Þjóðviljinn - 30.10.1990, Side 7

Þjóðviljinn - 30.10.1990, Side 7
MIÐSTJORNARFUNDUR ALÞYÐUBANDALAGSINS Stiórnmálaályktun Kvótaleiga er möguleiki Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins: Arangur í GATT viðræðum þjónar hagsmunum íslendinga. Töluverð áhætta í orkusölusamningi við Atlantsál. Aðild að EB kemur ekki til greina Amiðstjórnarfundi Alþýðu- bandalagsins um síðustu helgi var samþykkt umfangs- mikil stjórnmálaáiyktun. í upp- hafi hennar er farið yfir árang- urinn af stjórnarsamstarfinu, þar sem ma. hefði tekist að koma verðbólgunni á svipað eða lægra stig en í nágranna- löndunum, viðskiptahalli lækk- aður verulega og bæði nafn- vextir og raunvextir hefðu lækkað. I kaflanum um sjávarútvegs- mál segir að mikilvægast sé að auka arðsemi í greininni, lækka tilkostnað og treysta undirstöðu greinarinnar til frambúðar. Mið- stjómarfundurinn áréttar að fiski- miðin séu sameign allrar þjóðar- innar. Fundurinn telji að skoða eigi tillögur um kvótaleigu, í tengslum við þá stefnu Alþýðu- bandalagsins að byggðarlög ráð- stafi kvótanum. Fyrsta skrefið í þá átt að fiskur af Islandsmiðum verði seldur á íslenskum markaði í stað erlendra, sé að koma á fót fjarskipta- og gólfmörkuðum sem viðast um landið. Erlendum fiski- skipum verði einnig heimilað að selja fisk á íslenskum mörkuðum og kaupa þjónustu á Islandi. Varðandi stefnuna í landbún- aðarmálum segir í stjómmála- ályktuninni, að smáskammta- lækningar fyrri ára hafi ekki skil- að viðunandi árangri. Brýnt sé að endrskoða búvömlögin, þannig að hefðbundin landbúnaðarfram- leiðsla mótist af matvælamarkaði innanlands. Eitt mikilvægasta verkefnið sé að koma á svæða- skipulagi á næstu ámm, samfara aðlögun að markaðanum. Ekki sé skynsamlegt að gera ráð fyrir inn- flutningi á hefðbundnum land- búnaðarvörum á næstu árum, en breyta eigi framleiðslustyrkjum í td. byggðastyrki og veita aðhald með hægu afnámi útflutningsuppbóta. Þá beri að styrkja nýbreytni, meðal annars í ferðamannaþjónustu, skórækt og fleira. Miðstjómarfundurinn segir algert grundvallaratriði fyrir breytingar í atvinnuvegum og heilbrigða byggðaþróun að halda áffam af þrótti samgöngubótum sem hafnar em. Bundið slitlag eigi að koma á alla helstu vegi og Myndatexti: Margar og heitar ræður vom fluttar á miðstjómarfundinum. Flestir vom þó sennilega sammáia um að ræða séra Baldurs Vilhelmssonar hafi verið sú skemmtilegasta, þar sem hann fór yfir tilvist hreyfingarinn- ar í nútlð og framtfð, og lagði meðal annars til að hafin yrði kengúmrækt I landinu og menn hættu að rækta re- finn í eigin brjósti. Mynd: -hmp halda verði áffam endumýjun flugvallanetsins. Fundurinn fagn- ar tækni sem gert hefur kleift að ráðast í gerð jarðganga og bygg- ingu brúa, sem í einu vetfangi hafi sett afskekktar byggðir í þjóðbraut og opnað nýjar leiðir í atvinnumálum. Stórframkvæmd- um í samgöngumálum verði að fylgja almenn byggðaáætlun. Hagvöxtur og lífskjarabati ffamtíðarinnar byggir óneitanlega á nýtingu fallvatnanna eins og fiskstofnanna, að áliti miðstjóm- arinnar. Orkusala til erlendra stór- iðjufyrirtækja komi til greina að uppfýlltum skilyrðum um hagnað af raforkusölu, mengunarvamir og íslenska lögsögu. Þó beri að leggja áherslu á ímynd landsins sem matvælaframleiðslulands og gæta ítmstu varkámi við samn- inga um stofnun stórfyrirtækja. I stjómmálaályktuninni er vikið að yfirstandandi samning- um við Atlantsál. Skattasamning- urinn er sagður mikilvægur áfangi og sigur í rúmlega 20 ára baráttu flokksins. Hins vegar sé ljóst að töluverð áhætta felist í drögum að orkusölusamningi og leita verði leiða til að draga úr henni með ákvæðum um lág- marksverð og rétt til endurskoð- unar samnings. Þá telur fundurinn einnig koma til greina að stofna sérstakt áhættufyrirtæki utan um orkusöluna. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóm í stjómmálaályktuninni. í henni er að auki ma. fjallað um lífskjör, mennta- og menningar- mál og byggðaþróun, þar sem sagt er nauðsynlegt að styrkja byggðakjama vítt um landið. Styrkjaþurfi samráð og samstarf í einstökum hémðum, td. með sameiningu sveitarfélaga. í kafianum um ísland og um- heiminn segir að mikilvægt sé að kerfi ffíverslunar í alþjóðavið- skiptum nái að þróast og dafna og árangur í GATT viðræðunum þjóni hagsmunum íslendinga. Þá sé mikilvægt að fá tollfrjálsan að- gang að mörkuðum EB og lækk- un styrkja fiskvinnslu í aðildar- löndunum sé mikilvægur. Mið- stjómin telur að stefna Alþýðu- bandalagsins um að sækja ekki um aðild að EB, sé enn i fullu gildi, þar sem hún feli í sér ffam- sal á hluta af stjómarfarslegu full- veldi þjóðarinnar og opni náttúm- auðlindir fyrir ágangi erlendra auðfélaga. -hmp Ólafur Ragnar Grímsson Breytingatímar gefa tækifæri r Olafur Ragnar Grímsson: Endurskoða þarf markmið flokksins í Ijósi breytinga í heiminum. Hægri hluti Alþýðuflokksins óhæfur til forystu fyrir jafnaðarmönnum Aaðalfundi miðstjórnar Al- þýðubandalagsins á Akur- eyri um síðustu helgi ríkti meiri sátta- og samstarfsvilji en oft áður innan flokksins. í fram- söguræðu sinni við upphaf stjórnmálaumræðna á fostu- dag, sagði Ólafur Ragnar Grímsson formaður flokksins, þau tvö ár sem liðin væru frá síðasta aðalfundi hafa verið áhrifamikil. Endurskoða þyrfti markmið flokksins í Ijósi þeirra miklu breytinga sem átt hefðu sér stað í heiminum. Það væri mikilvægt fyrir stjórnmála- flokk að hafa dug til að fara yf- ir þessa þróun og skoða hvað væri mikilvægast fyrir framtíð- ina. í komandi kosningum koma kjósendur til með að spyija sig hverjir eru líklegastir til að veija þann árangur sem náðst hefur í Miðstiórnarfundur Stefnuskráin ómerk r Alyktað um að yngja á framboðslistum flokksins MMiðstjórnarfundur AI- þýðubandalagsins sem haldinn var á Akureyri um síð- ustu helgi, samþykkti ályktun þar sem segir að flokkurinn muni ekki taka mið af stefnu- skrá flokksins frá 1974 í kom- andi kosningum. Runólfur Agústsson lagði fyrst fram tillögu þar sem sagði að „miðstjóm Aðþýðubandalagsins Iýsti því yfir að flokkurinn tæki ekki lengur mið af stefnuskrá sinni, samþykktri á landsfundi 1974. Teldist hún því úr gildi fall- in“. Miðstjómarfulltrúar vom al- mennt sammála málfiutningi Runólfs um að margt í stefnu- skránni samrýmdist ekki sam- þykktum flokksins og hefði ekki staðist tímans tönn. Hjörleifur Guttormsson var hins einn þeirra sem sagðist þó telja að margt í stefnuskránni væri enn í fullu gildi,. Olafur Ragnar Grimsson for- maður flokksins lagði siðan fram málamiðlunartillögu á sunnudag, sem var samþykkt samhljóða. „Miðstjóm Alþýðubandalagsins áréttar að á landsfundinum 1989 vom lögð fram drög að nýrri stefnuskrá flokksins, sem ber heitið „Lýðræði og Jöfnuður“,“ segir í ályktun Olafs Ragnars. Þessi nýja stefhuskrá væri nú til umfjöllunar í flokksfélögum og yrðu lögð fyrir næsta landsfund. „Miðstjómin lýsir þess vegna yfir að í komandi kosningum mun flokkurinn ekki taka mið af stefhuskránni frá 1974, enda hef- ur Alþýðubandalagið i áraraðir byggt störf sín og stefnuáherslur á samþykktum landsfunda og ann- arra stofnana flokksins, sem í reynd hafa komið í stað skjalsins frá 1974,“ segir í ályktuninni. Þá var einnig samþykkt álykt- un um endurnýjun í efstu sætum ffamboðslista fyrir næstu kosn- ingar. Þar skorar miðstjómin á kjördæmisráð flokksins að beita sér fyrir sem mestri endumýjun við röðun í efstu sæti á framboðs- listum flokksins fyrir næstu kosn- ingar. Miðstjóm telji nauðsynlegt að breytingar verði á skipan í efstu sæti sem víðast um land. Viðbótartillaga frá Bimu Þórðar- dóttur um að það sama gildi um ráðherraefni flokksins, fari flokk- urinn aftur í rikisstjóm, var felld. -hmp efnhagsmálum og stuðla að ný- sköpun í efnahags-, mennta- og menningarmálum, að mati for- mannsins. Verkefnin eflir kosn- ingar yrðu ekki hefðbundin bar- átta við verðbólgu, viðskiptahalla og svo framvegis. Núverandi rik- isstjóm hefði afsannað þá kenn- ingu Sjálfstæðisflokksins að vinstriflokkar réðu ekki við efna- hagsmálin. Þrátt fyrir deilumar við Bandalag háskólamenntaðra starfsmanna, sagði Ólafur Ragnar samskiptin við samtök launafólks þrátt fýrir allt betri en þau hefðu verið í tíð fyrri vinstristjóma. Æskilegt hefði verið að þetta ætti við öll samtök launafólks, en deil- an við BHMR ætti sér langan að- draganda og mistök hefðu verið gerð á báða bóga. Það breytti því þó ekki að 98% launafólks væm í samtökum sem náð hefðu góðu samstarfi við rikisstjómina. AI- þýðubandalagið gæti með stolti borið þetta stjómarsamstarf við hvaða stjómartímabil sem væri. Enda gæti flokkur sem ekki gæti horft til eigin verka með stolti, ekki ætlast til þess að aðrir veittu honum brautargengi. Það færi þó víðsíjarri að allt hefði verið gert. Það verk sem Alþýðubandalagið hefði ætlað sér væri í raun nýhaf- ið. Ólafur Ragnar sagði Atlants- hafsbandalagið hafa glatað til- vemgmnni sínum, en reyndi samt að leita hans hjá Saddam Hussein. Hann sagði hrun kommúnismans í Austur-Evrópu sýna, að kenn- ingar sem taldar hefðu verið ódauðlegar hefðu ekki staðist tím- ans tönn. Þetta ætti einnig við um fijálshyggjukenninguna. I þeim efnum nægði að líta til ástandsins í efnhagsmálum eftir stjóm Reag- ans í Bandarikjunum og Thatch- ers í Bretlandi. „Þessir tímar ættu að gefa okkur óþijótandi tækifæri til að koma á framfæri jafhaðar- hyggju flokksins,“ sagði Ólafur Ragnar. Formaðurinn sagði forystu Alþýðuflokksins reyna að koma því inn hjá þjóðinni að hann væri eini jafnaðarmannaflokkurinn í landinu. Það vissu hins vegar allir að hreyfing jafnaðarmanna hefði verið tvíklofm og stundum þrí- klofin á íslandi. Hægrisinnaði hluti Alþýðuflokksins gæti aldrei verið í forystu fyrir róttækri jafn- aðarmannastefhu. Ólafur Ragnar kom víðar við í ræðu sinni og sagði ma. það sam- komulag sem náðst hefði um skattamál gagnvart væntanlegu álveri, vera mikilvægan þátt varð- andi sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn- ar. Nú þegar væri viðurkennt að þau erlendu íyrirtæki sem kynnu að starfa á Islandi eigi í einu og öllu að lúta íslenskum dómstólum og íslenskri löggjöf. Þá ræddi for- maðurinn einnig um utanríkismál. Hann sagði þörf á nýrri utanrikis- stefnu, þar sem Island tæki fullan þátt í mótun hugmynda um sam- eiginlegt öryggiskerfi fyrir alla Evrópu, að þeim ríkjum meðtöld- um sem áður hefðu verið í Var- sjárbandalaginu og utan hemaðar- bandalaga. -hmp Þriðiudaqur 30. október 1990 bJÓnvu iimm 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.