Þjóðviljinn - 22.09.1990, Qupperneq 7
MENNING
Myndir KHstinn
Þióðleikhúsið
Allt annað en
sorgar-
leikur
Nýr íslenskur gamansöng- og dansleikur var
frumsýndur í Islensku óperunni í gœr. Spaug-
stofumenn bera ábyrgð á honum
Leikritið og persónur þess
eru kunnuglegar. Þetta er
sakamálaleikrit eins og við
þekkjum þau best úr Gufunni á
fimmtudagskvöldum i gamla
daga. Þrumur og eldingar,
gamall bötier, gráðug fjölskylda
og lík á stássstofugólfínu. En
þegar áhorfandinn heldur sig
vita hvert stefni birtast ótrúleg-
ustu fígúrur á sviðinu og sér-
kennilegir atburðir gerast sem
eru alveg örugglega ekki í
handritinu!
Þjóðleikhúsið frumsýndi í
gærkvöldi nýjan íslenskan gam-
anleik með söngvum og dönsum í
húsnæði íslensku óperannar, sem
margir kalla enn Gamla bíó.
Orfá sæti laus kallast þessi
dularfulli, spaugilegi, spennandi
og lygilegi söngleikur. Abyrgð á
skáldskap þessum ber Spaugstof-
ukvintettinn: Karl Ágúst Úlfsson,
Pálmi Gestsson, Randver Þor-
láksson, Sigurður Siguijónsson
Söngur og sánsaukavein banjóleikara, sem taka til við að skemmta áhorf-
endum þegar gera verður örstutt hlé á fjölskyldudramatfkinni. Öm Ámason
og Kari Ágúst Ulfsson taka á sig alls kyns gervi á meðan á leiknum stendur.
Ástarstand og framhjáhald f hvunndagsþrillemum Örfá sæti laus. Sigurður
Sigurjónsson og Anna Kristfn Amgrfmsdóttir f einni af mörgum rullum sfnum
og Öm Ámason. Handrit og
söngtextar eru í höndum Karls
Ágústs Úlfssonar, leikstjóri er
Egill Eðvarðsson og Ándrew
Lloyd-Webber íslands, Gunnar
Þórðarson, samdi tónlistina. Jón
Þórisson teiknaði leikmynd og
búninga, en Ásdís Magnúsdóttir
hannaði dansa. Magnús Kjartans-
son stjómar hljómsveitinni og
Páll Ragnarsson sér um lýsingu.
Margir fleiri koma við sögu því
að þetta er fjölmenn sýning: Á
ijalimar stiga fimmtán leikarar,
fjórir dansarar, auk hljómsveitar,
sem trónar yfir sviðinu, og tækni-
fólks sem er á við og dreif um
húsið.
í fféttabréfi frá Þjóðleikhús-
inu segir að gamanleikurinn sé
hugljúfur hvunndagsþriller með
dularfullu, ef ekki beinlínis dul-
rænu ívafi, að hluta til byggður á
sönnum heimildum, en að öðra
leyti argasta lygi ffá rótum.
Þekktar persónur úr stjómmálum
og hvunndagslífi skjóta upp koll-
inum, auk leikpersóna á borð við
Skugga- Svein, Ketil Skræk og
Ástu í Dal.
Eins og áður sagði var tútal-
leikhúsverk þetta ffumsýnt í gær,
en þegar er uppselt orðið á liðlega
helminginn af þeim tólf sýning-
um sem nú era komnar í sölu, svo
að segja má að það séu örfá sæti
laus í orðsins fyllstu.
BE
»■
Óþarfi er að kynna þennan kauða,
hann er orðinn þjóðareign. Eitthvað
hefur honum leiðst sýningin, því
hann tók í sætavísuna til að hafa
ofan af fyrir sér. Sigurður Sigurjóns-
son og Lilja Þórisdóttir leikarar.
Laugardagur 22. september 1990 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 7