Þjóðviljinn - 01.12.1990, Síða 8
Á góðum vetrardegi (lok fjórða áratugarins. Frá vinstri Lúðvtk Jóseps-
son, Bjarni Þórðarson og Jóhannes Stefánsson.
Þei
máluðu
bæinn
rauðan
Á næstu dögum kemur út hjá Máli og menningu
bók um Norðfjörð, sem hefur orðið fræaastur fyrir það
að þar hafa rauðliðar ráðið ríkjum óslítið í meira en
flörtíu ár. Lúðvík Jósepsson, Jóhannes Stefánsson
og Bjarni Þórðarson urðu þjóðfrægt tríó í pólitík, en
samstarf þeirra stóð í nærri hálfa óld. Hitt vita sjálf-
sagt færri að flokkar og menn nátengdir verkalyðs-
hreyfingunni hafa verið óslitið í meirinluta í bænum
frá 1925 og er ekki vitað til að í nokkru öðru byggðar-
lagi hafi vinstri tilhneigingar fest svo rækilega rætur.
Sumir seaja raunar að vandfundið sé það sveitarfélag
á Vesturlondum þar sem flokkar lengst til vinstri, eins
og Sósíalistaflokkurinn og Alþýðubandalagið, hafa
nað svo miklum áhrifum og haldið þeim jafn lengi,
nema ef vera skyldi á Ítalíu.
Hér fer á eftir kafli úr bókinni og segir þar frá merk-
um atburðum sem urðu árið 1938 þegar „sögulegar
sættir" urðu með sósíalistum og sjalfstæðismönnum
og þeir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn Neskaup-
staðar.
Höfundur bókarinnar er Helgi Guðmundsson.
..þáerekkimikilhætta
á að ág verði bytta
Stjóm Samvinnufélags út-
gerðarmanna boðaði til almenns
fúndar í félaginu þann 30. sept-
ember, til að kjósa fúlltrúa á aðal-
fúnd Sölusambands íslenskra
fiskffamleiðenda S.Í.F. Aðal-
menn vom kosnir Vigfús Gutt-
ormsson og Þorsteinn Einarsson,
en Bjami Þórðarson og Sigurður
Hinriksson til vara. Það kom í
hlut Bjama að fara á aðalfúndinn.
Hann skrifaði Jóhannesi 4. októ-
ber að sunnan og sagði m.a.:
Ferðin suður gekk sæmilega.
Ég hélt til hjá kyndurunum og
flœktist milli kojanna, því alltaf
var ein laus. Ferðakostnaður
krónur 20,00.
Ég fór í land á Homafirði.
Klerkurinn beið min á planinu.
Við fórum beina leið heim til
móðurbróður míns og óðum þar
um allt húsið, hann á undan ég á
eftir, en enginn maður var heima.
Við gerðum okkur heimakomna
og settumst inn i stofu. Litlu síðar
kom fólk. Séra Eirikur er gáfaður
maður og ákaflega skemmtilegur.
Ber hann, bœði í framkomu og
tali, meiri keim af óprúttnum sjó-
ara, en alvarlega þenkjandi
drottins hjarðsveini.
Síðan ræddi Bjami nokkur önnur
mál og segist hafa talað á aðal-
fundi S.I.F., en fundurinn hafi
verið skrýtin samkoma og sagði
svo:
Annars nenni ég ómögulega
að rekja gang mála á fundinum,
en að honum loknum var veisla í
niðursuðu- verksmiðjunni. Þar
Jlóði ákavíti yfir allt og öl eins og
maður vildi. Vœri drukkið borð á
staupið var óðara kominn þjónn
til að fylla það á ný og auk þess
gengu flöskumar. Eg dreypti á, en
aðeins dreypti, en mikið andskoti
var það vont. Ég hélt ég mundi
gubba. Sé ekkert vín betra en
ákaviti, þá er ekki mikil hætta á
að ég verði bytta. Veislan stóð í
fjóra til fimm tima, en ég var ekki
nema í 1 - 2, því bæði leiddist mér
til lengdar, nema helst að horfa á
og taka utan um framreiðslu-
stúlkurnar, sem voru verksmiðju-
stúlkurnar, og svo var ég skikkað-
ur til að skrifa smá klausu um
þetta i blaðið.
Það var ekkert smáræði sem
ég sló af aurum fyrir þessu.
Reikningurinn, sem saminn var,
var svona:
Farmiði á 1. plássi frá og til
Reykjavíkur kr. 86,00, fæði á 1.
plássi i 6 daga 8/-kr. = 48,00,
dagpeningar i 15 daga 15/-kr. —
225,00.
Samtalskr. 359,00
Ég fékk 359 krónur. Þama er
ekki verið að horfa í skildinginn.
Og nú hef ég nóga peninga og hef
keypt mér vetrarfrakka.Daginn
eftir að ég kom fór ég heim með
Héðni og borðaði miðdegisverð.
Þar kynntist égJörundi Pálssyni.
Hann þurfti mikið um þig ogykk-
ur Lúðvík báða að spyrja. I sam-
einingarmálunum skeður ekkert
nýtt. Það er bara ákveðið að
stofnaflokkinn. I gær var samein-
ingarfundur, ákaflega jjölmennur
og við góða stemmningu. Við
Þóra Jakobs fórum þangað og
var hún hrifin.
Það er von að Bjama hafi þótt
mikið til þess koma að fá í hend-
umar krónur 359 þegar þess er
gætt hvers konar eymdarlífi sjó-
menn og verkafólk i Neskaupstað
þurfti að lifa á þessum tíma og áð-
ur hefúr komið frarn. Vonandi
fyrirgefst honum að hafa keypt
sér vetrarfrakka, í stað þess að
ferðast á fyrsta farrými og láta
fara vel um sig á hóteli, sitja auk
þess 5. og síðasta þing Kommún-
istaflokksins og stofhþing Sósíal-
istaflokksins, á kostnað SÍF, því
að á móti kemur að hann sparaði
samtökunum veruleg útgjöld í
ákavíti!
Hitnaríkolum
verklýðsfélagsins
Tveimur dögum eftir að
Bjami ritaði bréfið vom kosnir
fjórir sameiningarmenn sem fúll-
trúar Verklýðsfélagsins á þing Al-
þýðusambandsins, en aðalmál
þess var sameiningarmálið. Þegar
fúlltrúamir mættu til þings var
þeim neitað um þingsetu, að sögn
vegna skulda. Sambandsstjóm
hafði krafið félagið um greiðslu á
margra ára skattskuld þess og tók
fram í bréfi sínu að skattamir sem
greiða átti fyrir þingið 1934 hafi
aldrei verið greiddir að fúllu.
Þarf ekki að orðlengja það að
allt var þetta liður í óhjákvæmi-
legu uppgjöri sem ekki varð um-
flúið. Alþýðuflokksmenn á þingi
Alþýðusambandsins vom ekki á
neinum sameiningarbrókum,
nema á forsendum sem vinstri
armurinn og Kommúnistaflokk-
urinn gátu ekki sætt sig við.
Vinstri armur Alþýðuflokksins
var á hinn bóginn ákveðinn i að
ganga til liðs við Kommúnista-
flokkinn um myndun nýs flokks.
Stofnþing Sameiningarflokks al-
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. desember 1990