Þjóðviljinn - 08.08.1990, Side 6

Þjóðviljinn - 08.08.1990, Side 6
I ERLENT Irak - Kúvœt Skrúfað fyrir helming ol íuúftf lutn ings Jákvœðar undirtektir um allan heim við hörðustu efnahagsráðstafanir sem S.þ. hafa samþykkt gegn nokkru ríki Tyrkneska stjórnin lét í gær skrúfa fyrir olíuleiðslu sem liggur yfír land hennar frá írak til Miðjarðarhafs, en eftir þeirri leiðslu fer að jafnaði helmingur þeirra olíu, sem írakar flytja út. Horfur eru nú á að hafnbann verði sett á írak og ef svo fer hefur ríki þetta enga möguleika á að koma frá sér olíu sinni nema eftir leiðslu, sem liggur yfir Saúdi- Arabíu til Rauðahafs. Alþjóðasamstaða, sem á sér vart hliðstæðu í sögunni, hefur tekist gegn írak. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sam- þykkt gegn írak efnahagslegar aðgerðir, sem eru þær hörðustu í 45 ára sögu alþjóðasamtaka þess- ara. í samþykktinni er skorað á öll ríki að stöðva sölu vopna til íraks, hætta að kaupa olíu þaðan og stöðva raunar svo að segja alla verslun við landið. Samþykktin nær einnig til Kúvæts, þar sem írakar hafa sett til valda lepp- stjórn. Samþykktin hlaut atkvæði 13 ríkja af 15 sem nú hafa sæti í Ör- yggisráðinu, en tvö sátu hjá, Kúba og Jemen. Önnur ríki í ráð- inu nú eru Bandaríkin, Bretland, Sovétríkin, Frakkland, Kína, Kanada, Kólombía, Fíla- beinsströnd, Eþíópía, Malajsía, Finnland, Zaire og Rúmenía. Mörg ríki víðsvegar um heim hafa þegar tilkynnt ráðstafanir í samræmi við samþykktina. Sviss hefur meira að segja tilkynnt að það muni fara eftir samþykktinni í einu og öllu og hefur annað eins ekki áður gerst í sögu ríkis þessa, sem vegna hollustu við hlutleysis- stefnu sína hefur yfirleitt hliðrað sér hjá slíku. Indland, sem mjög ska olíu, segist hinsvegar ekki um gegn írak í hyggju að svo er komið upp á íraska og kúvæt- hafa þátttöku í efnahagsaðgerð- komnu. Reuter/-dþ. Irak - Kúvœt Hraðstækkandi stórvelda- floti á Persaflóa Bandarískurflugher við norðurlandamœri íraks, landher sagður á leiðinni. Saúdi-Arabar kvíðnir og hikandi Bandaríkin halda áfram að efla flota sinn á Persaflóa og talið er líklegt að innan skamms muni þau hafa til taks þar og á Arabíu- hafl norðanverðu 30 herskip, þar á meðal flugvélamóðurskip með um 120 orrustu- og árásarflugvél- um. Haft er eftir heimilda- mönnum í Pentagon að 10 bresk, frönsk og sovésk herskip séu nú einnig á flóanum eða á leið þang- að. Orðrómur er á kreiki um að ríki þessi muni í sameiningu beita flota- og flugstyrk sínum til þess að halda uppi hafnbanni á Irak, þangað til stjórn þess gefi sig og kalli her sinn frá Kúvæt, en ekki hefur það fengist staðfest. Tals- maður bandaríska varnarmála- ráðuneytisins segir 14 bandarísk- ar sprengjuflugvélar af gerðinni F-lllB vera á æfingu í Tyrklandi, skammt frá landamærum íraks. Pá hefur heyrst að í undirbúningi sé flutningur bandarísks fót- gönguliðs, fallhlífaliðs og land- gönguliðs frá bækistöðvum í heimalandinu til landa í grennd við írak. Hussein íraksforseti - bróðurparturinn af heiminum sameinast gegn honum og hneppir land hans í umsátur með vopnum og viðskipta- banni. Ferðaþjónusta skáta: SPENIMANDI FERÐIR í ágústmánuði gangast Skátasamband Reykjavíkur og Bandalag íslenskra skáta í samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur fyrir ferðalögum unglinga á aldrinum 13 til 17 ára. Eftirtaldar ferðir verða í boði: 1. Reykjanesferð Gengið frá Kleifarvatni, yfir Sveifluháls, Trölladyngju og Keili. Gist við Arnarvatn en daginn eftir gengið niður á Vigdísarvelli, þaðan í Krísuvík og endað í Hverahlíð. Leiðsögn: Félagar úr Hjálparsveit skáta í Njarðvík. Tími: Ferð A: 10. til 12. ágúst. Ferð B: 17. til 19. ágúst. 2. Hengilssvæðið Gengið frá neyðarskýlinu á Hellisheiði að Skarðsmýrar- fjalli. Gist í skátaskálum. Gengið frá Skarðsmýrarfjali um Fremstadal og Kattartjarnir niður á Úlfljótsvatn. Leiðsögn: Páll Sigurðsson. Tími: Ferð A: 17. til 19. ágúst. Ferð B: 24. til 26. ágúst. 3. Hvalfjörður - Þingvellir Gengið frá Botni í Hvalfirði til Þingvalla um Leggjar- brjót. Gist í tjöldum á leiðinni. Tími: 24. til 26. ágúst. Fyrir hvert námskeið verður haldið undirbúningskvöld fyrir þátttakendur. Þau verða á miðvikudegi fyrir ferð. Þar verða kennd grunnatriði í ferðamennsku. Nánari upplýsingar og skráning í síma 91-15483 og 91-23190.- Talið er að Cheney, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, hafi um helgina reynt að fá vald- hafa Saúdi-Arabíu til að taka við bandarískum her til lands síns, en ekki er vitað hvort Saúdi-arabar hafa fallist á það. Þeim líst ekki á blikuna, þar eð írakar hafa nú mikið lið skammt frá landamær- um Kúvæts og Saúdi-Arabíu, meira að segja að sögn á hlut- lausu svæði á milli landa þessara og nálægt mikilvægum saúdiara- bískum olíulindum, en eru jafn- framt eins og flestir aðrir araba- leiðtogar hikandi við að fara í hart við írak. Reuter/-dþ. Pakistan Reynt að utiloka Benazir Hún sakar forsetann um tilræði við lýðrœðið. Hefur átt við að stríða öflugan andróður hefðbundinna valdaaðila Benazir Bhutto, sem verið hef- ur forsætisráðherra Pakistans síðan í nóv. 1988 en forseti lands- ins vék úr embætti á mánudag, kallaði í gær þessa ráðstöfun ól- öglega og sakaði forsetann, Ishaq Khan, um tilræði við lýðræðið í landinu. Auk þess sem forsetinn vék frá völdum Bhutto og stjórn hennar fyrirskipaði hann að tvær fylkisstjórnir, sem skipaðar eru flokksmönnum Bhutto, skyldu láta af embættum. Ishaq Khan hefur skipað menn í bráðabirgðastjórn, og heitir svo að hún eigi að fara með völd þangað til að loknum næstu þing- kosningum, sem fara eiga fram 24. okt. Benazir segist ekki efast um að flokkur hennar, Alþýðu- flokkur Pakistans, muni vinna þær. Pakistanskir fréttaskýrend- ur telja líklegt að kosningunum verði frestað þangað til hinir nýju valdhafar álíti sig hafa búið svo um hnútana að útilokað verði að Benazir verði forsætisráðherra aftur. Forsetinn og bráðabirgð- astjórnin saka hana um spillingu, ættarklíkuskap og misbeitingu valds. Herinn hefur að líkindum verið með í ráðum gegn henni, og er jafnvel talið að ákveðið hafi verið að láta til skarar skríða gegn henni er hún neitaði að fela hern- um á hendur dómsvaldið í Sind, þar sem mikið hefur undanfarið verið um vígaferli milli Sindverja og múslíma frá Indlandi. Benazir Bhutto varð fyrst kvenna til að komast til valda í íslömsku landi á síðari tímum. Hún hefur síðan mátt standa í ströngu í deilum við forsetann, strangtrúaða múslíma, hershöfð- ingjana og ýmsa aðra aðila sem samkvæmt hefð hafa mikil áhrif í stjórnmálum landsins. Reuter/-dþ. Suður-Afríka ANC hættir vopnaðri baráttu Tímamótamarkandi ákvörðun ísamningaumleitunum ANC og stjórnarinnar. Öfgamenn bregðast illa við Afríska þjóðarráðið (ANC), helstu baráttusamtök suður- afrískra blökkumanna gegn ap- artheidkerfinu, hafa ákveðið að láta þegar í stað af vopnaðri bar- áttu sinni gegn Suður- Afríkustjórn, sem staðið hefur yfír í 29 ár. Þykja þetta tíðindi mikil og telja fréttaskýrendur að með þessu sé rutt á brott megin- hindrun úr vegi viðræðna ANC og stjórnarinnar, en takmarkið með þeim er að binda enda á ap- artheid. Samkomulag um þetta náðist eftir 15 stunda viðræður nefnda frá báðum aðilum í Pretoríu á mánudag. Á móti lofar stjórnin að láta lausa alla pólitíska fanga þarlendis, sem að sögn baráttu- manna fyrir mannréttindum eru 1500-3000 talsins, fyrir 30. apríl 1991. Þá er einnig umsamið að stjórnin leyfi pólitískum útlögum að snúa heim, en meðal þeirra eru margir hörðustu andstæðinga hennar. Yfirleitt var ekki búist við því að ANC samþykkti að hætta vopnuðu baráttunni svo fljótt, en á hinn bóginn hefur sú barátta verið ein af meginástæðunum til neikvæðrar afstöðu margra hvítra landsmanna til samninga- umleitananna við ANC. Barátta þessi hefur að vísu aldrei verið mjög alvarlegt mál fyrir suðurafr- íska herinn, en þó orðið hundr- uðum manna að bana. Hafa sumir farist í sprengjutilræðum ANC-liða og aðrir beðið bana í hefndarárásum Suður-Afríku- hers. Bæði innanlands og utan hefur verið borið lof á ANC fyrir þessa eftirgjöf og meðal þeirra sem svo hafa gert eru Bush Bandaríkja- forseti. Flestir leiðtogar stjórn- málaflokka og annarra samtaka í Suður-Afríku taka í sama streng, þar á meðal Desmond Tutu erk- ibiskup, einn kunnustu leiðtoga apartheidandstæðinga. Á hinn bóginn hafa suðurafr- ískir öfgamenn, bæði hvítir og svartir, tekið þessu samkomulagi miður vel. Andries Treurnicht, leiðtogi íhaldsflokksins, kallar samkomulagið ólöglegt, þar eð fráleitt sé af stjórninni að semja við ANC á jafnréttisgrundvelli. Treurnicht segir einnig að ANC vilji ekki annað en öll völd í landinu og muni ekki gera sig ánægt með hlutdeild í þeim. Pan- afrískaþjóðarráðið (PAC), harð- línusamtök sem urðu til með því að kljúfa sig út úr ANC, hefur lýst því yfir að það muni ekki virða neina samninga, sem gerðir kunni að verða í viðræðum ANC og stjórnarinnar. PAC var ekki boðið að taka þátt í viðræðunum og hefði að eigin sögn hafnað hlutdeild í þeim, þótt þeim hefði staðið hún til boða. Mangosuthu Buthelezi, leið- togi súlúaflokksins Inkatha, tók fréttinni um samkomulagið fá- lega og kvað mestu skipta að friður kæmist á milli ANC og Ink- atha, sem undanfarið hafa háð stríð í Natal. í þeim átökum, sem Buthelezi segir hafa leitt af stefnu ANC um vopnaða baráttu og „al- þýðustríð“, hafa yfir 4000 manns verið drepnir. Reuter/-dþ. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.