Þjóðviljinn - 15.09.1990, Qupperneq 9
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Siðumúia 39-108 Reykjavík - Sími 678 500
Aðstoð við aldraða
Langar þig til að starfa með
ölduðum?
Okkur bráðvantar áhugasamt og gott fólk til
starfa sem fólgin eru í hverskonar aðstoð og
félagslegri samveru á heimilum aldraðra.
Vinnutími er sveigjanlegur frá kl. 09.00-17.00
og gæti meðal annars hentað námsfólki.
Hafðu samband sem fyrst og kynntu þér starfið.
Nánari upplýsingar veita forstöðumenn og
verkstjórar heimaþjónustu á eftirtöldum stöð-
um:
Aflagranda40 sími: 62 25 71 milli kl. 10-12
Bólstaðarhlíð43sími: 68 50 52 milli kl. 10-12
Hvassaleiti 56-
58 sími: 67 93 35 milli kl. 10-12
Norðurbrún 1 sími: 68 69 60 milli kl. 10-12
Seljahlíð sími: 7 36 33 milli kl. 10-12
Vesturgötu 7 sími: 62 70 77 milli kl. 10-12
L
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
lagningu vegslóða vegna byggingar 220 kV
Búrfellslínu í samræmi við útboðsgögn BFL-10.
Útboðsgögn verða afhent frá og með
fimmtudeginum 13. september 1990 á skrif-
stofu Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68, Reykja-
vík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr.
2.000.
Helstu magntölur eru: Ýtuvinna 350 klst.
Aðkeyrð fylling 55.000 m3
Verklok eru 31. desember 1990.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en
föstudaginn 21. september 1990 fyrir kl. 14.00
en tilboðin verða opnuð þar þann dag kl. 14.15
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Reykjavík 10. september 1990
Stjórn Almenningsvagna bs. auglýsir hér með
eftir umsóknum um
Starf
framkvæmdastjóra
Almenningsvagnar bs. er byggðasamlag sex
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu: Bessa-
staðahrepps, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kjal-
arneshrepps, Kópavogskaupstaðar og Mos-
fellsbæjar. Tilgangur byggðasamlagsins er að
annast aimenningssamgöngur fyrir aðildar-
sveitarfélögin samkvæmt nánari ákvörðun
stjórnar.
Starf framkvæmdastjóra er fólgið í því að undir-
búa rekstur fyrirtækisins í samræmi við tilgang
þess og þau markmið, sem stjórn þess og
eigendur setja á hverjum tíma.
Leitað er eftir starfsmanni með háskóla-
menntun á sviði hag-, rekstrar-, viðskipta- eða
verkfræða. Mikilsvert er, að umsækjendur hafi
víðtæka reynslu í áætlanagerð og verkefna-
stjórnun og geti bæði unnið sjálfstætt og í sam-
vinnu við aðra. Starfið gerir miklar kröfur um
frumkvæði í störfum, lagni í samskiptum og
markviss vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til 12. október nk. Umsókn-
um skal skilað til formanns stjórnar Almenn-
ingsvagna bs., Ingimundar Sigurpálssonar,
bæjarskrifstofum Garðabæjar, Sveinatungu v/
Vífilsstaðaveg, 210 Garðabæ, en hann veitir
jafnframt nánari upplýsingar um starfið.
Útboð
Hólmavíkurvegur norðan
Borðeyrar í Hrútafirði
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk.
Lengd kafla 1,7 km, fylling 6.000 rúmmetrar
og neðra burðarlag 7.400 rúmmetrar.
Verki skal lokið 15. desember 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Tsafirði og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 17. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 1. október 1990.
Vegamálastjóri
<sa\
Til söiu húseignir á Barða-
strönd og Vopnafirði
Kauptilboð óskast í dýralæknisbústaðinn
Krossholti hjá Birkimel á Barðaströnd, samtals
755 m3 að stærð. Brunabótamat er kr.
15.122.000.00 Húsið verður til sýnis í samráði
við Kristján Þórðarson, Breiðalæk, sími: 94-
2021.
Kauptilboð óskast í Torfastaðaskóla í Vopna-
firði, samtals 2580 m3 að stærð. Brunabótamat
er kr. 28.350.000.00. Húsið verður til sýnis í
samráði við Vilmund Gíslason, sveitarstjóra
Vopnafjarðarhrepps (sími: 97-31122).
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofan-
greindum aðilum og á skrifstofu vorri að Borgar-
túni 7, Reykjavík.
Tilboð leggist inn á sama stað eigi síðar en kl.
11.00 þann 27. september 1990 og verða þau
opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
IIMNKAUPASTOFWUW RIKISIWS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Kennarar
Kennara vantar að Grunnskólanum Brodda-
nesi. Almenn kennsla.
Upplýsingar í síma 95-13359 og 95-13349.
Félagsmenn í
Starfsmannafélagi Reykja-
víkurborgar
Höfum til sölu 2 íbúðir fyrir félagsmenn okkar,
60 ára eða eldri.
Um er að ræða 3ja herb. íbúð með bílskúr og
105 m2 raðhús með bílskúr við Aðalland.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins að Grettis-
götu 89, dagana 17.-21. sept. kl. 15-17.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
-VÁTRYGGINGAFÉIAGISLANDS HF
I>ÓSTIIÓ1.K8400. 128 KSYKJAVfK
ÁKMÚ1A3. SfMl: 605060. TKl.KKAX: 605100, KT. 690689-2009
Wl
Tilkynning frá
Vátryggingafélagi íslands
Viðskiptavinir vinsamlegast athugið
breyttan opnunartíma.
Frá og með mánudeginum 17. september
verða skrifstofur okkar opnar frá kl. 9.00 til
17.00.
Vátryggingafélag íslands
27. þing S.Í.B.S.
verður haldið að Reykjalundi dagana 13. og
14. október 1990.
Þingið verður sett í samkomusal Reykja-
lundar laugardaginn 13. október kl. 9.30.
Stjórnin
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Ólafsvíkur
Félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn í Mettubúð sunnudag-
inn 16. september kl. 15.
Dagskrá:
1. Störf bæjarstjórnar. Árni E. Albertsson bæjarfulltrúi.
2. Störf nefnda á vegum bæjarins.
3. Komandi Alþingiskosningar.
4. Önnur mál.
Stjórnin
ABR
Félagsfundur
Félagsfundur ABR verður haldinn nk. miðvikudag, 19. sept-
ember, kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Fundarefni:
1. Starfshættir og skipulag Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík.
2. Önnur mál.
Stjórn ABR
A.B.R. á Borginni
Auðlindir íslands
Verðmætasköpun með
bættum vinnubrögðum
í sjávarútvegi
Laugardaginn 22. september nk. kl. 10 verður Skúli
Alexandersson alþingismaður frummælandi á fundi á Hótel
Borg.
Efni fundarins er spurningin um hvort hægt sé að auka ha-
gvöxt með bættum vinnubrögðum I sjávarútvegi.
Félagar fjölmennið á fundinn og takið þátt í umræðum.
Stjórn ABR
Skúli
Laugardagur 15. september 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9