Þjóðviljinn - 31.07.1990, Blaðsíða 11
FRÁ LESENDUM
l DAG
Er alltaf allt vitlaust
í Grindavík?
Mig langar til að benda samles-
endum mínum á Þjóðvilja á
greinarkorn sem ég sá £ blaðinu
Bæjarbót sem kemur út í Grinda-
vík. Þar er vikið að eilífðarmáli:
heimamönnum finnst að engar
fréttir séu sagðar af þeirra plássi
nema vondar fréttir. Og kenna
um, þótt spaugilegt sé, því sem
kallað er „hryðjuverkastarfsemi“
lögreglunnar. Með öðrum orðum
því að hún svarar í síma og segir
frá uppákomum þegar DV eða
Víkurfréttir í Keflavík hringja.
Bæjarbót finnst þetta skelfilegt
og segir að jákvæðir atburðir séu
miklu algengari í bæjarlífinu en
slagsmál og rúðubrot sem lög-
reglan skiptir sér af. Sem er að
sjálfsögðu rétt. Nema hvað
Grindavíkurblaðið gleymir þvíi
að hvort sem mönnum líkar betur
eða verr þá eru fréttir vondar
fréttir, allt frá því íslendinga-
sögur voru skrifaðar - en ýmsum
forverum þeirra á Bæjarbót þótti
það hið versta mál á sínum tíma
að verið væri að þýða á útlend
mál og gefa út níðrit um ísland
eins og Egils sögu, þar sem ekki
segir frá öðru en heimskulegum
manndrápum, svikum, ágirnd og
rógi.
Bæjarbót hinsvegar er blað
sem vill fyrir sinn hatt gera gott úr
öllu. Á forsíðu blaðsins er vitnað
í ummæli bæjarstjórans um nýtt
svæðisskipulag fyrir Suðurnes
undir fyrirsögninni: „Mjög gott
stefnumótandi uppflettirit". Við
hliðina er falleg mynd með stór-
um texta: „Bláa lónið - perla í
hrauninu". Svo er sagt frá sæ-
görpum sem hafa verið heiðraðir,
nýju heimili fyrir aldraða, og
snælduútgáfu sem gefur „hressi-
leg sönglög í bílinn". En sem
sagt: hér fer á eftir greinin um
hina dökku mynd af einu plássi í
fjölmiðlum:
„Hvernig er þetta með ykkur
þarna í Grindavík? Er alltaf allt
vitlaust hjá ykkur? Þið eruð bara
alltaf í fjölmiðlunum! Þetta eru
setningar sem margir bæjarbúar
fá að heyra frá vinum og vanda-
mönnum, sem búa annars staðar
á landinu og frétta ef til vill fátt úr
heimabyggðinni nema í gegnum
fjölmiðla. Það leiðir hugann að
því hvemig mynd þar er dregin
upp af bænum okkar og fólkinu
sem hann byggir. Upplýsinga-
miðlunin er í raun á fárra hönd-
um og þær fréttir sem mest fer
fyrir koma frá lögreglu staðarins.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er það Sigurður Ágústsson sem
samkvæmt sérstöku samkomu-
lagi sér um alla upplýsingamiðlun
úr herbúðum lögreglunnar hér og
hann hefur tjáð blaðinu að mikið
sé sótt eftir fréttum frá lögregl-
unni, sérstaklega af hálfu DV og
Víkurfrétta.
Nú er það svo að borgarar
bregða stundum á leik og gera þá
ýmislegt sem betur væri ógert.
Oftar en ekki er þá Bakkus við
stjórnvölinn. Menn keyra fullir,
brjóta rúður, slíta upp blóm eða
hvolfa úr ruslafötum, reyna
stundum krafta sína á lifandi eða
dauðum hlutum. Þetta þekkja
allir. Skyldu Grindvíkingar
stunda þessa iðju öðrum
mönnum meira? Örugglega ekki.
En fréttirnar úr heimabyggðinni
benda til annars.
Ekki er vitað hvað lögreglunni
gengur til með sinni upplýsinga-
miðlun(!). Kannski á hún að vera
öðrum víti til varnaðar. Kannski
á hún að hjálpa til við að upplýsa
mál. Kannski er bara svona gam-
an að sjá sín getið! Þessi orð eru
sett hér á blað í framhaldi af all
mörgum samtölum, þar sem
reiðir bæjarbúar hafa hvatt til
þess að reynt yrði að hafa áhrif á
neikvæða umfjöllun um Grinda-
vík. Einn sagði að það væri helvíti
hart að lögreglan væri með hál-
fgerða „hryðjuverkastarfsemi"
gagnvart áliti bæjarins, á sama
tíma og jákvæðir atburðir og upp-
ákomur bæru höfuð og herðar
yfir það neikvæðar.“
(H.J sendi).
Ein snjöll kjaralimra
Guðmundur hringdi og kvaðst hafa heyrt á skotspónum limru
ágæta. Hann var ekki viss um að hann hefði numið hana rétt, en gat
samt ekki stillt sig um að koma henni á framfæri, enda er vísan um brýn
málefni dagsins eins og það heitir.
Limran mun vera eitthvað á þessa leið - og taki menn eftir listilegri
og tvíræðri rímþraut í enda hennar:
Við á harðskeyttan ráðherra herjum
og hungurlaun okkar verjum
með Ijónið hann Pál
af lífi og sál
og lœrðan í BHMR-jum.
Pennavinir
Blaðinu berast alltaf af og til
bréf erlendis frá þar sem óskað er
eftir íslenskum pennavinum. Hér
á eftir birtum við nöfn heimilis-
föng og aðrar upplýsingar um
nokkra aðila sem vilja eignast ís-
lenska pennavini.
Christina Newton,
P.O.Box 70
Cape Coast,
Ghana.
Christina er 26 ára og áhuga-
mál eni tónlist, kvikmyndir,
ferðalög, körfubolti og sund.
Hún skrifar á ensku.
Noel Logue,
24 Lorando Avenue,
Sefton 2162,
New South Wales,
Ástralíu.
Noel er 63 ára og áhugamál eru
pennavinir og íþróttir. Hann hef-
ur áhuga á að skiptast á minjag-
ripum.
Ellen Baissie
P.O.Box 596,
Oguaa,
No 39/3 Coronation Street,
Ghana.
Ellen er 25 ára. Áhugamál eru
blak, kvikmyndir, tónlist, lestur
og hitta skemmtilegt fólk.
Comfort Eshun,
P.O.Box 952,
Cape District,
Ghana.
Comfort er 25 ára. Áhugamál
eru ferðalög, tónlist, útivera,
lestur, kvikmyndir og sund.
Gregg C. Peacock,
150 No. Stewart,
Creve Coeur,
Illinois 61611,
Bandaríkjunum.
Gregg er 39 ára. Áhugamál eru
matseld og tilraunir með nýjan
mat, ferðalög, lestur, sund,
hestamennska, mannúðarstörf
og bréfaskriftir.
Peter Levis
8 Cartela Streeet,
Sandy Bar,
Tasmania 7005,
Ástralíu.
Peter er fertugur.
Cynthia Nyasemhne
c/o Gerard M. Tsibu,
Telegrahs office,
University Post Office,
Cape Coast,
Ghana.
Cynthia er 23 ára og áhugamál
matseld, dans og heimsóknir.
Youri Chauleur,
25, chemin le David,
69370 St Didier au Mt dÓr,
Frakklandi.
Youri er 16 ára. Áhugamál
sund, hestamennska, tónlist og
íþróttir.
ÞJ0ÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRIJM
Kastast í kekki milli breskra og
japanskrastjórnvalda. Breska
stjórnin æf vegna handtöku ell-
efu Breta í Japan sem þarlend
stjórnvöld saka um njósnir.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
fyrirskiparmyrkvun Reykjavíkur
15. ágúst vegna loftárásahættu.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem lögreglustjóri boðaði
til. Dansáopinberumstöðum
verður bannaður eftir kl. 22.
Kaffihúsum og kvikmyndahúsum
verður lokað á sama tíma. Eftirlit
verður hert til mikilla muna með
ölvuðum mönnum frá 1. ágúst að
telja. Þáverðuröllumsemsjást
þriðjudagur, 212. dagur ársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl. 4.30-
sólarlag kl.22.36þ
Viðburðir
Fyrri heimsstyrjöldin hefst 1914.
Hatrammar stúdentaóeirðir í
Mexíkó 1968.Sendiherra So-
vétríkjanna á íslandi tekur við
áskorunarskjali undirrituðu af
100 íslenskum sósíalistum, til
Sovétríkjanna um að virða sjálf-
stæði og ákvörðunarréttTékk-
óslóvakíu.
ölvaðiráalmannafæri „kipptúr
umferð". Lögreglan tekurþáog
geymir í fangahúsi þar til af þeim
errunnið.
DAGBOK
APOTEK
Reykjavfk: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna 27. júli til 2. ágúst er
f Garðs Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Fýrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga ki. 22 til
9 (til 10 á frídögum). Siðarr.efnda apó-
tekiö er opið á kvöldin kl. Í8 til 22 virfia
daga og á laugardögum kl. 9 ti! 22 sam-
hliöa hinu fýrmefnda.
LOGGAN
Reykjavík Kópavogur. « 1 11 66 « 4 12 00 tr 1 84 55
Hafnarfjörður. « 5 11 66 «5 11 66
Akureyri « 2 32 22
Slökkvilið og sjúkrabílar Reykjavík « 1 11 00 Kópavogur. « 1 11 00 Sfiltiamames tt 1 11 00
Hafnarflörður. Garöabær. « 5 11 00 « 511 00
Akuneyri.......................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fýrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er í Heilsuvemdarstöð
Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. vitjanabeiönir, simaráðlegg-
ingar og tímapantanir i « 21230. Uppíýs-
ingar um laekna- og lytjaþjónustu eru
gefriar i símsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daaa frá kl. 8 til 17 og fýrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeild-
in er opin frá ki. 20 til 21. Slysadeild
Borgarspítalans er opin allan sólarhring-
inn, rr 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan,
■« 53722. Næturvakt lækna, tr 51100.
Garðabær: Heilsugæslan GarðaflöL
« 656066, upplýsingar um vaktiækna,
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Lækna-
miöstöðinni, « 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis ffá kl 17 til 8 985-23221
Keftavik: Dagvakt, upplýsingar í
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
«11966.
SJUKRAHUS
Heimsóknartíman Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspltalans: Alla
daga kl. 15 til 16, feöratimi kl. 19:30 til
20:30. Fæðingarheimili Reykjavikur
v/Eiriksgötu: Almennurtimi kl. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatimi kl. 20-21 alla
daga. Öldrunarlækningadeiid Land-
spitalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgar kl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stöðin viö Barónsstig: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspítali:
Aila daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
n
•
•
'
■
r H
L
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra kl. 16 til 17 alia daga. St Jósefs-
spitali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga k). 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
YMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjamargötu 35,« 622266, opiö
allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21
til 23. Símsvari á öðmm tímum.
« 91-28539.
Sálfraeðistööin: Ráögjöf I sálffæðilegum
efnum,« 687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt í síma 11012 milli kl.
19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Álandi 13: Opið virka daga
frákl. 8 «17, «688620.
„Opið hús” fyrir krabbameinssjúklinga
og aðstandendur jjeirra í Skógarhlíð 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aöstandendur þeirra í« 91-2240 og þar
er svaraö alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni:« 622280, beint
samband við lækni/hjúkmnarfræðing á
miðvikudögum kl. 18 til 19, annars slm-
svari.
Samtök um kvennaathvarf:« 21205,
húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eöa oröið fýrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpa, Vesturgötu
3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtu-
daga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22,
« 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
iýrir siflaspellum:« 21500, slmsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stígamót, miðstöö fýrir konur og böm
sem orðiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu
3,« 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
27. júlí 1990 kl. 9.15
KAUP SAU T0LLGENGI
Dollar..... 58.250 58.410 59.760
Pund.......105.852 106.143 103.696
Kan.dollar. 50.477 50.615 51.022
Dðnskkr...... 9.4294 9.4553 9.4266
Norskkr.... 9.3096 9.3351 9.3171
Sanskkr...... 9.8562 9.8832 9.8932
Fl.mark...... 15.2988 15.3408 15.2468
Fra.franki... 10.7072 10.7366 10.6886
Bolg.frank. 1.7432 1.7480 1.7481
Svlss.frankl.... 42.3790 42.4955 42.3589
Holi.gylllnl. 31.8419 31.9294 31.9060
V-þ.mark... 35.8881 35.9867 35.9232
It.lira...... 0.04903 0.04916 0.04892
Aust.sch..... 5.1014 6.1154 5.1079
Port.oscudo.... 0.4088 9.4099 0.4079
Spd.posotl... 0.5844 Ú.5860 0.5839
Jap.yon...... 0.38627 q.38733 0.38839
írsktpund.. 96.249 96314 96.276
SDR........ 78.5181 M.7338 74.0456
ECU........ 74.3707 .,l||750 73.6932
KROSSGÁTA
lt: 1 skriffæri4
stak(6aftur7þjark9
Ólwj|l2ber14tímabil
1 öáthygli 16 kvendýr
19horfir20kvabb21
maajir
Lóðrótt: 2 dropi 3 tína
spotti 5 spil 7 kröppu 8
ásjóna10hrellir11
brúkaði 13smáfiski 17
heiður 18 karlmanns-
nafn
Lausnásiðustu
krossgátu
Lárétt: 1 elta 4 þófi 6
nár 7 hass 9 ófin 12
kamar 14 efi 15 ótt 16
lukum 19 fitl 20nafn2
illar
Lóðrétt: 2 lóa 3 ansa ■
þróa 5 fri 7 hreyfa 8
skilti 10 frómar 11 ný-
tinn 13 mak 17ull 18
una
Þriðjudagur 31. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11