Þjóðviljinn - 31.07.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 31.07.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR Jarðborun í Öxarfirði Ríkisstjómin gefi svarstrax Um 10 miljónirþarf til jarðborana í Öxarfirði. Björn Benediktsson oddviti: Svar verður að fást innan 2 vikna Komið hefur í Ijós að mikið há- hitasvæði er í Óxarfirði og tal- ið er að olía leynist þar einnig. Að sögn Björns Benediktssonar oddvita Oxarfjarðarhrepps vUja heimamenn að boruð verði 1000 m tilraunahola á austurbakka að- alkvíslar Jökulsár á Fjöllum til að ganga úr skugga um það. Björn sagði að vísindamenn sem þarna hefðu unnið að rann- sóknum segðu að það væri ekki spurning um hvort olía væri í jörð, heldur hvort hún væri nýt- anleg. „Þetta finnst okkur heima- mönnum meira mál en svo að það sé hægt að leiða hjá sér að skoða það. Hvað varðar jarðhitann þá var boruð smá hola 1987 og kom í ljós að þarna er háhiti á 7-10 ferkílómetra svæði. En við lendum alltaf í sama hringnum hvað það mál varðar. Stjórnvöld spyrja hvers vegna setja eigi pen- inga í borun á háhitasvæði ef eng- inn veit hvað á að gera við ork- una. En aðilar sem hugsanlega vildu nýta orkuna, t.d. Raf- magnsveitan og Landsvirkjun segjast ekki geta gert neinar áætl- anir þegar þeir vita ekki hvað er undir,“ sagði Björn. Heimamenn eru orðnir nokk- uð langþreyttir á þessum sömu Gullfoss Nýtt skipulag í dag verður formlega tekinn í notkun nýr göngustigi sem liggur frá bflastæðinu við Gullfoss upp á barm gljúfursins. Stigi þessi er liður í framkvæmdum samkvæmt nýju skipulagi aðkomu að Gullfossi. Skipulagið gerir ráð fyrir nýju bílastæði, snyrtiað- stöðu og tveimur útsýnispöllum. Náttúruverndarráð hefur kostað framkvæmdir ásamt Plastpoka- sjóði Landverndar. Að sögn Sig- urðar Ármanns Þráinssonar hjá Náttúruverndarráði hefur um- gengni við Gullfoss ekki verið nægilega góð og sé þar aðstöðu- leysi um að kenna. Fyrirhugaðar framkvæmdir muni verða mjög til bóta. el svörum. „Annað er það sem við erum orðnir þreyttir á, sem er að það eru a.m.k. 10 vinnsluholur á Reykjanesi sem voru boraðar fyrir mörgum árum á kostnað ríkisins. Það hlýtur að hafa verið gert án þess að nýtingarmögu- leikar væru kannaðir, því þær hafa ekki verið notaðar. En svo Fólk er greinilega að vakna til vitundar um umhverfisvernd, því sala á endurunnum salernis- pappír og eldhúsrúllum eykst stöðugt. Svo og á úðabrúsum sem innihalda ekki ósoneyðandi efni. í þessu sambandi hafa verslanir stóru hlutverki að gegna, en þær standa sig misvel í kynningu á umhverfisvinsamlegum vörum. Þjóðviljinn fór í fjóra stór- markaði í gær og kynnti sér úrval og kynningu á umhverfisvinsam- legum vörum. Hagkaup stendur sig sýnu best, því bæði er mikið og gott úrval af þessum vörum og kynning á þeim er til fyrirmynd- ar. Á rekkum þar sem þessar vörur eru stendur „Náttúruvin- ur“ og einnig hefur Hagkaup tekið það upp að selja einungis úðabrúsa sem ekki innihalda ós- oneyðandi efni. Að sögn Kristín- ar Sigurðardóttur starfsmanns í Hagkaup, er greinilegt að fólk kaupir meira af umhverfisvin- samlegum vörum, bæði pappír og úðabrúsum. f versluninni Nóatúni fékkst endurunninn salernispappír, en engin sérstök kynning var á hon- um. Að sögn Lóu Bjargar Óla- dóttur verslunarstjóra er það ekki hlutverk verslunarinnar að vekja sérstaka athygli á þessum vörum. Hún sagði það fyrirtækj- anna sem framleiða vörumar að kynna þær og verslunin myndi eicki hengja upp slík kynningar- skilti. Lóa Björg sagðist ekki verða vör við að fólk keypti meira af endurunnum pappír. vilja menn ekki bora hér,“ sagði Björn. Stjórnvöld hafa ekki viljað leggja peninga í borun í Öxar- firði, en nú hafa heimamenn boð- ist til að leggja fram helming þess fjár sem til þarf, eða um 10 milj- ónir króna. Ríkið þyrfti þá að leggja fram 10 miljónir. Hins veg- Næst lá leiðin í Bónus í Skeif- unni og þar vora til nokkrar teg- undir af endurannum salernis- pappír. Einnig var þar skilti til kynningar á vörunni. Jón Ásgeir verslunarstjóri í Bónus sagði að þeir væra sífellt að auka við sig hvað varðar umhverfisvinsam- legar vörur. Stefnan hjá Bónus væri að taka í sölu allar þær vörar sem ekki væru hættulegar um- hverfinu, s.s. úðabrúsa sem ekki innihalda ósoneyðandi efni. Að sögn Jóns Ásgeirs væri næst á dagskrá að taka í sölu endurunna eggjabakka og kaffifflter og jafn- framt að vekja á þeim sérstaka athygli. „Fólk hugsar miklu meira um hvað það kaupir núna en áður og það er greinilegt að áhugi á þessum vörum er að ar stendur það tilboð heima- manna aðeins í 2 vikur í viðbót, vegna þess að bor sem til staðar er í Öxarfirði verður fluttur burt að þeim tíma liðnum. Að sögn Björns verður leitað eftir því að fá leyfi stjórnvalda til að gera samninga við erlenda aðila ef ís- lendingar hafa ekki áhuga. vakna,“ sagði Jón Ásgeir. í Miklagarði var að finna endurunninn salernispappír, en engin sérstök athygli var vakin á honum. Ekki heldur var um slíkt að ræða hvað úðabrúsa varðar. Þórður Sigurðsson verslunar- stjóri í Miklagarði sagði það vera hugsunarleysi að vekja ekki sér- staka athygli á endurannum pappír. „Við höfum í hyggju að kynna þessar vörar sérstaklega og einnig erum við að taka í sölu kaffifflter úr endurannum papp- ír,“ sagði Þórður. Afgreiðslufólk í Miklagarði sagði að það yrði vart við aukinn áhuga á umhverf- isvinsamlegum vöram og greini- legt væri að fólk er að vakna til vitundar um umhverfi sitt. ns. Upplagseftirlit Samdráttur hjá tímaritum Þjóðlíf hefur mesta útbreiðslu tímarita sem taka þátt í upplags- eftirliti Verslunarráðs íslands, en upplagið hefur þó minnkað veru- lega á undanförnum mánuðum. Á tímabilinu október til janúar var upplag Þjóðlifs 14.500 eintök, en var tæplega 12 þúsund eintök á tímabilinu febrúar til maí. Upp- lag annarra tímarita í upplagseft- irliti dróst einnig saman miðað við sömu tímabil. Fjögur tímarit og fjögur frétta- blöð fengu staðfestingu á upplagi sínu með síðustu könnun verslun- arráðsins, en allir þeir sem geta lagt fram fullnægjandi bókhalds- gögn um prentuð eintök geta tekið þátt í eftirlitinu. Tímaritin eru Heilbrigðismál, Heimsmynd, Æskan og Þjóðlíf. Upplag Þjóð- lífs er stærst sem fyrr segir, en upplag Heimsmyndar var að meðaltali 9,500 eintök á tímabil- inu febrúar til maí. Hafnfirska fréttablaðið, Vík- urfréttir í Keflavík, Bæjarins besta á ísafirði og Vestfirska fréttablaðið taka þátt í eftirlitinu. Samkvæmt fréttatilkynningu upplagseftirlitsins, hafði Víkur- fréttir stærsta upplagið, rúmlega 5,600 prentuð eintök. Morgunblaðið tekur eitt dag- blaða þátt í eftirliti verslunar- ráðs. -gg BHMR ÆFR gegn lögum Stjórn Æskulýðsfylkingar .41- þýðubandalagsins í Reykjavík telur að sérstök lagasetning vegna úrskurðar félagsdóms í BHMR- deilunni yrðu mikill smánarblett- ur á Alþýðubandalaginu. í ályktun stjórnar ÆFR segir að einhliða frestun á framkvæmd kjarasamnings við bandalagið hafi verið asnastrik, sem félags- dómur hefur afmáð, eins og segir í ályktuninni. „Ríkisstjórnin ætti að láta sér þann dóm að kenningu verða og taka afleiðingum þess samnings sem hún sjálf gerði,“ segir orð- rétt. -gg Umhverfisvinsamlegar vörur Verslanir taka sig á T Ath! I yjjr f /T /i Alllr úðabrúsar i Hng'kaup imúhalda ffí ósoneyðandl efní. Sala á endurunnum salernispappír og eldhúsrúllum eykst stöðugt, svo og á úðabrúsum sem ekki innihalda ósoneyðandi efni. En betur má ef duga skal. Mynd: Jim Smart. Ný og stílfærð útgáfa af björgunarnetinu Markúsi var nýlega kynnt fulltrúum í nefnd Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) sem fjallar um öiyggi á hafinu. Framkvæmdastjóri Björgunarnetsins Markúsar hf., PéturTh. Pétursson, sá um kynninguna í aðalstöðvum stofnunar- innar í London. Mæltist kynningin vel fyrir og vakti athygli þeirra 320 þátttakenda frá 60 löndum, segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Björgunarnetið Markús stendur á tímamótum um þessar mundir þar sem um tíu ár eru liðin frá því að Markús B. Þorgeirsson, höfundur og hönnuður netsins, hóf að fikra sig áfram með útfærslu upphaflegrar hugmyndar um netið. Myndin sýnir sýningarbásinn sem Björgunarn- etið Markús hf. hafði til umráða í aðalstöðvum Alþjóðasiglingamálast- ofnunarinnar. Farsottir Reykjavík í maí og júní í síðasta mánuði greindust 613 einstaklingar með kvef og aðrar veirusýkingar í efri loftvegum, eða tæplega helmingi færri en í undangengnum mánuði. Þá greindust í júní 51 einstaklingur með iðrakvef eða veirusýkingu í þörmum, í stað 85 í maímánuði sl. Af öðrum farsóttum sem greindust í síðasta mánuði má nefna að 20 voru með lungna- bólgu, 11 með hálsbólgu af völd- um sýkla og 15 með hlaupabólu. Að undanskilinni hlaupabólunni, fækkaði skráðum tilfellum allra þessara pesta í síðasta mánuði frá því í næsta mánuði á undan. í fréttatilkynningu frá borgar- lækni segir að þessar upplýsingar séu samkvæmt skýrslum þriggja heilsugæslustöðva í borginni og Læknavaktarinnar hf. Trúarlíf íslendinga í hnotskurn Þriðja hefti ritraðar Guðfræði- stofnunar, sem er nýkomið út, fjallar um trúarlíf íslendinga og nefnist „Trúarlíf íslendinga, fé- lagsfræðileg könnun“. Höfundar ritsins eru þeir dr. Björn Björns- son, guðfræðiprófessor og dr. Pétur Pétursson, lektor við Fé- lagsvísindadeild Háskóla íslands. í ritinu er greint frá niðurstöð- um umfangsmikillar spurninga- könnunar á ofangreindu efni sem framkvæmd var á árunum 1986- 1987 og byggir á svörum 731 ein- staklinga á aldrinum 18-75 ára. Ritið skiptist í sjö aðalkafla. í fyrsta kaflanum er greint frá trú- arhugmyndum landans, fjallað er um guðstrú, afstöðuna til frelsar- ans og trú á líf eftir dauðann. í öðrum kafla er fjallað um trúar- áhrif og uppeldi, í þeim þriðja um trúarlíf og helgihald, þar sem biblíulestur, bænaiðja og áheit eru tekin til umfjöllunar. Þá fjall- ar einn kafli ritgerðarinnar um sambland trúar og siðferðis, s.s. viðhorf til fóstureyðinga og hugs- anlegt samband þeirra við trúar- skoðanir. í ritinu er einnig greint frá afstöðu manna til trúarlegs efnis í fjölmiðlum og afstöðu manna til sambands ríkis og kirkju, stjórnmálaskoðana og viðhorfi til þjóðkirkjunnar. Ritið er alls 244 tölusettar síður. Það má nálgast í flestum bókabúðum. Laugarvatn - ekkert sukk og svínarí Af gefnu tilefni, vilja umsjónar- menn tjaldsvæðisins á Laugar- vatni, vekja athygli á því að þang- að eru allir velkomnir sem virða almennar umgengnisreglur og vilja njóta náttúru landsins í ró og spekt. í fréttatilkynningu umsjónar- manna segir að „sá leiði miskiln- ingur hafi stundum komið upp, að sumartjaldsvæðin séu skemmtistaður, þar sem leyfilegt sé að hafa í frammi hávaða. Svo er ekki. Allir eiga rétt á friði og ró, sérstaklega um nætur.“ FyrirlesturumSan Francisco jarðskjálft- ann Á morgun mun dr. Kenneth L. Verosub, prófessor við Kaliforní- uháskóla flytja fyrirlestur í boði jarðeðlisfræðistofu Raunvísind- astofnunar H.f um það hvaða lærdóma megi draga af jarð- skjálftanum sem skók San Fra- ncisco og næsta nágrenni í októ- ber í fyrra. Á fyrirlestrinum mun Verosub m.a. sýna myndir frá skjálfta- svæðunum og reifa hvaða lær- dóma megi draga af skjálftanum, sem jarðvísindamenn sáu ekki fyrir. Fyrirlesturinn verður fluttur í stofu 158 í byggingu VR-II og er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Fyrirlesturinn hefst stund- víslega kl. 16.15. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 31. júlí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.