Þjóðviljinn - 31.05.1990, Blaðsíða 3
A Iþýðubandalagið
Málum verði
komið
á hreint
Framkvæmdastjóm Alþýðu-
bandalagsins kom saman til fund-
ar á þriðjudagskvöld og ræddi
stöðu flokksins eftir nýafstaðnar
kosningar. Ákveðið var að halda
annan fund á næstunni og að
boða til miðstjórnarfundar um
mánaðamót júní/júlí.
„Það var mjög eindregin krafa
uppi um það á fundinum að koma
ákveðnum hlutum á hreint.
Menn vilja að það verði rætt og
gengið frá því á næstu mánuðum
hvemig flokkurinn kynnir sig og
hvort hann gengur til alþingisk-
osninga heill og óskiptur eða
hvort við sitjum uppi með sama
aðdraganda og útkomu og við
borgarstjórnarkosningamar.
Þessu verður að koma á hreint
fyrr en seinna," sagði Steingrím-
ur J. Sigfússon varaformaður Al-
þýðubandalagsins og formaður
miðstjómar.
Óttar Proppé, formaður fram-
kvæmdastjórnar, sagði fátt frétt-
næmt varðandi þennan fund,
enda regla að halda
framkvæmdastjórnarfundi hálfs-
mánaðarlega og til miðstjórnar-
funda væri boðað tvisvar til þri-
svar á ári. „Fjölmiðlar bjuggu sér
til þá mynd að þetta yrði einhver
uppgjörsfundur en í raun er þetta
bara fundur ákveðinnar stofnun-
ar innan flokksins til að fara yfir
stöðuna að afstöðnum kosning-
um eins og venja er,“ sagði hann.
-vd.
FRETTIR
Atvinnuástand
Uggur i namsmönnum
u
ggur er nú að færast í fjölda
tekist að verða sér úti um vinnu í
sumar. Elsa Valsdóttir fram-
kvæmdastjóri Atvinnumiðlunar
stúdenta sagði miklu fleiri náms-
menn hafa skráð sig hjá miðlun-
inni nú en á sama tíma í fyrra. Nú
hafa um 950 háskólastúdentar og
framhaldsskólanemar skráð sig
hjá miðluninni en í fyrra voru
þeir á bilinu 6-700. Atvinnumiðl-
unin hefur hins vegar aðeins 200
störf á lausu að sögn Elsu. í fé-
lagsmálaráðuneytinu er unnið að
úttekt á atvinnuástandinu og er
niðurstöðu að vænta innan fárra
daga.
Elsa sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að Atvinnumiðlunin
hefði nú þegar haft milligöngu
um að útvega um 100 náms-
mönnum atvinnu. Þetta væru
mest hefðbundin
sumarafleysingastörf á skrifstof-
um, við afgreiðslu og í bygginga-
vinnu. Elsa sagði ekkert útlit fyrir
að vinnumarkaðurinn væri betri
nú en í fyrra. Hjá Atvinnumiðlun
hefðu menn ekki átt von á að
ástandið yrði svona slæmt, heldur
reiknað með að það yrði svipað
og í fyrra.
Á síðasta ári stóð ríkisstjórnin
fyrir sérstöku atvinnuátaki fyrir
námsmenn. Elsa sagði átakið
hafa tekist mjög vel enda betra að
fá einhverja vinnu en vera á at-
vinnuleysisbótum, sem væru
niðurlægjandi. Atvinnumiðlun
stúdenta hefði því sent Jóhönnu
Sigurðardóttur erindi í síðustu
viku og hvatt til annars átaks. Að
sögn Elsu eru álíka margir karlar
skráðir hjá miðluninni og konur.
Læknanemar, hjúkrunarnemar
og sjúkraliðar ættu auðveldast
með að fá vinnu en annars væri
ástandið svipað á milli deilda Há-
skólans. Framhaldskólanemar
eru um 40-50% þeirra sem
skráðir eru hjá Atvinnumiðlun.
Grétar Guðmundsson aðstoð-
armaður félagsmálaráðherra
sagði að undanfamar tvær vikur
hefði verið gerð athugun á at-
vinnuástandinu á vegum ráðu-
neytisins. Hann sagði niðurstöðu
að vænta á alira næstu dögum.
„Erindi námsmanna fór strax í at-
hugun hér í ráðuneytinu og fé-
lagsmálaráðherra lítur ástandið
alvarlegum augum.
Samkvæmt athugun félags-
málaráðuneytisins virðist at-
vinnuástandið í landinu í heild
vera nokkuð betra en í fyrra.
Grétar sagði upplýsingar náms-
manna hins vegar benda til þess
að atvinnuhorfur þeirra væm síst
betri en í fyrra.
-hmp
Dagsbrún
Verðhækkanir stoppaðar
0 tjórn Dagsbrúnar skorar á
Verðlagsráð að leyfa ekki
verðhækkanir. I tilkynningu frá
Dagsbrún segir að vitað sé að
fjöldi beiðna um verðhækkanir
liggi fyrir næsta fundi Verð-
lagsráðs. Dagsbrún hvetur til
virkara verðlagseftirlits og segir
að nöfn þeirra fyrirtækja sem
hækki vörur sínar verði birt.
Dagsbrún telur alvarlega hættu
á að verðlag í landinu fari yfir þau
mörk sem sett vom í síðustu
kjarasamningum. Gangi þetta
eftir telur stjórn Dagsbrúnar
miklar líkur á að ekki takist að
hemja verðlag á næsta viðmiðun-
artímabili kjarasamninga. -hmp
Einfaramir í íslenskri myndlist, þeir Sæmundur Kíkó, Eggert, Stefán frá Möðrudal og Guðjón, í Hafnarborg.
Kristinn. T . , ,
Listahatið
Obeislað hugarflug Einfara
infarar í íslenskri myndlist er
yfirskrift sýningar sem opnað
verður í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar, á
laugardag.
A sýningunni eru rúmlega eitt
hundrað verk eftir fimmtán ís-
lenska alþýðulistamenn. Lista-
menn þessir flokkast undir naív-
ista eða utangarðsmenn í list-
sköpun sinni. Aðalsteinn Ingólfs-
son listfræðingur kýs að kalla þá
næfa listamenn í nýútkominni
bók sinni sem ber sama heiti og
sýningin. Bók Aðalsteins mun
hafa verið kveikjan að sýning-
unni í Hafnarborg og aðstoðaði
hann við val verka og uppsetn-
ingu þeirra.
Elstu verkin á sýningunni era
eftir Sölva Helgason (1820-1895)
en einnig er mikið af verkum nú-
lifandi listamanna.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 2. júní kl. 16. Opnunar-
tími safnsins er frá kl. 14-19 alla
daga nema þriðjudaga. Verkum
einfara í íslenskri myndlist geta
menn kynnst til 24. júní
næstkomandi. BE
Meirihlutaviðrœður
Ymis mynstur reynd
ViðrœðurSjálfstœðisflokks ogABáAkureyrihafnar. Framsókn rœðir við Sjálfstœðisflokkinn íKópavogi.
Jafnaðarmenn út íkuldann á Húsavík. AB og Framsókn reyna aftur á Eskifirði
Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
bandalag hófu viðræður um
myndun mcirihluta í bæjarstjórn
Akureyrar í gær, en Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur
ræddu hugsanlega meirihluta-
myndun í Kópavogi. Annars stað-
ar eru meirihlutaviðræður að
hefjast, en margt er enn óljóst.
Þjóðviljinn skýrði frá því í gær
að búist hefði verið við að sigur-
vegari kosninganna á Akureyri,
Framsóknarflokkurinn, myndi
leita til Alþýðubandalags um
myndun meirihluta. Alþýðu-
bandalaginu þótti Framsókn þó
hika of lengi og hóf því viðræður
við Sjálfstæðisflokkinn.
Kópavogur
Biðlað var til Framsóknar-
flokksins í Kópavogi úr báðum
áttum, en Framsókn valdi þar
Sjálfstæðisflokkinn, enda er boð
hans allt annars eðlis en boð A-
flokkanna. A-flokkamir buðu
samstarf á jafnréttisgmndvelli,
en Sjálfstæðisflokkurinn hefur
boðið Sigurði Geirdal stöðu bæj-
arstjóra. Auk þess hafa Fram-
sóknarmenn greinilega ekki
gleymt því að A-flokkamir buðu
þeim ekki samstarf 1986.
Það sem helst verður tekið eftir
í viðræðunum í Kópavogi er
framtíð íþróttahússins umdeilda
sem byggja á fyrir HM í hand-
knattleik 1995.
Viðræður Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks á ísaflrði hófust
í gærkvöldi, en áður höfðu for-
ystumenn Sjálfstæðisflokksins og
í-listans reynt að ná saman.
Óháðir án áhrifa
Alþýðuflokkur og Framsókn-
arflokkur á Akranesi hafa hafið
viðræður, en í Borgarnesi era
málin ekki eins skýr. Sjálfstæðis-
. flokkur og Framsóknarflokkur
eru komnir í viðræður, en jafn-
framt fara fram þreifingar á milli
annarra. Til að mynda hefur Al-
þýðuflokkurinn snúið sér til
S j álfstæðisflokksins.
í Borgamesi vora Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og
óháðir í meirihluta á síðasta
kjörtímabili. í nýafstöðnum
kosningum vantaði Alþýðu-
bandalagið fimm atkvæði upp á
að halda bæjarfulltrúa sínum og
staða óháðra er í raun þannig að
enginn þarf á þeim að halda í
meirihlutasamstarfi. Alþýðu-
flokkur, Sjálfstæðisflokkur og
Framsókn hafa tvo bæjarfulltrúa
hver, en óháðir einn.
Skrautlegt í
Ólafsvík
Samstarf flokkanna í Ólafsvík
var fremur skrautlegt á síðasta
kjörtímabili. Fyrsti meirihluti þar
sprakk fáum vikum eftir kosning-
ar, næsti entist lengur en sprakk á
endanum og þegar kjörtímabil-
inu lauk vora Samtök lýðræðis-
sinna, A-flokkamir og Framsókn
í meirihluta. Kristján Pálsson frá
L-listanum er pólitískur bæjar-
stjóri þar.
Nú eru hins vegar hafnar við-
ræður Framsóknarflokks, Sjálfs-
tæðisflokks og Alþýðubandalags
um myndun meirihluta í Ólafs-
vík, enda þótt fyrri meirihluti hafi
ekki fallið. Raunar tapaði Sjálf-
stæðisflokkurinn fylgi nú.
Kristján Pálsson sagði við
Þjóðviljann í gær að Samtök lýð-
ræðissinna myndu líklega kæra
talningu atkvæða, en ákvörðun
um það á að liggja fyrir í dag. Það
munaði aðeins þremur at-
kvæðum að L-listinn stæði
jafnfætis D-listanum að atkvæða-
magni og Kristján segist hafa
gran um að utankjörfundarat-
kvæði sem dæmd vora ógild hafi
ráðið þar úrslitum.
Framsókn ræður
í Keflavík
Framsóknarflokkurinn er í
oddaaðstöðu í Keflavík með einn
bæjarfulltrúa. Alþýðuflokkur og
Sjálfstæðisflokkur hafa fjóra full-
trúa hvor og hafa báðir farið fram
á viðræður við Framsókn. í gær
átti Framsóknarflokkurinn könn-
unarviðræður við báða aðila, en í
dag er búist við ákvörðun um
hvor aðilinn verður fyrir valinu.
Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn era komnir
í formlegar viðræður á Ilúsavík.
Á síðasta kjörtímabili átti Al-
þýðuflokkurinn aðild að meiri-
hluta ásamt þessum tveimur
flokkum, en nú þurfa þeir ekki
lengur á honum að halda.
G-listi Alþýðubandalags og
óháðra var einn í minnihluta á
síðasta kjörtímabili. Þriðji bæjar-
fulltrúi þeirra tapaðist naumlega
nú.
Sjálfstæðismenn á Seyðisfirði
hafa fengið boð um viðræður frá
bæði Framsóknarflokknum og
Tindum og hefur ákveðið að
ræða fyrst við Framsókn.
Theódór Blöndal, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, segist
þó ekki útiloka neitt í þessum
efnum.
AB og Framsókn
á Eskifirði
Alþýðubandalagið og Fram-
sóknarflokkur ræða saman um
myndun meirihluta á Eskifirði.
Þessir flokkar vora saman í meiri-
hluta 1982-1986, en sá meirihluti
féll 1986. Þá tókst samstarf með
fulltrúum Alþýðuflokks, Sjálf-
stæðisflokks og óháðum sem
Hrafnkell A. Jónsson fór fyrir.
Hrafnkell tók þriðja sætið á D-
listanum nú en náði ekki kosn-
ingu. D-listinn fékk því aðeins
tvo bæjarfulltrúa á meðan Fram-
sóknarflokkurinn bætti við sig
þriðja bæjarfulltrúanum. Al-
þýðubandalag og Alþýðuflokkur
héldu einum hvor. ~gg
Fimmtudagur 31. maí 1990 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐÁ 3