Þjóðviljinn - 30.10.1990, Blaðsíða 11
I DAG
Furðuleg yfirsjón Kasparovs
og Karpov jafnaði metin
Allt stefnir í enn eitt æsilegt
einvígi þeirra erkiijenda Kar-
povs og Kasparovs. Sl. laugar-
dag tilkynnti Garri Kasparov um
uppgjöf sína í sjöundu skákinni
sem farið hafði í bið á fostudags-
kvöldið. Þar með vann Karpov
sinn fyrsta sigur í einvíginu og
sló raunar tvær flugur í einu
höggi því hann jaftiaði einnig
stöðuna. I síðustu skákum hefur
Karpov verið mjög að sækja í
sig veðrið og getur litið vonglað-
ur til framhaldsins, einkum þeg-
ar horft er til þess að Kasparov
hefur a.m.k. enn náð að standa
við stóru orðin þess efnis, að
hann myndi nú ganga frá Kar-
pov í eitt skipti fyrir öll.
Þeir félagar tefla áttundu
skákina í kvöld og nótt og stýrir
Kasparov þá hvítu mönnunum.
Má búast við harðvítugri bar-
áttu, en þetta einvígi hefur glatt
skákunnendur um allan heim því
„vopnaviðskiptin“ hafa verið af-
ar fjörleg og varla nema ein skák
sem getur talist leiðinleg, sú
fimmta. Lítum á viðureign
fostudagsins. Karpov virðist
hafa fundið haldgóða leið gegn
kóngsindversku vöminni og
þyrfti ekki að koma á óvart þó
Kasparov þyrfti að leita á náðir
annarra byijana, s.s. Grúnfelds-
vamarinnar sem margoft hefur
komið fyrir i skákum þeirra.
7. einvígisskák:
Anatoly Karpov
- Garri Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4 g6
3. Rc3 Bg7
4. e4 d6
5. RD 0-0
6. Be2 e5
7. Be3
(Karpov er staðfastur í byij-
anavali og hefur ásamt aðalað-
stoðarmanni sínum, ungverska
stórmeistaranum Lajos Portisch,
fundið ýmsar glufur á með-
höndlun Kasparovs á kóngsind-
versku vöminni.)
7... Ra6
8. 0-0 Rg4
(Breytir út af taflmennsk-
unni í fimmtu skákinni þar sem
leikið var 8. .. c6.)
9. Bg5 f6
10. Bcl Kh8
11. h3 Rh6
12. dxe5 fxe5
13. Be3 Rf7
14. Dd2 Rc5
15. Rg5 Rxg5
16. Bxg5 Bf6
17. Be3 Re6
18. Bg4!
(Djúphugsaður leikur sem
opinberar ýmsa annmarka í
stöðu svarts. Ef nú 18. .. Rd4 þá
19. Bxc8 ásamt 20. Bxd4 og 21.
Rb5 með peðsvinningi.)
18.. . h5
19. Bxe6 Bxe6
20. Rd5
(Karpov á vitaskuld jafntefli
með 20. Bxa7 Hxa7 21. Dh6t
o.s.frv. en það er eftir meim að
slægjast í þessari stöðu.)
20.. . Bh4
21. Hacl
(Ekki 21. Bxa7 Bxd5! og
hvítur verður að sætta sig við
jafntefli. I fyrsta sinn í einvíginu
hefúr Karpov náð upp stöðu þar
sem hann getur teflt til vinnings,
án þess að taka nokkra raunveru-
lega áhættu.)
21.. . Kh7
22. Hc3 Hf7
23. b3 c6
24. Rb4 Hd7
25. Hccl Bf6
26. f4!
(„Kasparov er geysilega
hættulegur þegar hann hefúr
fmmkvæðið, en þurfi hann að
veijast missir hann þolinmæðina
og gerir sig þá oft sekan um af-
drifarík mistök," sagði Karpov í
viðtali við Der Spiegel fyrir ein-
vígið. í þessari skák a.m.k. reyn-
ast þetta áhrínsorð.)
26.. . exf4
27. Bxf4 Da5??
(Einn magnaðasti af-
leikur Kasparovs í viður-
eignum sínum við Karpov.
Eftir 27. .. Dh8 er svarta
Helgi
Óiafsson
staðan dálítið losaraleg, og
vissulega verður hann að tefla
vömina af mikilli nákvæmni og
hörku til að veijast atlögum Kar-
povs. En eftir 27... Da5 er staða
hans nær vonlaus.)
28. Rd5! Dc5+
29. Khl!
(29. Be3 kom einnig til
greina og gefur hvítum þokkaleg
vinningsfæri eftir 29. .. Bg5 -
eini leikurinn - 30. Rf6t Kg7
31. Bxc5 Bxd2 31. Bd4! (en
ekki 31. Rxd7 dxc5 32. 33.
Hcdl Be3t 34. Khl Bd4 og
svartur er sloppinn) c5 32.
Hcdl! cxd4 33. Hxd2 Hf7 33.
Rd5 Bxd5 34. exd5 o.s.frv.)
29... Bxd5
30. cxd5 Dd4
31. dxc6 bxc6
32. Hxc6 He8
33. Hc4
(Úrvinnslan er tæknilegt at-
riði og í þeirri deild á Karpov
varla nokkum jafnoka.)
33... Dxd2
34. Bxd2 Be5
35. Be3 Bg3
36. HD h4
37. BD Bxf2
38. Hxf2 Hde7
39. Hf4 g5
40. Hf6 Hxe4
41. Hxe4 Hxe4
42. Hxd6 He7
43. Ha6 Kg7
a b c d e f g h
- í þessari stöðu fór skákin í
bið, en Kasparov gafst upp án
frekari taflmennsku. Með því að
bæta stöðu kóngsins og koma
peðunum á drottningarvæng á
skrið vinnur hvítur taflið auð-
veldlega.
STAÐAN:
Kasparov 3 1/2
Karpov 3 1/2
ÞJÓÐVIUINN
fyrir 50 Arum 30. október
Einkunnarorð Alþýðublaðsins:
Aldrei að víkja frá hinum brezka
málstað. En hversvegna? Grikk-
ir segja að Itölum hafi ekkert
orðið ágengt fyrsta sólarhring-
inn. Italska herstjómin telur að
illviðri hamli hernaðaraðgerðum.
Ætlar íslenzka yfirstéttin að
verða fjandsamlegri fslenzkum
verkamönnum en eriendur inn-
rásarher?
þriðjudagur. 303. dagur ársins.
Sólarupprás f Reykjavík kl. 9.03
- sólariag kl. 17.18.
Viðburðir
Þjóöviljinn hefur göngu sína
undir forystu Skúla Thorodd-
sens árið 1886.
DAGBÓK
APOTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 26. október
til 1. nóvember I Holts Apoteki og
Laugavegs Apoteki
Fyrmefnda apótekiö er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frídögum). Siðarnefnda
apótekiö er opiö á kvöldin kl. 18 til 22
virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22
samhliöa hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavík « 1 11 66 tr 4 12 00
tr 1 84 55
Hafnarfjörður. « 5 11 66
« 5 11 66
Akureyri « 2 32 22
Slökkvlið og sjúkrabílar
Reykjavík « 1 11 00
Kópavogur. « 1 11 00
Seltjamames « 1 11 00
Hafnartjörður. « 5 11 00
Garðabær. « 5 11 00
Akureyri.....................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er I Heilsuverndar-
stöö Reykjavlkur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiönir,
simaráðleggingar og tlmapantanir I
rr 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar f slmsvara
18888. Borgarspitallnn: Vakt virka
daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans.
Landspítalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspít-
alans er opin allan sólarhringinn,
tr 696600.
Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, « 53722. Næturvakt lækna,
« 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöt,
« 656066, upplýsingar um vaktlækni
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstööinni,« 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farslmi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar f
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
«11966. ^
SJUKRAHUS
Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20...irii.
Borgar-spitalinn: Virka daga kl. 18:30
til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæöingardeild Land-
spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra-
tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimili Reykjavikur v/Eiríksgötu: Al-
mennur tími kl. 15-16 alla daga, feöra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlæknlngadeild Landspítal-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin viö Barónsstíg: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla dagakl. 15:30 til 16 og 19 tii 19:30.
Sjúkrahúsiö Húsavík: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyöarathvarf
fyrir unglinga, Tjamargötu 35,
« 91-622266, opiö allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svaraö er I upplýsinga-
og ráögjafarsíma félags lesbla og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öörum
timum. « 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráögjöf í sálfræði-
legum efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaöstoð Orators, félags
laganema, er veitt I slma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Álandi 13: Opið virka daga
frákl. 8 til 17, «91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbamelnssjúk-
linga og aðstandendur þeirra I Skóg-
arhlíö 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styöja smitaöa og
sjúka og aðstandendur þeirra í« 91-
22400 og þar er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyöni: « 91-622280,
beint samband viö lækni/hjúkrunar-
fræöing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aðstoð viö konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðiö
fyrir nauögun.
Kvennaráðgjöfin Hlaövarpanum,
Vestur-götu 3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröiö
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
símsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miöstöð fyrir konur og böm
sem orðiö hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráögjöf, fræösla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i
« 686230.
Rafveita Hafnarfjaröar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
29. október 1990 Sala
Bandarikjadollar............54,94000
Sterlingspund.............107,33900
Kanadadollar................47,20900
Dönsk króna..................9,52990
Norsk króna..................9,35150
Sænsk króna..................9,80110
Finnskt mark................15,26750
Franskur franki.............10,85990
Belgískurfranki............. 1,76640
Svissneskur franki..........42,86720
Hollenskt gyllini...........32,16580
Vesturþýskt mark............36,25410
Itölsk lira..................0,04854
Austurrískur sch.............5,16840
Portúgalskur escudo......... 0,41290
Spánskur peseti..............0,58040
Japanskt jen.................0,43035
Irskt pund..................97,26500
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 þrár 4 dund 6
hratt 7 ritfæri 9 rikuleg
12 spjald 14 ellegar 15
ýtni 16 græða 19
hreinn 20 kvæöi 21 lán
Lóðrétt: 2 blaut 3 lelk-
tæki 4 sæti 5 fönn 7
nom 8 land 10 glataða
11 manns 13 hest 17
heiður 18 eyktamark
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 gild 4 skör 6
upp 7 vagn 9 odda 12
eigra 14 tlð 15 púl 16
uglur 19 rugl 20 naut
21 tæpir
Lóðrótt: 2 löa 3 duni 4
spor 5 ötd 7 viturs 8
geðugt 10daprar 11
atlæti 13 gól 17glæ 18
uni
Þriðjudagur 30. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11