Þjóðviljinn - 10.10.1990, Blaðsíða 11
I DAG
LESANEN VIKUNNAR
Antkés Haróarson
bæjarbókavörður
Mynd: Kristinn
Hvað ertu að gera núna?
Ég reyni sem forstöðumaður
Bókasafns Kópavogs að sjá um
að hlutimir gangi stórslysalaust
fyrir sig þar á bæ. Vetrarstarfið
er rétt að byija sem þýðir t.d. að
það er opið á laugardögum,
sögustundir fyrir böm eru að
hefjast, og í því sambandi feng-
um við þá hugmynd að hafa afa-
og ömmustundir þar sem þeir
sem sestir em í helgan stein
kæmu hingað á safnið og segðu
bömunum sögur. Krakkar hafa
gífurlega þörf fyrir að þeim séu
sagðar sögur, en kjamafjöl-
skyldan er í flestum tilfellum
svo ung að afar og ömmur em
ennþá úti á vinnumarkaðnum og
sögulestur er eitt af því sem böm
í dag fara á mis við. Þetta væri
lítill liður í því að endurvekja
tengsl milli kynslóðanna. Hér
starfar líka frístundahópurinn
Hana-nú, sem er ætlað að vera
mjúk lending inn í ellina. Þetta
er eins konar æfing í að verða
gamall, þeir sem em óvanir því
að taka þátt í tómstundastarfi
geta eiginlega æft sig í því með
því að vera með í hópnum. Þar
Karlfauskur með
þrettán konum
er t.d. bókmenntaklúbbur og svo
verður námskeið í upplestri og
framsögn. Annars hrjáir okkur
plássleysi hér á safninu. Þegar
það var tekið í notkun fyrir tíu
ámm fannst okkur við hafa him-
in höndum tekið, en þetta er
löngu spmngið utan af okkur.
Það mætti vera meiri skilningur
á því hjá hinu opinbera.
Fyrir utan vinnuna þá geri ég
dálítið af því að skrifa og í sum-
ar gaf ég sjálfur út ljóðabók sem
heitir Þríleikur að orðum. Salan
hefur gengið framar öllum von-
um og þetta er meiri háttar
skemmtilegt.
Um helgina var ég viðstadd-
ur vígslu nýrrar altaristöflu f
kirkjunni hér í Kópavogi. Taflan
er eftir Steinunni Þórarinsdóttur
sem er mikill og upprennandi
listamaður. Þetta er glerverk sem
er snjöll hugmynd og vel útfærð.
Ég er viss um að hún á eftir að
verða enn eitt aðdráttarafl fyrir
kirkjuna okkar.
Hvað varstu að gera fyrir
tíu árum?
Ég var mikið að hugsa um
tölvumál þá, því þá var verið að
vinna að tölvuvæðingu safnsins,
sem var fyrsta bókasafnið á
landinu sem fór út í tölvunotkun.
En ég hugsa nú frekar lítið
aftur í tímann, reyni að lifa fyrir
daginn í dag.
Þó man ég stemmninguna
fyrir utan heimili Vigdísar Finn-
bogadóttur við sólaruppkomu
morguninn sem úrslitin lágu fyr-
ir í forsetakosningunum. Það var
gaman að vera með í að veita
Vigdísi brautargengi. Hún hefur
staðið sig með mestu prýði og er
yndislegur forseti og vonandi
njótum við hennar sem lengst.
Hvað gerirðu helst í frí-
stundum?
Ég les svolítið og skrifa og
stunda mikið garðyrkju. Ég á
fallegan garð sem ég hef gaman
af að rækta. Ég er líka með flög í
fóstri, þar sem við reynum að
hefta uppblástur landsins okkar,
það er spennandi verkefni. Suð-
ur á Vogastapa erum við með eitt
flag og svo annað austur í Flóa
alveg niður við sjó þar sem á að
vera ómögulegt að rækta tré. Við
tökum stiklinga heima og setjum
niður fyrir austan. Þetta skal tak-
ast á þijóskunni. Ég á mér líka
ósk um algjörlega óræktaðan
hektara, til dæmis mel, sem ég
gæti girt af og ræktað upp og séð
hvaða gróðri væri hægt að koma
upp.,
Ég fer líka í labbitúra flesta
laugardaga í svona 3-4 tíma. Nú
erum við að ganga um Reykja-
nesið þar sem er mikið af stór-
brotnu landslagi. Fólk leitar
stundum langt yfir skammt þeg-
ar það ætlar að skoða landið.
Við stofnuðum svo Golf-
klúbb Kópavogs hér í sumar og
meðlimir eru orðnir hátt í 150 nú
þegar. Erum að sækja um að fá
golfvöll í austurenda Fossvogs-
dalsins og sjáum fyrir okkur fal-
legasta golfvöll á landinu, þar
sem fer saman náttúruvemd og
manneskjuleg starfsemi.
Hvaða bók ertu að lesa
núna?
Ég les mjög hægt og er yfir-
leitt með nokkrar í takinu í einu.
Ein er ný, mjög opinská og
hreinskilin ævisaga Érics Gills
sem var listamaður; hann hann-
aði letur, skar í tré, gerði högg-
myndir og átti athyglisverða og
forvitnilega ævi. Síðan er ég að
lesa bók Einars Pálssonar um
Egil Skallagrímsson. Ég aðhyll-
ist kenningar Einars og finnst
furðulegt hvað íslendingar eru
sofandi um eigin menningararf.
Eflir að hafa lesið bækur Einars
les ég t.d. Islendingasögumar
með öðm hugarfari en áður. Að
síðustu er ég að lesa nýjustu bók
Umbertos Ecos sem heitir
Foucault’s Pendulum. Hún er at-
hyglisverð svo langt sem ég er
kominn, hann leggur út af tölvu-
tækni í þessari bók sem ætti að
verða forvitnilegur lestur.
Hver er uppáhaldsbarna-
bókin þín?
Harðarsaga og Hólmveija
gæti orðið góð bamabók ef hún
væri gefin út í dag, fallega
myndskreytt, hún yrði þá uppá-
haldsbamabókin mín.
Hvers minnistu helst úr
Biblíunni?
Núna er mér minnisstæðast
þegar Jesús Kristur þvær fætur
lærisveinanna: „Því að ég hef
gefið ykkur eftirdæmi, til þess
að þér breytið eins og ég breytti
við yður“. Nýja altaristaflan
okkar er gerð með þessi orð í
huga.
Er landið okkar varið land
eða hernumið?
Það er náttúrlega hemumið
land. Island úr Nató, herinn burt.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Ég held ég vilji ekki vera
laus við neinn, þetta er allt hluti
af persónu minni, og ef einn eig-
inleiki hyrfi þá yrði ég ekki sá
sem ég er.
Hvaða eiginleika þinn
finnst þér skrítnast að aðrir
kunni ekki að meta?
Ég þarf ekkert að kvarta yf-
ir því að fólk meti ekki eigin-
leika mína. Annað hvort hefur
það ekki vit á slæmum eiginleik-
um mínum eða ekki þor til að
segja frá þeim.
Hver er uppáhaldsmatur-
inn þinn?
Spaghetti með hökkuðu kjöti
eða nýrum. Svo held ég mikið
upp á egg; spæld, soðin, hvemig
sem er.
Hvert langar þig helst til
að ferðast?
Um hálendi Islands; Herðu-
breiðarlindir, ganga á Snæfell og
fara Sprengisand. Einnig vildi
ég ferðast um Vestfirði einhvem
tíma.
Hvaða ferðamáti á best við
Þ'g?
Að fara gangandi.
Hverju viltu breyta í ís-
lensku þjóðfélagi?
Ég vildi óska að öll sú orka
og öll sú umræða sem fer í að
ræða peninga, verðbréf og ál
færi í umræðu um bókmenntir,
listir og menningu. Þá gætum
við t.d. haft skipti á húsnæði
bókasafna og banka. Bókasöíhin
fengju jafn glæsileg og rúmgóð
húsakynni og bankamir em í og
bankamir fengju þessi skot sem
bókasöfnin em í. Hugsaðu þér ef
Borgarbókasafhið í Reykjavík
væri þar sem Seðlabanki íslands
er nú. Þjóðin á fullt af bókum en
enga peninga.
Hvaða spurningu hef ég
gleymt?
Þessari um kvenréttindi.
Hvað viltu segja okkur um
kvenréttindi?
Konur hafa þau forréttindi
að hafa á valdi sínu heill og
hamingju karla jafnt sem kvenna
fyrstu níu mánuði tilveru þeirra,
hvað vilja þær meira? Guðrún
ÞJÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Winston Churchill kosinn for-
maður (haldsflokksins. Loft-
árásir á Berlín og London
halda áfram. Japanir hertaka
eyju við Kína er Bretar höfðu á
leigu. Slítur Bretland stjóm-
málasambandi við Rúmeníu?
Leiðtogar brezkra sósíaldemó-
krata „stoltir af því að vera við
völd,“ segir Bevin. Emest Be-
vin verkamálaráðherra skorar
á þing Verkalýðssambandsins
að stuðla að eflingu hergagna-
framleiðslu.
10. október
miðvikudagur. 283. dagur árs-
ins. Sólarupprás í Reykjavík
kl. 8.02 - sólartag kl. 18.26.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Fijieyja.
Guðmundur Hagalín rithöfund-
urfæddur 1898. Verkalýðsfé-
lag Sandgerðis stofhað 1929.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búöa vikuna 5. til 11. október er I
Laugamess Apóteki og Arbaejar Apóteki.
Fyrmefnda apótekið er opið um hielgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á fridögum). Síöamefnda apó-
tekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam-
hliöa hinu fyrmefrida.
LOGGAN
Reykjavik.......................« 1 11 66
Kópavogur.......................« 4 12 00
Seltjamames................ .« 1 84 55
Hafnarijörður...................« 5 11 66
Garðabær.....................« 511 66
Akureyri........................* 2 32 22
Slökkviöð og sjúkrabðar
Reykjavík...................® 1 11 00
Kópavogur...................« 1 11 00
Seltjamames.................« 1 11 00
Hafnarfjörður...............« 5 11 00
Garðabær....................* 511 00
Akureyri....................* 2 22 22
L4EKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er í Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arriringinn. Viljanabeiðnir, slmaráðlegg-
ingar og tlmapantanir I« 21230. Upplýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru
gefnar i simsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild
Borgaispítalans er opin allan sólarhring-
inn, w 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan,
w 53722. Næturvakt lækna, tr 51100.
Garöabær: Heilsugæslan GaröaflöL
« 656066, upplýsingar um vaktlæk
«51100.
Akureyri: Dagvakt ffá kl 8 til 17 á Lækna-
miðstöðinni, « 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis ffá kl 17 til 8 985-23221
(farsími).
Keffavik: Dagvakt, upplýsingar I
«14000.
Vestmannaeyjar: Neyðan/akt lækna,
«11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar. Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæölngardeild Landspitalans: Alla
daga kl. 15 til 16, feðratími kl. 19:30 til
20:30. Fæöingarheimili Reykjavikur
v/Eiriksgötu: Almennur tími kl. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla
daga. Öldmnariækningadeild Land-
spítalarrs, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgar ki. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stööin viö Barónsstig: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19:30. Landakotssprtali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra kl. 16 til 17 alla daga. St Jósefs-
spítali Hafnarfiröi: Aila daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla
dagakl 15 til 16 og 18:30 til 19.Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla dagakl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fyrir
unglirrga, Tjamargötu 35,« 91-622266,
opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga- og
ráðgjafarslma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21
til 23. Slmsvari á öðrum tlmum.
« 91-28539.
Sálfræðlstöðin: Ráðgjöf I sálfræðilegum
efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt I síma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Alandi 13: Opið virka daga
ffá kl. 8 til 17, « 91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúklinga
og aðstandendur þeirra I Skógarhlfö 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aðstandendur þeirra I« 91-22400 og þar
er svaraö alla virka daga.
Upplýsingar um eyöni:« 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræð-
ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars
sfmsvari.
Samtök um kvennaathvarf:« 91-
21205, húsaskjól og aöstoð við konur
sem beittar hara verið ofbeldi eða oröið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opið þriðjudaga Id. 20 til 22,
fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til
22,« 91-21500, sfmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifiaspellum:« 91-21500, slmsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fýrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræösla, upplýsingar, Vesturgötu
3, « 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
« 686230.
Rafveita Hafnarfiarðar. BilanavakL
« 652936.
GENGHE)
9. október 1990 Sala
Bandarikjadollar.............55,16000
Sterlingspund...............109,10600
Kanadadollar.................47,95500
Dönsk króna...................9,48500
Norsk króna...................9,35390
Sænsk króna...................9,80800
Finnskt mark.................15,30100
Franskur franki..............10,80360
Belgískurfranki.............. 1,75860
Svissneskur franki...........43,26270
Hollenskt gytlini............32,09120
Vesturþýskt mark..............36,17050
Itölsk llra...................0,04824
Austumskur sch................5,14220
Portúgalskur escudo.......... 0,40960
Spánskur peseti...............0,57580
Japansktjen...................0,42366
Irskt pund...................97,22600
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 skökk4súg6
málmur 7 dvöl 9 eirðar-
Ieysi12bæltir14svelg-
ur15utan16rifa19
dreitill20nudda21
starf
Lóðrétt: 2 fljóti 3 hæfni
4 vaxa 5 þannig 7 hóf 8
dæld10hreinlegt11
mjaðmir 13mánuður
17hjálp18eira
Lausnásiðustu
krossgátu
Lárétt: 1 svif 4 börn 6 ill
7fast9óttu12klóka14
Iúa15kóp16frami19
dáti20ösla21 stórt
Lóðrétt:2vía3fitl4
blók 5 rot 7 felldi 8
skafts10takist11 upp-
Iag13óra17rit18mör
Miövikudagur 10. október 1990 ÞJÖÐVIUINN — SÍÐA11