Þjóðviljinn - 01.12.1990, Side 4
ÞJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
ÞINGLYNDI
Sambandsleysi
Stundum eru viðraðar áhyggjur af sambandsleysi
stjórnmálamanna við lífið og samtíma sinn. Er þá gjarn-
an vísað til þess að tími þeirra og áhyggjur snúist oftar
en ekki um smærri málefni innan virkisveggja þinghúsa,
ófrjótt og langdregið karp um smávægileg málefni, auk
persónulegra væringa sem engu koma til leiðar. Og
einnig má finna mörg dæmi þess að alþingi og aðrar
samkomur kjörinna fulltrúa fylgi fremur eftir megin-
straumum, móti viðbrögð við orðnum eða fyrirsjáanleg-
um hlutum, heldur en að þar sé sé að finna hið mikil-
væga frumkvæði og raunsæi.
Þessi gagnrýni byggist að vísu oft á vanþekkingu á
eðli og áhrifamætti þingstarfanna, því fáir eiga þess betri
kost en þingmenn að mynda sér breiða yfirsýn. Hins
vegar virðist þeim líka hættara við en mörgum öðrum að
sökkva í pytti sjálfsupphafningar og sjálfsblekkingar,
þegar skammtímasjónarmið eru látin ráða. Engum kem-
ur það á óvart á kosningavetri, að stjórnarandstaðan
grípi til ýmissa ráða til þess að vekja á sér athygli og
gera ríkisstjórnina sem tortryggilegasta. Hins vegar hef-
ur slíkur andófshópur varla verið seinheppnari en í
þessari viku, þegar þingflokkur Sjálfstæðismanna króaði
sjálfan sig óvænt af úti í horni með einróma samþykkt
sinni um að greiða á Alþingi atkvæði gegn bráðabirgða-
lögunum um kjarasamninga vegna BHMR- deilunnar.
Sjaldan hafa harðari dómar verið felldir um pólitíska
leiki Sjálfstæðisflokksins heldur en í þeim einróma og
neikvæðu viðbrögðum við þessari frétt, sem felast í um-
mælum ýmissa mikilvægra fulltrúa atvinnulífsins í gær.
Það vekur vitaskuld sérstaka athygli þjóðarinnar, að þeir
sem ráðast harkalega á þingflokk Sjálfstæðismanna fyr-
ir óraunsæi og hentistefnu núna eru margir hverjir um
leið í hópi öflugustu stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks-
ins og á framboðslistum hans.
Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSÍ segir það í
Morgunblaðinu „óendanlega sjálfsblekkingu" að trúa
því, að atkvæðagreiðsla alþingis um samninginn hefði
engin áhrif á þjóðarsáttina og að það sé „skelfilegt til
þess að vita“ ef þingmenn sem VSÍ hefurtrúað og treyst,
ætli að bregðast með því að fella bráðabirgðalögin. Ein-
ar Oddur tekur jafnvel sterkar til orða í viðtali við DV í
gær og segir þá ráðagerð Sjálfstæðisflokksins að fella
bráðabirgðalögin „þjóðarógæfu" og samþykktina í þing-
flokknum dæmir hann svofelldum orðum: „Ég get bara
ekki skilið hvað rekur einn flokk til að gera slíka sam-
þykkt." Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins telur „spurninguna um sið-
leysi fremur varða sjálfan samninginn milli ríkisvaldsins
og BHMR, heldur en bráðabirgðalögin á samninginn".
Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra
iðnrekenda segir samþykkt þingflokksins vera „fljótfærn-
isleg vinnubrögð", „stráksskap og augnabliks skamm-
sýna stjórnarandstöðu11. Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs íslands segir þetta „óskyn-
samlegt". Arnar Sigmundsson, formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva segir í yfirliti Morgunblaðsins: „Þessi við-
brögð koma manni verulega á óvart...Ég trúi því ekki
öðru en að alþingi muni samþykkja bráðabirgðalögin...".
Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna er sömu skoðunar: „Það er miklu
meira virði að við séum að ná tökum á efnahagslífinu
heldur en þeirflokkshagsmunir að greiða atkvæði á móti
bráðabirgðalögunum. Mér finnst það rangt.“
Þessi ummæli forystumanna úr atvinnulífinu stangast
á við þá stefnu sem ríkir „einróma" að sögn í þingflokki
Sjálfstæðismanna. Bæði Morgunblaðið og DV hafa stutt
þjóðarsáttina og af umfjöllun þeirra nú má ráða þá skoð-
un, að þingflokkur Sjálfstæðismanna hafi gert sig beran
að sjaldgæfum klaufaskap og óraunsæi með einróma
samþykkt sinni um að fella bráðabirgðalögin. Sérkenni-
lega er komið fyrir þingliði því sem flesta kjósendur hef-
ur að baki sér, að hafa misst sambandið við lífið í land-
inu.
ÓHT
Myndir: Kristinn
•Tá, þú ættir kannski að
aðstoða mig í forvalinu.
Þú crt jú alvanur
smaiamennskunni á
I SeljavöUnm.
Ætu ég geti notað þetta í
næsta leikrit mitt?
Við sköpum þannig nyja
þjóðarsátt á Austfjörö-
nm. Þjóðarsátt um
giimiu brýnin aftur á
þing- a
ÞJOÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Olafur H. Torfason.
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdis Ellertsdóttir, Dagur
Þorleifsson, Ellas Mar (pr.), G. Pétur Matthiasson,
Garöar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ölafur
Glslason, Sævar Guðbjörnsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristin Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýslngar: Sigrlður Sigurðardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradótir.
Bilstjórí: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrífstofa, afgreiösla, ritstjóm, auglýslngar:
Slðumúla 37, Rvlk.
Sími: 681333.
Símfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiöja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð f lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr.
4-SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. desember 1990