Þjóðviljinn - 29.05.1990, Page 2
FRETTIR
Hafnarfjörður
Heildarsigur meiríhlutans
Það er athyglisvert að bæjar-
búar tala um úrslitin í Hafn-
arfirði sem heildarsigur meiri-
hlutans. Sameiginlega eru Al-
þýðuflokkur og Alþýðubandalag
með um 60% fylgi sem er svipað
og Sjálfstæðismenn hafa í
Reykjavík. Við Aiþýðubanda-
lagsmenn erum hvað ánægðastir
með það, að við höldum okkar
manni og aukum hlut okkar, með
málefnalegum aðferðum en ekki
með söng og rósum. Þetta vil ég
þakka einvala liði og góðri vinnu,
sagði Magnús Jón Arnason
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins í Hafnarfirði.
Sitjandi meirihluti, Alþýðu-
fiokkur og Alþýðubandalag,
vann stórsigur í Hafnarfirði. Al-
þýðuflokkurinn bætti við sig ein-
um manni og er nú með hreinan
meirihluta, en Alþýðubandalag-
ið bætti einnig hlut sinn hlutfalls-
lega þótt ekki nægði það fyrir
öðrum manni. Léleg útkoma
Sjálfstæðisflokksins vekur at-
hygli, en þeir halda sínum fjórum
bæjarfulltrúum, en ætluðu sér
fimm, þar sem framboð Einars
Akureyri
Altt getur
gerst
„Við erum mjög ánægð með að
halda okkar hlut og það er talinn
nokkur sigur fyrir okkur að halda
inni tveimur mönnum þrátt fyrir
að framboðin væru sex nú í stað
fjögurra árið 1986,“ sagði Sig-
ríður Stefánsdóttir á Akureyri í
samtali við Þjóðviljann í gær, en
hún skipaði efsta sæti G-iistans
þar.
Framsóknarflokkur vann mik-
inn sigur á Akueyri og fékk fjóra
menn kjörna, vann tvo af krötum
sem nú hafa aðeins einn bæjar-
fulltrúa í ellefu manna bæjar-
stjórn Akureyrar. Sjálfstæðis-
flokkurinn hélt sínum fjórum
fulltrúum.
„Kratar eru alveg út úr dæminu
og nú á eftir að koma í ljós hvað
verður um meirihlutasamstarf,“
sagði Sigríður. „Framsókn getur
myndað meirihluta með okkur
eða með Sjálfstæðisflokknum og
staðan er mjög óviss. Það hefur
ekki komið fram ennþá hver hug-
ur Framsóknarmanna er og því
getur allt gerst.“
-vd.
5000 börn í
Landsbankahlaupi
Rúm 5000 börn tóku þátt í Lands-
bankahlaupinu á laugardag, en
það er metþátttaka í þessu árlega
hlaupi. í Laugardal í Reykjavík
mættu 2200 börn til leiks og á
landsbyggðinni höfðu um 3100
böm látið skrá sig á föstudag. Þá
varð þátttaka á Akureyri meiri en
nokkru sinni fyrr, en þar hlupu
550 börn. Víða hlupu foreldrar
með litlum börnum, en hlaupið
sjálft var ætlað börnum fæddum
1977-80.
Sýning í Bóka-
safni Kópavogs
Nú stendur yfir sýning á málverk-
um eftir Mattheu Jónsdóttur
listmálara í Bókasafni Kópavogs.
Matthea hefur haldið 13 einka-
sýningar auk fjölda samsýninga
hér heima og erlendis. Þá hefiír
Matthea nokkrum sinnum hlotið
verðlaun fyrir verk sín á alþjóða-
sýningum, m.a. í Frakklandi og
Belgíu. Sýningin stendur til 25.
júní og er opin á opnunartíma
safnsins 10-22 virka daga.
Mathiesen fyrir fjórum árum var
klofningsframboð út úr Sjálf-
stæðisflokknum.
„Það er of snemmt að segja til
um hvert framhaldið verður,"
sagði Magnús Jón. „Ef kratar
kjósa að fara einir með meirihlut-
ann þá munum við styðja þá til
góðra verka en veita þeim verð-
ugt aðhald til vinstri.“
En hvað finnst Magnúsi Jóni
um niðurstöðurnar þegar litið er
til landsins alls.
„Það blasir við skelfilegur sigur
íhaldsins. Þessi sigur er allt að því
óhugnanlegur. Hinsvegar er ég
ekki sammála því að útkoman hjá
sameiginlegu framboðunum
sýni, að þau eigi ekki rétt á sér.
Þessi framboð komu hinsvegar
alltof seint fram. Menn verða að
hafa tíma til þess að stilla sína
strengi.“
-Sáf
Hafsteinn Stefánsson var ekki ánægður með að fá brauðgjafir frá Sjálfstæðisflokknum á kjördag. Mynd:
Kristinn.
Seltjarnarnes
Brauðburður kærður
Hafsteinn Einarsson á Bergi á
Seltjarnarnesi kærði fram-
ferði Sjálfstæðismanna á nesinu á
kjördag, þegar þeir dreifðu
brauði til kjósenda í pokum
merktum „X-D Betri bær“. Sig-
urður Haraldsson og Hörður Fel-
ixson hjá yfirkjörstjórn neituðu
að taka við kærunni frá Hafsteini
og sögðu slík mál ekki í verka-
hring yflrkjörstjórnar.
Eftir að Hafsteinn fékk
brauðið frá Sjálfstæðisflokknum
borið heim til sín á kjördag, sagð-
ist hann hafa átt erfitt með að
komast að því hvaða leið hann
ætti að fara til að kæra málið.
Hann fékk síðan Inga R. Helga-
son lögfræðing til að skrifa fyrir
sig kæruna og fór með hana til
yfirkjörstjórnar.
Hafsteinn sagði Sigurð Har-
aldsson hjá yfirkjörstjórn hafa
neitað að taka við kærunni og
þannig virtist hann ekki gera sér
grein fyrir sínu starfi. Eftir það
hefði Ingi R. hringt í Sigurð og þá
hefði hann fengist til að taka við
kærunni.
Að sögn Hafsteins gerist ekk-
ert frekar í málinu nema hann ýti
á eftir því. Hann sagðist hins veg-
ar hafa verið svo önnum kafinn
eftir kosningarnar, að hann hefði
ekki náð að hugleiða framhaldið.
í sínum huga væri efst að þeir sem
fóru fyrir yfirkjörstjórn fengju
vítur vegna framkomu þeirra
þegar hann hugðist leggja fram
kxriinB
Yfirkjörstjórn tók mál Haf-
steins fyrir og bókaði meirihluti
hennar að hann liti svo á að starf
yfirkjörstjórnar væri takmarkað
við kjörstað og næsta nágrenni
hans. Minnihlutinn taldi hins
vegar rétt að vfta Sjálfstæðis-
flokkinn svo vinnubrögð í anda
brauðburðarins endurtækju sig
ekki í framtíðinni. -hmp
Hópurinn leggur af stað í Landsbankahlaupinu í Laugardal.
Barnfóstrun og
skyndhjálp
í kvöld hefst námskeið í skyndi-
hjálp á vegum Kópavogsdeildar
Rauða krossins. Námskeiðið
verður fimm kvöld, 29. og 30.
maíogó., 7. og 11. júní kl. 20-23.
Leiðbeinandi verður Guðlaugur
Leósson í síma 41382. í gær hófst
barnfóstrunámskeið en á því er
kennt það helsta sem góð barn-
fóstra þarf að kunna.
Leiðbeinandi er Sigrún Þórarins-
dóttir í síma 44304. Námskeiðið
er í 4 kvöld, 28. og 29. maí og 6.
og 7. júní frá 19-22. Bæði náms-
keiðin eru í Digranesskóla.
Sektalaus vika
í bókasöfnum
í gær hófst sektalaus vika í bóka-
söfnum á öllu landinu, en vikunni
lýkur laugardaginn 2. júní. Hægt
er að skila vanskilabókum og
öðrum gögnum í bókasöfnin án
þess að greiða sektir. Þá er hægt
að skila gögnum í næsta safn þótt
þau tilheyri safni annarsstaðar á
landinu. Söfnin sjá svo um að
koma þeim til réttra eigenda.
Fólk er hvatt til þess að nota þetta
tækifæri og losa sig við gamlar
syndir.
Deilur um opin-
berar nafngiftir
Ola Stemshaug dósent í norræn-
um fræðum við Háskólann í
Þrándheimi flytur opinberan
fyrirlestur í boði Heimspeki-
deildar HÍ og Norræna hússins í
kvöld kl. 20.30 í Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn nefnist Striden for
eit nasjonalt namneverk í Norge“
og verður fluttur á norsku.
Stemshaug er einn helsti sérfræð-
ingur Norðmanna í nafnfræði og
hefur hann samið bækur og fjölda
greina á því sviði og einnig um
mállýskur. í fyrirlestrinum mun
hann m.a. greina frá deilum um
opinberar nafngiftir og nafn-
breytingar í Noregi á millistríðs-
Húsavík
Samhliða sveitarstjórnarkosn-
ingunum var víða um land einnig
kosið um önnur mál, t.d. hreppa-
sameiningar og áfengisútsölur og
á Ísafírði var kosið um kirkju-
stað.
Á Húsavík, í Mosfellsbæ og á
Dalvík var kannað samhliða
bæjarstjórnarkosningum hvort
íbúar vildu fá áfengisútsölu í bæ-
inn. Þetta er í fjórða sinn sem
Húsvíkingar greiða atkvæði um
„ríki“ og í þetta sinn höfðu fylgis-
menn betur, 907 sögðu já en 415
sögðu nei. 38 atkvæði voru auð
eða ógild. í Mosfellsbæ sögðu
1287 já og 688 nei en á Dalvík
sögðu hins vegar 508 nei og 299
já-.
I þremur hreppum við Eyja-
fjörð, Saurbæjarhreppi, Hrafna-
gilshreppi og Öngulsstaðahreppi
var gerð skoðanakönnun meðal
íbúa um hvort þeir væru fylgjandi
sameiningu þessara hreppa og
var yfirgnæfandi meirihluti fyl-
gjandi því, enda reka þessir
hreppar þegar sameiginlega ýmsa
þjónustu. Nefnd verður skipuð á
næstunni til að undirbúa samein-
inguna og þegar hún hefur lokið
störfum fer fram kosning um
sameiningu.
í Keflavík og Njarðvík voru
einnig gerðar skoðanakannanir
um sameiningarmál. í Keflavík
var spurt hvort íbúar vildu sam-
einingu við önnur sveitarfélög á
Suðurnesjum, eitt eða fleiri og
gátu kjósendur krossað við sam-
einingu við Miðneshrepp, Hafn-
arhrepp, Grindavík, Gerða-
hrepp, Njarðvík og Vatnsleysu-
strandarhrepp. 80% þeirra sem
atkvæði greiddu voru fylgjandi
sameiningu en eftir er að taka
saman nákvæmar niðurstöður. í
Njarðvík var naumur meirihluti á
móti sameiningu, nei sögðu
45,53% og já sögðu 44,92%.
Yfirgnæfandi meirihluti ísfirð-
inga sem tóku þátt í skoðana-
könnun um staðsetningu væntan-
legrar kirkjubyggingar, 87%,
voru fylgjandi því að hún yrði
reist á þeirri lóð sem gamla kir-
kjan stendur á, en 13% voru fyl-
gjandi því að kirkja yrði byggð á
fjarðarsvæðinu. Á næstunni
kemur saman samstarfsnefnd
sóknarnefndar og bæjarstjórnar
sem á að fjalla um umfang og
stærð fyrirhugaðrar byggingar.
-vd.
árunum og síðar. Fyrirlesturinn
er öllum opinn.
Fornleifarannsóknirá
Noröurlandi
Dr. Margrét Hermanns Auðar-
dóttir talar í dag um nýjar fom-
leifarannsóknir á Norðurlandi
eystra. Erindið er flutt á vegum
íslenska mannfræðifélagsins og
hefst kl. 17.30 í stofu 101 í Odda.
Öllum heimill aðgangur.
Hjúkrun aldraðra
með heilabilun
Sænski hjúkrunarfræðingurinn
Professor Astrid Norberg heldur
fyrirlestur á morgun, miðviku-
daginn 30. maí, um hjúkrun aldr-
aðra með heilabilun. Fyrirlestur-
inn er haldinn í boði Hjúkrun-
arfélags íslands og Félags há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga og er öllum opinn meðan
húsrúm leyfir. Fyrirlesturinn er
haldinn í húnæði Námsbrautar í
hjúkrunarfræði við Háskóla ís-
lands, Eirbergi, að Eiríksgötu 34
og hefst kl. 15.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þri&Judagur 29. maí 1990