
MS-fálagið, Álandi 13. Opiö virkadaga
frá kl. 8 til 17. Síminn er 688620.
Kvennaráðgjöf in Hlaðvarpanum Vest-
urgötu 3. Opið þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga 13.30 til 15.30 og kl. 20til
22, sími 21500, símsvari.
Sjálf shjálparhópar þeirra, sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum, sími 21500, sím-
svari.
Upplýslngar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúlrunarfræð-
ingámiðvikudögumkl. 18til 19,annars
símsvari.
Samtök um kvennaathvarf, síml
21205. Húsaskjól og aðstoð tyrir konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða
orðiðfyrirnauðgun.
Samtökin 78.Svaraðeríupplýsinga-
og ráðgjaf arsima félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum
tímum. Siminn er 91 -28539.
Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: sími:
27311. Rafmagnsveita bilanávakt sími:
686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
simi: 652936.
Vlnnuhópur um sff jaspel lamál. Simi
21260 allavirkadaga kl. 13til 17.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í sima 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla
krabbameinssjúklinga og aðstandendur
þeirraáfimmtudögumkl. 17 til 19.
Samtök áhugaf ólks um alnæmls-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í
sima 91 -2240 alla virka daga.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm sem
orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar. - Vestur-
götu3, R.
Símar: 91 -626868 og 91-626878 allan sól-
arhringinn.
GENGIÐ
27. apríl 1990
Bandaríkjadollar.............. 60,9000
Sterlingspund................ 99,41000
Kanadadollar................. 52,34000
Dönsk króna................... 9,54170
Norsk króna................... 9,32760
Sænsk króna................... 9,98610
Finnskt mark................. 15,31880
Franskur franki.............. 10,81180
Belgískur franki.............. 1,75710
Svissneskur franki........... 41,63110
Hollenskt gyllini............ 32,23330
Vesturþýskt mark............. 36,25540
Itölsk líra................... 0,04945
Austurriskur sch.............. 5,15160
Portúg. escudo................ 0,40930
Spánskur peseti............... 0,57330
Japanskt jen.................. 0,38296
Irskt pund................... 97,28500
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 narr4sóp6
for7klöpp9m,unnbiti
12bor14loga15vafa
16 fyrirgefning 19 út-
skýra 20 hópur 21 gata
Lóðrétt:2hag3að-
eins 4 fugl 5 eyði 7 íss 8
duga 10 pallur 11 ófúsi
13fantur17skip18
elska
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 slæg 4 sorg 6
átt8skír9anga12
tangi14fúa15sög16
Ieitt19skín20riða21
andúð
Lóðrétt: 2 lok 3 gára 4
stag 5 rög 7 sefast 8
Italia 10 nistið 11 ang-
rar 13 nói 17 enn 18 trú
Laugardagur 28. apríl PJÓÐVIUINN - SÍÐA 11