Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 10.11.1990, Blaðsíða 11
MINNING Sigurður Fríðhólm Sveinbjörnsson Fæddur: 5. september 1923 - Dáinn: 31. október 1990 Við leiðarendann vinur hve lágvær ég er og langsótt í orðanna sjóð. Mér flnnst eins og aiit hafl þagnað með þér og þorrið hvert stef og hljóð. (Ási í Bæ) Bróðir minn, Sigurður Fríð- hólm Sveinbjömsson, andaðist á heimili sínu 31. október síðastlið- inn og verður kvaddur frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum laugar- daginn 10. nóvember. Sigurður fæddist í Skógum í Vestmannaeyjum 5. september 1923, sonur hjónanna Svein- bjöms Ágústs Benonýssonar og Hindriku Júlíu Helgadóttur. Þegar hann var nokkurra mánaða gam- all fluttist íjölskyldan í húsið að Brekastíg 18 sem þau höfðu þá byggt sér og bjuggu þar alla tíð síðan. Sigurður átti tvö yngri systkini, Herbert Jóhann og Jó- hönnu Herdísi. Eftir bamaskólanám fór Sig- urður í Gagnfræðaskóla Vest- mannaeyja og vélstjóranám. Síð- ar lærði hann múraraiðn hjá Osk- ari Kárasyni múrarameistara. Það starf stundaði hann svo til ævi- loka og em það ófá hús í Vest- mannaeyjum sem hann hefur lagt á gjörva hönd, enda þótti hann mjög duglegur og hæfur múrari. Sigurður! kvæntist 24ra ára gamall eftirlifandi konu sinni, Rebekku Katrínu Hagalínsdóttur, ættaðri ffá Sæbóli í Grunnavík, mikilli merkis- og myndarkonu sem öllum er til þekkja þykir vænt um. Þau byggðu sér hús á Brimhólabraut 3 og hafa búið þar alla tíð síðan. Þau eignuðust fimm böm: Matthildi húsmóður í Vestmanna- eyjum sem á tvö böm, Herdísi húsmóður í Danmörku sem á tvö böm, Rannveigu húsmóður í Vestmannaeyjum sem á eitt bam, Sveinbjöm Ágúst sjómann í Vest- mannaeyjum og Önnu Mariu hús- móður í Reykjavík sem á tvö böm. Bamabömin em orðin sjö: Rebekka, Sigurjón, Gunnar, Olga Mörk, Sigurður Friðhólm, Sig- urður Óttar og Sólrún Lilja. Sigurður var mjög bamgóður og hændust bamabömin mjög að honum. Sérstakur sólargeisli nú siðustu árin var lítill dóttursonur hans og nafni, Sigurður Óttar, sem var þeim hjónum báðum til óblandinnar ánægju. Ungur keypti Sigurður sér harmonikku sem þá var draumur margra ungra manna og spilaði á hana mátti segja daglega alla tið, sér og öðmm til ánægju. Einnig hafði hann mjög gaman af fiðlu og fleiri hljóðfæram sem hann átti og mátti segja að hljómlist væri hans líf og yndi. Fljótlega gekk hann í Lúðrasveit Vest- mannaeyja og spilaði með henni alla tíð. Fáir munu þeir tónlistar- viðburðir hafa verið í Vestmanna- eyjum sem hann lét sig vanta á. Sigurður var maður glaður og reifúr og tók fagnandi og opnum örmum gleðistundum lifsins. Hann var snar í snúningum og viljugur svo að af bar. Hann var trygglyndur og vinfastur og kom daglega upp á Brekastíg til for- eldra sinna á meðan þau lifðu, og til bróður síns sem bjó þar síðar. Sigurður átti mörg lög sem hann hafði samið og einnig texta við sum þeirra. Þau hjónin höfðu gaman af að kasta ffam stökum og var ofl glatt á hjalla í kringum þau og gaman að vera með þeim. Sérstakar þakkir vil ég flytja þeim hjónum fyrir alla þá ástúð og umhyggju sem þau sýndu mér þegar ég dvaldi á heimili þeirra, oft langtímum á sumrin þegar heimþráin seiddi mig til Vest- mannaeyja. Það er bjart yfir þeim minn- ingum. Ökuferðir út um Eyju og niður í bæ, spurt um fólk, spjallað við fólk og vinir heimsóttir. Það var bjartur og faguf haustdagur í Vestmannaeyjum 3 L október. Sigurður hafði sótt konu sína suður á flugvöll, en hún hafði skroppið til Reykjavikur. Seinna um daginn fóm þau í ökuferð út um Eyju í blíðviðrinu, eins og þau gerðu svo oft, og um kvöldið höfðu þau setið að tafli, sem var sömuleiðis þeirra uppáhaldsiðja. Um miðnættið kom kallið mikla. Sigurður hneig út af og hans starfsdegi var lokið. Hann endaði ánægjulega í félagsskap sinnar góðu konu sem honum þótti alla tíð mjög vænt um og mat mikils. Við leiðarendann vinur, hve lágvær ég er og langsótt í orðanna sjóð. (Ási í Bæ) Eg þakka góðu dagana heima í Vestmannaeyjum við söng og spil og ljóð. Hvíl þú í ffiði al- mættisins, Siggi minn. Hjartans þökk fyrir allt. Hanna systir ...kjörin leið til sparnaðar er Kjörbók Landsbankans Betri, einfaldari og öruggari leið til ávöxtunar sparifjár er vand- fundin. Háir grunnvextir og verðtryggingarákvæði tryggja góða ávöxtun. Að auki koma afturvirkar vaxtahækkanir eftir 1 6 og 24 mánuöi. Samt er innstæða Kjörbókar alltaf laus. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.