Þjóðviljinn - 23.06.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.06.1990, Blaðsíða 1
ís og sólskin sleikt á bekk í blíðunni í borginni. Hann lætur ekki ys og þys á sig fá karlinn þar sem hann situr með stráhatt og stóískan svip. — Enda ekki úr vegi að njóta þeirra fáu sólskinsstunda sem gefast hér sunnan lands. MyndiKristinn. Alþýðubandalagið Hörð gagnrýni á ráðherrana BHMR-málið veldur úlfúð innanAlþýðubandalagsins. Geir Gunnarsson: Bírœfið af ríkisstjórninni. MargrétFrímannsdóttir: Standa á við samninga. Ekkert samráð viðþingflokkinn. SteingrímurJ. Sigfússon: Beiti mér fyrir samkomulagi. GuðrúnKr. Óladóttir, varaformaður Sóknar: Ríkisstjórnin endurskoði afstöðu sína Mér finnst það ansi bíræfið af ríkisstjórninni að koma svona fram við BHMR vegna þess að þetta ákvæði um leiðréttingu var það sem leysti BHMR-deiIuna á sínum tíma. Auðvitað hefði ASÍ átt að miða samning sinn við þann samning sem búið var að gera við BHMR, segir Geir Gunnarsson, þingmaður Alþýðu- bandalagsins, í samtali við Þjóð- viljann. í viðhorfsgrein BHMR- félagans Hallgríms Hróðmars- sonar í Þjóðviljanum í vikunni var ráðherrum Alþýðubanda- lagsins bent á að leita ráða hjá Geir Gunnarssyni. „Réttast væri að þið leituðuð til manns sem við getum treyst til þess að leysa þennan hnút,“ skrif- aði Hallgrímur og átti við Geir. Framganga ríkisstjórnarinnar í BHMR-deilunni hefur valdið mikilli óánægju innan Alþýðu- bandalagsins og beinast spjótin mjög að ráðherrum flokksins. „Deilan um samning BHMR er alveg sérstaklega viðkvæm fyrir Alþýðubandalagið og það gerir þetta mál enn erfiðara fyrir okkur ráðherra flokksins. Það er mikilvægt grundvallaratriði að standa við gerða samninga og ég mun beita mér fyrir því að reynt verði að semja við BHMR með einhverjum hætti, segir Steingrímur J. Sigfússon, land- búnaðarráðherra og varaformað- ur Alþýðubandalagsins, í samtali við Pjóðviljann. Hörð gagnrýni hefur komið frá stærsta flokksfélaginu, ABR, og Æskulýðsfylkingin í Reykjavík hefur harmað aðild ráðherra flokksins að ótímabundinni frest- un á gildistöku BHMR- samningsins. Margrét Frímanns- dóttir, formaður þingflokks Al- þýðubandalagsins, er einnig ómyrk í máli í garð ráðherranna og ríkisstjórnarinnar í heild. „Mitt álit er einfalt: Það á að standa við gerða samninga og sú krafa hefur verið aðalsmerki Al- þýðubandalagsins. Þessi ákvörð- un ríkisstjórnarinnar er að mínu mati mistök af hennar hálfu,“ segir Margrét við Þjóðviljann. Hún segir að ráðherrar Al- þýðubandalagsins hafi ekki haft samráð við þingflokkinn áður en ákvörðun stjórnarinnar var kynnt, en að sögn Margrétar verður BHMR-deilan rædd í þingflokknum í næstu viku. Geir Gunnarsson gagnrýnir ráðherrana einnig harðlega fyrir að hafa ekki haft samráð við þingflokkinn. „Það hefði verið lágmark að hafa samband við formann þing- flokksins. Ég þekki engin dæmi um jafn lítið samband ráðherra flokksins við þingflokkinn og í tíð þessarar ríkisstjórnar,“ segir Geir. Guðrún Kr. Óladóttir, vara- formaður Sóknar, segir í samtali við Þjóðviljann að ABR ætlist að sjálfsögðu til þess að ríkisstjórnin endurskoði ákvörðun sína um að fresta gildistöku samningsins við BHMR. Guðrún var einn flutn- ingsmanna tillögu til ályktunar á félagsfundi ABR. „Það er ekki hægt að líða enda- laust að stjórnvöld brjóti á launa- fólki, síst þegar svo kölluð vinstri stjórn á í hlut,“ segir Guðrún. Steingrímur J. Sigfússon fellst á að það hefði verið mjög æskilegt að hafa samráð við þing- flokkinn um BHMR-málið, en segir ýmsar aðstæður hafa komið í veg fyrir það. Hann vill hins veg- ar ekki skilgreina þær aðstæður nánar. Hann segist jafnframt taka við- brögð flokksfélaga sinna mjög al- varlega, enda hafi Alþýðubanda- lagið talið sig sérstakan málsvara verkalýðshreyfingarinnar. „Þarna stangast tvennir hags- munir á. Annars vegar vilji okkar til þess að ná efnahagsmarkmið- um okkar, en hins vegar það mikilvæga grundvallaratriði að standa eigi við gerða samninga," segir Steingrímur. „Vissulega lá BHMR- samningurinn fyrir þegar þjóðar- sáttin var gerð. Ég mun beita mér fyrir því að reynt verði til þrautar að ná samkomulagi í þessu máli,“ segir Steingrímur. -gg/grh Neyðarkall Kohls og Mitterrands vofir yfir Sovétríkjum Hmn Helmut Kohl, sambandskansl- ari Vestur-Þýskalands og Fra- ncois Mitterrand Frakklands- forseti hvöttu vesturlandaríki ein- dregið í gær til að veita Sovétríkj- unum drjúga efnahagsaðstoð hið snarasta. Gáfu þeir í skyn að þeir teldu að engan tíma mætti missa ef forða ætti sovésku efnahagslífi frá hruni. Þeir leiðtogarnir sendu út þetta neyðarkall frá Assmannshausen, þorpi í þýsku Rínarhéruðum, þar sem þeir ræddust við í gær. „Við lítum báðir svo á að Evrópuríki og önnur iðnvædd ríki verði að gera sér ljóst, að (Sovétríkin) þurfa hjálp svo að þau geti hjálp- að sér sjálf,“ sagði Kohl við fréttamenn. Ágreiningur er í þessu máli milli þessara tveggja leiðandi ríkja Evrópubandalagsins ann- arsvegar og Bandaríkjanna hins- vegar. Bandaríkjastjórn vill ekki veita vestrænni efnahagshjálp til Sovétríkjanna fyrr en gagnger endurskipulagning hefur farið fram á kerfi efnahagslífs þeirra. En þeir Kohl og Mitterrand telja að bregðast verði við Sovét- mönnum til hjálpar þegar í stað. „Ákveðum við að bíða þangað til umbæturnar hafa verið gerðar gæti sú bið orðið löng,“ sagði Kohl. „Ég held ekki að við höfum mikinn tíma fyrir okkur. Og per- estrojka er okkur öllum til góðs.“ Hann sagði ennfremur að á- standið í efnahagsmálum Sovét- ríkjanna væri nú orðið slíkt, að ef þeim bærist ekki efnahagshjálp utan að kæmust þar engar um- bætur í verk. Fyrr í vikunni lagði Mitterrand fast að best stæðu ríkjum heims að gera hið snarasta ráðstafanir Sovétríkjunum til efnahagshjálp- ar. Hvatti hann til þess að næstu leiðtogaráðstefnur ríkja þessara tækju málið fyrir. Leiðtogar Evr- ópubandalagsríkja hittast í Du- blin í næstu viku, í byrjun júlí funda leiðtogar Natóríkja í Lund- únum og fáum dögum síðar hitt- ast leiðtogar sjö auðugustu ríkja heims í Houston í Texas. f gær tilkynnti vesturþýska stjórnin að Vestur-Þýskaland hefði ákveðið að ábyrgjast fimm miljarða marka bankalán til So- vétríkjanna. Vesturþýska stjórn- in er sögð vonast eftir að sovéska stjórnin komi til móts við vest- rænu ríkin í Þýskalandsmálum, gegn efnahagsaðstoð þaðan. Reuter/-dþ.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.