Þjóðviljinn - 31.05.1990, Side 12
SPURNINGIN
Ætlar þú aö njóta ein-
hverra dagskráratriða
Listahátíðar?
Óskar Örn Þóroddsson
burðardrengur
Ég hef ekkert kynnt mér dag-
skrána og hef ekki hugsað mér
að fara á neitt.
Guðjón V. Ragnarsson
nemi
Ég hef nú lítið kynnt mér þetta, en
ætlar Dylan ekki að koma? Ég
hef áhuga á honum og svo veit
ég ekki nema ég detti inn á ein-
hverjar málverkasýningar.
Þorgeir Guðmundsson
skrifstofumaður
Ég hef ekki kynnt mér hvað er á
boðstólum en geri það kannski.
Barði Árnason
bankastarfsmaður
Mér finnst dagskráin nú óvenju-
lega þunn, en ég ætla að fara á
tónleikana hjá Andrei Gavrilov á
laugardaginn.
Bryndís Sigtryggsdóttir
sendill með meiru
Ég er búin að kaupa mér miða á
Les Negresses Vertes 14. júní,
en býst ekki við að það verði
meira.
þjównuiNN
Fimmtudagur 31. maí 1990 99. tölublað 55. öroangur
SÍMI 681333
SÍMFAX
681935
Aldraðir
Synt
til
heilsu-
bótar
Sunddagur aldraðra í
gær. Björn Kristjáns-
son sem verðursjö-
tugur í sumar synti 10
kílómetra. Ætlarað
synda 20 kílómetra
vegalengd á Mallorka
í sumar
Þegar Þjóðvifjinn leit inn í
SundhöU Reykjavíkur í gærdag
voru um 40 manns á aldrinum
fimmtíu og fimm ára og upp úr,
að synda sér til heUsubótar. Ernst
Backman íþróttakennari
leiðbeindi hópnum af laugar-
bakkanum með tónlist úr há-
talarakerfi sundlaugarinnar í
bakgrunni og úti í lauginni lét
enginn sitt eftir liggja. í gær var
sérstakur sunddagur aldraðra en
Félag áhugafólks um íþróttir
aldraðra á fimm ára afmæli um
þessar mundir.
Ernst Backman kennir venju-
lega skólasund í Sundhöll
Reykjavíkur. En áður en krakk-
arnir hópast í tíma til hans á
morgnana mæta nokkrir hressir
eldri borgarar og synda undir
leiðsögn Ernsts, sem drífur hóp-
inn áfram með hressu skapi og
jákvæðu hugarfari. Hann sagði
Þjóðviljanum að hann leiðbeindi
fólki með sundtökin og færi með
því í leikfimiæfingar sem gerðar
eru úti í vatninu. Það var að sjá á
hópnum sem tók þátt í sunddeg-
inum í gær að áhuginn á sundinu
og æfingunum væri mikill.
Einn þeirra sem mætir reglu-
lega í sund í Sundhöliinni er
Björn Kristjánsson. Hann ætlaði
sér að synda fimmtán kflómetra í
gærmorgun en hætti þegar hann
var búinn með tíu. „Ég var
eitthvað slæmur í öxlinni. Annars
er þetta bara upphitun fyrir tutt-
ugu kflómetra sund yfir Palmafl-
óa í sumar,“ sagði Björn. „Ég
verð sjötugur í júlí en ætla að
halda upp á afmælið á Mallorka í
september með því að synda
þessa 20 kflómetra,“ sagði Bjöm.
Hann sagðist ekki hafa nokkrar
áhyggjur af vegalengdinni, það
væri miklu léttara að synda í sjón-
um þar sem hann væri 8% saltur.
Einbeitingin var mikil á sunddegi aldraðra í Sundhöll Reykjavíkur (
gær. Myndir: Kristinn.
Björn Kristjánsson tók sín fyrstu
sundtök í ísafjarðardjúpi og ætlar
að synda 20 kílómetra yfir
Palmasund á Mallorka ( sumar.
Þegar Þjóðviljinn ræddi við
Bjöm á laugarbakkanum í Sund-
höllinni, sagðist hann vera ný-
kominn úr eggjatöku í Akrafjalli,
þar sem hann tíndi svartbaksegg.
„Ég hef synt mikið í sjó og tók
mín fyrstu sundtök í ísafjarðar-
djúpi,“ sagði Björn. En það var
yngri bróðir hans, Ari Kristjáns-
son, pabbi Kristjáns Arasonar
handboltakappa, sem ýtti bróður
sínum úr vör í Ögri á æskuáran-
um. „Síðan lærði ég sundtökin í
Reykjanesi."
Svamli Björns í Atlantshafinu
lauk ekki í Isafjarðardjúpi. Hann
segist mikið hafa synt í sjó, bæði
synt út í Viðey og Engey og árið
1960 synti hann yfir pollinn á Ak-
ureyri. „Þingvallavatn er kald-
asta vatn sem ég hef synt í og
ráðlegg engum að gera það. Ég
var í lögreglunni í 30 ár og synti þá
mikið með Eyjólfi Jónssyni sund-
kappa og nokkrum öðrum fé-
lögum í sjónum. Upp úr 1960
kólnaði sjórinn hins vegar svo
mikið að ég hef eiginlega ekkert
syntíhonumsíðan,“ sagðiBjörn.
Nokkrir aðilar ætla að styrkja
Björn með auglýsingum þegar
hann syndir yfir Palmaflóa í sept-
ember. Meðal þeirra eru Sam-
vinnuferðir Landsýn, sem ætla að
útvega Bimi bát og fylgdarmann
við sundið. Þá ætla Sjóvá-
Almennar og Búnaðarbankinn
að leggja hönd á plóginn ásamt
Ara bróður Björns, en hann rek-
ur verslun með íþróttavörur í
Hafnarfirði.
-hmp