Þjóðviljinn - 23.06.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR
Draga þurfti um fjórða mann Sjálfstæðisflokks og annan mann minni-
hlutans í fimm manna nefndum, og Sjálfstæðisflokkurinn hafði mun
oftar heppnina með sér. Hann hefur því mun meira vægi í mikilvægum
nefndum en fylgi hans segir til um. Mynd Ari.
Sjálfstœðisflokkurinn
Völd langt umfram fylgi
Sjálfstœðisflokkurinn hefur 80prósent vœgi í borgarráði og mikilvœg um nefndum
^ jálfstæðisflokkurinn
hefur
mun meira vægi i nefndum
borgarinnar en kjörfylgi hans
segir til um. Flokkurinn hlaut
rúm 60 prósent atkvæða í kosn-
ingunum, en hefur 80 prósent
vægi í mörgum mikilvægum
nefndum borgarinnar, þar á
meðal í borgarráði. Dæmi eru um
að Sjálfstæðisflokkurinn sitji
einn að ákveðnum tveggja manna
nefndum.
Sjálfstæðisflokkurinn átti góðu
gengi að fagna þegar dregið var
um fjórða mann hans eða annan
mann minnihlutans í fimm
manna nefndum borgarinnar.
Sjáltstæðisflokkurinn vann
hlutkesti í 13 tilvikum af 20.
Minnihlutaflokkarnir gerðu
með sér samkomulag um kjör í
nefndir og samkvæmt því á Al-
þýðubandalagið fulltrúa í borg-
arráði fyrsta árið. Dregið var um
setu Kristínar Á. Ólafsdóttur frá
Nýjum vettvangi eða Árna
Sigfússonar Sjálfstæðisflokki og
hafði Árni betur.
Nýr vettvangur, sem fékk mest
fylgi minnihlutaflokkanna, á nú
fulltrúa í 12 nefndum, en fylgis-
minnsti flokkurinn, Kvennalist-
inn, á fulltrúa í sjö nefndum.-gg
Hafnarfjörður
Hafbeit
Góðar
heimtur
Almennt er búist við að
heimtur laxa úr hafbeit verði
samkvæmt áætlun í ár og að sögn
Friðriks Sigurðssonar fram-
kvæmdastjóra Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva lofar
byrjunin góðu. Það sem af er
sumri hefur laxinn skilað sér vel,
altént miðað við sumarið í fyrra
sem var frekar lélegt. f fyrra-
sumar voru í endurheimt 16 haf-
beitarstöðva alls 48.600 laxar,
eða um 136 tonn af laxi úr sjó.
Það er 24% fækkun frá árinu
1988, en þá komu 64.000 hafbeit-
arlaxar úr sjó.
Núna eru 2ja ára laxar að skila
sér og þykja mjög vænir. Einnig
er að aukast að eins árs fiskur sé
að koma og hann er líka vænn.
Að sögn Óskars Hallgríms-
sonar hjá Silfurlaxi hafa heimtui
hjá þeim gengið alveg prýðilega
og eru menn mjög ánægðir.
„Laxinn byrjaði að koma mun
fýrr en reiknað var með. Það er
2ja ára fiskurinn sem kom fyrst
og hann er bæði stór og fallegur.
Heimtur hjá okkur hafa gengið
alveg samkvæmt áætlun, sem er
mikið betra en í fyrra. Það er hins
vegar ekki tímabært að dæma
sumarið í heild,“ sagði Óskar. Fi-
skarnir eru að meðaltali 5,5 kg,
en að sögn Óskars er heimsmark-
aðsverðið ekkert til að hrópa
húrra fyrir. Hins vegar væri hann
alveg sáttur við það verð sem
fengist hefði hingað til.
Mun hærra verð fæst nú fyrir
hafbeitarlaxinn en eldislax, og
það er allt upp í 20-40% verð-
munur. ns.
Slökkvilið
Reykjavíkur
Þrek bruna-
Handavinnukennarar
Maðurinn og
umhverfið
Hannyrða- og smíðakennarar
á Norðurlöndunum þinga á
Laugarvatni dagana 24.-29. júní,
en að þinginu standa Handavinn-
ukennarafélag íslands og Nordisk
slöj d-/texti!lærerfor bu nd.
Þing af þessu tagi eru haldin á
þriggja ára fresti, til skiptis á
Norðurlöndunum og er þetta í
annað sinn sem íslendingar sjá
um þingið. Fyrra skiptið var árið
1976.
Þema þingsins er „Maðurinn
og umhverfið“ og er dagskráin
mjög fjölbreytt, fyrirlestrar,
námskeið og námsferðir. Þá
verður sett upp sýning á hannyrð-
frá grunnskólanemum í
um
tengslum við þingið.
-Sáf
Leiðréttingar
í Nýju Helgarblaði í gær urðu þau
leiðu mistök í myndatexta við
grein um villta skoska kattar-
stofninn að kötturinn er sagður
eina villta landspendýrið á Bret-
landseyjum. Þetta er vitanlega
fjarri sanni eins og lesendur hafa
vafalaust merkt.
Þá féllu einnig út lokaorð viðtals
við Þorlák Karlsson um skoðana-
kannanir og auðkennisstafir
blaðamanns. Rétt hljóðar síðasta
málsgreinin þannig: „En kjarni
málsins er að ef það á að setja lög
eða reglur, þarf það mál að
skoðast mjög vel.“ Undir um-
fjölluninni um skoðanakannanir
átti að standa -ns. Lesendur eru
beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
Aukið atvinnuleysi varða eykst
Moolínnar cnmhlíTÍ!) hrpLnrnf
Ísíðasta mánuði voru skráðir2.426 atvinnuleysisdagar. Miðað við
sama tíma fyrir ári hefur atvinnuleysi í Firðinum aukist um 67%
Verkamannafé-
aður getur ekki annað en
verið sár út í stjórnvöld. A
sama tíma og fjöldinn allur
gengur um atvinnulaus virðast
þau hafa næga peninga til að
kosta ýmis gæluverkefni í stað
þess, eins og ég lagði til á sínum
tíma að tekið yrði rösklega til
hendinni við byggingu félagslegra
íbúða. Þar hefði verið hægt að slá
tvær flugur í einu höggi: Minna
atvinnuleysi og fleiri félagslegar
íbúðir, sagði Sigurður T. Sigurðs-
son formaður
lagsins Hlífar.
í síðasta mánuði voru skráðir
2.426 atvinnuleysisdagar í Hafn-
arfirði og hefur þeim fjölgað
verulega frá mánuðinum á undan
eða um 814 daga. Ef miðað er við
maímánuð í fyrra hefur atvinnu-
leysi í Firðinum aukist um 61% Á
maflok voru 142 einstaklingar á
atvinnuleysisskrá, 75 konur og 67
karlar. Mest var atvinnuleysið
hjá verslunar- og skrifstofufólki
eða um 48 manns og þeim fjöl-
gaði um 28 frá fyrra mánuði. Þar
munar að mestu um starfsfólk
Grundarkjörs en verslunin var
lýst gjaldþrota um miðjan maí og
þegar versluninni Strönd var lok-
að. Næstmest var atvinnuleysi
hjá verkafólki eða um 35 manns.
Atvinnumiðlun skólafólks, 16
ára og eldri tók til starfa í lok apríl
og um miðjan mánuðinn höfðu
230 nemendur látið skrá sig þar.
-grh
Dúntekja
Utflutningur blómstrar
Æðarvarpi nær lokið. Sjaldan betri útflutningsmöguleikar
Það eru um 400 aðilar sem hafa markaðir fyrir selskinn séu að
dúntekju hér á landi, en mis- opnast á ný. „Það er kannski
mikla. Nokkuð er um að bændur
lifi á henni, en flestir hafa hana
sem búbót og ná nokkrum kg á
ári.
Að sögn Árna eru að byrja að
vakna vonir hjá mönnum um að
Þetta gengur yfirleitt vel víðast
hvar, en þessu er nú ekki al-
veg lokið, sagði Árni Snæbjörns-
son hlunnindaráðunautur hjá
Búnaðarfélagi íslands aðspurður
um æðarvarp og dúntekju. Búist
er við að dúntekja verði álíka
mikil og undanfarin tvö ár sem
hafa verið mjög góð og það þarf
að fara aftur til ársins 1940 til að
finna jafn góða útflutningsmögu-
leika.
í fyrra var útflutningur á dúni
alls 3.266 kg, sem þykir mjög
gott. Sem dæmi má nefna að fram
til ársins 1986 voru aðeins flutt út
um 2000 kg, þannig að aukningin
er veruleg. Langmestur hlutinn
er keyptur til Japans og Þýska-
lands, og fæst mjög gott verð fyrir
kg. Staðgreiðsluverð til bónda er
á bilinu 36.500-37.000 krónur
fyrir kg.
er
nokkuð snemmt að fullyrða
nokkuð um það, en það er útlit
fyrir að það sé að komast hreyf-
ing á sölu selskinna," sagði Árni
Snæbjörnsson.
ns.
Mælingar samhliða þrekprófl
og læknisskoðun brunavarða hjá
atvinnusjúkdómadeild Heilsu-
verndarstöðvar, sem gerðar hafa
verið frá 1986, sýna að þrek
slökkviliðsins hefur aukist jafnt
og þétt frá ári til árs.
Þetta kemur fram í Vinnu-
vernd, fréttabréfi Vinnueftirlits
ríkisins. Þar kemur fram að
breytingin stafar ekki af því að
eldri menn hafi hætt og yngri og
hraustari menn komið í staðinn.
Framförin hjá þeim 46 bruna-
vörðum sem hafa verið prófaðir
öll árin, samsvarar því sem hefur
gerst hjá hópnum í heild.
Fyrir utan að fara læknis-
skoðun og þrekpróf á ári hverju
hefur verið tekin upp þrekleik-
fimi á dagvöktum hjá slökkvilið-
inu. En eins og kunnugt er felur
brunavarðarstarf í sér sérstaka
áhættu og mikla áreynslu á
köflum og að þeir séu búnir undir
átök fyrirvaralaust. Því skiptir
miklu að menn sem stunda það
starf séu þrekmiklir og heilsu-
hraustir. Fyrir utan þjálfun
stunda allmargir brunaverðir
aukstörf sem reyna verulega á
líkamann, eins og húsasmíðar og
flestir stunda einnig einhverja
íþrótta-ogþrekþjálfun. —grh
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN
Opna
Leigjendasamtökin
skrifstofu að nýju
Leigjendasamtökin opna skrif-
stofu að Hafnarstræti 15,
þriðju hæð, á mánudag kl. 14.
Skrifstofan verður opin alla virka
daga frá 14 til 17. Þar geta
leigjendur fengið allar upplýsing-
ar og ráðgjöf. Síminn er 23266.
Að sögn Jóns frá Pálmholti,
formanns Leigjendasamtakanna,
hefur hann sinnt þessu heima hjá
sér undanfarið og síminn oft og
iðulega verið rauðglóandi, þann-
ig að þörf á skrifstofuhúsnæði var
orðin mjög aðkallandi.
„Fyrir þinglok í vor voru sam-
þykkt ný lög um húsnæðiskerfið.
I framhaldi af því stendur til að
breyta lögum um húsaleigusamn-
inga og aðlaga þau að norrænum
húsaleigulögum, en slíkt tryggir
rétt leigjenda meira en nú er.
Samkvæmt nýju lögunum er gert
ráð fyrir víðtækara hlutverki
Leigjendasamtakanna, einkum í
sambandi við fyrirhugaða húsa-
leigustyrki," sagði Jón.
-Sáf