Þjóðviljinn - 30.10.1990, Side 4

Þjóðviljinn - 30.10.1990, Side 4
ÞJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar KLIPPT OG SKORIÐ Stefnuskrá Alþýðu- bandalagsins Aðalfundur miðstjórnar Alþýðubandalagsins var haldinn um síðustu helgi og sætti nokkrum tíðindum. Merkust þessara tíðinda og þau sem vafalaust verður lengst eftir tekið er samþykkt um að fella úr gildi hina op- inberu stefnuskrá flokksins, sem samþykkt var haustið 1974. Stefnuskrár eiga fyrst og fremst að skýra afstöðu flokka til þeirra grundvallaratriða sem stjórnmálin fjalla um, jafnt til innlendra sem erlendra málefna. Þær eru aftur á móti sjaldnast til daglegrar umfjöllunar í flokks- starfi og í tímans rás breytist umhverfið sem flokkarnir starfa í, þótt ekki sé af annarri ástæðu en þeirri að sumt af því sem heyrði framtíöinni til þegar stefnuskrá var samþykkt er veruleiki dagsins í dag. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins er afurð síns tíma og samin í Ijósi aðstæðna eins og þær voru fyrir hálfum öðr- um áratug. Margt hefur breyst. Alþýðubandalagið hefur setið í ríkisstjórnum, tekið virkan þátt í stjórnun sveitar- félaga og flokksfélagar hafa látið að sér kveða í starfi verkalýðssamtakanna. Þannig hefur flokkurinn og flokksmenn lagt fram þýðingarmikinn skerf til þjóðfé- lagsþróunarinnar og reist starf sitt á þeim grundvallarat- riðum sem flokkurinn byggir á og staðfest voru í stefnu- skrá. Hugmyndir manna um þann sósíalisma sem leyst gæti allan vanda hafa skiljanlega breyst. íslenskir sósí- alistar og vinstri menn hafa aldrei verið bundnir af einni formúlu um það þjóðfélag sem þeir vildu skapa. Þeir hafa allar götur frá því á dögum Nýsköpunarstjórnarinn- ar, sem tók við völdum haustið 1944, beitt sér fyrir hag- nýtum lausnum á vandamálum samtímans, og jafnan sneitt hjá þeim blindgötum sem oftrú á fræðikenningar getur leitt menn í. Nýsköpunarstjórnina mynduðu Sjálf- stæðisflokkur, Alþýðuflokkur og Sósíalistaflokkur. í vinstri stjórninni frá 1956-1958 sátu fulltrúar Framsókn- arflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Frá 1971- 1974 voru Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna saman í ríkisstjórn og síðan hefur Alþýðubandalagið átt aðild að ríkisstjórnum með öllum flokkum nema Kvennalistanum og Bandalagi jafnaðarmanna. Þær þrjár ríkisstjórnir sem hér eru sérstaklega til- greindar hafa hver með sínum hætti haft mikil og varan- leg áhrif. Nýsköpunarstjórnin lagði grunninn að nútíma atvinnulífi með kaupum á fjölda nýtísku togara og hún hugsaði meira um að dreifa þeim um landið en hverjir yrðu hinir formlegu eigendur. Á tímum hennar voru sett fræðslulög sem urðu hornsteinn skólastarfs í landinu í áratugi. Fyrri vinstri stjórnarinnar verður minnst fyrir upphafið að nýrri stórsókn í landhelgismálum, það var hennar verk að færa landhelgina út í 12 mílur og hin næsta braut múrinn fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögu með útfærslu í 50 mílur. Hún lagði jafnframt grunninn að ný- skipan í heilbrigðis- og tryggingamálum og fyrir hennar tilverknað hófst skuttogaraöld á íslandi. Á miðstjórnarfundi var samþykkt því nær samhljóða að fella stefnuskrána frá 1974 úr gildi. Ný stefnuskrá mun verða til á næstu misserum og taka til þeirra grund- vallaratriða sem varða sjálfa tilvist flokksins, hún á að vísa veginn inn í framtíðina og létta þannig verkin í þeirri glímu sem aldrei verður lokið: að efla sjálfstætt þjóðríki á íslandi sem byggir á lýðræði og efnahagslegum, fé- lagslegum og menningarlegum jöfnuði. hágé. Hvað sem annars má um prófkjör segja skila þau ekki mikiili fjölbreytni... Góð prófkjör og vond Svo voru það prófkjörin. Það er ekki úr vegi að minna á það að fyrir nokkrum ár- um sameinuðust Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur um þá kenningu, að prófkjör og helst op- in væru upphaf lýð- ræðis. Allir þeir sem einhverja fyrirvara höfðu á þeirri aðferð við að setja saman framboðslista voru stjómlyndir, íhalds- samir forræðis- hyggjumenn og gott ef ekki laumustalín- istar. Svo líður ffam tíminn og það renna á menn ýmsar grím- ur. Til dæmis höfðu Sjálfstæðismenn hér í Reykjavík ekki prófkjör fyrir borg- arstjórnarkosning- amar í vor. Þá höm- uðust Alþýðu- flokksmenn mjög á því, að þar fæm flokkseigendur, fjandsamlegir lýð- ræði, eitthvað annað væri nú Nýr vett- vangur með galopið prófkjör. Svo líða fáeinir mánuðir og dæmið snýst við. Það em Sjálfstæðismenn sem efna til prófkjörs, en Alþýðuflokksmenn em búnir að snúa við blaði eins og dæmi úr Reykjaneskjördæmi sanna: Þar er ekki boðið upp á að menn hlynntir flokknum kjósi um það hvort þeir vilja hafa iðnaðar- ráðherra eða bæjarstjórann í Hafnarfirði sér til oddvita - með þeirri röksemd að þau læti gætu skaðað flokkinn. Þaö sem hentar hverju sinni Og hefði því einhvemtíma verið haldið fram, að hér væri verið að fóma lýðræðinu fyrir flokkshagsmunina. En það gera menn ekki lengur. Það er búið að hafna bæði hjátrú og vantrú á prófkjömm í íslenskri pólitík (eins og flestum öðmm skoðun- um). Allir vita að það er flokks- forystan á hveijum stað sem ræð- ur því hvort prófkjör er haft eða ekki, og ákvörðunin fer eftir því hvað talið er hagstætt þeim sem mestu ráða. Hinsvegar em menn ekki búnir að venja sig af því enn að þenja sig niður i rass í hvert skipti með stórum fúllyrðingum um það, að það sem ákveðið er á hveijum tíma sé lýðræðið besta og sannasta. Einlít hjörð En hvað um það: er hægt að draga nokkrar ályktanir af próf- kjömnum? Eldci er það neitt sem heitið getur. Úrslitin hér í Reykja- vík sýna helst þetta hér: í fyrsta lagi að prófkjör em undarlega óhagstæð konum og þeirra ffam- gangi í pólitík (sömu sögu er að segja af prófkjörum úti á landi). í öðm lagi dugir prófkjör hér i Reykjavík vel til þess að koma þeim að sem koma skal að (Davíð og Bimi), en það dugir ekki til að efla þá ímynd Sjálfstæðisflokks- ins að hann sé allsheijarsamnefn- ari fyrir flesta hópa samfélagsins. Listinn verður í raun fúrðu einlit- ur og einhæfur, af honum er feiknasterkur lögfiræðilegur flokkseigendakeimur, sem gæti reynst kjósendum erfiður í maga - ef öðmvísi stæði á. Góður, betri, bestur Morgunblaðsmenn em, eins og allir vita, geffiir fyrir að láta sem þeim komi Sjálfstæðisflokk- urinn ekki sérlega mikið við. Nema hvað: þegar prófkjörsslag- ur stendur í þeim flokki þá verður blað allra landsmanna nær ólæsi- legt fyrir sakir lofgreina um hina og þessa Sjálfstæðismenn sem vilja sýna þegnskap og fóma sér til starfa á Alþingi. Sú lesning (ásamt með aug- lýsingum) er reyndar einkenni- lega náttúmlaus. Stundum finnst manni að allar greinamar séu um sama manninn (eða konuna): þann sem er einarður baráttumað- ur Sjálfstæðisstefnunnar, sem vill bæta hag bama og kvenna, aldr- aðra og fyrirtækja, semja upp á flott kjör við Evrópubandalagið, að því ógleymdu að öll munu þingmannsefnin efla „traust at- vinnulíf á gmndvelli einkaffam- taksins“. Satt best að segja minnir þessi greinasyrpa einna helst á umræð- ur um sovéskar bókmenntir seint á dögum Stalíns. Þá var búið að slá því fóstu að ekki gæti lengur verið um árekstra að ræða í sov- éskum skáldskap milli góðs og ills, hetju og þijóts, vegna þess hve samfélagið væri gott og fólk- ið þar með. Einu andstæðumar sem eftir væri að lýsa væm þær sem skapast á milli góðra manna og enn betri manna. Prófkjörið í Sjálfstæðisflokknum er einmitt þannig: Það er milli ágætra ein- staklinga og enn betri í þessum góða heimi sem væri enn betri ef allir hefðu vit á að vera Sjálfstæð- ismenn. Síldarraunir Vendum okkar kvæði í kross: Morgunblaðið skrifaði á dögun- um leiðara um „hmn á sovéska síldarmarkaðinum“. En eins og menn vita hefúr það nú ffam komið sem sjá mátti fyrir: að af- nám miðstýringar í sovéskum ut- anríkisviðskiptum kippti fótum undan mörgu í viðskiptum íslend- inga við Sovétríkin. Þar við bætist svo efnahagskreppa mikil og gjaldeyrisvandræði. Morgunblað- ið segir reyndar: ,,Af hruni sovéska hagkerfis- ins leiðir, að þar er ekki lengur til neinn gjaldeyrir, jafnvel ekki fyr- ir nauðþurftum eins og sild og fiski.“ Og telur blaðið það helst til ráða að leita samninga t.d. um síldarsölu við einstök lýðveldi en ekki Sovétríkin sjálf. Þetta er því miður óraunsætt tal. „Síld og fiskur" (skemmtilegt annars að Islendingar vilja ekki telja síldina með fiski) em ekki „nauðþurftir“ í Sovétrikjunum. Ekki í þeim skilningi að þar detti mönnum í hug að bæta úr mat- vælaskorti með innflutningi á ís- lenskum fiskafurðum, sem era náttúrlega miklu dýrari en t.d. matvæli sem kaupa mætti fyrir slikk úr offfamleiðslubirgðum Evrópubandalagsins. Altént er það ljóst, að hvort sem það em Sovétríkin sem heild eða einstök lýðveldi sem glíma við mikinn gjaldeyrisskort, þá munu þau í innkaupum láta flest annað koma á undan síld meðan hann er við lýði. Þetta verðum við víst að horfast i augu við. AB ÞJÓÐVIUINN Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aðrir blaðamenn: Bergdls Ellertsdótfir, Dagur Þorieifsson, Elías Mar (pr.), Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Nanna Sigurdórsdóir, Ólafur Glslason, Þröstur Haraldsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson. Auglýsingar: Sigríður Sigurðardóttir, Svanheiður Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gísladóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir. Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrifstofa, afgreiösla, ritstjóm, auglýsingar: Síðumúla 37, Rvík. Sími: 681333. Símfax: 681935. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiöja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblaö: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. október 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.