Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 3
FRETTIR Starfshópur um húsnæðismál Vill loka kerfinu frá 1986 Jóhanna Sigurðardóttir: Vil loka og láta kanna hvort ekki megi hœkka vextina þegar fólk skiptir um íbúðir Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra er enn þeirrar skoðunar að ekki sé rétt á þjóðarsáttartímum að hækka vexti á þegar teknum lánum innan húsnæðiskerfísins. Það er henni meira að skapi að hækka vexti skuldabréfa við íbúða- skipti. Þetta kom fram þegar ráð- herra kynnti álitsgerð starfshóps félagsmála-, íjánnála- og forsæt- isráðuneytisins um húsnæðismál. Jóhanna tók undir tillögur starfs- hópsins þess efnis að loka bæri lánakerfmu frá 1986, þ.e.a.s. Byggingarsjóði ríkisins. Einnig er lagt til að vextir á öllum útlánum sjóðsins verði hækkaðir i 5,0 pró- sent frá 1. júlí 1984. Og lagt er til að ákvæðum laga um greiðslu- jöínun fasteignaveðlána, þess efnis að hækkun raunvaxta leiði ekki til hækkunar á greiðslubyrði, verði felld niður. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherTa lýsti sig tilbúinn í umræðum á Alþingi fyrr í vik- unni til að hækka vextina, það gerði Kvennalistinn líka á lands- fundi sínum um síðustu helgi. Hinsvegar hefúr komið í ljós að þó vextimir hækki þá leysir það ekki vanda sjóðsins, því ákvæði laganna sem að ofan getur gera það að verkum að fólk borgar ekki meira á hveiju ári, heldur lengist lánstíminn sem nemur hækkuninni. Það kom fram hjá félagsmálaráðherra að það kæmi ffam á skuldabréfúm fólks að ákvæði þessara laga giltu. Það væri því ekki ljóst hvort dygði að fella ákvæði laganna niður líkt og starfshópurinn leggur til. Hún sagði að lögfræðingar væru að kanna það mál og fengist niður- staða snemma í næstu viku, og ætlar Jóhanna þá að leggja málið fyrir ríkisstjómina. Hún leggur áherslu á að ákvörðun verði tekin fljótlega í málinu. Það bíða 5500 manns eftir lánsfjárloforðum ffá Byggingarsjóði ríkisins og leggur starfshópurinn til að þvi fólki verði vísað á húsbréfakerfið um leið og lánakerfmu ffá 1986 verði lokað. Jóhanna ítrekaði þá skoðun sína að ekki bæri að hækka vext- ina og taldi miklu vænlegra að hækka þá þegar íbúðaskipti ættu sér stað. Þannig yrðu gömlum skuldabréfum breytt í ný með hærri vöxtum við íbúðaskipti og því þyrfti ekki að hafa áhyggjur af lögunum um greiðslujöfnun. Hún sagði líka að með þessu móti mætti fara lengra aftur í tímann með vaxtahækkunina en til ársins 1984 einsog starfshópurinn legg- ur til og því gæti staða Bygging- arsjóðs ríkisins batnað enn frekar. En það er með þetta einsog lögin um greiðslujöfnun: enginn veit hvort þessar breytingar era lög- Birting Úr viðjum fortíðar Aðalfundurinn í Akureyri sýndi að innan Alþýðu- bandalagsins er skýr meiri- hlutavilji fyrir því að brjóta flokknum leið úr viðjum fortfð- ar og takast á við vandamál dagsins,“ segir í ályktun frá fé- lagsfundi Birtingar, sem hald- inn var á miðvikudagskvöld. Athygli er vakin á því að skipulagsmál Alþýðubandalags- manna í Reykjavík era i fúllkoni- inni óvissu og síðan segir að enn sé alls ósljóst hvort færi gefist til samvinnu um ffamboð á jafnrétt- isgrandvelli. Fundurinn fjallaði um stjóm- málastöðuna eftir miðstjómar- fúnd Alþýðubandalagsins á Akur- eyri og er þeim áherslum sem ffam koma í stjómmálaályktun miðstjómarfúndarins fagnað. Þá fagnar Birting því að stefhuskrá Alþýðubandalagsins ffá 1974 er felld úr gildi. Þorvaldur Garðar Kristiánsson Ekki her á friðartímum K orvaldur Garðar Kristjáns- son þingmaður Sjálfstæðis- flokksins sagði í umræðum um skýrslu um utanríkismál á Al- þingi á fímmtudag að nú væri nauðsynlegt að endurmeta hlut- verk og stöðu herstöðvarinnar á Miðnesheiði og veru banda- ríska herliðsins hér á landi. Þetta tengist hugmynd Þor- valds um samhæfða yfirstjóm ör- yggismála hér á landi. Þorvaldur flutti ásamt þremur öðram þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins þingsályktunartillögu um það mál á síðasta þingi sem nú hefur verið endurflutt. En Þorvaldur telur að Islendingar verði að undirbúa sig undir það að taka við öryggis- og legar eða ekki, og munu lögffæð- ingar kanna þetta líka um helgina. Starfshópurinn leggur til, að Byggingarsjóði verkamanna verði tryggt lánsfjármagn og að niðurgreiðslu vaxta á lánum sjóðsins verði mætt með ffamlagi úr ríkissjóði einsog verið hefúr. Starfshópurinn leggur til að ffum- varp félagsmálaráðherra um breytingu á húsbréfakerfmu verði samþykkt, en þar er kveðið á um að leyfilegt verði að gefa út hús- bréf fyrir allt að 75 prósent af verði eignar. Hópurinn leggur þó til að þessu verði breytt á þann veg að þetta hlutfall verði breyti- legt eftir verðmæti eignarinnar. Þannig fái þeir 75 prósent sem kaupa ódýrari eignir, en þeir sem kaupa dýrastu eignimar og ættu að hafa mest á milli handanna fái húsbréf fyrir 65 prósent af verð- inu. I tillögunum er miðað við að þeir fái 75 prósent af matsverði íbúðar sem séu að kaupa húsnæði fýrir minna en 6,2 miljónir. -gpm Talsjá heitir þetta skrltna tölvutæki sem hún Hiördls Anna talar I með aðstoð Ásthildar Snorradóttur á sýning- unni Undraheimur IBM. Talsjána færði IBM á íslandi Heyrnar- og talmeinastöðinni I gær, en fýrirtækið hefur aðlagað hana (slensku máli. Talsjá þessi þykir mikill hvalreki á fjörur fólks sem á við talöröugleika að stríða, og er Heymar- og talmeinastöð Islands þakklát IBM fyrir hina höfðinglegu gjöf. Tæki þetta er fremur nýtt af nál- inni, framleitt af sérstakri deild IBM I Belglu sem sérhæfir sig I leit tölvulausna fyrir fatlaða. Talsjá er tölvu- og hugbúnaður tengdur hljóðnema sem er hannaður til að bæta talkennslu og raddþjálfun. Birtast myndir á skján- um sem nemandi stjórnar með raddstyrk sínum, og getur raddþjálfun þannig orðið að leik, sem nemendur hafa gaman af að taka þátt I. Myndina tók Kristinn I Undraheimi IBM I gær. „í þeirri ákvörðun fellst upp- gjör við fortíðina, og hún knýr flokkinn til að móta nýja stefnu- skrá byggða á hugsjón jafnaðar- manna. Birting tekur undir Akur- eyrarstefnu flokksins í flestum meginatriðum og telur sjálfsagt að hún verði lögð til grandvallar í komandi kosningum,“ segir orð- rétt í ályktuninni. Þá er tekið undir þá áskorun miðstjómarfúndarins að endur- nýjun verði sem víðast í efstu sæt- um á framboðslistum Alþýðu- bandalagsins í vor. Birting harmar það að jafnað- armenn ná ekki að sækja fram í einni fýlkingu við komandi kosn- ingar og hvetur alla jafnaðar- menn, einkum forystusveit Al- þýðubandalags og Alþýðuflokks, að beita sér gegn sameiginlegum andstæðingum í baráttunni ffam- undan. -Sáf eflirlitshlutverki herliðsins „þegar til þess kemur að vamarliðið hverfúr af landi brott,“ einsog segir í greinargerð með þings- ályktunartillögunni. Þorvaldur sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að hann gengi ekki útffá því, að herinn verði hér á ffiðartímum. Hlutverk hans væri að breytast og það væri fjar- stæða þegar utanríkisráðherra tal- aði einsog ekkert hefði breyst í heiminum. Þorvaldur sagði að striðsvígbúnaður færi þverrandi, en að öryggishlutverkið yrði æ mikilvægara. Því hlutverki gæt- um við sjálfir sinnt í Keflavík og um það ætti að nást þjóðarsam- staða, telur Þorvaldur Garðar. -gpm Laugardagur 10. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 HLUTAFJAR UTBOÐI EIMSKIPS ER L0KIÐ Sölu á nýju hlutafé í EIMSKIP að nafnverði 86 milljónir króna lauk 5. nóvember sl. Sölu- verð hlutafjárins nam 477 milljónum króna. EIMSKIP þakkar eldri hluthöfum þátttöku í hlutafjár- útboðinu. Jafnframt býður félagið 1.450 nýja hluthafa velkomna í hópinn. Hluthafar EIMSKIPS eru núna um 14.200. Félagið þakkar Verðbréfamarkaði íslandsbanka hf. og Fjárfestingarfélagi íslands hf. ágætt samstarf við sölu hlutabréfanna. \ EIMSKIP

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.