Þjóðviljinn - 14.11.1990, Síða 11

Þjóðviljinn - 14.11.1990, Síða 11
I DAG LESANDI VIKUNNAR Jóhanna Þórhallsdóttir altsöngkona Mynd: Jim Smart Fyrsta flokks fæði á ísafirði Hvað ertu að gera núna? Ég fer með hlutverk í Med- eu sem Alþýðuleikhúsið sýnir nú í gamla Iðnó. í verkinu er fimm kvenna kór þar sem tvær leika, tvær dansa og svo ég sem syng, nú og svo leik ég eitthvað, er a.m.k. með i sýningunni. Þar íyrir utan þá kenni ég hjá Tónskóla Sigursveins, sé um skrifstofureksturinn hjá Tón- skáldafélaginu, skrifa fyrir Moggann, og kenni hjá Kram- húsinu, allt þetta til að fjár- magna heimilið. Ég var að festa kaup á íbúð og svo borgum við einstæðar mæður ótrúlega háa skatta. Hvað varstu að gera fyrir tíu árum? Þá um sumarið var ég í Kaupmannahöfn við að taka upp aðra hljómplötu Diabolus in Musica og var eflaust að bíða eftir að platan kæmi út. Ég var nýbyijuð í þjóðfélagsffæði í Há- skólanum og að fara að hætta í sama fagi til að vinda mér út i blaðamennsku á gamla Helgar- póstinum. Hvað gerirðu helst í frí- stundum? Mér finns't skemmtilegast að eyða þeim með sjö ára dóttur minni. Oft er ég svo þreytt eftir vinnudaginn að ég megna ekki annað en að henda mér upp_ í sófa og glápa á sjónvarpið. Ég hlusta líka mikið á tónlist og les talsvert, sérstaklega eftir að ég komst í eigin húsnæði, það eru meiri rólegheit. Segðu mér frá bókinni sem þú ert að lesa núna. í gærkvöldi var ég að lesa Lifsjátningu Guðmundu Elías- dóttur, mér finnst gott að glugga í hana öðru hvoru. Þar áður las ég nýútkomna bók um ævi sov- ésku söngkonunnar Galinu Vis- hnevskayu. Hver er uppáhaldsbarna- bókin þín? Mér þótti vænst um Litla lambið eftir Jón Kr. ísfeld. Það var fyrsta bókin sem ég las af eigin rammleik og er ævisaga lítils lambs. Hvers minnistu helst úr Biblíunni? Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefúr sinn tíma. Og svo Ljóða- ljóðin sem ég er að fara að syngja með Sinfóníunni í febrú- ar. Hefurðu farið í leikhús í haust? Nei, tíminn hefúr farið í annað, t.d. að æfa Medeu, en ég er á leiðinni í Borgarleikhúsið, þar ætla ég a.m.k. að sjá Meist- arann og Hættur, farinn. En kvikmyndahús? Ekki heldur, ég má aldrei vera að því. Fylgistu með einhverjum ákveðnum dagskrárliðum í útvarpi og sjónvarpi? Ég hlusta á Rás 1 á laugar- dagseftirmiðdögum og horfi á fréttimar í Ríkissjónvarpinu. Hefurðu alltaf kosið sama stjórnmálaflokkinn? Nei. Ertu ánægð með þann flokk sem þú kaust síðast? Nei. Eru til hugrakkir stjórn- málamenn og -konur? Kannski er það hugrekki út af fyrir sig að standa í þessari pólitík. Viltu nafngreina ein- hvern? Ég hef afskaplega litla trú á stjómmálamönnum i augnablik- inu og kvíði óskaplega fyrir því að þurfa að velja mér einhvem flokk til að kjósa í vor. Hvaða eiginleika þinn viltu helst vera laus við? Sennilega fljótfæmi. Hvaða eiginleika þinn fínnst þér skrítnast að aðrir kunni ekki að meta? Ég pæli svo lítið í því. Eig- inlega er mér nokk sama hvað fólki finnst um eiginleika mína. Ég krefst þess ekki að fólk skilji mig fullkomlega, alveg eins og ég skil ekki alltaf aðra. En auð- vitað þykir mér vænt um ef fólk skilur mig. Manneskjan er svo flókin og margþætt og veröldin sem við lifúm í líka. Við þurfúm að standa okkur á svo mörgum sviðum núorðið að það er kann- ski ekki nema von að maður átti sig ekki alltaf á náunganum. En ég kippi mér ósköp lítið upp við það og finnst ég eiga auðvelt með að greina stóm málin frá þeim smáu og þá líka að skilja að það er oftast óþarfi að fetta fingur út í gerðir náungans. Hver er uppáhaldsmatur- inn þinn? Ég er mikill sælkeri og hef unun af þvi að borða góðan mat og kokka sjálf. Allur matur sem alúð hefúr verið lögð við að matreiða er góður matur. Að fara til Isaljarðar og borða hjá góðum vinum mínum í Faktors- húsinu er stórhátíð. Það besta sem ég man eftir að hafa borðað í svipinn borðaði ég þar. Þar er mikil alúð lögð við matinn, og þar sem annars staðar er gaman að borða með góðu fólki. Hvert langar þig helst til að ferðast? í augnablikinu langar mig eiginlega hvert sem er út fyrir landssteinana og lifa í vellyst- ingum; ég gæti til dæmis hugsað mér að fara til Parísar, borða góðan mat og drekka franskt rauðvín. Þar sem ég er með hug- ann við Medeu þá langar mig lika til Korintuborgar í Grikk- landi. Hvaða ferðamáti á best við Þ«g? Að sigla. Aftur á móti er ég orðin hræðilega flughrædd, sér- staklega eftir eitt ísafjarðarflug- ið, þar sem maður kastaðist upp úr sætunum og flugfreyjan fór upp í þak. Mig langar alls ekkert til að fljúga innanlands á næst- unni, ffekar færi ég ríðandi þó ég sé með ofnæmi fýrir hestum. Hvað kanntu best að meta í fari landa þinna? Dirfsku, dugnað og áræðni. En síst? Þegar dirfskan fer út í fífl- dirfsku. Hverju viltu helst breyta í íslensku þjóðfélagi? Hvar á ég að byrja? Kaupum og kjörum fólks kannski fyrst af öllu og svo menningarpólitík- inni. Þetta stendur mér næst, íbúðarkaupandanum. Hef ég gleymt einhverri spurningu? Þú hefúr sem betur fer gleymt mörgum. Ég er svo lítið fyrir að sitja fyrir svörum að sú gleymska hentar mér ágætlega. Guðrún ÞJÓÐVIUINN FYRIR 50 ARUM Dagsbrún markar stefnu sína I kaupgjaldsmálunum: Kaup- hækkun í hlutfalli við dýrtiðina. 8 tíma vinnudagur með óskertu dagkaupi. Aukin hlunnindi og ör- yggi verkamanna við vinnuna. Alþýðusambandsþingið: Á þing- inu mæta aðeins 74 fulltrúar fyr- ir rúm 6000 manns (verkalýðs- félögunum. En 1938 voru þar 165 fulltrúar frá verkalýðsfélög- unum með upp undir 1200 með- limi, að sögn Alþýðusambands- stjórnar. Sambandsstjórnin ( Landssambandi (slenzkra stétt- arfélaga kemur saman I dag. 14. nóvember miðvikudagur. 318. dagurárs- ins. Sólarupprás I Reykjavlk kl.9.52 - sólarlag kl. 16.32. Viðburðir Sjómannafélagið Báran stofnaö 1894. Blaðið Verkamaðurinn á Akureyri hefurgöngu s(na 1918. Surtseyjargos hefst 1963. DAGBOK APOTtK Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúða vikuna 9. til 15. nóvember er f Breiöholts Apóteki og Apóteki Austurbæjar. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frfdögum). Siðarnefnda apótekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 samhliða hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavfk..........® 1 11 66 Kópavogur..........® 4 12 00 Seltjamames Hafnarfjörður. Garöabær. « 1 84 55 » 5 11 66 « 5 11 66 Akureyri » 2 32 22 Slökkviið og sjúkrabðar Reykjavík « 1 11 00 Kópavogur » 1 11 00 Seltjamarnes TT 1 11 00 Hafnarfjörður. « 5 11 00 Garðabær. « 5 11 00 Akureyri.....................« 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tfmapantanir í ■e 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar f símsvara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eöa ná ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspft- alans eropin allan sólarhringinn, n 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl- an, rr 53722. Næturvakt lækna, tr 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt, tr 656066, upplýsingar um vaktlækni tr 51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiðstöðinni, tr 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsfmi). Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I tr 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, tr 11966. SJÚKRAHUS Heimsóknartímar: Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Land- spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra- tími kl. 19:30 til 20:30. Fæöingar- heimili Reykjavíkur v/Eirfksgötu: Al- mennur tfmi kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatfmi kl. 20-21 alla daga. Öldrunariækningadeild Landspftal- ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspftala: Vrka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu- vemdarstöðln við Barónsstig: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspítali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim- sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefs-spítali Hafnar- firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauöa kross húsiö: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, « 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svarað er f upplýsinga- og ráðgjafarslma félags lesbfa og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Sfmsvari á öðrum timum. « 91-28539. Sálfræöistöðln: Ráðgjöf i sálfræði- legum efnum,« 91-687075. Lögfræðiaöstoð Orators, félags laganema, er veitt f sfma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frákl. 8 til 17, tr 91-688620. „Opiö hús" fyrir krabbameinssjúk- linga og aöstandendur þeirra I Skóg- arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styðja smitaöa og sjúka og aðstandendur þeirra f 91- 22400 og þar er svaraö alla virka daga Upplýsingar um eyðni: o 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar- fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars sfmsvari. Samtök um kvennaathvarf: ” 91- 21205, húsaskjól og aðstoö við konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, « 91-21500, símsvari. Sjálfshjátparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum: ® 91-21500, simsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: « 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm sem orðið hafa fýrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91- 626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: ■o 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt ( « 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, tr 652936. GENGIÐ 13 nóvember 1990 Sala Bandarfkjadollar...........54,22000 Sterlingspund.............10665050 Kanadadollar...............47,54050 Dönsk króna..................9,59645 Norsk króna..................9,40950 Sænsk króna..................9,79055 Finnskt mark................15,33155 Franskur franki.............10,92595 Belgfskurfranki............. 1,78075 Svissneskur franki..........43,44550 Hollenskt gyllini...........32,56555 Vesturþýskt mark.............36,74065 (tölsk Ifra..................0,04878 Austurrískur sch..............5,22275 Portúgalskur escudo......... 0,41665 Spánskur peseti...............0,57965 Japanskt jen.................0,42064 (rskt pund..................98,42300 KROSSGÁTA Lárétt: 1 brún 4 rusl 6 tæki 7 sláttuland 9 styrkja 12 kvöldi 14 blett 15 smeyk 16 fugl- ar 19 for 20 rola 21 tætt Lóðrétt: 2 eyktamark 3 mor 4 slappleiki 5 dans 7 duga 8 hliföarföt 10 fjarstæðan 11 hljóðaði 13 auð 17 vitskerti 18 bleyta Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 húss 4 kýta 6 tau 7 vika 9 róar 12 ak- urs 14 táp 15 átt 16 andar 19 næli 20 magn 21 stein Lóðrétt: 2 úri 3 stak 4 kurr 5 tia 7 vitund 8 kapals 10 ósáran 11 rýting 13 und 17 nit 18 ami Miðvikudagur 14 nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.