Þjóðviljinn - 09.10.1990, Page 9
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Ýmislegt
Píanó
Til sölu píanó, AH FRANCKE
LEIPZIG, 130 sm. á hæð,
svartlakkað, heldur vel stemmningu.
Sími 35054.
Þvottavél
Til sölu amerísk þvottavél, fallegt,
munstrað gólfteppi, perluhengi ofl.
Mjög ódýrt. Uppl. í síma 25958.
Sultukrukkur
Tómar sultukrukkur fást gefins. Sími
17087.
Rykfrakki
Til sölu rykfrakki á granna dömu,
stærð 42. Gott verð. Uppl. í sima
657935.
Til sölu
Barnaskrifborð með hillu, 1,6m á
lengd. Barnabaðborð á kr. 3000, tvö
telpnareiðhjól, seljast ódýrt og nýr
kvenfatnaður nr. 16. Uppl. í síma
41009.
Orgel-harmonika
Vil láta gott orgel fyrir góða harmon-
iku. Sími 38528.
Ullarkápur
Tvær góða ullarkápur nr. 46 til sölu.
Uppl. í síma 681884.
Mótatimbur
Enn er til talsvert af mótatimbri. Uppl.
í síma 78548 e. kl. 20.
Halló-halló
Við erum hérna 20 hressir útskrift-
arnemendur í Flensborg í Hafnarfirði.
Þar sem við erum áhugasöm og fjár-
þurfi tökum við að okkur ýmis verk-
efni. Allt kemur til greina. Ef þú hefur
eitthvað að gera handa okkur vin-
samlega hafðu samband við Önnu f
síma 651650 eða Úlfar í síma 53338.
Tilvalið fyrir skólafólk
Til sölu þokkalegt viðarskrifborð með
skúffum, skáp og bókahillu á kr.
6000.-, skrifborðsstóll á kr. 2000.-,
Olivetti Praxis rafmagnsritvél nýupp-
gerð lítið notuð á kr. 15,000.-, comp-
lete works of Shakespeare kr.900.-,
complete works of Edgar Allan Poe
kr.800.-. Ennfremur nokkrar inn-
bundnarskemmtisögurkr. 100bókin.
Sími 28925.
Blaðburður
Við erum 12 ungar og hressar fim-
leikastúlkur á leið á Norðurlandamót
og viljum taka að okkur útburð fyrir
fyrirtæki. Uppl. í síma 641034.
Tómstunda- og leikklúbbur
Kópavogshælis
Okkur í Tómstunda- og leikklúbbi
Kópavogshælis vantar ýmsa hluti
fyrir starfsemina; Sófa eða staka
hægindastóla, ruggustóla, efni í
leiktjöld td. gamlar gardínur, stóra
þykka dýnu, púða, hrúgöld, hengi-
rúm, nuddpúða, leikbúninga og ýmis-
legt dót í óróa. Margt fleira kemur til
greina. Velviljaðir hringi í síma
602700 á daginn og 43311 á kvöldin.
Húsnæði
Erum á götunni
Vantar tilfinnanlega litla íbúð, helst í
Laugarneshverfi. Uppl. í síma 39265
milli kl. 18 til 20 næstu daga.
Lftll íbúð
Einstaklingur óskar eftir lítilli íbúð eða
álíka aðstöðu. Vinsamlega hringið í
síma 660994, Felix.
Húsgögn
Vantar húsgögn
Óska eftir eldhúsborði eða stofu-
borði, skrifborði og gömlum hægind-
■■ astól. Sími 74304.
Sófasett
Til sölu mjög ódýrt sófasett. Selst á
kr. 3000.-. Sími 79215
Skatthol
Stórt antik skatthol til sölu. Sími
17087.
Heimilis- og raftæki
Afruglari
Nýr afruglari til sölu. Uppl. í síma
641638 eftir kl. 19.
Tölva
Commodore tölva ásamt segulbandi,
tveimur diskdrifum og fjölda leikja til
sölu. Uppl. í síma 12461 eftir kl. 16.
Þvottavél
Notuð þvottavél á viðráðanlegu verði
óskast keypt. Lára í síma 29617 e. kl.
17 og í sima 18420 á daginn.
Frystiskápur
Lítill frystiskápur ca. 130 lítrar, til sölu.
Verð kr. 10.000.-. Sími 25553.
Þvottavél
Óska eftir gamalli þvottavél og elda-
vél, helst 50 sm. breiðri í nothæfu
ástandi. Sími 22308.
Eldavél
AEG eldavél til sölu. Uppl. í síma
679228 milli kl. 12-13 og eftir kl. 18.
(sskápur
Óskum eftir að kaupa notaðan ís-
skáp, ekki breiðari en 55 sm. Uppl. í
síma 611136.
Frystikista
Óska eftir 400-600 litra frystikistu
ódýrt eða gefins. Uppl. í síma 98-
66085.
Svart-hvítt sjónvarp
Óska eftir svart-hvítu sjónvarpi í góðu
ásigkomulagi, ódýrteðagefins. Uppl.
gefur Steinunn í símum 22520 og
27855.
Hjól
Reiðhjól
Tvö þriggja gíra drengjareiðhjól til
sölu. Annað er 20 tommu Winther
hjól með sportstýri, en hitt 24 tommu
Eurostar. Seljast á 3.500 og 4.500 kr.
Sími 17292.
Dýrahald
Læða í óskilum
Grá-drapp-bröndótt, ung læða, hvít á
bringu, kviði og fótum hefur verið í
óskilum frá 19. sept. Eigendur vin-
samlegast hafið samband í síma
12125 heima og 16610 í vinnu.
Fyrir börn
Svalavagn
Óska eftir svalavagni. Uppl. í síma
27928 e. kl. 17.
Ungbarnastóll
Til sölu Britax ungbarnastóll upp í 10
kíló. Aðeins notaður af einu barni.
Uppl. í síma 671217.
Tvíburavagn tll sölu
Tvíburavagn, árgangur 89 til sölu, á
góðu verði. Notaður af einum tvíbur-
um. Uppl. á auglýsingadeild Þjóðvilj-
ans, sími 681333.
Barnakerra
Fily mack barnakerra til sölu. Uppl. í
síma 38203 eftir kl. 20.
Bílar og varahlutir
Til sölu
Bens 207 sendibíll 80 til sölu. Bíllinn
er með svefn- og eldunaraðstöðu og
allur einangraður í hólf og gólf. Einnig
til sölu sjálfskipting í Möstu 79-81.
Uppl. í síma 42705.
Lada-Lada
Vantar bílstjórasæti í Lada 1200 árg.
1988. Uppl. í síma 79396 eftir kl. 20.
Subaru
Til sölu Subaru 82 skutbíll, ekinn 128
þús. Er í góðu standi. Sími 666914 á
kvöldin.
WV Derby
Af sérstökum ástæðum er til sölu
Wolksvagen Derby 78. Þarfnast lag-
færingar fyrir skoðun. Verðhugmynd
20-30 þúsund. Uppl. í síma 22020.
Til sölu
Daihatsu Charade CX 5 dyra, 5 gíra,
árg. 88, ekinn 28 þús. km. Verð kr.
580.000.-, bein sala eða skipti á ódýr-
ari. Skodi 130 Gl, 5 gíra árg. 88, ekinn
44 þús. km. Verðhugmynd kr. 150-
200 þús. Uppl. í hs. 678191 og vs.
82383.
Kennsla og námskeið
FRÁ FULLORÐINSFRÆÐSLUNNI
Námskeiðin -BYRJUM FRÁ
BYRJUN- helstu efni grunnskóla ofl.
frá grunni á morgun- dag- kvöld- og
helgartímum, hefjast vikuna 14-21.
okt. Verð kr. 8.500.-. Enskajsl.
stærðfr. sænska, danska, þýska og
ísl. f. útlendinga. Litlir hópar. Níu vik-
ur, -einu sinni í viku. Tímar; 10-11.30,
12-13.30, 14- 15.30, 16-18.30, 18-
19.30 eða 22-23.30.
Morguntíminn „Morgunstund gefur"
kl. 10-11.30. Námskeiðin -BYRJUN
FRÁ BYRJUN!- Níu vikur, litlir hópar.
Verð kr. 8.000.- m/kennslugögnum:
Mánud. enska; þriðjud. enska; mið-
vikud. ísl.; fimmtud. enska; föstud.
stærðfr.; laugard. ísl.; sunnud.
stærðfr.
Hádegistíminn „Heiti potturinn" kl.
12- 13.30. Námskeiðin -BYRJUN
FRÁ BYRJUNI- Níu vikur, litlir hópar.
Verð kr. 8.000.- m/kennslugögnum:
Mánud. enska; Þriðjud. ísl.; miðvikud.
enska; fimmtud. stærðfr.; föstud.
sænska; laugard. danska; sunnud.
þýska. Enskudagarnir: Mánud. og
miðvikud., enska frá morgni til
kvölds.
„Upp úr hádeginu" kl. 14-15,30:
Mánud./enska, þriðjud./þýska,
Miðvikud./enska, fimmtud./ísl.,
föstud./stærðfr., laugard./enska byrj-
un II, sunnud./enska byrjun I.
„Degi hallar“ kl. 16-17,30: Mánud./
enska, þriðjud./ísl., miðvikud./enska,
fimmtud./enska, föstud./danska,
laugard./sænska, sunnud./enska
áfram I.
Enskudagarnir: Mánud. og miðvikud.
10- 11,30; 14-15,30; 18-19,30; 20-
21.30.
íslenskudagarnir: Þriðjud. 10-11,30;
12-14,30; 16-17,30; 18-19,30.
Fimmtud. 14-15,30. Laugard. 10-
11.30.
Stærðfræðidagarnir: Fimmtud. 14-
15,30; 18-19,30. Föstud. 10-11,30;
14-15,30. Sunnud. 10-11,30.
Sænska -BYRJUM FRÁ BYRJUN!-
Kvöldt. fimmtud. 20-21.30, hádegist.
föstud. 12-13.30, helgart. föstud. 18-
19.30 og laugard. 16-17.30.
Uppl. alla d. 9-17.30 og 22-23.30.
(Aðra tíma símsvari eða símboði)
FULLORÐINSFRÆÐSLAN
sími 71155.
Píanókennsla
Píanókennari með langa reynslu get-
ur bætt við sig nokkrum nemum í
einkatíma, kennir bæði byrjendum og
lengra komnum. Sími 33241, Ásgeir
Beinteinsson.
Þjonusta
Heimilisaðstoð
Get tekið að mér heimilisaðstoð frá
9-17 á daginn. Er vön. Uppl. í síma
45916.
Málningavinna
Málaranemi tekur að sér innan-
hússmálun. Uppl. í síma 74304.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagid í Reykjavík
Félagsfundur um álmálið
verður haldinn að
Hverfisgötu 105
miðvikudaginn
10. október ki. 20.30.
Samningur um
nýtt álver
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður og Már Guðmundsson
efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra verða frummælendur á fé-
lagsfundi ABR um álmálið, miðvikudagskvöldið 10. okt. kl. 20.30.
Fundarstjóri: Guðrún Sigurjónsdóttir.
Félagar! Fjölmennum á fundinn og tökum þátt í umræðum.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið
í Kóþavogi
Félagsfundur
verður haldinn í
Þinghóli, Hamra-
borg 11, mánudag-
inn 8. október og
hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning uppstillingarnefndar fyrir aðalfund félagsins.
3. Samningur um nýtt álver.
Frummælendur verða þau Sigurbjörg Gísladóttir, efnaverk-
fraeðingur og Már Guðmundsson, hagfræðingur.
4. önnur mál.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Opnunartími skrifstofunnar
Skrifstofa ABR, Hverfisgötu 105, verðuropin þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga á milli kl. 9 og 11.
ABR
Alþýðubandlagið í Hafnarfirði
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldinn í
Skálanum mánudaginn 15. oktöber nk. kl. 20.30.
Stjórnín
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Norðurlandskjördæmis eystra verður
haldinn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, Akureyri, föstudaginn 12.
október og hefst kl. 19.
Dagskrá:
1. Setning. Kosning starfsmanna og -nefnda fundarins.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Stjórnmálaástandið - umræður.
Framsaga Steingrímur J. Sigfússon.
4. Útgáfumál - umræður. Framsaga Brynjar Ingi Skaþtason.
5. Kosningaundirbúningur. Framsaga Heimir Ingimarsson.
6. Afgreiðsla mála. Kjör stjórnar.
7. Þingslit. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kóþavogi
Haustferð í
Landmanna
laugar
27. októ-
ber1990
Laugardaginn 27. október fer ABK haustferð í Landmannalaugar.
Farið verður frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur
Hellisheiði. Farið verður um ölfus og Flóa, austur yfir Þjórsá, upp
Landveg að Tröllkonuhlaupi við Búrfell. Með viðkomu í Foss-
brekkum verður farið um Sölvahraun á Landmannaleið. Skammt
frá Landmannahelli verður ekið upp á Mógilshöfða og yfir í
Hrafntinnusker og skoðaður íshellirinn þar sem jarðhitinn bræðir
íshelluna án afláts. Allt um kring eru spúandi hverir á þessu mikla
háhitasvæði. Þaðan verður aftur haldið á Dómadalsleið og hjá
Frostastaðavatni í Landmannalaugar þar sem gist verður í skála
Ferðafélags íslands eftir kvöldvöku og söng.
Á sunnudeginum verður árdegis gengið á Bláhnjúk en sumir taka
sér styttri göngu eða baða sig í lauginni Ijúfu. Laust eftir hádegið
verður haldið af stað heimleiðis. Þá verður ekið hjá Hófsvaði á
Tungnaá, niður með Vestur-Bjöllum, hjá Sigölduvirkjun og
Hrauneyjarfossvirkjun, yfir Þjórsá hjá Sandafelli, niður Hrossa-
tungur að Gjánni og Stöng í Þjórsárdal. Þaðan verður svo ekið að
Hjálparfossi og heim um Gnúpverjahrepp og Skeið. Heimkoma er
áætluð klukkan 20 að kvöldi sunnudagsins.
Gistigjald í skála er kr. 550 og fargjald er kr. 2.500. Hálft fargjald er
fyrir eftirlaunaþega og ófermda og ókeypis fyrir börn átta ára og
yngri.
Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gísla Ólafi Pét-
urssyni í síma 42462.
ATHUGIÐ að þátttaka er ÖLLUM velkominl! Ferðanefnd ABK
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Borgarmálaráð
Fundur í borgarmálaráði ABR miðvikudaginn 10. okt. kl. 17.15.
M.a. farið yfir stöðu mála í einstaka nefndum.
Alþýðubandalagið á Suðurlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Suðurlandi
verður haldinn á Hvolsvelli 13. og 14. október.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf og undirbúningur kosninga.
Stjórn kjördæmlsráðs
Mikilvægur umræðufundur
Mikilvægur umræðufundur fimmtudagskvöld 11. október á Punkti
og pöstu frá 20.30. Birtingarmenn ( miðstjórn Alþýðubandalags-
ins sérstaklega boðaðir.
Stjórnin
Margrét Ólafur Ragnar
Alþýðubandalagið í uppsveitum Árnessýslu
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í uppsveitum Árnessýslu verður
haldinn í Aratungu í kvöld, 9. október kl. 21.
Óiafur Ragnar Grímsson og Margrét Frímannsdóttir mæta á fund-
inn.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Þriðjudagur 9. október 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9