Þjóðviljinn - 11.08.1990, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 11.08.1990, Qupperneq 1
Sveitarfélög Húsnæðis- nefndir valda usla Óvissa um verksvið húsnœðisnefnda sveitaifélaga. Lögin óljós og reglugerð enn í smíðum Isíðustu viku auglýsti húsnæðis- nefnd Hafnarfjarðar eftir tveimur starfsmönnum og veitti umsóknarfrest til 13. ágúst. Áhugasömum var bent á að snúa sér til ráðningarþjónustu nokk- urrar. Nokkrum dögum síðar auglýsti Hafnarfjarðarbær eftir starfsmönnum í sömu stöður, gaf upp annan umsóknarfrest og bað áhugasama að snúa sér allt ann- að. í þessu kristallast deila sem komin er upp í Hafnarfirði og víðar um verksvið húsnæðis- nefnda í sveitarfélögum. Meirihlutamenn í sveitar- stjórnum víða um land hafa vakn- að upp við þann vonda draum að ný og valdamikil húsnæðisnefnd sveitarfélaga þarf ekki endilega að lúta pólitískum vilja meirihlut- ans á hverjum stað. Pannig er komin upp mikil togstreita milli bæj arst j órnarmeirihlutans í Hafnarfirði og meirihluta hús- næðisnefndar þar í bæ, um verk- svið nefndarinnar og sú staða get- ur komið upp að ákvarðanir húsnæðisnefndar gangi í berhögg við stefnu og vilja meirihlutans í bæjarstjórn. Á Akureyri varð formannsefni Alþýðubandalagsins og Sjálf- stæðisflokksins undir þegar for- maður húsnæðisnefndar var kjör- inn. í Reykjavík hefur nefndin ekki tekið til starfa vegna óvissu um hvernig hún skuli sett saman. Lög um húsnæðisnefndir tóku • gildi í vor, en nefndimar taka við hlutverki stjórna verkamanna- bústaða. Verksvið húsnæðis- nefnda er þó mun víðtækara. Nefndunum er ætlað að hafa um- sjón með félagslegu húsnæði í hverju sveiíarfélagi og mikilvægi Rœkja Kvútinn aukinn Sj ávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að auka rækjukvóta út- hafsskipa um 10% á næsta ári. Leyft verður að veiða 24 þúsund tonn á næsta ári en á þessu ári voru leyfðar veiðar á 22 þúsund tonnum. Rækjuveiðar hafa gengið vel í sumar og er heildarveiðin orðin mun meiri en á sama tíma í fyrra, samkvæmt tilkynningu sjávarút- vegsráðuneytisins. Mörg skip hafa lokið við að afla síns kvóta og mörg önnur em við það að ljúka. -hmp þess málaflokks hefur vaxið mjög á undanfömum ámm. Á hinn bóginn eru lögin um húsnæðisnefndir að mörgu leyti óljós og reglugerð hefur enn ekki litið dagsins ljós. Þó er unnið að reglugerð og hún er væntanleg innan skamms. Þar verða vænt- anlega tekin af tvímæli um vald- svið nefndanna og skipan. Bæjarstjómarmeirihluti Al- þýðuflokksins í Hafnarfírði er lentur í harðri andstöðu við meirihluta húsnæðisnefndar. Að- ilar em ósammála um verksvið nefndarinnar og deilan birtist sem fyrr segir með sérkenni- legum hætti í dagblöðum í þessari viku og þeirri síðustu. Sú staða getur komið upp í Hafnarfirði að ákvarðanir hús- næðisnefndar gangi í berhögg við stefnu og vilja meirihlutans í bæj- arstjórn. „Þetta er pólitísk og siðferðileg spurning," segir Tryggvi Harðar- son, bæjarfulltrúi Álþýðuflokks- ins í Hafnarfirði og fulltrúi hans í húsnæðisnefnd. „Það er ljóst að bæjaryfirvöld vilja ekki bera ábyrgð á hlutum sem þau hafa ekki ákvörðunar- vald um. Ef bæjaryfirvöld telja rétt sinn fyrir borð borinn í þessu munu þau leita réttar síns,“ segir Tryggvi. Hann segir ekki útilok- ( að að meirihlutinn í bæjarstjóm «iuni leita eftir úrskurði félags- málaráðherra ef með þarf. Á Akureyri hafa ekki komið upp deilur um verksvið húsnæð- isnefndar enn sem komið er, en nefndin hefur þó valdið nokkram titringi innan bæjarstjómarmeiri- hluta Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokksins. Meirihlut- inn bauð fram Alþýðubandalags- mann til formennsku í húsnæðis- nefnd, en fulltrúar minnihlutans og fulítrúar verkalýðshreyfingar- innar höfnuðu honum. Þess í stað varð fulltrúi Framsóknarflokks- ins formaður. Sigríður Stefánsdóttir, forseti bæjarstjómar á Akureyri, segist telja mjög óheppilegt að meiri- hluti í sveitarstjóm skuli ekki eiga formann í húsnæðisnefnd. í öðmm nefndum á vegum bæjar- ins kemur formaðurinn úr röðum meirihlutans í bæjarstjóm. „Það þarf að liggja ljóst fyrir hverjir skuli tilnefna í húsnæðis- nefnd og verksvið hennar þarf að vera skýrt. Húsnæðismálin em mikilvægur málaflokkur, en með núverandi skipan hefur skapast grundvöllur fyrir togstreitu milli sveitarstjórnar og húsnæðis- nefndar. Ég vona að það bitni ekki á málflokknum,“ segir Sig- ríður. -gg Laugardagur 11. ágúst 1990 148. tölublað 55. árgangur Það er sagt að góðar fréttir séu öngvar fréttir. Samt leyfum við okkur að flytja eina slíka með þessari mynd hér. En hún lýsir sigri manns og málningar yfir ryði og annarri tortímingu sem tímans tönn skilur eftir. Mynd Jim Smart. Persaflói Hussein vill heilagt stríð Iraksforseti vill að arabaþjóðir fari í stríð við Bandaríkin Saddam Hussein einræðisfor- seti í írak sagði i gær I sjón- varpi að arabaþjóðir ættu að fara í heilagt stríð við Bandaríkja- menn. Hann réðst harkalega á Fahd konung í Saúdi-Arabíu án þess að nefna hann á nafn. Hann gagnrýndi harkalega arabaleið- toga sem opnuðu land sitt fyrir bandarískum hermönnum. Hann lagði til að fólkið í Saúdi-Arabíu gerði uppreisn til að vernda hina heilögu borg Mekka. Einnig bað Hussein Egypta að loka Súes-skurðinum fyrir er- lendum skipum. Um 50 herskip margra landa em nú í og við Persaflóa, þar af 30 bandarísk. Hosni Mubarak Egyptalands- foreti átti í erfiðleikum með að halda lífi í neyðarfundi araba- þjóða í Kaíró. Þess em engin merki að írakar hafi áhuga á að draga herlið sitt til baka líkt og flestar arabaþjóðir krefjast. Þær vilja að emírinn kúvæski, Jaber al-Ahmed al-Sabah, komist aftur til valda. Emírinn rauk út af fund- inum í Kaíró og yfirgaf borgina í þotu sinni. Ástæða brotth- laupsins var ókunn seint í gær- dag. Utanríkisráðherrar Nató hitt- ust í gær og hétu að verja Tyrk- land en það er eina landið í Nató sem á landamæri að írak. Nató má ekki samkvæmt eigin lögum berjast annarsstaðar en í með- limslöndunum. Hinsvegar átelur Nató ekki að Nató-þjóðir sendi herlið til Persaflóa undir eigin nafni. Reuter/gpm Verðbólgan Tæp sjö prósent Hækkun framfærsluvísitölu síðustu þrjá mánuðina jafngildir 6,8 prósenta verðbólgu á heilu ári. Hækkun vísitölunnar síðast liðna tólf mánuði jafngildir hins vegar 14,2 prósenta verðbólgu. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Hagstofu íslands. Vísitala framfærslukostnaðar miðað við verðlag í byrjun ágúst hefur hækkað um 0,3 prósent frá í júlí. Endurgreiðsla virðisauka- skatts af vinnu manna við endur- bætur og viðhald íbúðarhúsnæðis olli 0,4 prósenta lækkun á vísitöl- unni, en á móti kom 0,7 prósenta hækkun vegna hækkunar á or- lofsferðum til útlanda og verð- hækkana ýmiss konar vöm og þjónustu. Sem fyrr segir jafngildir hækk- un vísitölu síðast liðna 12 mánuði 14,2 prósenta verðbólgu. í ágúst í fyrra var sambærileg tala 17,6 prósent. -gg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.