Þjóðviljinn - 23.06.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.06.1990, Qupperneq 3
_________________________FRETTIR _______________________ Bgggingarsjóður ríkisins Húsnæðislánakerfið í uppnámi Byggingarsjóð vantar2 miljarða á nœsta ári. Ásmundur Stefánsson: Ríkisvaldið hefur tekið tekjustofna húsnœðislána trausta- takitilannarranota. Þorsteinn Pálsson: Ákvörðunríkisstjórnarinnar „gaga“. Steingrímur Sigfússon: Hvar á að taka peninga? að eru engin ný sannindi að almenna húsnæðisiánakerfíð standi frammi fyrir fjárþröng svo að fyrirsjáanlegt er að ekki verði hægt að standa við áætlanir um húsnæðislán. Ríkisvaldið hefur ekki skirrst við að skera niður fjárframlög til byggingarsjóð- anna, sagði Ásmundur Stefáns- son, forseti Alþýðusambands Is- lands, en nýverið sendi stjórn Húsnæðismálastofnunar forsæt- isráðherra bréf þar sem því er lýst að tveggja miljarða króna fram- lag ríkissjóðs þurfí að koma til á næsta ári svo að unnt verði að BHMR/ASÍ Svar Ásmundar Alþýðusambandinu hefur bor- ist bréf frá BHMR þar sem óskað er eftir því að ASÍ geri grein fyrir afstöðu sinni varðandi tiltekin atriði. Miðstjórn ASÍ hefur ekki komið saman til að fjalla um bréf- ið en ég rel rétt að koma svari á framfæri án tafar. Alþýðusamband íslands hefur hvergi sett fram kröfu um það að samningsbundnar kauphækkanir annarra hópa verði felldar niður með valdboði. Alþýðusamband- ið hefur ekki á neinum vettvangi tekið undir slíka kröfu frá öðrum aðilum. Þessi afstaða kom skýrt fram á fundi fulltrúa ASÍ og forustu BHMR á meðan á samningavið- ræðum ASÍ og BSRB stóð í janú- ar. Hún hefur einnig komið fram á fundum með ríkisstjórninni. Sögusagnir um annað eiga ekki við rök að styðjast. Á fundi okkar með forustu BHMR í janúar gerðum við jafn- framt grein fyrir því að við teld- um eðlilegt að BHMR og aðrir hópar launafólks fylgdu þeirri stefnu, sem mörkuð er í samning- um ASÍ og BSRB, þar sem fé- lagsmenn BHMR njóta góðs af ávinningum þeirra samninga með sama hætti og aðrir launamenn í landinu. Fast gengi, óbreytt bú- vöruverð, lækkun nafnvaxta og kauptryggingarákvæðin nýtast öllum. Það er ekki síður mikil- vægt fyrir aðra launamenn en fé- lagsmenn ASÍ og BSRB að for- sendur febrúarsamninganna standist. Við tókum jafnframt fram á fundi okkar í janúar með forustu BHMR, að verði launahækkun hjá öðrum hópum launafólks um- fram það sem felst í samningum ASÍ og BSRB, yrði gerð krafa um sömu kauphækkanir til handa félagsmönnum ASÍ. í öllum að- draganda og við afgreiðslu samn- inganna kom afdráttarlaust fram af hálfu aðildarfélaga ASÍ að þau væru ekki reiðubúin til þess að bera skarðan hlut frá borði miðað við aðra hópa. Þau hlytu, ef kaup annarra hækkaði umfram samn- inga ASf og BSRB, að krefjast sömu kauphækkana, jafnvel þótt fprsendum febrúarsamninganna væri þar með raskað. Forusta BHMR hefur ekki gert athuga- semd við þessa afstöðu enda augljóst að Sóknarfólk, iðn- verkafólk, afgreiðslufólk og fisk- verkafólk þarf ekki síður á kauphækkunum að halda. Varðandi túlkun á ákvæðum 1. greinar samnings BHMR frá 1989 hafa samtökin, samkvæmt frásögnum fjölmiðla, valið að vísa málinu til Félagsdóms. Sá túlkunarágreiningur er því í ákveðnum farvegi. Vonandi er öllum misskilningi rutt úr vegi með þessu svari. Með félagskveðju, Ásmundur Stefánsson. standa undir áætlunum um hús- næðislán á næsta ári. í fjárlögum var ráðgert að fra- mlag ríkissjóðs til Byggingar- sjóðsins yrði 150 miljónir króna í ár, en með niðurskurði í ríkis- Um 40 tonn af misjafnlega hættulegum efnaúrgangi hafa borist í móttöku Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins það sem af er. Það er meira en búist hafði verið við, en þetta magn er þó ekki nema lítill hluti þess sem til feliur af efnum sem eru skaðleg umhverfinu og ættu að fara f efnamóttökuna. Efnin sem koma í móttökuna eru send til Kommunekemi í Ný- borg í Danmörku og þar er þeim eytt. Ásmundur Reykdal, stöðv- arstjóri hjá Sorpeyðingu höfuð- borgarsvæðisins, segir að Kom- munekemi beiti fullkomnustu tækni við eyðinguna. „Þessi 40 tonn hefðu ella farið út í náttúruna, ýmist oní jörðina eða í holræsi. Þetta er ekki svo ýkja mikið magn, en miðað við væntingar okkar er þetta þó feiki- lega góður árangur. Við höfðum fjármálum í kjölfar síðustu kjara- samninga var framlagið lækkað um 100 miljónir. Samkvæmt áætlun Húsnæðismálastofnunar er ráðgert að lánveitingar Bygg- ingarsjóðsins nemi um 6,5 milj- búist við að fá um 60 tonn á ár- inu,“ segir Ásmundur í samtali við Þjóðviljann. Starfsemi mót- tökunnar hófst í febrúar síðast liðnum. Þangað til hafði leysiefnum og öðrum skaðlegum efnum alfarið verið fargað eins og hverju öðru sorpi, með urðun eða hreinlega með því að hleypa þeim um hol- ræsakerfin og út í sjó. Það er enn algengasta aðferðin, ekki síst úti á landi þar sem engin móttaka er starfandi. Vonir eru þó bundnar við að menn notfæri sér móttök- una í ríkari mæli. Efnamóttakan á að standa undir sér fjárhagslega og því er tekið gjald af þeim sem koma með efni þangað. Að sögn Ás- mundai er gjaldið á bilinu 10-300 krónur á kílóið og fer það eftir því hve erfitt og kostnaðarsamt er að eyða efnunum. -gg örðum á næsta ári. Af þeirri upp- hæð hefur þegar verið ráðstafað 3,8 miljörðum með útgefnum lánsloforðum. Fáist ekki það við- bótarfjármagn sem stofnunin tel- ur sig þurfa er sýnt að ekki verður hægt að verða við nema um 600 miljón króna viðbótarlánveiting- um á næsta ári, en nú bíða 8000 umsækendur eftir afgreiðslu hjá stofnuninni. Ásmundur sagði að ítrekað hefði stjórnvöldum verið bent á að hverju drægi í kjölfar þess að framlög ríkisins væru stórlega skert og með tilkomu húsbréfak- erfisins hafi lánsfjármagn frá líf- eyrissjóðunum til Byggingar- sjóðsins snarlega minnkað. Reiknað er með að lánsfjármagn frá lífeyrissjóðunum verði allt að tveimur miljörðum króna minna á næsta ári en í ár þar sem sjóðun- um er heimilt að verja allt að 18% ráðstöfunarfjár þeirra til kaupa á húsbréfum í stað 10% nú. - Því er þveröfugt farið að al- menna húsnæðislánakerfið hafi reynst fjárfrekara en ætlað var að í upphafi. Þegar þessu kerfi var komið á 1986 hafði töluverðu fjármagni verið veitt í húsnæðis- lánakerfið og ráðstafanir voru gerðar til að tryggja fjáröflun kerfisins, s.s. með hækkun sölu- skatts og með launaskatti. Ríkis- valdið hefur síðan valið að verja þessum tekjupóstum í eitthvað allt annað, sagði Ásmundur. í kjölfar neyðaróps húsnæð- ismálastjórnar, hefur Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, farið þess á leit við forseta Sameinaðs þings að hann hlutist til um við Ríkisendur- skoðun að gagnger athugun fari fram á fjárhagsstöðu byggingar- sjóðsins. Aðspurður hvort hér væri ekki um vindhögg að ræða, þar sem félagsmálaráðherra hefði fyrir nokkru skipað nefnd til að fara ofan í saumana á fjárhagsstöðu sjóðanna, sagði Þorsteinn ekki svo vera. - Einhver innanbúðar úttekt skiptir engu máli þar að lútandi. Það er eðlilegt að óháðri stofnun sé falið að gera slíka út- tekt þegar stjórn Húsnæðismál- astofnunar sendir þingflokkun- um sína aðvörun. Það er augljóst að stefna ríkis- stjórnarinnar er að leggja al- menna húsnæðislánakerfið í rúst með því að veita 50 miljónum króna til þess í ár. Þetta er upp- hæð sem dugir aðeins fyrir einum tíunda hluta af rekstrarkostnaði. Um þessa ákvörðun verður ekki annað sagt en að hún sé gaga, svo vitnað sé til orðalags fjármála- ráðherra, sagði Þorsteinn. Stcingrímur Sigfússon, er gegnir stöðu fjármálaráðherra um stundarsakir, sagði það sína skoðun að samfélagið ætti skil- yrðislaust að koma til móts við þá sem væru tekjuminni og þá sem væru að kaupa eða byggja hús- næði í fyrsta sinn. - En ég vísa bara til þeirrar erfiðu stöðu sem er í ríkisbúskapnum. Menn eru ekki ginnkeyptir fyrir mikilli skattheimtu og ríkissjóður er rek- inn með bullandi halla. Mér er spurn, hvar á að taka það fjár- magn sem upp á vatnar? sagði Steingrímur. Laugardagur 23. júni 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 HELGARRÚNTURINN JÓNSMESSUNÓTT og margt getur óvænt og dularfullt gerst. Við Norræna húsið verður bálköstur kveiktur kl. 20.30 í kvöld og haldin Jónsmessuhátíð með maístöng og hljóðfæraslætti langt fram á nótt. Dansk-sænska vísnasöngkonan Hanne Jull mætir ásamt norska kórnum Raumklang og kvintett Görans Palms. Færeyingar dansa þjóðdansa af alkunnri snilld. Sama kvöld heldur Dómkórinn í Reykja- vík jónsmessutónleika í Dómkirkjunni sem hefjast tveimur stundum fyrir miðnætti, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Fyrr um daginn verður stórsveit og kór frá Húsavík með tónleika í Norræna húsinu, og hefjast þeir kl. 16. DROTTNINGIN varð ástfangin af bjána heitir leikrit sem Auðhumla sýnir á Jónsmessunótt við Kjarvalsstaði á Klambratúni á horni Löngu- hlíðar og Flókagötu. Aðgangur er ókeypis, en áhorfendum er bent á að taka með sér mottur eða stóla til að njóta verksins sem hefst á miðnætti. LANDSBYGGÐIN fær loks smjörþefinn af Reykjavíkurmenningunni þegar snjóa leysir og vegir verða greiðfærari. Sigrún Ástrós yfirgaf Borgarleikhúsið fyrir stuttu og lagði land undir fót. Hún spjallar við Húsvíkinga í kvöld, og annað kvöld verður hún stödd í Skjólbrekku. ísaðar gellur úr Alþýðuleikhúsinu eru einnig að ferðast um landið og verða í kvöld í Sindrabæ á Höfn, annað kvöld skemmta gellurnar Vestmannaeyingum. Spaugstofumenn eru orðnir heitir í leitinni að léttustu lundinni, þeir verða með Grínmúrinn á ísafirði í kvöld og á Hvammstanga annað kvöld. Hljómsveit allra landsmanna kalla Stuð- menn sig, þeir lögðu í hann nýlega og hafa haldið miðnæturtónleika víða. í kvöld verður sveitin ( Njálsbúð, og annað kvöld á Selfossi. Greifarnar eru einnig að hefja hringferð um landið. Þeir byrja þó á því að skemmta borgarbúum í Næturklúbbnum við Borgartún 32 í kvöld áður en þeir leggja út á þjóöveginn. JÓNSMESSUNÆTURGANGA verður á vegum Útivistar í dag. Farið verður með Akraborginni upp á Akranes, gengið út með strönd og fylgst með sólarlaginu, sem verður ugglaust rómantískt mjög. Brottför í ferðina er frá Grófarbryggju kl. 18.30. ÁRBÆJARSAFN er komið í sumarbúning, og þar má sjá stúlkur með rauðan skúf í peysu og í upphlut. Þær bera fram kaffi í Dillonshúsi og selja kandís í Krambúðinni. Áhugamenn um prentlist og bókband geta svo brugðið sér inn í Miðhús og séð prentara og bókara að störfum, og er handbragðið að hætti aldamótamanna. Suður í Hafnar- firði stendursýningin Einfarar í íslenskri myndlist fram ásunnudag í Hafnarborg. A leiðinni suðureftir geta menn staldrað við í nýjum sýn- ingarsal við Þernunes 4 á Arnarnesi. Gunnarssalur nefnist hann og þar sýnir Gunnar I. Guðjónsson olíumálverk daglega frá kl. 16-22. A morgun eru einnig síðustu forvöð að sjá sýningu Listmálarafélagsins í Listhúsinu að Vesturgötu 17. í dag kl. 14 opnar ung listakona, Guðbjörg Hjartardóttir, sýningu í FÍM-salnum við Garðastræti 6. Guðbjörg sýnir þar olíumálverk sem hún hefur unnið á undanförnum tveim árum. Um 40 tonn af efnaúrgangi hafa borist efnamóttöku Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins síðan hún tók til starfa í febrúar. Efni hefðu ella farið í jörð eða út í sjó. Mynd: Kristinn. Efnaúrgangur Lfltíkinu hlíft við 40 tonnum 40 tonn afefnaúrgangi hafa borist ímóttöku Sorpeyðingar höfuðborgarsvœðisins. Meira en gert var ráðfyrir, en þó aðeins brotafþví sem tilfellur. Urðun er enn algengastaförgun- araðferðin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.