Þjóðviljinn - 31.05.1990, Qupperneq 4
ÞJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
KLIPPT OG SKORIÐ
Alþýðuflokk-
urinn og Nýr
vettvangur
Það er ofur fróðlegt að fýlgjast með því túlkunarstríði
sem nú á sér stað í Alþýðuflokknum um úrslit borgarstjóm-
arkosninganna í Reykjavík. Nýr vettvangur fékk mun minna
fýlgi en ráð var fyrir gert eins og allir vita. Það hefur orðið
Bjama R Magnússyni, fýrrum borgarfulltrúa, jafnt sem sig-
urvegaranum í Hafnarfirði, Guðmundi Áma Stefánssyni, til-
efni til að lýsa þeirri skoðun að sú tilraun sem Nýr vettvang-
ur var stærsti anginn af hafi mistekist. Og fari best á því að
Alþýðufiokkurinn forðist þann eld framvegis sem brennt
bam.
Ritstjóri Alþýðublaðsins er að sínu leyti að reyna að gera
gott úr öllu saman í fréttaskýringu í gær. Hann segir, að
enda þótt Alþýðuflokkurinn hafi misst sinn flokksmann
(Bjama P.) úr borgarstjóm, þá hafi hann samt stóreflt víg-
stöðu sína í borginni. Vegna þess að Alþýðubandalagið sé
ekki lengur í forystuhlutverki stjómarandstæðinga þar. Síðar
í sömu fréttaskýringu er svo vitnað í flokksmann sem segir í
allri hreinskilni: „Það er gæfa Alþýðuflokksins að Nýr vett-
vangurfékk ekki fleiri menn kjöma.”
Hér virðist eitt reka sig á annars hom. En allt kemur þó
saman í samfelldri túlkunarkenningu í viðtali við Jón Baldvin
Hannibalsson, formann Alþýðuflokksins, sem Morgunblað-
ið birti í gær, en þar er allt eins og best verður á kosið í hin-
um besta krataheimi allra heima.
í fýrsta lagi telur Jón Baldvin það ekki skipta mestu máli í
kosningunum, að Sjálfstæðisflokkurinn efldist, heldur hitt,
að „Nýr vettvangur varð til þess að Alþýðubandalagið hefur
glatað forystuhlutverki sínu meðal stjómarandstöðuafla í
Reykjavík”.
Um leið neitar Jón Baldvin því, að það hafi verið ósigur
að Nýr vettvangur fékk ekki nema tvo fulltrúa í borgarstjóm.
Sigur Alþýðuflokksins hafi einmitt verið í því fólginn að fram-
boðið naut EKKI meira fýlgis en raun bar vitni. Ef að Nýr
vettvangur, segir Jón Baldvin, hefði fengið 4-5 borgarfulltrúa
„er þá ekki hætt við því að félagsskapurinn hefði ef til vill of-
metnast og talið að nú væri komið fram nýtt stjómmálaafl í
landinu til frambúðar? Athyglisverð spuming! Nýr vettvang-
ur var brú yfir til okkar jafriaðarmanna fýrir þá menn sem
áður voru í Alþýðubandalaginu... og þeir munu ekki leita til
baka yfir þá brú.”
Með þessum orðum er Jón Baldvin vitaskuld að niður-
lægja aðstandendur Nýs vettvangs utan Alþýðuflokksins
sem mest hann má. Hann segir berum orðum, að framboð
þeirra hafi verið nauðsynlegt til að kljúfa Alþýðubandalagið
einmitt með þeim hætti sem Alþýðuflokknum hentar. Nýr
vettvangur hafi ekki mátt fá of mikið fýlgi, þá hefði það lið
getað haldið að það mundi einhverju ráða í pólitík! Nú sitji
það hinsvegar hæfilega vanmáttugt, eigi engan möguleika
á sjálfstæðri tilveru. Það komist ekki aftur tii Alþýðubanda-
lagins og eigi því ekki nema um tvennt að velja: að hverfa af
hinu pólitíska sviði eða ganga þegjandi og hljóðalaust inn í
Alþýðufiokkinn.
Það sem nú varsíðast nefnt er ítrekað í lok viðtalsins við
Jón Baldvin: hann segir að með tali sínu um sameiningu
jafnaðarmanna hafi hann átt nákvæmlega við það, að þeir
Alþýðubandalagsmenn sem hugsuðu eins og Alþýðuflokk-
urinn gengju til liðs við þann flokk. Með öðrum orðum: Jón
Baldvin er nú afdráttariaust á þeirri línu sem flestir oddvitar
flokks hans hafa lengst af verið meðan ekið var um á rauð-
um Ijósum: að ekki komi til mála að flokkar kenndir við al-
þýðu ræði saman á jafnréttisgrundvelli. Heldur á Alþýðu-
fiokkurinn að taka við hæfilega mörgum liðsmönnum Al-
þýðubandalagsins - og þá aðeins þeim sem eru reiðubúnir
til að sætta sig við Alþýðuflokkinn nákvæmlega eins og
hann er.
Gjaflr eru yður gefnar, stendur þar.
ÁB
Gengi G-listanna
Fróðlegt er að skoða tölur um
gengi G-Iistanna í nýafstöðnum
kosningum, miðað við kosning-
amar 1986 og einnig miðað við
gengi A-lista og sameiginlegra
framboða. Þannig kemur til dæm-
is fram í kosningatölunum, að
„bræðslusamlögin” draga að sér
meira fylgi en flokkalistamir, því
úrslitin em þessi í grófum drátt-
um:
G-listar 11.500 atkv.
A-listar 12.500 atkv.
Sameiginl. framb. 13.900 atkv.
Fylgi framboða
1990
Neskaupstaður
Grundartjörður
Hvammstangi
Húsavik
Reyðarfjörður
Vopnatjörður
Raufartiöfn
Egilsstaðir
Kópavogur
Fáskrúðsfjörður
Akranes
Akureyri
Vestmannaeyjar
Skagaströnd
Ólafsvik
Grindavlk
Eskifjörður
Hafnarfjörður
Sauöárkrókur
Borgarnes
Keflavik
Isafjörður
Reykjavlk
-0,1
■ 1.3
-3,9
-M
-9,5
-5,1
-7,
-8,
-0,71
-1,5«
-4,
-1,21
-2,71
-1,4
-11,
13,1
113,6
13,1
|2,1
11,2
Breyting
á G-fylgi í
% f rá
1986-1990
|0,9
11,3
ÞJÓÐVILJINN / ÓHT
G-listar urðu íyrir fylgistapi á
15 stöðum, en bættu við sig fýlgi
á 8 stöðum. Ef aðeins era skoðað-
ir kaupstaðir ásamt höfuðborginni
fá G-listamir núna 11,29% at-
kvæða og 22 fulltrúa í sveitar-
stjómum, en höfðu 28 fulltrúa á
síðasta kjörtímabili. Hér er nauð-
synlegt að taka með í reikninginn,
að núna vora á 12 stöðum bomir
ffam sameiginlegir listar þar sem
G-listar vora i kjöri 1986.
En skoðum dæmið yflr landið
í heild. Alls vora G-listar boðnir
fram á 33 stöðum árið 1986, en
núna á 24 stöðum og era þá taldir
með allir kauptúnahreppar. Al-
þýðubandalagið fékk sl. sunnu-
dag kjöma 32 sveitarstjómar-
menn, en hafði 38 áður. Samsetn-
ingin á dæminu er sú, að 2 nýir
fulltrúar unnust á tveim stöðum,
annar í Grundarfirði en hinn á Eg-
ilsstöðum, auk þess sem nú bætt-
ist við maður af G-lista í sveitar-
stjóm á Suðureyri, en þar var ekki
boðinn ffam G-listi síðast. Atta
fulltrúar töpuðust hins vegar á sjö
stöðum, nettótap er því 6 fulltrú-
ar.
Þar sem fulltrúar töpuðust lít-
ur dæmið svona út:
Tap G-listanna
Staður Ftr. nú Tap
Reykjavík 1 2
Kópavogur 2 1
Akranes 1 1
Borgarnes 0 1
Hvammmstangi 1 1
Skagaströnd 0 1
Fáskrúðsfjörður 1 1
Alls fengu G-listanir nú 32
fulltrúa af 24 listum, en síðast 38
fulltrúa af 33 listum. Sjá má af
súluriti sem hér fylgir hvert fylgi
G-listamir á landinu fengu mælt i
prósentum og af öðra súluriti
hver breytingin er.
A-listar og
sambræðslur
Við samanburðinn á útkomu
G-listanna nú og 1986 þarf að
hafa í huga, eins og áður segir, að
núna komu fram á 12 stöðum
sameiginleg framboð, þar sem G-
listi var borinn fram síðast. Og
það kemur í ljós, að 8 bæjarfull-
trúar hafa tapast þar sem boðnir
vora fram sameiginlegir listar.
Úrslitin á þessum stöðum urðu
svona:
G-listi síðast-sambræðsla nú
1986 1990 Breyt.
Mosfellsbær 11 0
Seltjarnarnes 2 1-1
Garðabær 10-1
Stykkishólmur 10-1
Helllssandur 11 0
Búðardalur 10-1
Bolungavík 2 1-1
Siglufjörður 2 1-1
Dalvík 2 1-1
SeyðisQörður 1+1 1 -1
Stokkseyri 3 3 0
Selfoss 110
Samtals 19 11 -8
Lítum þá á gengi A-listanna
þar sem breytingar hafa orðið á
fulltrúatölu. Núna vora boðnir
ffam 17 A-listar.
Breytingar era þessar:
1986 1990 Breyt.
Hafnarfjörður 5 6 +1
Keflavík 5 4 -1
Akranes 2 3 +1
ísafjörður 3 2 -1
Akureyri 3 1 -2
Húsavík 2 1 -1
Njarðvík 3 2 -1
Ólafsvík 2 1 -1
Patreksfjörður 2 3 +1
Alls töpuðu A-listamir 11
mönnum en bættu við sig á öðrum
stöðum 6 fulltrúum, þannig að
nettótap þeirra var 5 fulltrúar.
D-lista tap á SV-landi
Það er athyglisvert, að þrátt
fyrir sigur Davíðs í Reykjavík þá
kemur í ljós, að Sjálfstæðisflokk-
urinn á SV-homi landsins fær
slakari útkomu í samtals tólf
sveitarfélögum þar heldur en í
sveitarstjórnarkosningunum
1982, þótt hún sé víða betri en í
síðustu kosningum 1986. Þor-
steinn Pálsson viðurkennir þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær
og sömuleiðis vonbrigðin með
úrslitin á NV-landi.
Staðreyndin er sú, að ef hefð-
bundnu sjálfstæðisvígin Reykja-
vík, Garðabær og Mosfellssveit
era skilin frá, kemur á daginn að
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi
á SV-landi eða stendur í stað,
hvort sem menn miða við árin
1982 eða 1986. Á Seltjamamesi
fær hann sama fylgi og 1982 en í
Kópavogi minna en þá.
Sé Reykjavík sleppt úr meðal-
talinu á SV-landi sýna tölumar ffá
stöðunum tólf að vorið 1982 naut
Sjálfstæðisflokkurinn hylli 45,2%
kjósenda á þessu svæði en aðeins
42,4% nú.
Að Reykjavík viðbættri era
hér taldir til SV-homsins effirfar-
andi staðir, eins og Morgunblaðið
gerir í yfirliti sínu á þriðjudaginn:
Kópavogur, Seltjamames, Garða-
bær, Hafnarfjörður, Grindavík,
Keflavik, Njarðvík, Mosfellsbær,
Akranes, Selfoss, Hveragerði og
Vestmannaeyjar.
ÓHT
Neskaupsstaður
Grundarfjörður
Hvammstangi
Húsavík
Reyðarfjörður
Vopnafjörður
Raufarhöfn
Egilsstaðir
Kópavogur
Suðureyri
Fáskrúðsfjörður
Akranes
Akureyri
Vestmannaeyjar
Skagaströnd
Ólafsvlk
Grindavík
Eskifjörður
Hafnarfjörður
Sauðárkrókur
Borgames
Keflavfk
Isafjörður
Reykjavík
152,7
ÞJÓÐVIUINN /ÓHT
ÞJ0ÐVIUINN
Síðumúla 37 —108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: Sigurður A. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur
Þorteifsson, Elías Mar (pr.), Garðar Guðiónsson,
Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson,
Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn
Ingvarsson (Ijósm.), Viiborg Davíðsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðnjn Geirsdóttir, Kristln Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingan Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður
Ingimundandóttir.
Útbreiöslu- og afgreiðslustjóri: Guðrnn Glsladóttir.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdótt'r, Þorgerður Sigurðardótdr.
Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingan
Síðumúla 37, Rvík.
Sími: 681333.
Simfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð I lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblaö: 150 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. maí 1990