Þjóðviljinn - 14.11.1990, Page 12
... alla daga
ARNARFLUG
INNANLANDS hf.
ReykjavíVurflugvelli - simi 29577
■ SPURNINGIN ■
Notarðu vistarvænar vörur?
Sesselja Árnadóttir
kennari
Já, ég geri það meðvitað. í
starfi mínu rek ég áróður fyrir
slíkum vörum.
Katrín Karlsdóttir
í fæðingarorlofi
Ég nota þær ekki eins og er, en
ég hef hug á því að gera það.
Haraldur Júlíusson
sölumaður
Ég geri það ef ég get. Mér þykir
gæta mikils tvískinnungs hjá
fólki (þessu máli.
Landvernd
Sjálfbær þróun
f íslensku samhengi
Landvernd gengst fyrir ráð-
stefnu undir yflrskriftinni
Sjálfbœr þróun.
Auður Sveinsdóttir,
formaður Landverndar:
Islensk stjórnvöld hafa sýnt
Brundtland-
skýrslunni tómlœti
I slensk stjórnvöld hafa sýnt
■ Brundtland-skýrslunni tóm-
læti þrátt fyrir áskorun Sam-
einuðu þjóðanna um að fylgja
boðskap hennar eftir í pólitískri
stefnumótun. Við boðum til
ráðstefnunnar um helgina til
þess að ræða innihald skýrsl-
unnar og setja það í íslenskt
samhengi, segir Auður Sveins-
dóttir, formaður Landverndar,
í samtali við Þjóðviljann.
Landvemd, landgræðslu- og
náttúruvemdarsamtök Islands,
efna til ráðstefnu í Hrafhagils-
skóla í Eyjafirði um helgina undir
yfirskriftinni Sjálfbær þróun. Það
er þýðing á hugtakinu „Sustaina-
ble development“, sem er megin-
boðskapur skýrslunnar um sam-
eiginlega framtíð okkar (Our
common future). Skýrslan var
unnin af nefnd á vegum Samein-
uðu þjóðanna og er gjama kennd
við Gro Harlem Bmndtland, for-
sætisráðherra Noregs, sem var
formaður nefndarinnar. Gro Harl-
em Brundtland hefúr aflað sér al-
þjóðlegrar virðingar vegna starfa
sinna að umhverfismálum.
Sjálfbær þróun
Brundtland-skýrslan um effta-
hagslega þróun og umhverfismál
var kynnt fyrir þremur ámm og
hefur talsvert verið til umfjöllun-
ar erlendis síðan, enda hefúr Þró-
unar- og umhverfismáladeild S.Þ.
gert sjálfbæra þróun að markmiði
fyrir þjóðir heimsins.
Sjálfbær þróun felur það í sér
í stuttu máli að þróun til framtíðar
verði að fullnægja þörfum núlif-
andi jarðarbúa án þess að draga úr
möguleikum komandi kynslóða
til sömu lífsgæða.
Ráðstefna Landvemd-
ar um Sjálfbæra þróun
er haldin í tengslum
við aðalfund samtak-
anna, sem haldinn
verður á sunnudaginn.
Fimm íslenskir
fýrirlesarar munu þar
fjalla um sjálfbæra
þróun út frá ísienskum
aðstæðum. Þar verður
hugtakið sett í sam-
hengi við íslcnskan
landbúnað, orku, ís-
lenskar afúrðir, verka-
lýðshreyfingu og
skyldur Islendinga á
alþjóðlegum vett-
vangi.
Auk þess mun
Bandaríkjamaðurinn
Lloyd Timberlake
ræða um sjálfbæra þró-
un og áhrif hennar á
heimsmyndina.
Timberlake starfar
um þessar mundir við
Alþjóðastofnunina um
umhverfis- og þróunar-
mál í London. Hann
var einn af ritstjómm
Brundtland-skýrslunnar og hefur
verið ráðgjafi náttúruvemdarsam-
taka um allan heim varðandi út-
gáfumál. Hann hefur skrifað bæk-
ur um umhverfismál og eflir þeim
hafa verið gerðir sjónvarpsþættir.
Tómlæti stjórnvalda
Að sögn Auðar Sveinsdóttur
kemur ágrip af Sameiginlegri
framtíð okkar út á vegum Land-
vemdar nú í vikulokin. Ágripið er
m s
m
Eitt af þvl sem fjallað verður um á ráðstefnu Landvemdar er útflutningur ómeng-
aðra Islenskra afurða á grundvelli sjálfbærrar þróunar.
prentað á pappír sem að hálfu er
búinn til úr hálmi, en að öðm leyti
úr endumnnum pappír og tijá-
kvoðu.
- Nú þegar stofnað hefur ver-
ið umhverfismálaráðuneyti á Is-
landi hefði maður haldið að ís-
lensk stjómvöld myndu byrja að
vinna með þessa hugmynd um
sjálfbæra þróun. En svo hefur
ekki verið, enda þótt þetta snerti
okkur auðvitað öll, segir Auður
við Þjóðviljann.
- Við verðum að láta okkur
það varða sem fjallað er um í
skýrslunni, hvort sem það er jafft-
vægið milli norðurs og suðurs,
eyðing regnskóganna eða losun á
koldíoxíði út í andrúmsloflið. Ef
við eigum að snúa af þeirri braut
sem við emm á nú, getum við
þurfl að breyta Hfsháttum okkar.
- Það er sífellt kallað á meiri
hagvöxt svo við getum keypt
meira og farið oflar til sólarlanda.
En þessi hagvöxtur verður á
kostnað umhverfisins, segir Auð-
ur. -gg
Anna Kristine Magnúsdóttir
blaðamaður
Þvi miður ekki nægjanlega mik-
ið, en ég reyni að kaupa vörur
sem ekki skaða ósonlagið.
RAFRÚN H.F.
Smiðjuvegí 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Stmí641012