Þjóðviljinn - 11.08.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 11.08.1990, Qupperneq 3
Alnœmi Sóttkví fáránleg að er fáránlegt að taka al- næmissjúklinga úr umferð svo að þeir smiti ekki aðra. Fræða verður sjúklingana eftir mætti en að taka þá úr umferð er ekki rétta leiðin. Menn mega ekki Auglýsingar Bannað að segja ókeypis Notkun orðsins „ókeypis“ hef- ur verið bönnuð í auglýsingum. Bæjarþing Reykjavíkur kvað þennan úrskurð upp 25. júlí. Fyr- irtækið Myndsýn hf. og umboðs- aðilar þess hafa um langan tíma auglýst að ókeypis gæðafilma fylgdi framköllun. Verðlagsráð lagði bann við notkun orðsins ókeypis í því sam- bandi sem það var notað. Mynd- sýn hf. vildi ekki una banninu og stefndi málinu fyrir bæjarþing Reykjavíkur til ógildingar. Bæjarþing staðfesti hinsvegar bann verðlagsráðs og var fyrir- tækið dæmt til að greiða máls- kostnað. el gleyma því að tvo þarf til svo smit eigi sér stað og því er aðal verk- efnið að berjast gegn áhættu- hegðun, segir bandaríski alnæm- issérfræðingurinn dr. Van Blerk Mayers. Þetta kom fram í fyrirlestri sem dr. Mayers hélt á vegum land- læknisembættisins í gær. Maður á fertugsaldri kærði í fyrradag til rannsóknarlögregl- unnar konu, smitaða af alnæmi, fyrir að hafa leynt sig því að hún væri smituð af sjúkdómnum áður en þau höfðu samræði um síðustu helgi. Að sögn mannsins sagði konan honum ekki frá því að hún væri smituð fyrr en að loknum samförum. Maðurinn kynntist konunni á skemmtistað og þau munu ekki hafa notað smokk við samfarirnar. Konan hefur verið undir eftirliti vegna smitsins en því var hætt fyrir nokkru. Sam- kvæmt íslenskum lögum er það refsivert að sýkja annan aðila ef manni er kunnugt um eigið smit en jafnframt er sú skylda lögð á herðar einstaklingum að þeir hætti ekki á neitt sem gæti valdið því að þeir smituðust. - Engin fordæmi eru fyrir því f Bandaríkjunum að fólk kæri þann sem hefur sýkt viðkomandi af alnæmi. Mér er þó kunnugt um eitt tilfelli þar sem einstaklingur smitaður af herpes kærði þann sem olli smitinu. Þar var farið fram á miskabætur, segir dr. Ma- yers. el Við fyrstu sýn mætti ætla að hér væri mynd af raunverulegri Mustang orrustuflugvél frá árinu 1941. Hér er þó um módel að ræða á flugvelli módelflugmanna. Svona vél getur náð allt að 150 kílómetra hraða og fræðilega séð er mögulegt að fljúga henni í 1000 metra radíus. Bandaríkjamenn smiðuðu svona vélar fyrir Breta í seinni heimsstyrjöldinni og þóttu þær standa sig með ágætum. Mynd: Jim Smart. Módelflug Vemleikinn í flugulíki Flugmódelfélagið Þytur20 ára. Flugsýning á Hamranesflugvelli. Asgeir Long: Tekur lengri tíma að ná valdi á módelflugi en venjulegu flugi Flugmódelfélagið Þytur er 20 ára um þessar mundir og verður haldið upp á afmælið með veglegri flugsýningu á Hamranes- flugvelli við Krísuvíkurveg í dag. Félagar Þyts munu stýra flugvél- um sínum, sem margar hverjar eru eftirlíkingar af flugvélum heimsstyrjaldanna og verða ma. flugorrustur settar á svið. Flug- vélar frá Arnarflugi og Flug- leiðum fljúga yflr svæðið og gest- um gefst kostur á að kaupa sér far með þyrlu. Sýningin hefst stund- víslega klukkan 14. óhætt að fjórfalda þann tíma með módelflugið. Það vantaði alveg tilfinninguna sem flugmenn fá undir sitjandann í venjulegu flugi. Þegar maður stýrði síðan módelflugvél að sér, snerist hlut- verk alls stjómbúnaðar við. Sagði Ásgeir að lengstan tíma tæki að ná valdi á ósjálfráðu hreyfingunum. Það kemur oft fyrir að módel- flugvélar hrapa. Ásgeir sagði ekki mikið að endurbyggja þri- svar fjórum sinnum sömu vélina. Hann ætti til að mynda vél sem yrði endurbyggð í tíunda skipti ef hún hrapaði eina ferðina enn. En flugmódelin geta verið nokkuð dýr og ekki er óalgengt að vél kosti um 70 þúsund krónur, án stjórnbúnaðar. Stjórnbúnaður- inn getur síðan kostað 50-100 þúsund krónur. Af þessum sökum sagði Ásgeir að menn byrjuðu með byrjendamódel fyrst, sem ekki væru eins dýr og betri módel. -hmp Vöruskipti Utflutningur á áli minnkar Fyrstu sex mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 46,4 mifjarða króna en inn fyrir röska 44 miijarða. Vöruskiptajöfnuð- urinn fyrri hluta ársins var því hagstæður um tæpa 2,3 mifjarða króna, sem er heldur lakara en á sama tíma í fyrra, þegar vöru- skiptajöfnuðurinn var jákvæður um 4,2 mifjarða. Útflutnings- verðmæti áls og kísiljárns hefur lækkað en aukist á flski. f júnímánuði einum voru flutt- ar út vörur fyrir 9 miljarða króna og á móti voru fluttar inn vörur fyrir 7,5 miljarða. Vöruskipta- jöfnuðurinn var því jákvæður í júnímánuði upp á 1,5 miljarð. Þetta er heldur betri útkoma en í júní í fyrra þegar vöruskipta- jöfnuðurinn var jákvæður um 1,3 miljarða, samkvæmt tilkynningu Hagstofu íslands. Verðmæti vöruútflutnings var 4% meira á föstu gengi fyrstu sex mánuði þessa árs, miðað við árið í fyrra. Á þessu tímabili voru sjávarafurðir 79% alls útflutn- ings, sem er 12% meira en á sama tíma í fyrra. Útflutningsverðmæti áls dróst hins vegar saman um 24% og um 32% á kísiljámi. Á þessu sex mánaða tímabili jókst útflutningsverðmæti annarrar vöru um 1%. -hmp Ásgeir Long, formaður Þyts, sagði félagið búið að framkvæma stóra hluti á athafnasvæði sínu. Byggður hefur verið sérstakur flugvöllur með tveimur 8x80 metra flugbrautum og myndar- legt félagsheimili hefur verið byggt á staðnum. Ásgeir sagðist ekki vita til þess að flugvöllur sem þessi væri til á öðmm stöðum í heiminum. Yfirleitt notuðust menn við grasvelli eða gamla hefðbundna flugvelli. „Það gerbreytir flugtækninni að hafa svona flugvöll,“ sagði Ás- geir. Þegar menn þurfi að lenda nákvæmlega á ákveðinni braut verði þeir að aga sig. Margir bestu flugmanna félagsins hefðu ma. í fyrstu átt erfitt með að hitta á brautina. „Haukur Hlíðberg sem gerðist félagi hjá okkur eftir að hann fór á eftirlaun sem at- vinnuflugmaður, lendir núna eins og engill en það tók hann tíma að ná því,“ sagði Ásgeir. Það em nokkrir einkaflug- menn í Þyt. Ásgeir sagði menn ná valdi á venjulegri flugvél á 10-15 klukkutímum en það væri alveg VSK Innheimtuaðgerðir hrífa Einungis þurfl að grípa til lokunaraðgerða hjá tveimur fyrirtækjum Embætti tollstjóra hefur sent lögreglunni beiðni um að loka 83 fyrirtækjum vegna vanskila á virðisaukaskatti. Enn sem komið er hefur þó einungis tveimur fyrirtækjum verið lokað því flest- ir hafa nýtt sér nokkurra daga frest sem gefst til að standa i skilum. Fyrir innheimtuaðgerðir voru um 7% fyrirtækja í vanskilum, að sögn Þuríðar Halldórsdóttur yfir- lögfræðings hjá embætti toll- stjóra. Þuríður segir inn- heimtuaðgerðir hafa skilað sér vel, nú eigi einungis 4% fyrir- tækja eftir að gera skil á skattin- um. Heildar vanskil nemi um 110 miljónum. Ekki er von til þess að full skil náist því mörg fyrirtæki eru hætt rekstri eða hafa orðið gjaldþrota. Einnig getur reynst erfitt að grípa til lokunaraðgerða þar sem fleiri fyrirtæki en eitt eru í sama húsinu. Innheimtuherferðin núna er algerlega í höndum tollstjóra- embættisins sem er innheimtuað- ili í Reykjavík. Fjármálaráðu- neytið hóf eftirminnilega herferð í fyrra gegn vanskilum og virðast hertar innheimtuaðgerðir hafa skilað góðum árangri. . Laugardagur 11. ágúst 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 HELGARRÚNTURINN NÁTTÚRAN er oss ofarlega í sinni á þessum fagra árstíma og eins líklegt að áhugi fyrir því að Ioka sig inni yfir menningarlegri iðju sé í lágmarki. Kannski fara einhverjir í ber, áhugamenn um krækiberjasaft eiga fullt erindi út í móa en þeir sem sætta sig ekki við minna en bláber eða jafnvel aðalbláber verða væntanlega að doka við fram að næstu helgi. Ferðafélögin eru í miklum ham um þessar mundir og skipuleggja ferðir í Þórsmörk, Landmannalaugar, Veiðivötn, Haukadal og Fjalla- baksleið auk gönguferða á Heklu, Skálafell og í Valagjá. Svo fer Félag eldri borgara í Reykjavík í tveggja daga ferð um Snæfellsnes en Hana- nú hópurinn lætur sér nægja að rölta um Kópavoginn... ÞEIR SEM EKKI NENNA út úr bænum en vilja vera dulítið náttúru- legir og góðir við börnin sín geta farið með þau í húsdýragarðinn en þar verður fjölbreytt prógramm frá kl. 10-18 í dag og á morgun. Gefst þar færi á að kynna sér matarvenjur og göngulag sela, hreindýra, kinda, geita, nautgripa, hrossa, minka, refa og fiðurfénaðar og gæða sér á kúamjólk og kexi með kalkúnaeggi. Æ, hvað hann Davíð er góður... FORTÍÐIN býr í Árbænum og þar verður á sunnudaginn hægt að kynna börnin fyrir hinum einu sönnu Bakkabræðrum (að vísu er ekki vitað hvort þeir sem nú eru á stjái eru úr Svarfaðardalnum eins og forverar þeirra). Auk þess verður hægt að kynna sér tóvinnu, skeifu- smíði, lummubakstur, netagerð, útskurð, forna prentvinnu og stríðs- áralifnað, allt í fylgd þeirra Gísla, Eiríks og Helga... ROKKHÁTÍÐIR eru ekki haldnar á hverjum degi hér á landi en um helgina verður ein slík haldin í Breiðholtinu. Þar eru árlegir tónleikar sem nefnast Rykkrokk og haldnir eru á vegum Fellaheliis útvíkkaðir með fjölskylduhátíð sem stendur frá 14-17 í dag, laugardag, en síðan rokka allir helstu rokkarar landsins fram á nótt. Þeir sem heima sitja geta notið herlegheitanna í beinni útsendingu á Rás 2 frá kl. 19.30. Það var kominn tími til að Breiðholtið fengi sína hverfishátíð... KAMMERMÚSÍKIN ræður ríkjum í klassísku deildinni. í Skálholti verða verk eftir Hafliða Hallgrímsson í hávegum höfð bæði í dag og á morgun, leikin á flautu, sembal og selló eða sungin af blönduðum kór. Á Akureyri leikur Susan Landale á orgel Akureyrarkirkju kl. 17 á sunnudag. í Norræna húsinu leika þeir Þórólfur Stefánsson og Olle Olsson á gítara á sunnudagskvöldið en á sama tíma verða Tómas R. Einarsson og félagar að sveifla sér í Heita pottinum í Duus-húsi... SUMARSTEMMNINGIN er ráðandi í galleríunum, fátt um einkasýn- ingar en þó geta þeir sem ætla að fá sér í glas á Laugavegi 22 bragðbætt heimsóknina með því að skoða ljósmyndir Ingu Sólveigar... FERÐALAG sænskra vísindamanna til íslands á átjándu öld verður útmálað í erindi Olof Kaijsers íNorræna húsinu á sunnudag kl. 16. En í dag verður hægt að ferðast um víðerni hugans og nálgast „hið innra sjálf og hið dulda í lífinu" á námskeiði í shamanisma sem mun vera aðferð amerískra indjána til að skilja veröldina. Ekki er okkur kunn- ugt um hvar námskeiðið fer fram en þátttakendur þurfa að hafa með sér skriffæri og teppi. Og ekki má gleyma hundasýningunni sem stend- ur yfir allan sunnudaginn í Laugardalshöllinni...

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.