Þjóðviljinn - 10.10.1990, Qupperneq 2
FRETTIR
Landsbergis
Skyldleiki með
Litháen og Kúvæt
Landsbergis: Sjálfstæðisbarátta Islendinga og Litháa ekki sambœrileg
Landsbergis, forseti Litháen, á blaðamannafundi ( gær. Mynd: Kristinn.
Landsbergis forseti Litháens
sagði á blaðamannafundi í
gær, að það hefði komið Lithá-
um þægilega á ðvart, hve Is-
lendingar brugðust skjótt við
þegar Litháar lýstu yfír sjálf-
stæði sínu 20. mars. Eftir við-
ræður sínar við íslenska ráða-
menn skildi hann betur við-
brögð íslendinga. Smærri þjóð-
ir gætu bundist samtökum gegn
stærri þjóðum sem teldu sig
geta komið vilja sínum fram án
hindrunar.
Það búa hlutfallslega fleiri
Rússar í Eistlandi og Lettlandi en
í Litháen. Landsbergis sagði
þessa staðreynd hafa mikil áhrif á
ástandið í Eistlandi og Lettlandi,
en heíði minna að segja í Litháen.
Það væri hin löglega hlið málsins
sem skipti mestu máli fyrir Lit-
háa, eða hin löglega staða lands-
ins. „Eina vandamálið hvað þetta
snertir fyrir Litháa er að koma á
litháísku ríkisfangi, þannig að
sérhver sem búið hefur í landinu í
tiltekinn tíma fái litháískt ríkis-
fang,“ sagði Landsbergis. Þetta
væri hins vegar erfiðara fyrir hin
baltnesku ríkin vegna nýinn-
fluttra Rússa.
Landsbergis sagði Litháa ekkí
geta fallist á að fá takmarkað
sjálfstæði, sem fæiist í því að
Sovétríkin færu áfram með utan-
ríkismálin og forseti þeirra verði
forseti Litháens, eins og Gorbat-
sjov hefur lagt til. „Við höfum
beðið í fimmtíu ár og það þykir
Blóðbaö í Israel
okkur nógu löng bið,“ sagði
Landsbergis. Það væri ekki hægt
að líkja sjálfstæðisbaráttu Litháa
við sjálfstæðisbaráttu íslendinga.
Það væri miklu nær að Iíkja stöðu
Litháa gagnvart Sovétríkjunum
við stöðu Kúvæt gagnvart Irak.
En hafa Litháar efnahagslega
burði til að verða sjálfstæðir?
Landsbergis sagði efnahagslegt
sjálfstæði ekki mögulegt á meðan
viðskiptalífið og viðskipti við
aðrar þjóðir væru ekki komin í
gang. En Litháen hefði alla burði
til að stofha til viðskipta við aðra.
Eitt af því sem rætt hefði verið
við Sovétmenn á fyrsta viðræðu-
fundinum, væri að Litháar ættu
eðlileg viðskipti við Sovétmenn,
en ekki viðskipti sem bæru svip
viðskipta stórveldis við smáríki.
-hmp
Fylgifiskur kynþáttastefnu
Ísland-Palestína: ísrael hefur ekki virt eina einustu ályktun Sameinuðu þjóðanna
Félagið Ísland-Palestína
skorar á íslensk yfirvöld að
beita sér fyrir því að fulltrúi
Norðurlanda í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna, beri
fram tillögu um refsiaðgerðir
gegn ísrael. Markmiðið með tíl-
L. R.
Sigurður Hróars-
son leikhússtjóri
Stjóm Leikfélags Reykjavíkur
hefúr valið Sigurð Hróarsson leik-
hússtjóra Leikfélags Akureyrar úr
hópi þrettán umsækjenda til að
gegna stöðu leikhússtjóra.
Núverandi leikhússtjóri L. R.
Hallmar Sigurðsson lætur af störf-
um 1. ágúst á næsta ári. -grh
löguflutningnum á að vera að
ísrael dragi herlið sitt tíl baka
frá herteknu svæðunum í sam-
ræmi við ályktanir ráðsins.
í tilkynningu frá Félaginu ís-
land- Palestína segir að félagið sé
harmi slegið yfir blóðbaði ísra-
elsku lögreglunnar gegn vamar-
lausum íbúum Jerúsalems. Slíkar
aðgerðir séu óhjákvæmilegir
fylgifiskar kynþáttastefnu og her-
námi Israelsríkis.
„Við minnum á að Israelsríki
hefúr ekki virt eina einustu álykt-
un Sameinuðu þjóðanna síðan
það gekk í samtökin 1949,“ segir
í tilkynningunni. Israelsríki hafi
hemumið Vesturbakkann, Gaza-
svæðið og Golanhæðimar árið
1967 og suðurhluta Líbanons árið
1982 og neitað að virða ályktanir
Sameinuðu þjóðanna um brottför
heija sinna frá þessum svæðum.
Félagið spyr hvort alþjóðalög
gildi aðeins fyrir suma en ekki
fyrir aðra, í Ijósi viðbragða ríkja
heimsins við innlimun Iraks á
Kúvæt.
Ísland-Palestína segir mark-
mið_ refsiaðgerða gegn Israel vera
að ísrael leyfi starfsliði Samein-
uðu þjóðanna þegar í stað að
koma sér fyrir á herteknu svæð-
unum, ma. til þess að veita
óbreyttum borgurum herteknu
svæðanna lágmarks vemd. Mark-
miðið á einnig að vera að Israel
virði í einu og öllu skuldbinding-
ar sínar við 4. Genfarsamninginn,
er varða öryggi og velferð íbú-
anna á herteknu svæðunum.
-hmp
Síld
Söltun er haf in
Sfldarsöltun er hafin á Aust-
fjörðum. í gær var byrjað
að salta hjá Pólarsíld á Fá-
skrúðsfirði og hjá Tanga hf. á
Vopnafírði. Hinsvegar fór
fyrsta síldin sem barst á land i
Neskaupstað og á Höfn í
Hornafirði í frystíngu.
Það var Ingvi Rafn og áhöfn
hans á Guðmundi Kristni sem
kom með fyrstu síldina til Fá-
skrúðsfjarðar, um 40 tonn af
venjulegri stórsíld. Hallgrímur
Bergsson hjá Pólarsíld sagði að
fyrst um sinn yrði saltað fyrir
Norðurlandamarkað en beðið
með að salta fyrir Sovétmenn.
-grh
Vesturlandskratar
Eiður fær
keppinaut
Gísli Einarsson, oddviti Alþýðu-
flokksins á Akranesi, hefur
ákveðið að sækjast eftir þing-
mennsku fyrir Alþýðuflokkinn á
Vesturlandi. Hann berst við Eið
Guðnason alþingismann um
efsta sætið á listanum.
Gisli lýsti yfir þessu í Skaga-
blaðinu í síðustu viku. Hann hefúr
verið bæjarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins á Akranesi síðan 1986 og er nú
formaður bæjarráðs. Alþýðuflokk-
urinn hefur aukið fylgi sitt á Akra-
nesi verulega á undanfömum ámm
og hefúr nú þijá bæjarfulltrúa.
Sem stendur er enginn Akur-
nesingur í hópi þingmanna Vestur-
lands. Gísli leggur mikla áherslu á
það í viðtali við Skagablaðið að
Akumesingur komist á Alþingi að
nýju, en Akranes er langstærsti
þéttbýlisstaðurinn á Vesturlandi.
-gg
Þrír í heiðursráð Krabbameinsfélagsins
Davíð Ólafsson fyrrum seðlabankastjóri, Ottó A. Michelsen fynum
forstjóri og Tómas Ámi Jónasson yfirlæknir hafa verið valdir í heiðurs-
ráð Krabbameinsfélags íslands, en það er æðsta viðurkenning sem fé-
lagið veitir. Áður hafa fjórir verið valdir í heiðursráði: Vigdís Finn-
bogadóttir forseti, Hjörtur Hjartarson fynum forstjóri, Ólafur Bjama-
son fyirum prófessor og Gunnlaugur Snædal prófessor. Á myndinni em
allir sjö meðlimir Heiðursráðs Krabbameinsfélagsins og Almar Gríms-
son núverandi formaður félagsins.
Púlsinn opnar
í kvöld kl. 22 opnar Púlsinn,
nýr vínveitingastaður á vegum
Tónlistarmiðstöðvarinnar. Púls-
inn-tónlistarbar er til húsa að
Vitastíg 3. Þar verður boðið upp á
djass, blús, rokk, vísna-, dans- og
dægurtónlist, jafnframt því að
fyrirhugað er að gera tilraunir
með flutning klassískrar tónlistar.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á
góða aðstöðu til tónlistarflutn-
ings, m.a. gott svið þar sem Stein-
way-flygill er til staðar, fullkom-
ið hljóðkerfi með upptökumögu-
leikum og aðstöðu til beinna út-
sendinga í útvarps- og sjónvarps-
stöðvum. Jafnframt er boðið upp
á dansaðstöðu. Við opnunina
verður boðið upp á Púls-djass, en
flutning annast Tómas R. Einars-
son kontrabassa, Kristján Magn-
ússon píanó og Guðmundur R.
Einarsson trommur. 11., 12. og
13. október heldur Jazzvakning
upp á 15 ára afmæli sitt á Púlsin-
um með sérstakri djasshátíð þar
sem margir af helstu djassistum
landsins koma við sögu. Þá mun
Heiti potturínn flytja starfsemi
sína úr Duushúsi í Púlsinn og
verða djasskvöld hálfsmánaðar-
lega á fimmtudagskvöldum.
Dauðsföll af völdum
áfengiseitrunar
í níu af þrettán dauðsföllum
af völdum banvænnar eitrunar
hér á landi árið 1989 kom áfengi
við sögu. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Áfengis-
vamaráði. Þar kemur fram að ails
hafi 95 dauðsföll komið til réttar-
efnalræðilegra rannsókna hjá
Rannsóknastofu Háskóla íslands
í lyfjafræði. Talið var að 13 af
þessum dauðsföllum mætti rekja
til banvænna eitrana einsog fyrr
sagði, og í 9 af þessum dauðsföll-
um kom áfengi við sögu.
Gakktu einatt
eiginslóð...
ITC deildin Melkorka heldur
fund í kvöld kl. 20 í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi. Fundar-
stef „Gakktu einatt eigin slóð,
hálir eru hversmanns vegir".
Meðal efnis ræðudagskrá. Fund-
urinn er öllum opinn. Upplýsing-
ar veitir Guðrún í síma 672860 og
Ólöf í síma 72715.
Gegn stríðsaðstoð
Stuðningsmenn vikublaðsins
The Militant gangast fyrir fúndi í
kvöld sem ber yfirskriftina
„Bandaríkin burt - gegn stríðsað-
stoð“. Fmmmælendur verða Sal-
man Tamim, stjómarmaður í Fé-
laginu Ísland-Palestína og Ottó
Másson, einn af aðstandendum
vikublaðsins Militant. Fundurinn
verður haldinn í húsakynnum
Pathfinder bóksölunnar, Klappar-
stíg 26, 2. hæð.
Hundavinir gegn happ-
drættisvinningi
Hundaræktarfélag íslands
lýsir áhyggjum sínum og von-
brigðum á hugsunarleysi og
smekkleysu þeirri sem kemur
fram í vali vinninga í happdrætti
skátahreyfingarinnar, þar sem 5
hvolpar em hafðir sem vinningar.
I fféttatilkynningu frá félaginu
segir að það sé ömgglega eins-
dæmi í heimi siðaðra manna, að
ábyrgir aðilar sýni slíka lítilsvirð-
ingu fyrir lifandi dýrum, að fram-
selja þau á þennan hátt, þar sem
tilviljun ein ræður lífsmöguleik-
um þeirra. „Skátahreyfingin getur
á engan hátt ábyrgst að hvolpam-
ir lendi hjá aðilum sem hafa að-
stæður og getu til að annast þá.
Með þessu fordæmi er skáta-
hreyfingin að ýta undir ábyrgðar-
leysi, okurstarfsemi og hunda-
prang.“ Síðan skorar Hundarækt-
arfélagið á skátahreyfinguna að
viðurkenna og leiðrétta mistök
sín. Einnig er skorað á yfirvöld að
sjá til þess að fyrmefndir vinning-
are verði dregnir til baka og að
fyrirbyggja að lifandi vemr séu
meðhöndlaðar af slíku skeyting-
arleysi ffamvegis.
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 10. október 1990