Þjóðviljinn - 10.11.1990, Side 16
SPURNINGI
Hvernig leggst helgin í þig?
Gunnar Bergmann
húsasmiður:
Ágætlega. Ég er í helgarferð í
Reykjavík, kem frá Húsvík og
ætla að fara út og skemmta mér
á Hótel Islandi.
Valgerður Pálsdóttir
húsmóðir:
Mjög vel, ég ætla að halda
barnaafmæli og svo fer ég á
kristilega samkomu.
Bergur Sverr
smiður:
bara nokkuð vel, því ég er að
fara að fiytja og ætla að mála
um helgina.
Jólabókavertiðin í prentsmiðjunni byrjar f október, og henni Ifkur ekki fyrr en um miðjan desember.
Jólabækur
Háflóð f prentsmiðjunum
Jólabókaflóðið er enn að
mestu í prentsmiðjunum, en
það er að renna út í verslanir.
Prentvélarnar ganga taktfast
allan sólarhringinn um þessar
mundir. Á öðrum tímum árs
eru tæpiega prentaðar bækur á
íslandi, en nú er vertíð hjá
prenturum.
- Vertíðin hjá okkur hefst yf-
irleitt í lok október og stendur
íram í desember. Þá er unnið hér
allan sólarhringinn á 12 tíma
vöktum, segir Ragnar Kristjáns-
son, verkstjóri i prentsal Odda, en
þar er prentaður um það bil helm-
ingur þeirra bóka sem koma út
fyrir jólin. Ragnar giskar á að þeir
prenti 150-160 titla fyrir þessi jól.
Skáldsögur, ævisögur, ljóða-
bækur, kynlífsbækur og bama-
bækur standa í stórum stæðum á
gólfínu í Odda. Þær eru á ýmsum
stigum ffamleiðslunnar, sumar
aðeins í örkum, sumar kápulaus-
ar, aðrar fullbúnar og bíða þess að
komast í verslanir.
Stökkbreyting
Það verður alltaf bókaflóð
fyrir jólin á íslandi, en aðdragandi
þess hefur breyst mikið á fáum ár-
um.
- Ég hugsa að það séu ekki
nema sjö eða átta ár síðan það var
algengt að við fengum handskrif-
uð óg vélrituð handrit hingað. Þá
þurfti að slá allt inn og allt var
prófarkalesið á staðnum, segir
Ragnar við Þjóðviljann.
Nú er öldin önnur. Bækumar
koma á tölvudisklingum, próf-
arkalesnar. Sumar er meira að
segja búið að bijóta um þegar þær
koma í prentsmiðju.
- Þetta hefur breyst mjög
hratt, segir Ragnar.
Það starfa um 270 manns f
Odda. Nú er þetta fólk meira og
minna upptekið í jólabókaflóð-
inu. Ragnar segist halda að titl-
amir séu óvenjulega margir að
þessu sinni.
Hann segist ekki þora að
giska á hvað jólabókaflóðið er
þungt, en það fara þijú til fjögur
þúsund tonn af pappír í gegnum
prentsmiðjuna Odda árlega.
Spenna og ánægja
- Það væri þægilegra ef þetta
dreifðist yfir árið, en margir
myndu sakna jólabókaflóðsins.
Það er alltaf ákveðin spenna með-
an á þessu stendur og ánægja að
því loknu, segir Ragnar.
Upplag bókanna er æði mis-
jafnlega stórt. Sumar bækur em
prentaðar í 500 eintökum, en efri
mörk em á bilinu sex til sjö þús-
und eintök.
Prentvélamar ganga allan sól-
Ragnar Kristjánsson: Það rlkir hér
ákveðin spenna á meðan á jóla-
bókaflóðinu stendur og ánægja
þegar því lýkur. Myndir: Jim
Smart.
arhringinn og spýta út úr sér tíu
þúsund örkum á klukkustund. Á
hverri örk geta verið 16 siður, átta
hvomm megin.
En þessar arkir þurfa að fara í
gegnum ýmsa meðferð áður en
þær verða bækur.
Það þarf að bijóta þær saman.
Svo er örkunum raðað saman svo
úr verður hálfklámð bók. Saur-
blöðin em límd á hana, en að því
loknu em arkimar saumaðar sam-
an.
Innísetningarvélin
Svo fer bókin inn í mikla u-
laga vélasamstæðu, sem kölluð er
innísetningarvél. Þar fer bókin í
límbað, svo er sett á hana grisja,
sem prentarar kalla gisnu. Hún fer
aftur i límbað og svo er settur á
hana kjölkragi. Þá er hún klædd í
kápuna og að síðustu fer hún inn í
pressu. I gegnum þessa vél fara
1000-1200 bækur á hverri
klukkustund. Þegar bækumar
koma úr pressunni fara þær í eftir-
lit áður en þeim er hleypt út á
markaðinn.
Þorsteinn Pálmarsson stjómar
innisetningarvélinni, en hann er
ekki enn farinn að kynna sér inni-
hald bókaflóðsins.
- Maður hefur alveg nóg með
að standa 12 tíma vaktir héma. En
ég les talsvert þegar ég hef tíma.
Ég er eiginlega alæta á bækur, en
les þó mest spennubækur, segir
hann.
Það er háflóð í prentsmiðjun-
um nú, og það fjarar ekki út að
fullu fýrr en nær dregur miðjum
desember. Þá fer lífið aftur að
ganga sinn vanagang í prent-
smiðjunum.
-gg
Dröfn Guðmundsdótir
nemi:
Bara mjög vel. Ég ætla að fara
á ball og gera eitthvað sniðugt.
RAFRÚN H.F.
Smiðjuvegi 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Simi 641012
Kœra mamma!
Allt útlit erfyrir að vera
mina á þessu kalda landi
styttist óðum þvi herinn
verður bráðum sendur heim.
Fyrst héldum við að Her- stöðvaandstœðingar vœru gengnir aftur... §|||j| ...en svo kom i Ijós að ígCf gípll Þorvaldur Garðar var §Íg genginn i bcrndóm... S5|
All Rlgnts Reserved
í