Þjóðviljinn - 01.12.1990, Page 2

Þjóðviljinn - 01.12.1990, Page 2
FRETTIR Vísindaþing Vísinda- og tæknistefna mörkuð Ríkisstjórnin kynnti nýja yfirlýsingu um vísinda- og tœknistefnu á ársfundi Vísinda- ráðs og Rannsóknaráðs ríkisins í gær. Framlög til vísinda verði aukin um 10% á ári næsta áratuginn. A'w ársfundi Vísindaráðs og Rannsóknaráðs ríkisins, sem hófst í Háskólabíói í gær, kynnti Árni Gunnarsson, ráðu- neytisstjóri í menntamálaráðu- neytinu, yfirlýsingu um vís- inda- og tæknistefnu, sem ríkis- stjórnin hefur sent frá sér sem tillögu að stefnumörkun á þessu sviði. Er í yfirlýsingunni stefnt að því að auka raungiidi fjárfram- laga til vísindastarfsemi hér á landi um 10% á ári hverju næsta áratuginn. Jafnffamt er stefnt að því að finna leiðir til að auka hlut fyrirtækja og annarra aðila utan ríkiskerfisins í fjármögnun og ffámkvæmd rannsókna. í yfirlýs- ingunni er jafnffamt gert ráð fyrir að forsætisráðherra efni tvisvar á ári til fundar fulltrúa Rannsókna- ráðs ríkisins, Vísindaráðs og ein- stakra fagráðherra ásamt fulltrúa þingflokka til að samræma fram- kvæmd vísinda- og tæknistefnu öðrum þáttum þjóðmála. í ítarlegri og ffóðlegri grein- argerð með stefnuyfirlýsingunni, sem samin er af samstarfsnefhd Vísindaráðs og Rannsóknaráðs og að frumkvæði menntamála- ráðuneytisins, kemur fram að ís- lendingar hafa dregist mjög aftur úr öðrum þjóðum á sviði vísinda og rannsóknastarfa á síðastliðn- Rannsóknir Hvatningarverðlaun Rannsóknaráðs 1990 Dr. Aslaug Helgadóttir plöntuerfðafrœðingur verðlaunuð fyrir mikilvœgan skerf til landnýt- ingar- og landgrœðslumála á Islandi sagði dr. Áslaug að starf hennar hefði fyrst og fremst falist í leit að nýjum jurtastofnum til grasræktar og uppgræðslu hér á landi. Árang- ur þessa starfs væri nú að koma í ljós, til dæmis í nýjum stofni Ber- ingspunts frá Alaska sem verið væri að kynbæta. Þess væri að vænta að ffærækt og ffamleiðsla þessa stofns myndi hefjast á næstu árum. Þá sagði hún að búið væri að velja og koma í ffærækt stofni af snarrót, sem Iofaði mjög góðu til uppgræðslu, einkum þar sem beit- arálag væri mikið, því svo virtist sem vöxtur snarrótarinnar örvað- ist við beit ólíkt mörgum öðrum plöntum. Framleiðsla snarrótar- stofnsins er ekki hafin í stórum stíl ennþá, en þess er að vænta á næstunni. Þá sagði dr. Áslaug að rann- sóknir og kynbætur á belgjurta- stofnum stæðu nú yfir, meðal annars kynbætur á íslenskum hvítsmára, en þær hafi ekki skilað beinum árangri ennþá. Hins vegar væri mikilvægt að finna fleiri teg- undir og stofna til þess að auka fjölbreytni íslensku flórunnar, og væru vonir manna þá ekki síst bundnar við heppilega belgjurt sem hægt væri að nota til Iand- græðslu eins og lúpínuna. Þá sagðist Áslaug á undan- fomum ámm hafa stýrt samstarfs- verkefni Norðurlandaráðs um kynbætur á túngrösum í norður- hémðum landanna. Er þar einkum um að ræða kynbætur á vallarfox- grasi, og sagði Áslaug að þetta samstarfsverkefni væri gott dæmi um samnýtingu á kröffum í máli er varðaði undirstöðu landbúnað- ar á þessum slóðum. Dr Áslaug Helgadóttir er Reykvíkingur, fædd 1953. Hún stundaði nám við háskólann í Manitoba og lauk doktorsprófi við Reading í Englandi 1982. Hún hefur starfað hjá Rannsóknastofn- un landbúnaðarins frá námslok- um auk þess sem hún er húsmóðir og þriggja bama móðir. Eigin- maður hennar er Nikulás Hall, kennslustjóri við Tölvuháskóla Verslunarskólans. -ólg. Rannsóknaráð ríkisins hefur veitt dr. Áslaugu Helga- dóttur plöntuerfðafræðingi hjá Rannsóknastofnun landbúnað- arins Hvatningarverðlaun Rannsóknaráðs ríkisins 1990 fyrir „frumkvæði, áræði og dugnað í störfum sínum.“ í fréttatilkynningu ráðsins segir að forsenda verðlaunanna, sem em 1,5 miljónir króna til fijálsrar ráðstöfunar, séu „rann- sóknir hennar og annarra sérffæð- inga Rannsóknastofnunar Iand- búnaðarins er hafi leitt til þess, að nú standi til boða mun betri grös en áður til túnræktar og upp- græðslu". Jafnffamt segir að Ás- laug hafi á starfsferli sínum ritað fjölda vísindagreina og verið þátt- takandi í alþjóðlegum samstarfs- verkefnum á sínu sviði. í stuttu spjalli við Þjóðviljann Dr. Áslaug Helgadóttir plöntu- erfðafræðingur. Ljósm. Kristinn. Hjúkrunarfélag Islands Ekki lengur í BSRB Mikill meirihluti félagsmanna innan Hjúkmnarfélags Islands hef- ur samþykkt að félagið verði ekki lengur aðili að Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja. Við það fækkar félagsmönnum BSRB um tæplega 1500 manns. Atkvæði skiptust þannig að 1.050 vildu félagið úr BSRB, eða 85,43%, andvígir vom 150 eða 12,20% og auðir seðlar vom 29. -grh um áratug. Telja skýrsluhöfundar skýringu þessa m.a. felast í að hagvöxtur hér á landi hafi falist í tiltölulega einhæfri nýtingu nátt- úmauðlinda á landi og sjó og að einhæft og óstöðugt hagkerfi ásamt með örri verðbólgu hafi dregið úr vilja og getu atvinnulífs og stjómvalda til að hafa lang- tímamarkmið í fyrirrúmi. Því hafi forsvarsmenn atvinnulífs, laun- þegar og stjómmálamenn, naum- ast litið á almenn þróun vísinda og tæknirannsókna sem forsendu ffamfara í landinu. Á þessu vilja skýrsluhöfundar ráða bót, þar sem „góð almenn þekking byggð á vísindum og tækni samtímans sé forsenda þess að hægt sé að starfrækja öflugt sjálfstætt menningarsamfélag við núverandi skilyrði.“ Á fundinum í gær var einnig lögð ffam ýtarleg ársskýrsla Vis- indaráðs og Rannsóknaráðs ríkis- ins. Er þar gerð grein fyrir starf- semi Vísindaráðs og Rannsókna- ráðs, starfsemi þeirra stofnana er ástunda vísindi og rannnsóknir hér á landi og rannsóknastarfsemi erlendra aðila hér á landi. Jóhannes Norðdal, formaður Visindaráðs, sagði á fundinum að fjárhag og starfsemi Vísindaráðs væri nú svo þröngur stakkur skor- inn að ráðið hafi langt í ffá getað sinnt þeim verkefnum, sem því er falið samkvæmt lögum. En fyrir- ferðarmesta verkefni ráðsins er úthlutun styrkja úr Vísindasjóði. I ræðu sinni notaði Jóhannes tækifærið til að vekja athygli á ffamlagi Hafsteins Guðmunds- sonar bókaútgefanda til rann- sóknastarfsemi hér á landi með útgáfu ritsafnsins Islensk þjóð- menning, og sagði hann að stjóm Vísindaráðs hefði að tillögu Hug- og félagsvisindadeildar ráðsins ákveðið að styrkja vísindalega undirbúningsvinnu þessa ritverks með allt að tveim miljónum króna. í tilefni fundarins var sett upp sýning í anddyri Háskólabíós í gær þar sem ýmis rannsóknaverk- efni em kynnt, sem styrkt hafa verið af Vísindasjóði og Rann- sóknasjóði Rannsóknaráðs á síð- astliðnum árum. -ólg. AB Revkjanesi Ólafur Ragnar svarar í dag Tillaga Hafnfirðinga um forval var felld á fundi kjördœmisráðs Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, mun í dag svara kjörnefnd kjör- dæmisráðsins á Reykjanesi hvort hann gefi kost á sér í fyrsta sæti listans en nefndin hafði ósk- að eftir því við Ólaf. Á fundi kjördæmisráðsins í vikunni var felld tillaga um að halda forval um lista flokksins til kosninganna i vor. Kjömefnd hafði áður verið skipuð og hafði hún óskað eftir því við Ólaf Ragnar að hann tæki fýrsta sæti á listanum. Alþýðubandalagið í Hafnar- firði mótmælti þessari aðferð kjör- nefndar og taldi lýðræðislegra að halda forval, en tillagan var sem sagt felld. Eftir að kjömefnd hefur raðað á lista mun nefndin leggja þann lista fyrir kjörfund kjördæmisráðs sem sína tillögu, sagði Ásmundur Ásmundsson, formaður kjördæm- isráðs og formaður kjömefndar, en hann taldi að menn ættu að geta komist að samkomulagi þar eð flest félögin á Reykjanesi ættu full- trúa í kjömefnd. En það er kjör- fundur sem mun endanlega taka ákvörðum um uppröðun á lista. -gpm Dr. Harvey Milkman, ráðgjafi um þjálfun starfsfólks og mótun stefnu á meðferðaheimilinu Tindum, og Einar Gylfi Jónsson, forstjóri Unglingaheimilis ríkisins. Mynd:Kristinn. Unglingaheimili Tindar teknir í notkun Meðferðarheimili fyrir unglinga í vímuefnavanda opnað á Kjalarnesi. Afþví tilefniflutti dr. Milkman ráðgjafifyrirlestur um „allsgáða vímu“ Tindar, nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga sem eiga við vímuefnavanda að stríða, hefur verið opnað á Kjalarnesi. Einar Gylfi Jónsson, forstjóri Unglingaheimilis ríkisins, segir heimilið hafa verið i undirbúningi í rúmt ár, og hafi starfsfólk verið sent til þjálfunar til meðferðar- stofnunar unglinga í Bandaríkjun- um, sem er ein sú virtasta á því sviði vestan hafs. Milligöngu um þessa ferð starfsfólksins hafði dr. Harvey Milkman, prófessor í sál- arfræði við Denver háskóla. I til- efni af opnun heimilisins hélt hann fyrirlestur um kenningar sínar sem lúta að fikn mannsins í vímu. Telur hann að kenna verði unglingum að komast í vímu á annan hátt en með neyslu eitur- lyQa og áfengis. Segir hann fólk geta komist í það algleymisástand sem það þráir með ýmsum upp- byggilegum leiðum, m.a. með íþróttaiðkun og listsköpun Einar Gylfi Jónsson segir að stuðst verði við hugmyndir dr. Milkmans í eflirmeðferðinni. Mikilvægt skref hafi verið tekið með opnun Tinda, en miklu skipti að stjómvöld leggi áherslu á forvamarþáttinn. Þótt stofnanir sem Tindar séu nauðsynlegar, þá sé ekki síður brýnt að efla for- vamir og verði stjómvöld að marka ákveðna stefnu í þeim mál- um. Hingað til hafa margir aðilar unnið að forvömum, og gert góða hluti, en það vantar heildarskipu- lag. Að sögn Einars Gylfa verður tekið á móti fyrstu unglingunum á heimilið þann 10. desember næst- komandi. Flestir geta vistmenn orðið fimmtán. En fyrst í stað verða þeir ekki svo margir. Vímuefnavandi unglinga hér- lendis hefur farið vaxandi undan- farin ár, og telja menn að um 300 ungmenni á aldrinum 13-18 ára eigi við þann vanda að stríða. Þessar tölur byggja á neyslukönn- unum meðal skólanemenda, og því er lítið vitað um vanda þeirra sem dottnir eru út úr skólakerfinu, m.a. vegna vímuefhancyslu, segir Einar Gylfi. BE 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. desember 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.