Þjóðviljinn - 03.07.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 03.07.1990, Blaðsíða 6
A ustur-Þýskaland Flýtum okkur varlega Matthias Gehler, talsmaður austurþýsku stjórnarinnar, sagði á sunnudag að stjórn hans myndi halda sínu striki hvað sam- einingu þýsku ríkjanna varðaði og ekki gefa eftir fyrir þrýstingi frá vesturþýsku stjórninni í þvi efni. Gehler lét þetta í ljós sama daginn og sá sögulegi atburður gerðist að vesturþýska markið var innleitt sem gjaldmiðill í Austur-Þýskalandi, en það þýðir í raun að efnahagslífi Þýskalands alls er nú stýrt frá Bonn. Helmut Kohl, sambandskansl- ari Vestur-Þýskalands, vill að kosningar fari fram í Þýskalandi öllu í des. n.k. og jafnframt þeim verði ríkin tvö sameinuð að fullu. De Maiziere - geldur varhuga við þrýstingi frá Bonn. Spurningu um hvort austurþýska stjórnin hefði nú fallist á þetta svaraði Gehler ekki beint, en sagði að í þeim efnum yrði að fara að öllu með gát. Lothar de Maiziere, forsætis- ráðherra Austur-Þýskalands og kristilegur demókrati eins og Kohl, sagði á fréttamannafundi um helgina að hann útilokaði ekki samþýskar kosningar fyrir árslok, en kvað það vera á valdi Volkskammer, austurþýska þingsins, að ákveða það. Nauðsynlegt væri að fyrst gerðu þýsku ríkin samning sín á milli um pólitísk atriði í samhengi við samninginn um efnahagslega sameiningu. Ennfremur væri nauðsynlegt að skipta Austur- Þýskalandi í fylki, í samræmi við forna hefð, og láta fara fram kosningar í fylkjunum. Þá yrði niðurstaða að fást í viðræðum þýsku ríkjanna við veldi þau fjögur, er hersetið hafa Þýska- land frá lokum heimsstyrjaldar- innar síðari, Bandaríkin, Sovétr- íkin, Bretland og Frakkland. Þær viðræður snúast um hemaðarleg sambönd sameinaðs Þýskalands. Gehler sagði aukheldur að miklu skipti í sambandi við sam- eininguna hvernig Austur- Þjóðverjar brygðust við efna- hagslegum afleiðingum gjald- eyrissamrunans, en honum kem- ur til með fylgja mikið atvinnu- leysi og verðhækkanir. Reuter/-dþ. Imelda sýknuð Dómstóll í New York sýknaði í gær Imeldu Marcos, fyrmm forset- afrú á Filippseyjum, af ákæmm um fjárglæfra eftir fimm daga athugun á málavöxtum. Um leið var sýknaður af sama rétti saúdiarabíski kaupsýslumaðurinn Adnan Khashoggi, sem ákærður var fyrir að hafa bmggað með ekkjufrúnni launráð um að festa fé, sem Marcoshjón voru sögð hafa stolið af þegnum sínum Filippseyingum, í fasteignum í New York. Imelda grét gleðitámm er sýknunarúrskurðurinn var upp lesinn og verjandi hennar, Gerry Spence, faðmaði hana eins og Matlock er vanur að gera. Þennan sama dag varð Imelda 61 árs. ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkjastjórn Nýtt og mildara Nató Dregið verði úrhörku kjarnastríðsáœtlunar George Bush, Bandaríkjafor- seti, hefur lagt fram tiilögur sem talsmenn Atlantshafsbanda- lagsins í Brussel segja að boði gagngerar breytingar á banda- laginu í samræmi við að kalda stríðinu er lokið. Meðal annars býður Bush að Bandaríkin taki frá Evrópu allar kjarnasprengi- kúlur sem þau nú hafa þar, ætlað- ar fyrir stórskotalið. Annað atriði er tillaga um að Nató lýsi því yfir, að það beiti ekki kjarnavopnum í stríði nema því aðeins að allt annað bregðist. Er hér meðvitað verið að milda afstöðu Bandaríkjanna og Nató hvað beitingu kjarnorkuvopna varðar, að sögn heimildarmanna bandaríska blaðsins Washington Post, sem birti frétt um þetta í gær. Frá því á sjöunda áratug hefur það verið yfirlýstur ásetningur Nató að beita kjamavopnum að fyrra bragði, ef ekki tækist með öðm móti að stöðva hugsanlega sókn Varsjárbandalagshers inn í Vestur-Evrópu. Með áður- greindri tillögu sinni meinar Bush ekki að þessum ásetningi verði aflýst með öllu, en Bandaríkja- stjórn ætlast til að héreftir skipti hann ekki jafnmiklu máli og áður í fyrirætlunum Nató með hliðsjón af hugsanlegu stríði við Varsjár- bandalagið. Til að glæða vináttu með fyrr- verandi andstæðingum stingur Bush ennfremur upp á því að So- vétríkin og Austur-Evrópuríki hafi framvegis sendiherra í aðal- stöðvum Nató í Brussel. Haft er eftir heimildamönnum þar á bæ að með þessu vilji Bandaríkja- stjórn í fyrsta lagi fullvissa Sovét- menn um að þeim stafi engin hætta af Nató, og ekki heldur sameinuðu Þýskalandi í Nató, og í öðru lagi að sýna almenningi á Vesturlöndum fram á að Nató sé ekki staðnað, heldur fylgist með tímanum. Búist er við að þessi mál verði rædd á leiðtogaráðstefnu Nató í Lundúnum í vikunni. Reuter/-dþ. Júgóslavía Slóvenía fullvalda - Kosovo lýðveldi IJúgóslavíu bar það til tíðinda í gær að lýst var yfir fullveldi lýðveldisins Slóveníu og því að sjálfstjórnarhéraðið Kosovo yrði lýðveldi. í frétt um þetta frá Tanj- ug segir að slóvenska fullveldis- yfirlýsingin hafi verið samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða á þingi þar og hafi allir stjórnmálafiokkar að henni stað- ið. í yfirlýsingunni felst ekki að Slóvenía segi sig úr Júgóslavíu, en á hinn bóginn mun út frá því gengið að völd sambandsstjórn- arinnar í Belgrad yfir lýðveldinu verði lítið meira en formleg hér- eftir. í Pristina, höfuðborg Koso- vo, var samþykkt á þingi héraðs- ins að það segði sig úr lögum við Serbíu, sem það heyrir undir, og yrði fullgilt lýðveldi með aðild að júgóslavneska sambandslýðveld- inu líkt og Serbía sjálf og hin lýð- veldin þar fimm. Serbíustjórn brást ekki vel við og lýsti sam- þykkt Kosovoþings ólöglega. Rcuter/-dþ. ttalir vilja vændishús Meirihluti ítala er því hlynntur að banninu við rekstri vænd- ishúsa, sem í gildi er þarlendis, verði aflétt. Af aðspurðum í skoð- anakönnun um þetta á vegum tfmaritsins Espresso reyndust rúmlega 56 af hundraði vera því fylgjandi að rekstur slfkra fyrir- tækja yrði lögleyfður en 23 af hundraði svöruðu neitandi. Karlmenn reyndust heldur hlynntari því að umrædd laga- breyting yrði gerð en konur, en þó var rúmur helmingur að- spurðra kvenna því fylgjandi. Einn þeirra, sem gagnrýnt hefur gildandi lög um þetta er Federico Fellini, kvikmyndaleikstjórinn frægi. Sagði hann bannið við vændishúsarekstri þýða það eitt að stjómvöld væru að láta sem vændi væri ekki til þarlendis. Sovétríkin Forkólfar á 28. flokksþingi Spáð er hörðum átökum áþvímilli íhaldsmanna, miðjumanna og róttœkra Eftirtaldir menn eru meðal þeirra, sem líklegast er að kveði hvað mest að á 28. flokks- þingi Kommúnistaflokks Sovétr- íkjanna, sem hófst í Moskvu í gærmorgun og stendur í tíu daga skemmst: Míkhaíl Gorbatsjov, aðalritari flokksins og forseti Sovétríkj- anna. Hann hefur oftlega sýnt að hann veigrar sér ekki við að leggja í átök, telji hann nauðsyn bera til, og varla þarf hann að kvíða því að nein ládeyða verði kringum hann á flokksþinginu, hvernig sem það allt fer. Ekki er ólíklegt að þar verði reynt að koma honum úr stöðu flokksað- alritara, en hann hefur gefið til kynna að hann hyggist ekki láta það embætti laust, a.m.k. ekki að svo komnu. Hann hefur lýst því yfir að hann telji að óhjákvæmi- legt sé að yngja flokkinn upp, eigi hann að eiga nokkra framtíð fyrir sér. í því augnamiði hyggst hann fá sem flesta perestrojkusinna kosna í miðstjóm flokksins. Gor- batsjov, sem nú er 59 ára, og hans fylgismenn em nú yfirleitt skil- greindir sem miðjumenn í flokknum. Aleksandr Jakovlev, 66 ára og einn eindregnasti stuðningsmað- ur Gorbatsjovs í flokksforast- unni. Jakovlev, sem fyrrmeir var ambassador í Kanada, er gjaman kallaður „herra Glasnost‘% enda fól Gorbatsjov honum umsýslan upplýsinga- og menningarmála. Honum era flestum öðram frem- ur þökkuð umskiptin til frjáls- ræðis í þeim efnum, einkum hvað fjölmiðla varðar. Eduard Shevardnadze, utan- ríkisráðherra síðan í júlí 1985. Þá spáðu því ýmsir að ekki myndi mikið fara fyrir honum og töldu útnefningu hans benda til þess að Gorbatsjov ætlaði að fara með utanríkismálin að mestu sjálfur. En þessi hrífandi, alúðlegi Ge- orgíumaður, nú 62 ára, hefur reynst laginn og óþreytandi samningamaður og hann á án efa drjúgan þátt í þeim breytingum, sem orðnar eru á samskiptunum við Bandaríkin og Vestur- Evrópu. Um áframhaldandi stuðning hans þarf Gorbatsjov víst varla að efast. Jegor Lígatsjov, 69 ára og situr eins og Jakovlev í stjórnmálaráði flokksins. Hann hefur á stjórn- artíð Gorbatsjovs verið aðalfor- kólfur íhaldssamra „rétttrúnað- arkommúnista“ og gagnrýnt Gorbatsjov, sem hann segir stofna Sovétríkjunum í upp- lausnarhættu með alltof hröðum umbótum. Frá því 1988 hefur hann verið á undanhaldi, en geystist aftur fram af tilefni í hönd farandi flokksþings og vakti máls á því að ekki væri við hæfi að sami maður (Gorbatsjov) væri hvorttveggja í senn, forseti og að- alritari flokksins. Enn um forustu Gorbatsjov - verður þingið hans mesta raun til þessa? fyrir íhaldsmönnum verður Lígatsjov nú að keppa við Ivan Polozkov, sem komst í fremstu röð áhrifamanna í sovéskum stjórnmálum með því að ná kjöri sem fyrsti formaður Kommún- istaflokks Rússlands. Polozkov er 55 ára og helsti forkólfur kyn- slóðar „nýíhaldsmanna" í so- véska kommúnistaflokknum, manna sem eru yngri en Lígat- sjov og hans stuðningsmenn og fara ekki endilega sömu leiðir í öllu. Polozkov gagnrýndi fyrir skömmu núverandi floícksforastu harkalega og sagði flokkinn ekki vera haldinn neinni kreppu, held- ur forustumenn hans. Sem flokksstjóri í Krasnodarfylki, Jeltsín - ætiar að mynda fjöl- flokkastjórn. sem nær yfir vesturhluta Norður- Kákasíu og er mikilvægt land- búnaðarsvæði, hefur hann látið loka um 1000 samvinnubúum, er stofnuð hafa verið á stjómartíð Gorbatsjovs. Samt sagði Polozk- ov nýlega að hann vildi að Gor- batsjov léti ekki að svo stöddu af stöðu aðalritara flokksins. Borís Jeltsín, 59 ára stór- skorinn og aðsópsmikill Síberíu- maður, er helsti liðsoddur rót- tækra flokksmanna og að margra mati um þessar mundir vinsælast- ur allra stjórnmálamanna í Rúss- landi sjálfu. Jeltsín gagnrýnir stjórn Gorbajsjovs fyrir að fara sér of hægt í breytingum í efna- hagsmálum, en lætur margt flakka og er ekki alltaf auðvelt að koma því öllu heim og saman. Hann hefur lýst því yfir, að hann vilji að Rússland taki sjálft stjórn efnahagsmála sinna úr höndum sovésku miðstjórnarinnar og kveðst ætla að mynda þarlendis stjórn með aðild fleiri flokka en Kommúnistaflokksins. Gavrfl Popov, 53 ára fjörlegur náungi af grískum ættum, borgar- stjóri í Moskvu síðan í apríl og vinsæil þar að sögn. Hann er í liði þeirra róttæku og hefur sagst ætla að segja sig úr flokknum, ef íhaldsmenn verði mestu ráðandi á nýbyrjuðu þingi hans. Vladímír Lysenko, 34 ára og einn helstu forustumanna Lýð- ræðisfylkingarinnar, róttækra samtaka sem að sumra sögn hafa um 40 af hundraði flokksfélaga á sínu bandi, þótt ekki séu nema 80-100 af um 4700 þingfulltrúum þeirra megin. Lýðræðisfylkingin vill að flokkurinn hreinsi sig ó- grunsamlega af alræðissvipnum gamla og verði eins og hver annar þingræðissinnaður flokkur. Tals- menn Lýðræðisfylkingar segja að hún muni kljúfa sig frá flokknum, ef ekki verði á honum gagngerar breytingar. Lysenko er svartsýnn á að það gangi og hefur spáð flokknum þeim örlögum að hann klofni í þrjá hluta, fhaldssaman, róttækan og miðjusinnaðan og að miljónir félaga gangi þá úr hon- um. Reuter/-dþ. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Þriðjudagur 3. júlí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.