Þjóðviljinn - 31.05.1990, Side 2
FRÉTTIR
Alþýðuflokkurinn
Eignar sér Nýjan vettvang
Jón Baldvin Hannibalsson: Kristín og Ólína verðafullgildir jafnaðarmenn. KristínÁ. Ólafsdóttir: Hef
sagtmig úrABR,en er ekki á leið inn í Alþýðuflokkinn.
Eg hef sagt mig úr Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavík en er
áfram féiagi í Birtingu og þar með
í Alþýðubandalaginu. Eg er held-
ur ekki á leið inn í Alþýðuflokk-
inn og hafna því fullkomlega að ég
sitji í borgarstjórn fyrir þann
flokk, segir Kristín Á. Ólafsdótt-
ir, borgarfulltrúi Nýs vettvangs, í
samtali við Þjóðviljann.
Jón Baldvin Hannibalsson og
Guðmundur Ámi Stefánsson
hafa látið í það skína að þeir eigni
Alþýðuflokknum borgarfulltrú-
ana Ólínu Þorvarðardóttur og
Kristínu Á. Ólafsdóttur.
Jón Baldvin sagði í Morgun-
blaðinu í gær að hann teldi afar
líklegt að Kristín og Ólína myndu
„um það er lýkur teljast fullgildir
jafnaðarmenn“.
Einnig var haft eftir Jóni Bald-
vini að Nýr vettvangur hefði ver-
ið „brú yfir til okkar jafnaðar-
manna fyrir þá menn sem áður
voru í Álþýðubandalaginu eða
höfðu flestir hverjir stutt það í
kosningum.“ Formaður Alþýð-
uflokksins segist jafnframt telja
að þetta fólk muni ekki leita til
baka yfir þá brú.
Guðmundur Ámi Stefánsson
bæjarstjóri í Hafnarfirði segir í
samtali við Þjóðviljann að hann
telji eðlilegt að fólkið á Nýjum
vettvangi komi nú til starfa innan
Alþýðuflokksins.
„Það er ljóst að þessir bræðing-
ar gengu ekki upp og það er eðli-
leg afleiðing að þetta fólk komi til
okkar. Ég lít þó ekki á Ólínu og
Kristínu sem borgarfulltrúa Al-
þýðuflokksins í augnablikinu,"
segir Guðmundur Ámi.
Kristín Á. Ólafsdóttir segir
hins vegar að hún sé enn fyllilega
trúuð á sameiginleg framboð og
telur sjálfsagt að stofnun nýs
flokks verði reynd fyrir næstu
þingkosningar.
„Ég veit ekki hvort þetta tekst
fyrir næstu þingkosningar, en það
er sjálfsagt að kanna mögu-
leikann á því og fólk er þegar
byrjað að tala saman, ekki bara í
Reykjavík.
Það er alls ekki rétt hjá Jóni
Baldvini að Nýr vettvangur sé að-
eins brú yfir í Alþýðuflokkinn.
Nýr vettvangur er brú á milli
fólks úr ýmsum flokkum og fólks
utan flokka,“ segir Kristín Á. Ól-
afsdóttir.
-gg
ABR
Ný stjóm í kvöld
Ungviðift byrjar snemma aft taka til hendinni í atvinnulífinu á landsbyggðinni. Þegar Þjóðviljinn
var á ferðinni á Höfn í Hornafirfti einn föstudagsmorgun fyrir skömmu, voru þessir vösku drengir löngu
komnir á fætur og byrjaðir að beita. Ekki dugar að láta kallana fara beitulausa á sjóinn. Mynd: Kristinn..
Það er ákaflega blendin tilfinn-
ing að mörgu leyti að fara frá
núna því það er þannig hugur í
þeim félögum sem unnu með okk-
ur i kringum kosningarnar að nú
verði félagið miklu meira lifandi
en verið hefur vegna þess að það
er komið það margt áhugasamt
fólk til starfa, sagði Stefanía
Traustadóttir fráfarandi formað-
ur Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur, en félagið heldur
aðalfund sinn í kvöid og kýs sér
nýja stjórn. Uppstillingarnefndin
stiilir Sigurbjörgu Gísladóttur
upp sem næsta formanni. Sigur-
björg hefur verið í ABR í 15 ár.
Hún er starfsmaður Hollustu-
verndar og varaformaður Félags
islenskra náttúrufræðinga.
„Ég hef fulla trú á Sigurbjörgu
til að leiða þetta félag þannig að
það verði til farsældar og í þessari
stjórn sem tekur við er gott samb-
land af nýliðum og reyndum fé-
lögum í ABR eins og verið hef-
ur,“ sagði Stefanía.
Enginn þeirra sem nefndin
stillir upp er í Birtingu. „Nefndin
hefur metið það þannig að hún
hefur einungis leitað til þeirra
sem voru í virku starfi innan
ABR og haldið sig við það,“
sagði Stefanía. „Birtingarfélagar
hafa litið á félagið sem dautt og
lokað og ég get ekki ímyndað mér
að þeir hafi nokkurn áhuga á að
hafa þar áhrif.“
Stjórn ÆFR hefur gert kröfu
um að stofnað verði kjördæmis-
ráð í Reykjavík og fráfarandi
stjórn mun því að öllu óbreyttu
leggja til þær lagabreytingar sem
til þarf að sögn Stefaníu. Ekki er
þó hægt að kjósa fulltrúa í slíkt
ráð nema boða til framhaldsaðal-
fundar.
Ólíklegt er að Birtingarfélagar
fjölmenni á fundinn í kvöld og
sagðist Kjartan Valgarðsson for-
maður félagsins ekki eiga von á
að Birtingarfólk hefði áhuga á að
starfa meira innan ABR. 'Tveir
Birtingarfélagar, þær Kristín Á.
Ólafsdóttir og Árna Jónsdóttir,
hafa sagt sig úr ABR og Kjartan
kvaðst einnig vera á leiðinni út.
vd.
Barnavinna
Dregið úr
slysahættu
Við þinglok voru samþykktar á
Alþingi breytingar á lögum um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum og skýrar en á'ður
kveðið á um að börn megi ekki
ráða nema til léttra, hættulítilia
starfa. I lögunum segir nú að
bannað sé að láta börn yngri en 15
ára vinna við hættuiegar vélar og
við hættulegar aðstæður.
Tilgangur lagabreytinganna er
einkum sá að draga úr slysahættu
við vinnu barna og unglinga.
Miðað við skráð slys hjá Vinnu-
eftirliti ríkisins hafa alvarlegustu
slysin á bömum og ungmennum
orðið við landbúnaðarvélar og
fiskvinnsluvélar. vd.
Lifandi fortíð
í Árbæjarsafni
Á morgun, föstudaginn 1. júní,
hefst sumarstarf Árbæjarsafns.
Safnið verður opið alla daga
nema mánudaga kl. 10-18.
Bryddað verður upp á ýmsum ný-
jungum. Um helgarverðurmess-
að í safnskirkju á auglýstum tím-
um og í Dillonshúsi verða veiting-
ar á boðstólum. Einnig verða
ýmsar uppákomur og tónleikar á
dagskrá. í sumar verður opnuð
krambúð að hætti aldamótakaup-
manns. í tilefni 550 ára afmælis
prentlistar á íslandi verður
prentminjasýning í Árbæjars-
afni. Ein af sumarsýningum
safnsins verður um mannlíf í
Reykjavík á stríðsárunum en sú
sýning er í tilefni af því að 50 ár
eru síðan breskur her steig hér á
land.
M-hátíi
á Vesturlandi
í dag verða opnaðar tvær sýning-
ar á Vesturlandi sem tengjast M-
hátíðinni. Kl. 20 verður opnuð
Aukasýningar
á Fátæku fólki
Leikfélag Akureyrar hefur
ákveðið að hafa tvær aukasýning-
ar á leikritinu Fátækt fólk nú um
helgina, en síðustu sýningar voru
auglýstar um síðustu helgi. Mjög
góð aðsókn hefur verið að leikrit-
inu og var uppselt um síðustu
helgi. Um 4000 manns hafa séð
leikritið og er það albesta aðsókn
að íslensku verki hjá Leikfélagi
Akureyrar í háa herrans tíð. Það
var Böðvar Guðmundsson sem
vann leikgerðina upp úr endur-
minningabókum Tryggva Emils-
sonar.
Kristján
Evrópumeistari
Kristján Arason, handboltamað-
urinn þekkti úr Hafnarfirði, varð
á þriðjudagskvöld Evrópumeist-
ari með spænska liðinu Teka
Santander, þegar liðið sigraði
sænska liðið Drott á heimavelli
23:18. Teka hafði tapað fyrri leik
liðanna í Svíþjóð 24:22. Kristján
er þar með fyrsti íslendingurinn
sem verður Evrópumeistari í
flokkaíþrótt.
alla virka daga kl. 16-22 og kl.
14-22 um helgar. f dag verður,
einnig opnuð sýning á handa-
vinnu eldri borgara í Borgarnesi
og nágrenni, sem þeir hafa unnið
í Opnu húsi, sem haldið hefur
verið vikulega í allan vetur. Sýn-
ingin er í Grunnskólanum og
stendur til 4. júní og er opin á
sama tíma og hin sýningin. Þá
verður haldin skemmtun í Þing-
hamri í kvöld, en sú skemmtun
samanstendur af atriðum frá
nokkrum skólum á Vesturlandi.
Skólarnir eru Grunnskóli Laxár-
dalshrepps, Laugaskóli í Dölum,
Lýsuhólsskóli, Laugagerðisskóli,
Kleppjárnsreykjaskóli, Anda-
kílsskóli, Heiðarskóli og Varma-
landsskóli. Að lokinni
skemmtuninni verður opnuð
mynd og handmenntasýning á
verkum nemenda Varmalands-
skóla. Skemmtunin hefst kl. 21
en sýningin er opin alla virka
daga kl. 16-22 og 14-22 um helg-
ar. Laugardaginn 2. júní heldur
Langholtskórinn tónleika að
Hlöðum og hefjast þeir kl. 15.
Stjómandi er Jón Stefánsson en
tónleikamir era á vegum Tónlist-
arfélags Borgarfjarðar.
Þorgerður Sigurðardóttir
í nálægð jökuls
Þorgerður Sigurðardóttir opnar í dag sýningu í vinnustofu sinni á
Lambastaðabraut 1 Seltjarnarnesi. Þorgerður sýnir smámyndir sem
hún hefur unnið í vetur. Myndimar era Pexíglerristur og mónóþrykk
og sýna jökulinn í nálægð, enda ber sýningin yfirskriftina „í nálægð
jökuls“. Þorgerður lauk námi frá grafíkdeild Myndlista- og handíða-
skólans vorið 1989 og er þetta fyrsta einkasýning hennar. Sýningin
verður opnuðr kl. 17 í dag og er opin 15-19 og 20-22 alla daga til 9. júní.
sýning 14 frístundalistamanna í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu í Sýningin verður opin til 10. júní
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. maf 1990