Þjóðviljinn - 08.08.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 08.08.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR Kópavogur Féð ekki búið í frétt Þjóðviljans sl. laugardag var það haft eftir Ingibjörgi Broddadóttur að fjárveiting Fé lagsmálastofnunar Kópavog! væri uppurin og aukafjárveitingi þyrfti. Það er hins vegar misskiln ingur. Fjárveitingin vegna fram færslu er ekki uppurin og ei innan marka fjárhagsáætlunai fyrir árið 1990. Ingibjörg vildi koma því : framfæri að þegar hún talaði urr að konur með börn hefðu ekk efni á að vinna aukavinnu vær það vegna þess að þær hefðu ekk efni á að koma börnum sínum vist á meðan. Eins þegar hún tal aði um að enginn lifði á taxta launum, væri hún að tala un lægstu taxtana. Við biðjumst vel virðingar á þessum misskilningi. Kaffi Mikill verðmunur Braga Amerika kaffi frá Kaffi- brennslu Akureyrar kom best út hvað verð varðar í verðkönnun á kaffi sem Verðlagstofnun gerði. Af þeim kaffitegundum sem könnunin náði til var að meðal- tali lægst kílóverð á Braga Amer- ika kaffi í eins kílós pakkningum eða 406 kr. Hæsta verð miðað við kfló var 730 kr. á Gevalia Mocca kaffi í 226 gramma pakkningum. Hæsta verð er því 80% hærra en lægsta verð. Virðisaukaskattur Kassann vantar víða Misbrestur er á að fyrirtæki sem skylduð eru til að hafa fullkominn peningakassa full- nægi þeim skilyrðum. í könnun skattrannsóknastjóra kom í ljós að 50 af 450 fyrirtækjum reyndust ekki vera með tilætlað- an peningakassa, eða um 10%. Olafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra segir að þótt ástand þessara mála sé skárra nú en áður, telji fjármálaráðuneytið brýnt að undirbúa á komandi hausti iagafrumvarp sem kveði á um harðari aðgerðir af hálfu hins opinbera. 31% byggingarvöru- verslana reyndust ekki vera með peningakassa. A blaðamannafundi í gær sagði fjármálaráðherra nauðsynlegt að breyta lögum, herða refsiákvæði og haga hlutum þannig að sérs- takt leyfi skattayfirvalda þurfi til atvinnurekstrar ásamt öðrum leyfum sem þegar þarf. Ólafur sagði að ef hlutföll úr könnun skattrannsóknastjóra væru um- reiknuð, gætu nokkur þúsund fyrirtæki sem skyldug eru til þess að hafa fullgildan peningakassa, verið án hans. Ráðherra sagði Misbrestur er á að réttur peningakassi sé í verslunum og þjónustu stöðum. Mynd: Jim Smart. einnig athyglivert að mörg þess- ara fyrirtækja hefðu mikla veltu. Sem dæmi má nefna að 13 fyrir- tæki í úrtakinu höfðu veltu á bil- inu 5-62 miljónir á tímabilinu jan- úar til apríl. Ef frammistaða einstakra atvinnugreina er skoðuð, koma sjoppurnar langbest út, þar sem aðeins 6% fyrirtækjanna voru ekki með tilskilinn peningakassa. Byggingarvöruverslanirnar komu verst út, þar sem kassann vantaði í 31% tilvika. -hmp Verslunarmannahelgin Utihátíðir fóru óvenjuvel fram Hátíðahöld um Verslunar- mannahelgina í ár fóru víðst hvar vel fram og muna menn varla önnur eins rólegheit. Uti- hátíðir tókust vel þótt ekki væru þær eins fjölsóttar og búist hefði verið við. Óspektir á stöðum þar sem ekki var skipulögð skemmtidagskrá settu þó ljótan blett á annars friðsæla helgi. Bindindismótið í Galtalækjar- skógi var fjölmennasta útihátíðin og sóttu rúmlega 8000 manns mótið. Er það meiri fjöldi en nokkru sinni áður og fór hátíðin Skipafélög heiðmð Fjögur íslensk skipafélög, ís- skip, Skipadeild Sambandsins, Eimskip og Jöklar hf., fengu ný- lega viðurkenningu fyrir þátttöku í bandaríska staðsetningarkerfmu AMVER. Kerfið tekur við upp- lýsingum frá skipum sem leið eiga um yfirráðasvæði banda- rísku strandgæslunnar. Er stað- setning skipanna og siglingaáætl- un skráó í tölvu sem er á Govemors eyju við New York en þaðan em upplýsingamar sendar út til 100 fjarskiptastöðva í 23 löndum. Slík upplýsingamiðlun auðveldar allt björgunarstarf ef skip lenda í nauðum. Á hveijum degi em rúmlega 2.100 skip á skrá í tölvunni og þau skip sem em minnst 128 daga af árinu á skrá fá sérstaka viðurkenningu. Að þessu sinni fengu átta skip frá íjómm íslenskum skipafélögum slíka viðurkenningu. að sögn viðstaddra einstaklega vel fram. Flestir gesta voru fjöl- skyldufólk en þó sóttu fleiri ung- lingar mótið en aðstandendur höfðu gert ráð fyrir. Fjölskylduhátíðir sóttu nokk- uð á þetta árið, í Húsafelli var haldin barna- og fjölskyldu- skemmtun. Mættu um eitt þús- und manns og segja heimamenn hátíðina hafa farið vel fram. í Vík í Mýrdal söfnuðust saman um 2500 manns á fjölskylduhátíð sem tókst vel, þótt aftakaveður gerði á sunnudag og aðfaranótt. mánudags. Aðsókn á Þjóðhá- tíð í Vestmannaeyjum var að sögn þjóðhátíðarnefndarmanna vel í meðallagi, veðrið lék við hátíðargesti og rólegheit ríktu á svæðinu. Um 6000 gestir voru á hátíðinni þegar flest var, megin- hlutinn heimamenn. Rokkhátíðin í Húnaveri fór af- bragðsvel fram að sögn viðsta- ddra en aðsókn olli aðstandend- um vonbrigðum. Einungis 3200 manns greiddu aðgangseyri og voru það helmingi færri en í fyrra. Útihátíðir hafa fengið á sig Árlegur sumarskóli Bahá’ía er að þessu sinni haldinn ( Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi og stendur hann til 10. ágúst. Þar verða haldnir margirfyrirlestr- arum andleg málefni. Gestirskólans að þessu sinni eru ensk hjón, Trevorog Shiva Finch, sem flytja fyrirlestra um ritverk Bahá’i trúarinnar, jafnrétti kynj- anna, spillingu og siömenningu. Opið húsíNorræna Annað kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 heldur Ari Trausti Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur fyr- irlestur um jarðfræði íslands, eld- fjöll og heita hveri í opnu húsi Norræna hússins. Fyrirlesturinn flytur Ari á norsku enda eru opnu húsin einkum ætluð norrænum ferðamönnum. Að fyrirlestrinum loknum verður sýnd kvikmynd Ósvaldar Knudsens Surtur fer sunnan. Greiðslumiðlun á flugfarmiðum íslandsbanki hefur gert samn- ing við samtökin BSP (Bank Settlement Plan) um greiðslu- miðlun á milli ferðaskrifstofa og flugfélaga. Samningurinn tekur gildi 1. október nk. en eftir það munu ferðaskrifstofur skila and- virði seldra flugfarseðla til Is- landsbanka sem sér um að koma þeim áfram til viðkomandi flug- félaga, auk þess sem bankinn annast uppgjör. Með þessum samningi fæst mikið hagræði í uppgjöri milli ferðaskrifstofa og flugfélaga, því hingað til hafa ferðaskrifstofur þurft að senda greiðslur beint til margra flugfé- laga. Jarðfræði Miðsuðurlands Út er komin þriðja útgáfa af heldur slæmt orð undanfarin ár og hefur mörgum þótt nóg um ástandið. Skipulögðu hátíðirnar hafa bætt orðstír sinn eitthvað þetta árið. Sömu sögu er ekki hægt að segj a um samkomuhald á stöðum þar sem ekki er um skipu- lagða skemmtidagskrá að ræða en fólk safnast engu að síður sam- an. í Vaglaskógi var mikill fólks- fjöldi saman kominn og var um- gengni slík að loka þarf tjaldstæð- inu þar á meðan viðgerðir fara fram. í Þórsmörk voru um 3000 manns, ölvun mikil og umgengni jarðfræðikorti af Miðsuðurlandi í mælikvarðanum 1:250000. Fyrsta útgáfa kom út árið 1962 og var gerð af Guðmundi Kjartans- syni en aðra og þriðju útgáfu hafa þeir séð um jarðffæðingamir Haukur Jóhannesson, Kristján Sæmundsson og Sveinn P. Jak- obsson. Önnur útgáfa kom út árið 1982 en þriðja útgáfa er verulega endurbætt til samræmis við aukna þekkingu á jarðfræði landsins. Kortið er prentað í tíu litum og á því eru ma. sýnd öll hraun sem runnið hafa eftir að ísaldarjökla leysti og þau greind eftir aldri. Sést því vel hvaða hraun hafa runnið eflir að land byggðist. Kortið er gefið út af Náttúm- fræðistofnun íslands og Lænd- mælingum íslands en það er prentað í Odda. Fótboltahnokkar íGarðabæ Um næstu helgi, 11. og 12. á- gúst, verður Hnokkamót Stjöm- unnar haldið í 6. sinn í Garðabæ. Mót þetta er ætlað drengjum í 7. flokki, þe. þeim sem fæddir em árið 1982 eða síðar. Fimmtán fé- lög hafa skráð lið til keppni og er búist við að 400 manns komi við sögu mótsins þegar allt er talið, keppendur, þjálfarar og farar- stjórar. Laugarásbíó í Reykjavík styður mótshaldið en í boði em vegleg verðlaun, gull-, silfur- og bronspeningar auk farandbikars. ekki til fyrirmyndar. Á Laugar- vatni voru um þúsund manns og óspektir talsverðar og á ísafirði söfnuðust unglingar saman á tjaldsvæðinu og ollu gífurlegum skemmdum. Talsvert færri slösuðust í um- ferðinni um verslunarmanna- helgina í ár en í fyrra og er það samdóma álit lögreglumanna að ökumenn hafi langflestir verið til fyrirmyndar þessa helgi. Var haft á orði að hún hefði farið betur fram en flestar verslunarmanna- helgar á undanförnum árum. el Einnig verða besti leikmaður, besti markvörður og markakóng- ur mótsins verðlaunaðir og prúð- asta liðið fær viðurkenningu. Ferðir fyrir unglinga Skátasamband Reykjavíkur og Bandalag íslenskra skáta efna í ágústmánuði til ferðalaga íyrir unglinga á aldrinum 13-17 ára í samvinnu við íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur. Um er að ræða þrenns konar ferðir og verð- ur lagt upp á föstudagskvöldum og komið heim á sunnudögum. Fyrstu ferðimar verða á Reykja- nesi og verður gengið frá Kleifar- vatni yfir Sveifluháls, Trölla- dyngju og Keili, niður á Vigdísar- velli, þaðan í Krisuvík og endað í Hverahlíð. Þessi ferð verður farin um næstu helgi og þamæstu. Önnur ferðin er um Hengilssvæð- ið, gengið ffá Hellisheiði að Skarðsmýrarfjalli, um Fremstadal og Kattartjamir niður að Úlfljóts- vatni. Þessi ferð verður farin helgina 17.-19, og helgina 24.-26. ágúst. Loks verður gengið úr Hvalfirði um Leggjarbijót til Þingvalla helgina 24.-26. ágúst. í siðasttöldu ferðinni verður gist i tjöldum en í hinum ferðunum í skálum. Undirbúningskvöld verða fyrir hveija ferð á miðviku- degi fyrir ferð. Upplýsingar em gefnar í símum 91-15483 og 23190 og þar er einnig tekið við skráningum. 2 SÍÐA— ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.