Þjóðviljinn - 31.07.1990, Side 7

Þjóðviljinn - 31.07.1990, Side 7
) Sér nokkur maður að húsið á miðri myndinni til hægri er fölsun? Ljósmyndun Tölvur falsa Ijósmyndir inga. Það er hægt að kippa burt hlutum sem ekki passa því hlut- verki sem myndinni er ætlað að hafa og setja aðra inn í staðinn. Fölsunarmöguleikum eru engin takmörk sett, segja fagmenn. Allt glansar og skín Eins og að líkum lætur er það einkum í auglýsingaiðnaði og „al- mannatengslum" sem myndir eru meðhöndlaðar með hvað rótæk- ustum hætti. Fyrirtæki sem er að búa til kynningarbækling lætur „þvo“ af ljósmyndum úr véla- sölum allan skít: allt er eins og spánnýtt og bónað. Óþarfa vírar og leiðslur eru teknar burt, fólk kemur inn í myndirnar eða fer þaðan, allt eftir því sem við- skiptavinurinn vill. Á útimynd- um er flikkað upp á framhlið fyrirtækisins og allt rusl þurrkað út. í tískublaði er flikkað upp á myndir af fyrirsætum sem teknar eru við Norðursjó með því að setja á þær sólbjartan himin Kar- íbahafs. í matarblöðum eru ert- urnar gerðar grænni og eðalpyls- urnar digrari en ljósmyndavélin vildi vera láta. í kvennablöðum eru tennur lagfærðar, hrukkur fjarlægðar og rassar smækkaðir. í karlablöðum verður gisið hár þétt, mittisólar eru hertar og bindishnútar lagaður. Pýramíðar færðir úr stað Menn hafa vitanlega áhyggjur af þessari þróun. Þeir segja að sá ávinningur að geta búið til fal- legri myndir sé lítill hjá þeim Hér er verið að flikka upp á mynd af forseta vesturþýska þingsins, Ritu Sussmuth, í myndvinnslu- tölvu. ósköpum að enginn viti lengur hvar fölsun byrji og hvar hún endi þegar ljósmynd er skoðuð. Vand- inn er líka sá, að jafnvel virðuleg tímarit vfla það ekki fyrir sér að grípa til myndvinnslutölvunnar. Dæmi er tekið af bandaríska landfræðiritinu National Geo- graphic. Þar átti að prenta á for- síðu mynd af pýramíðunum þrem sem frægð Egyptalands byggist að verulegu leyti á. En myndirnar sem velja átti úr voru of breiðar og pössuðu ekki á forsíðuna. Þá var gripið til þess ráðs að láta myndvinnslutölvu færa pýramíð- ana nær hvers öðrum: á einni sek- úndu höfðu miljónir smálesta af fornum steinhleðslum færst úr stað. Annað dæmi: ljósmyndari einn þýskur gerði það að gamni sínu að búa til mynd sem átti að sýna Gorbatsjov sem reifabarn í fangi móður sinnar. Andlit forsetans var yngt eitthvað upp með tækni- brellum. Og vesturþýska blaðið taz gleypti við fölsuninni eins og skot og prentaði myndina. Bráðum geta fagmenn sagt við viðskiptavinina: Segðu mér hvað þú vilt sjá og við reddum því... áb byggtíi á Spiegel. Útbreitt dagblað gleypti við þessari fölsuðu mynd af Gorbatsjov í reifum. I myndvinnslutölvum af nýj- ustu gerð er hægt að breyta útliti manna á ljósmyndum, iandslagi, hreinsa burt rusl og óþrif á götum og vinnustöðum - án þess að nokkur taki eftir fölsun. Eftir að trú manna á sannleiks- gildi hins prentaða orðs fór að hnigna (og það er langt síðan) hafa menn lengi gengið með þá hjátrú að ljósmyndin lygi ekki. Sem er reyndar misskilningur: það er hægur vandi að ljúga með ljósmynd eins og allir þekkja sem muna ljósmyndastríðin í blöðum um aðsókn að pólitískum fundum andstæðinga. Og nú kemur tækn- in og rekur smiðshögg á allt sam- an: það er hægt að falsa hvað sem er án þess eftir verði tekið. Myndfölsun er ekki nýmæli. Stalín og hans lærisveinar létu kippa burt Trotskíj og marga aðra byltingarforingja af öllum sögulegum ljósmyndum sem í náðist. En sú vinna var mjög gróf og auðvelt að benda á fölsunina ef menn á annað borð fengu mál- frelsi til. En semsagt: nú er öldin önnur. Og möguleikarnir tæknilegu. Aðferðin er sú, að ljósmynd- um er breytt í ótal punkta á tölvu- skermi og síðan má velja og hafna. Það má taka sem dæmi um gífurlega möguleika, að mynd- vinnslumenn (eða falsarar ef þið viljið það heldur) hafa um 16 miljónir litbrigða úr að velja þeg- ar þeir meðhöndla litmynd. í myndvinnslutækjunum (sem kosta nú sem svarar 36 miljónum króna) er hægt að breyta um lýs- ingu, það er hægt að gera mann- eskju sköllótta eða láta henni vaxa hár, það er hægt að sníða af fitu eða hlaða vöðvum á horgeml- Vinningstölur laugardaginn 28. júlí ‘90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 1.984.646 2. 4Erf5ff/|f| 4 86.032 3. 4af5 120 4.946 4. 3af 5 3.636 380 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.303.974 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Þriðjudagur 31. júlí 1990 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.