Þjóðviljinn - 10.11.1990, Qupperneq 10
Persaflóadeila
Friður í tvo-þrjá mánuði enn
Bandaríkin senda 200.000 manns í viðbót. Sovétríkin vondauf um
friðsamlega lausn
James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði
í Moskvu í gær eftir viðræður
við sovéska ráðamenn að Sovét-
ríkin væru engu vonbetri en
Bandaríkin og fleiri um að Ir-
akar fengjust til að fara frá Kú-
væt með góðu. Til hins sama
benda ummæli Eduards She-
vardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, í fyrrakvöld,
þess efnis að ekki væri hægt að
útiloka að beita yrði hervaldi
gegn írak.
Hingað til hefur sovéska
stjómin lagt áherslu á að einskis
skuli látið ófreistað til að leysa
Persaflóadeilu með friðsamlegu
móti og tvisvar gert út sérlegan
sendimann á fund Saddams Iraks-
forseta í þeim tilgangi.
Á máli Bakers o.fl. er nú helst
svo að skilja að Bandaríkjastjóm
hafi afráðið að láta til skarar
skríða við Irak, kalli það ekki her-
lið sitt frá Kúvæt, þó varla fyrr en
eftir tvo eða þijá mánuði. Bush
Bandaríkjaforseti tilkynnti á
fímmtudag að Bandaríkin hefðu
ákveðið að Qölga í liði sínu á
Persaflóasvæði um allt að
200.000 manns og ljóst er að þeir
liðsflutningar og annar sóknar-
undirbúningur taka talsverðan
tíma. 100 dagar vom í gær liðnir
frá innrás Iraka í Kúvæt.
Baker sagðist ennffemur telja
víst að öll þau ríki, sem auk
Bandaríkjanna hafa tekið þátt í
liðssafnaðinum gegn Irak, myndu
taka þátt í sókn gegn Irökum, að
Frakklandi og Sýrlandi ef til vill
undanteknum. Samkvæmt niður-
stöðum skoðanakannana vex nú
Chandra Shekhar
Sósíalisti og vinur stóratvinnurekenda
Andvígur erlendumjjárfestingum og vill að Indverjar verði sjálfum sér nógir
D áðir eru þeir af ættum
™ norðurindverskra stórjarð-
eigenda og báðir hófu feril sinn
í stjórnmálum í Þjóðþings-
flokknum, sem jnestu hefur
ráðið í landinu frá því að það
varð sjálfstætt 1947. Shekhar
sat 18 mánuði í fangelsi meðan
Indira Gandhi, móðir Rajivs
Gandhi og Iengi forsætisráð-
herra, stjórnaði með neyðar-
ástandslögum 1975-77.
Hann þykir drungalegur
nokkuð á svip og í ffamkomu,
írland
Fyrsta konan á forsetastól
Staðfest var í gær að Mary
Robinson, vinstrisinnaður
lögfræðingur, 46 ára og þriggja
barna móðir, hefði unnið for-
setakosningarnar á írlandi og
yrði forseti írska lýðveldsins
næstu sjö árin. Hún mun hafa
fengið um 52 af hundraði at-
kvæða, en aðalkeppinautur
hennar, Brian Lenihan í flokkn-
um Fianna Fail, um 48 af
hundraði.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
kona hlýtur kosningu í æðsta
embætti ríkisins þarlendis. Þykir
kosningasigur Mary Robinson
tíðindum sæta í þessu rammkaþ-
ólska og þegar á heildina er litið
íhaldssama landi, þar sem hart er
tekið á hjónaskilnuðum, samkyn-
hneigð og fóstureyðingum eftir
því sem gerist í Evrópu. í kosn-
ingabaráttunni beitti Mary sér
mjög fyrir réttindum kvenna.
Urslitin eru mikið áfail fyrir
Fianna Fail, sem ráðið hefúr
mestu í írska lýðveldinu allra
flokka lengst af frá því að það var
stofnað og aldrei fyrr tapað for-
setakosningum. Nokkuð spillti
fyrir Lenihan hneykslismál, sem
hann er flæktur í, og vék Charles
Haughey, leiðtogi Fianna Faii og
forsætisráðherra, honum úr ríkis-
stjóm fyrir þá sök.
Aðspurð í útvarpi kvaðst
Mary vera harla glöð yfir sigrin-
um og langaði sig mest til að fara
út á götur og dansa. Hún sagði og
að úrslitin sýndu að Irland væri
ungt og þróttmikið Evrópuríki,
reiðubúið fyrir breytingar. -dþ.
Bygging
hjúkrunarheimilis
Félagsfundur:
Verzknarmannafélag Reykjavíkur heldur
almennan félagsfund að Hótel Sögu, Súlna-
sal, sunnudaginn 11. nóvember n.k. kl. 15:00.
Fundarefni:
Magnús L. Sveinsson |
Séra Sigurður H.
Guðmundsson
Kynnt skipulagsskrá fyrir umönnunar- og
hjúkrunarheimilið Eir.
2. Tekin ákvörðun um þátttöku Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur í byggingu
hjúkrunarheimilis.
Framsögumenn:
Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.
Séra Sigurður H. Guðmundsson, for-
maður stjórnar Skjóls.
Fundarstjóri:
Elín Elíasdóttir, varaformaður V.R.
Félagsmenn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur eru hvattir til að fjölmenna á
fundinn og taka þátt í ákvörðuna'rtöku um
þetta þýðingarmikla mál.
Eiín Eiíasdóttir Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
andstæðingar hans saka hann um
endalaust baktjaldamakk og voru
vanir að segja að hann væri reiðu-
búinn til hvers sem væri til að
verða forsætisráðherra. 1983 fór
hann í sex mánaða og 4200 kiló-
metra gönguferð um sveitir lands-
ins til að kynna sig almenningi og
þótti það minna á Mahatma
Gandhi.
Shekhar hefúr lengi boðað að
sveitaþorp skuli fá aukna sjálf-
stjóm og hagur sveitaalþýðu,
mikils meirihluta íbúa Indlands,
bættur. Hann vill að Indland verði
sem mest sjálfú sér nógt, að ríkið
eigi mikinn hlut að atvinnurekstri
og beitti sér gegn tillögum Singh
um að slaka á hömlum á fjárfest-
ingum erlendra aðila. Sagði hann
að það hlyti að leiða til þess að
fjölþjóðleg stórfyrirtæki legðu að
miklu leyti undir sig atvinnulífið.
Sagt er að hann hafí góð sambönd
Shekhar - gekk um sveitir lands
eins og Gandhi.
við innlenda stóratvinnurekendur
í iðnaði, sem ófúsir eru að fá á sig
samkeppni eríendis frá.
Indland
Shekhar
myndar
stjórn
Ramaswamy Venkataraman,
forseti Indlands, hefur falið
Chandra Shekhar, keppinauti V.
P. Singh, fráfarandi forsætisráð-
herra, í Janata Dal-flokknum, að
mynda nýja ríkisstjórn. Er
margra mál að Shekhar hafi orð-
ið fyrir valinu aðallega vegna
þess, að engan annan hafl fyst að
komast á forsætisráðherrastól
eins og ástandið er nú í stjórn-
málum Iandsins.
Janata Dal klofnaði út af
ágreiningi þeirra Singh og Shek-
hars um það hvort efna skyldi til
nýrra kosninga hið snarasta. Beitti
Singh sér fyrir því, en Shekhar var
á móti. Út frá þessum flokksklofn-
ingi og eftir vantraustssamþykkt á
þingi ákvað Singh að segja af sér. í
flokksbroti Shekhars eru 56 þing-
menn af 545, en það sem reið
baggmuninn Shekhar í vil var að
Þjóðþingsflokkur Rajivs Gandhi,
fyrrum forsætisráðherra, hét hon-
um stuðningi. Sá flokkur er sá
stærsti á þingi og hefur ásamt
bandamönnum sínum þar 209
þingmenn.Sennilegt er því að
Gandhi og hans menn muni ráða
öllu meira um stefnu nýju stjómar-
innar en Shekhar, þar á meðal hve-
nær næstu þingkosningar skuli fara
fram. Eins og sakir standa em
flestir stjómmálaleiðtogar einhuga
um að skjóta kosningum á frest
sem lengst, vegna uppnámsins út
af deilum um skiptingu opinberra
starfa milli erfðastétta og þó eink-
um fæðingarstað Rama í Ayodhya.
Vemlegar líkur em á fleiri flokks-
klofningum út af þeim deilum.
Reuter/-dþ.
Lawrence Durrell látinn
Stjórnarerindreki og höfundur Alexandríukvartetts
H
inn þekkti breskl rithöf-
undur Lawrence Durrell,
kunnastur fyrir Alexandríu-
kvartettinn, lést á miðvikudag í
Sommieres, þorpi í Suður-
Frakklandi, 78 ára að aldri.
Lawrence var einn þeirra all-
mörgu Breta sem frekar máttu
kallast böm heimsveldisins en
Bretlands í þrengri merkingu
orðsins, manna sem að vísu vom
erkibreskir, en mótuðust og lifðu
lífinu að miklu leyti utan foður-
landsins, í öðrum hlutum heims-
veldsins eða í erindagerðum fyrir
það víða um lönd. Durrell fæddist
í Indlandi og var faðir hans jám-
brautaverkfræðingur. Hann og
kona hans vom bæði bresk, en
þegar Lawrence fæddist hafði
Lawrence Durrell.
hvomgt þeirra nokkm sinni til
Englands komið.
Lawrence Durrell ólst upp í
Indlandi til 12 ára aldurs en fórþá
til Englands í skóla. Hann gerðist
síðan stjómarerindreki og fór þá
víða. Síðustu 33 ár ævinnar bjó
hann í Sommieres.
Af ritverkum Durrells er
þekktastur Alexandríukvartettinn
(The Alexandria Quartet), fjórar
skáldsögur er lýsa lífinu í Álex-
andríu á ámnum fyrir heimsstyij-
öldina síðari. Þær hafa verið
þýddar á 20 tungumál. Fleiri
skáldsögur skrifaði Durrell og
auk þess ljóð og ferðabækur.
Hann var lítill vexti, veik-
byggður og þjáðist af lungna-
þembu. Siðustu árin bjó hann með
Francoise Kesisman, veitinga-
konu í Sommieres. Áður hafði
hann gengið í gegnum fjögur
hjónabönd.
Þvskaland-Sovétríkin
Vináttusáttmáli undirritaður
|U| íkhaíl Gorbatsjov, Sovét-
ríkjaforseti, og Helmut
Kohl, sambandskanslari Þýska-
lands, undirrituðu í gær - á ár-
safmæli opnunar Berlínarmúrs
- 20 ára vináttu- og griðasátt-
mála milli ríkja sinna. Er litið á
samninginn sem staðfestingu
þess, að sambönd Sovétríkj-
anna við Þýskaland séu nánari
en við nokkurt annað vestur-
landaríki.
Undirritun sáttmálans, sem er
sá fyrsti slíkur er sameinað
Þýskaland gerir við annað ríki, fór
fram í Bonn í opinberri heimsókn
Gorbatsjovs. Þótt mjög hafi dreg-
ið úr vinsældum hans heimafyrir
er greinilega ekkert lát á þeim
meðal Þjóðverja, sem þakka hon-
um almennt hrun Berlínarmúrs og
sameiningu lands síns. Menn á
götunni sögðu m.a. að Gorbatsjov
væri þetta miklu fremur að þakka
en Kohl, sem hefði bara verið svo
heppinn að vera sambandskansl-
ari er til þessara tíðinda dró.
Gorbatsjov sagði m.a. við
þetta tækifæri að ekkert fengi að-
skilið Bandaríkin og Sovétríkin í
Persaflóadeilu. Richard von We-
izsacker, Þýskalandsforseti, færði
gestinum að gjöf tréskurðarmynd
eftir 16. aldar listamanninn Al-
brecht Durer. Er hún af heilögum
Mikael í bardaga við dreka. Brosti
Gorbatsjov þá breitt.
Hann tók skýrt fram að sátt-
málanum væri ekki beint gegn
neinu riki. Síðasti griðasáttmálinn
áður milli þessara ríkja var gerður
1939, er þeir Hitler og Stalín voru
þar við völd.
Reuter/-dþ.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. nóvember 1990