Þjóðviljinn - 08.08.1990, Side 9
Erlendirferöamenn sækja í auknum mæli til íslands og að mati Ferðamálaráðs voru tekjur af þeim íjúlí um
tveir og hálfur miljarður íslenskra króna. Jafnframt feroast íslendingar meira en áður um eigið land. Mynd:
Ari.
Ferðamenn
Tveir og hálfur miljarður
króna í júlí
Ferðamálaráð: Erlendumferðamönnum á Islandifjölgar nokkuð.
Skildu eftir tvo og hálfan miljarð króna í júlí. íslendingar ferðast um
Ferðamálaráð íslands gerir ráð
fyrir að gjaldeyristekjur af er-
lendum ferðamönnum í júlí hafi
orðið að minnsta kosti tveir og
hálfur miljarður króna, eða yfir
80 miljónir króna á dag. Erlendir
ferðamenn sem heimsóttu ísland í
júlí voru heldur fleiri en á sama
tíma í fyrra. Jafnframt er talið að
íslendingar hafi í sumar ferðast
um land sitt sem aldrei fyrr.
Samkvæmt fréttatilkynningu
land sittsem aldreifyrr
frá Ferðamálaráði íslands komu
alls um 33.500 erlendir ferða-
menn til landsins í júlí, en það er
um fjögur prósent fjölgun miðað
við sama tíma í fyrra. Fjölgunin
er svipuð ef bornir eru saman
fyrstu sjö mánuðir þessa árs og
fyrstu sjö mánuðir ársins 1989.
Veruleg breyting hefur orðið á
samsetningu ferðamannahópsins
þegar litið er á sama tíma. Fyrstu
sjö mánuði ársins komu um það
bil jafn margir Bandaríkjamenn
og á sama tíma í fyrra, en heim-
sóknir Norðurlandabúa voru
heldur færri. Aukningin var hins
vegar mest frá meginlandi Evr-
ópu og Bretlandi. Það er í sam-
ræmi við þróunina undanfarin ár.
Þannig fjölgaði breskum ferða-
mönnum á Islandi fyrstu sjö mán-
uði ársins um 15,5 prósent miðað
við sama tíma í fyrra.
-gg
Umhverfismál
Tillögur íslands samþykktar
Júlíus Sólnes á ráðstefnu S. Þ.: Umhverfismál heyri undir sérstakt ráð
innan Sameinuðu þjóðanna
Fundur Umhverfísmálastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna
samþykkti tvær ályktunartillögur
Islands um verndun hafsins og
meðferð hættulegra úrgangsefna.
Fundi stofnunarinnar lauk síðast
liðinn föstudag, en í gær hófst
fundur undirbúningsnefndar
fyrir allsherjarráðstefnu S.Þ. um
umhverfis- og efnahagsmál. Hún
verður haldin í Brasilíu árið
1992.
Gunnar G. Schram situr fund
undirbúningsnefndarinnar fyrir
íslands hönd. Á fundinum verður
unnið að gerð alþjóðasáttmála á
sviði umhverfisverndar, meðal
annars um náttúruvernd, gróður-
húsaáhrif og loftmengun. Þessi
málefni verða eitt meginvið-
fangsefni ráðstefnunnar í Brasilíu
að tveimur árum.
Júlíus Sólnes umhverfisráð-
herra sat fund umhverfismáia-
stofnunarinnar í Nairóbí og gerði
grein fyrir efni tillagna íslands í
ræðu sinni á fundinum.
í ræðu sinni greindi Júlíus frá
stofnun umhverfisráðuneytisins
íslenska og sagði að með því hefði
ísland bæst í hóp þeirra þjóða
sem leggja meiri áherslu á um-
hverfismál og sjálfbæra efnahags-
lega þróun. Síðan sagði Júlíus:
„Það er ekki aðeins markmið
ríkisstjórnarinnar að styrkja
stöðu umhverfisverndarmála á
íslandi, heldur einnig að auka
þátttöku íslendinga í alþjóðlegu
samstarfi á sviði umhverfismála."
Enn fremur minnti Júlús á þá
ógn sem lífríki hafsins stafar af
mengun og sagði íslendinga
leggja áherslu á að koma á
skynsamlegri, alþjóðlegri stjórn-
un á nýtingu auðlinda hafsins.
„Að okkar dómi eiga alþjóð-
legar ráðstafanir til eftirlits og
Nýlega var sett á laggirnar Al-
þjóðamálastofnun Háskóla
Islands og að stofnun hennar
stóðu lagadeild, viðskipta- og
hagfræðideild og félagsvísinda-
deild Háskólans. Hlutverk henn-
ar er að vera vettvangur
rannsókna og fræðslu um alþjóð-
amál, sérstaklega með tilliti til
þeirra breytinga sem átt hafa sér
stað í alþjóðamálum, m.a. í
Vestur- og Austur-Evrópu.
Alþjóðamálastofnunin er ný-
mæli í störfum Háskólans og að
sögn Gunnars Helga Kristins-
sonar sem situr í stjórn stofnunar-
innar, er tilgangurinn að sam-
hæfa rannsóknir í ólíkum
deildum Háskólans. Hún mun
taka að sér verkefni á ýmsum
stjórnunar á losun úrgangsefna í
hafið eða við strendur þess, eink-
um þó vegna geislavirks úrgangs,
að vera efst á forgangslista,"
sagði Júlíus.
Að síðustu varpaði hann fram
þeirri hugmynd að umhverfismál
mættu heyra undir sérstakt ráð
innan S.Þ. á sama hátt og efna-
hagsmál, félagsmál og öryggis-
mál. -gg
sviðum og getur þá nýtt starfs-
krafta Háskólans.
í ágúst verður haldin ráðstefna
á vegum stofnunarinnar um tak-
markanir vígbúnaðar og traust-
vekjandi aðgerðir á höfunum í
samvinnu við bandaríska
rannsóknastofnun. Ráðstefnan
verður haldin á Akureyri dagana
15. og 16. ágúst. Hana munu
sækja sérfræðingar og embættis-
menn frá ýmsum ríkjum Atlants-
hafsbandalagsins.
í stjórn stofnunarinnar eru
Gunnar G. Schram formaður,
Gunnar Gunnarsson varafor-
maður, Gunnar Helgi Kristins-
son ritari, Guðmundur Magnús-
son og Gísli Ágúst Gunnlaugs-
son. ns.
Háskóli íslands
Stofnun um alþjóðamál
Miövikudagur 8. ágúst 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar
auglýsir eftir
umsjónarmanni að Ulfljótsskála og orlofshús-
um félagsins að Úlfljótsvatni í Grafningi.
Viðkomandi þarf að gefa hafið starf sem fyrst.
Um er að ræða búsetu allt árið. Starfinu fylgir lítil
íbúð.
Umsóknum, ásamt meðmælum, skal skilað á
skrifstofu Starfsmannafélags Reykjavíkurborg-
ar, Grettisgötu 89 fyrir 17. ágúst nk.
Stjórnin
Frá Heilsugæslustöð
Kópavogs
Staða hjúkrunarforstjóra er laus til umsóknar.
Einnig er laus 50% staða móttökuritara. Um-
sóknir berist fyrir 31/8 1990 til stjórnar Heilsu-
gæslustöðvar Kópavogs, Fannborg 7, 200
Kópavogi. Ragnar Snorri Magnússon veitir
nánari upplýsingar í síma 642022. Æskilegt er
að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Um virðisaukaskattskylda
vöru
í auglýsingum, verðmerkingum í verslun-
um, verðlistum og víðar skal uppgefið verð
á skattskyldri vöru og þjónustu vera með
virðisaukaskatti.
Reglur þessar eru settar með heimild í 45.
gr. I. nr. 56/1978 um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskiptahætti.
Reykjavík 31. júlí 1990
Verðlagsstofnun
Auglýsing
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða forstöðu-
mann skrifstofu húsnæðisnefndar Hafnarfjarð-
ar (áður Stjórn verkamannabústaða).
Jafnframt er óskað eftir starfsmanni til al-
mennra skrifstofustarfa á sömu skrifstofu.
Nánari upplýsingar um störfin veitir forstöðu-
maður kostnaðareftirlits á bæjarskrifstofunum
eða í síma 53444.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n.k. og skal
umsóknum skilað á bæjarskrifstofurnar,
Strandgötu 6, Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarbær
Málefnafundur
Málefnafundur um landbúnaðar- og neytendamál á Punkti og
pasta (fyrrverandi Torfu) (kvöld, 8. ágúst, hefst kl. 20.30. Umraeð-
uefni: Svín og hænsn. Er Þorvaldur i Síld og fiski bóndi? Fjöregg
þjóðlegrar tilveru; hið íslenska hænuegg. - Hópnefnd.