Þjóðviljinn - 17.07.1990, Side 1
Þriðjudagur 17 júlí 1990 125. tölublað 55. árgangur
Sovétríkin
Úkraína
lýsiryfir
fcillveldi
Stofnun eigin hers
kemur til greina
Fréttastofan Interfax skýrði
svo frá í gær að þing sovétlýðveld-
isins Úkraínu hefði lýst yfir
fullveldi þess. Er svo að sjá að
Úkraína hafi í þessu efni gengið
ívið lengra en önnur sovétlýð-
veldi, sem lýst hafa yfir fullveldi,
þar eð í úkraínsku fullveldisyfir-
lýsingunni er gert ráð fyrir þeim
möguleika að lýðveldið komi sér
upp eigin her.
Að sögn Interfax var
fullveldisyfirlýsingin samþykkt
með öllum þorra atkvæða á þingi,
eða 355 gegn fjórum. Með yfir-
lýsingunni tekur Úkraína sér rétt
til að stofna eigin her og gjald-
miðil. Sérstakur úkraínskur
borgararéttur er tekinn upp, en
þeir sem vilja mega einnig halda
áfram að vera sovéskir ríkisborg-
arar. Úkraínsk lög munu héreftir
hafa í lýðveldinu forgang fram-
yfir stjórnarskrá Sovétríkjanna.
Gert er ráð fyrir því í yfirlýsing-
unni að Úkraína komi sér upp
eigin bankakerfi og lýst er yfir í
henni að lýðveldið eigi rétt á
hluta af forða Sovétríkjanna af
erlendum gjaldeyri og gulli. Pá er
tekið fram að Úkraína hafi
„jafnrétti" til að fara með utan-
ríkismál sín og að stefnt skuli að
hlutleysi í alþjóðamálum, sam-
kvæmt sumum fréttaskeytum.
Úkraína er aðili að Sameinuðu
þjóðunum, en hefur hingað til á
þeim vettvangi ávallt tekið af-
stöðu með fulltrúum Sovétríkj-
anna.
Úkraína er annað fjölmenn-
asta lýðveldi Sovétríkjanna og
mikilvæg vegna iðnaðar og land-
búnaðar. Önnur sovétlýðveldi
sem lýst hafa yfir fullveldi eru
Rússland, Moldavía og Úsbekist-
an. Litháen hefur lýst yfir fullu
sjálfstæði, Lettland einnig en
með þeim fyrirvara að sjálfstæð-
isyfirlýsingin taki ekki giídi þegar
í stað og þing Eistlands hefur gert
samþykktir með fullveldi fyrir
augum. Reuter/-dþ.
Fiskvinnsla
Neyddir til að loka
Arnar Sigurmundsson: Að mestum hluta vegna kvótans. Umfangsmeiri lokanir á
nœsta ári. Sölumiðstöðin: Gœðalega séð ekki svo slœmt. Bölvað að eiga engarbirgðir
Við mundum aldrei loka í svona
langan tíma eða í einn mánuð,
nema þvi aðeins að við erum
neyddir til þess. Astæðan er fyrst
og fremst vegna þess að við erum
langt komnir með kvótann. Á
meðan munu báðir togarar okkar
verða bundnir við bryggju og
starfsfólkið taka út sitt sumarfrí,
segir Haukur Björnsson rekstrar-
stjóri Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar.
Svo virðist sem það sé að færast
í vöxt að fiskvinnsluhús loki tíma-
bundið yfir sumarið og þá þegar
mesti sumarleyfistíminn er. Arn-
ar Sigurmundsson formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva segir
að kvótinn eigi stærstan þátt í því
en auk þess tengjast þessar lok-
anir mestu ferðamannahelgi
landsmanna á ári hverju, verslun-
armannahelginni. Arnar segir að
þessar lokanir verði mun um-
fangsmeiri á næsta ári. Þá verða
komin til framkvæmda nýsam-
þykkt kvótalög með þeirri
breytingu frá núgildandi lögum
að kvótaárið hefst þá ekki um
áramót heldur þann 1. septemb-
er. Þá er viðbúið að margir verði
langt komnir eða jafnvel búnir
með kvóta sína þegar líða tekur á
sumarið.
Þessar sumarlokanir koma
sýnu verst niður á vinnu skóla-
fólks en fastráðið starfsfólk hús-
anna hefur tekið mið af þeim við
skipulagningu á sínu sumarleyfi.
Bjarni Lúðvíksson fram-
kvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna segir að
óneitanlega verði þeir varir við
þessar lokanir húsanna sem hafi
aldrei verið meiri en einmitt nú.
Hinsvegar sé því ekki að neita að
yfir sumarið er þorskurinn afar
laus í sér og gæðalega séð ekki
besta hráefnið til vinnslu. Þá
muni þessar sumarlokanir hafa
það í för með sér að betri fiskur
komi til vinnslu í haust, jafnframt
því sem lokanirnar teygja á
vinnsluárinu.
„Aftur á móti er það bölvað að
hafa engar birgðir. Við höfum
orðið að keyra þær niður á árinu
enda hlýtur það að hafa sín áhrif á
framboðið þegar þetta er þriðja
árið í röð sem kvótinn er skorinn
niður,“ sagði Bjarni Lúðvíksson.
Minnkandi veiðikvótar eru
ekki aðeins hér á landi heldur og
einnig hjá helstu samkeppnisaðil-
um okkar ss. hjá Norðmönnum,
Kanada, Færeyjum og víðar. Þó
svo að fiskneysla hafi ekki aukist
að marki í Bandaríkjunum þá
hefur minnkandi framboð leitt til
verðhækkana á sjávarafurðum.
Er nú svo komið að pundið af
þorskblokk selst nú á 2,10 dollara
sem er svipað því og það var hvað
hæst á góðærisárinu 1987.
-grh
Fornlelfar í Vlðey. í sumar eins og undanfarin sumur er unnið að fornleifaupp-
greftri í Viðey. Að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur borgarminjavarðar hefur
uppgröftur gengið vel að þessu sinni. Þegar hafa komið í Ijós minjar sem sýna
að byggð hefur verið í Viðey áður en klaustrið var reist þar á miðöldum. Meira
verður fjallað um uppgröftinn í Þjóðviljanum innan skamms. Mynd: Kristinn.
Geislaúrgangur
Svíar vakna við vondan draum
Júlíus Sólnes: Ágœtt efummœli mín hafa náð að hrista upp í
sœnska kerfinu. IngvarPerson: Erum ekki með vonda samvisku íkjarnorkumálum
Júlíus Sólnes umhverfismála-
ráðherra segir ágætt ef um-
mæli hans í Þjóðviljanum á laug-
ardag, um að Svíar losuðu geisla-
virkan úrgang í neðansjávarhella
við Eystrasalt og hefðu því slæma
samvisku í umhverfismálum,
næðu að hrista aðeins upp í
sænska kerfinu. „Svíar hafa
vaknað þarna upp við vondan
draum,“ sagði umhverfismála
ráðherra í gær.
Ekki náðist í umhverfismála-
ráðherra Svíþjóðar í gær, en Ing-
var Person starfsmaður í ráðu-
neytinu, segir Svía hafa hreina
samvisku varðandi geymslu
geislavirkra efna. í viðtali við
Ríkisútvarpið í gær sagði Person
einnig rangt að Svíar geymdu
geislavirkan úrgang með þeim
hætti sem Júlíus greindi frá í sam-
tali sínu við Þjóðviljann. Person
sagði Svía geyma úrganginn í
bjargi við Eystrasalt og hefði sá
staður verið sýndur almenningi.
Svíar hefðu því engu að leyna í
þessum efnum.
„Mér skilst að ég eigi von á
greinargerð frá sænskum
stjórnvöldum vegna þessa máls
og bíð bara eftir henni,“ sagði
Júlíus. Mikil leynd hvfldi alla
jafnan yfir þessum málum hjá
öllum þjóðum en hann hefði grip-
ið sögur á lofti um að Svíar dældu
geislavirkum efnum í neðansjáv-
arhella við Eystrasalt, á fjöl-
mörgum fundum þar sem emb-
ættismenn og vísindamenn ræddu
þessi mál. Umhverfismálaráð-
herra sagðist ma. hafa heyrt á
þetta minnst á Norðursjávarráð-
stefnunni.
Júlíus sagðist telja að Finnar
væru með gamlan samning við
Sovétmenn um geymslu geisla-
virkra efna, þannig að þau gætu
ekki valdið skaða hjá öðrum ríkj-
um við Eystrasalt.
Person sagði Svía standa einna
best allra þjóða að geymslu
geislavirks úrgangs. Margar
þjóðir, til dæmis Bandaríkin,
horfðu til Svíþjóðar eftir lausnum
í þeim efnum.
-hmp