Þjóðviljinn - 22.09.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 22.09.1990, Blaðsíða 1
Haustjafndægur. Á morgun, sunnudag, eru haustjafndægur og þá eru dagur og nótt jafnlöng. Vetur konungur er þegar farinn að minna óþyrmilega á sig þótt hann hafi ekki enn náð að setja mark sitt á gróðurinn í húsagörðum Reykvíkinga. Mynd: Jim Smart Bvggingarsjóðir Kerfið stefnir f gjaldþrot Jóhanna Sigurðardóttir: Hef varað við gjaldþroti sjóðanna ígegnum árin. Grétar Þorsteinsson: Ef ríkisframlagið hefði ekki rýrnað að verðgildi og ekki komið til önnur kerfi sem kalla á hluta þessa fjármagns, þá væri staðan önnur 1" skýrslu Rikisendurskoðunar um fjárhagsstöðu bygging- arsjóða ríkisins og verkamanna kemur fram að eigið fé sjóð- anna gangi til þurrðar eftir 15 og 11 ár þó útlánastarfseminni yrði hætt nú þegar. Sjóðirnir stefna því í gjaldþrot ef ekki kemur til stóraukið framlag til þeirra úr ríkissjóði. „Þetta kemur mér ekkert á óvart þar sem ég er búin að vara við þessu allt frá því kerfið fór í gegnum þingið á fimm dögum,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra. Ný lög um byggingarsjóðina tóku gildi 1986 í tíð Þorsteins Pálssonar þá fjár- málaráðherra, en það var hann sem bað um skýrsluna frá Ríkis- endurskoðun. Þegar nýju lögin tóku gildi var fjárframlag ríkisins einn milljarður á þágildandi verð- lagi og voru gefin fyrirheit um a.m.k. sömu upphæð að raungildi næstu árin. „Það vita allir hvemig hefur verið staðið við það,“ sagði Grét- ar Þorsteinsson stjómarmaður í Húsnæðisstofnun ríkisins. „Með fyrirheit stjómvalda um a.m.k. þessa upphæð töldu menn sig sjá það fyrir að íjármunimir myndu nokkumveginn nægja, en það hefúr ekki verið staðið við það, og nöturlegast er það núna í ár þegar aðeins 50 milljónir era lagðar til frá ríkinu í Byggingar- sjóð ríkisins,“ sagði Grétar. „Ef menn telja að ástæðan fyrir gjaldþrotinu sé sú að það hafi vantað ríkisframlög í þennan sjóð,“ sagði Jóhanna, „þá var grunnurinn lagður í tíð Þorsteins Pálssonar því skýrslan sýnir að það vantaði árið 1987 400 millj- ónir uppá ríkisframlagið til þess að forsendur kerfisins stæðust.“ Jóhanna telur enga skynsemi í þvi að viðhalda kerfinu frá 1986. „Þó við settum tvo milljarða í kerfið til útlána á næsta ári þá dygði það fyrir 800 lánsloforðum, en það bíða 5.500 manns, þannig að það er einungis hægt að grynnka á þessu,“ sagði Jóhanna. Hún telur rétt að auka framlagið í Byggingarsjóð verkamanna og því til byggingar félagslegra íbúða. „Skýrslan sýnir að kerfið frá 1986 gengur ekki upp og Bygg- ingarsjóður ríkisins verður gjald- þrota ef ekki verður tekið á mál- unum,“ sagði Jóhanna. „Ég tel að með húsbréfakerfinu höfúm við skapað íjárhagslegt svigrúm fyrir félagslega kerfið og til þess að treysta Byggingarsjóð verka- manna i sessi.“ Ráðherra vinnur nú að því að auka framlag rikisins í Byggingarsjóð verkamanna. Framtíð Byggingarsjóðs rík- isins er óljós. Um 800 manns hafa nú lánsloforð og verður staðið við allar skuldbindingar í því sam- bandi. Hvað verður um þá 5.500 sem eru i biðröðinni um lánveit- ingu úr sjóðnum er jafn óljóst og framtíð sjóðsins. En líklegt er að ef ekki kemur stóraukið fjárfram- lag úr ríkissjóði fái þetta fólk ekki lán úr sjóðnum. Nokkur hundrað þessa fólks hefúr þó nú þegar far- ið yfir í húsbréfakerfið, en þrátt fyrir nokkra bið í Húsnæðisstofn- un eftir greiðslumati er biðin ekki talin í áram. Húsbréfakerfið býð- ur uppá lán til 25 ára með 5,75 prósent vöxtum, en Byggingar- sjóður ríkisins býður 40 ár og 4,5 prósent vexti. Grétar Þorsteinsson er ekki tilbúinn til að taka undir það að Byggingarsjóður ríkisins sé gjaldþrota, það verði að skoða málið í víðara samhengi: „Það hefúr verið um það sátt í þjóðfélaginu að það yrðu lagðir veralegir íjármunir af þessu sam- eiginlega aflafé okkar í þennan mikilvæga málaflokk. Nú er verið að hætta því, að því er virðist,“ sagði Grétar, en hann telur kerfið ekki hafa verið ómögulegt í upp- hafi, heldur hafi rikið ekki staðið við sinn hluta sáttarinnar og því sé staðan einsog hún er. „Það sem er nauðsynlegt að gera í þessu núna er að eyða þeirri óvissu sem þetta fólk er í sem er í þessari biðröð," sagði Jóhanna. „Það verður að taka af skarið um framhaldið. Vilja menn leggja það fé ffarn sem þarf til í þetta kerfi?" spyr Jóhanna, en sjálf tel- ur hún það enga skynsemi, því það þýði annaðhvort skattahækk- anir eða niðurskurð annarsstaðar í ríkiskerfinu. Það er líklegt að á sama tíma og félagsmálaráðherra fari ffam á aukið ffamlag til Byggingarsjóðs verkamanna leggi hún til að Byggingarsjóður ríkisins verði lagður niður. „Ég vona að menn taki mark á skýrsl- unni og horfist í augu við raun- veraleikann,“ sagði Jóhanna. -gpm Bókmenntasamkeppni AB Öll handritin ónothæf Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins efndi á síðasta ári til bók- menntasamkeppni í tilefni af 15 ára afmæli sínu. Skiladagur var 1. júní sl. og bárust alls 77 handrit í samkeppnina. Dómnefnd, sem skipuð var fimm mönnum, hafnaði öllum handritun- um á þeim forsendum að þau skorti of mikið á í efnisvali, framsetningu eða úrvinnslu. Þótt nefndin telji nokkur handritanna athyglisverð telur hún ekki unnt að veita neinu þeirra bókmenntaviðurkenningu. Vegna þessa hefúr Almenna bókafélagið ákveðið að ffamlengja skilafrest til samkeppninnar til 1. mars 1991. ns.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.