Þjóðviljinn - 01.12.1990, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 01.12.1990, Qupperneq 11
'jólasýning á Arbæjarsafni Árbæjarsafn verður opnað almenningi fyrsta sunnudag í aðventu í því skyni að sýna jóla- hald fyrr á öldinni. Þessi ný- breytni var tekin upp í fyrra og þótti takast með afbrigðum vel. Sýningin verður opnuð sunnu- daginn 2. desember, og verður dagskráin með eftirfarandi sniði: * í Kleppi verður jólahald á striðsárunum og jól í Reykjavík um 1890 til sýnis. * I Miðhúsum verður prent- smiðjan í gangi og prentuð verða sérstök kort í tilefni dagsins, einn- ig sýning á jólakortum og jóla- merkjum. * I Þingholti verður Kram- búðin opin og ýmislegt sem tengdist jólahaldi áður fyrr til sölu, auk sýningar á fondri og sýnikennslu í gerð þess. * I Hábæ verður hangikjöt soðið á gömlu kolaeldavélinni og gestum gefið að smakka. * I Arbæ verðurjólaundirbún- ingur á baðstofúloftinu. Þar verð- ur fólk við tóvinnu, lesið úr göml- um íslenskum jólasögum og gam- alt spýtujólatré vafið með lyngi og skreytt heimatilbúnu pappírs- fondri. Kertasteypan Norðurljós í Kópavogi sýnir hvemig kerti vom steypt áður fyrr, og sýnt verður hvemig laufabrauð er skorið út og steikt. * I Dillonshúsi er hægt að ylja sér á heitu súkkulaði og smakka á jólasmákökum og öðm góðgæti í veitingahúsinu. * Aðventumessa verður í kirkjunni kl. 15.30. Séra Kristinn A. Friðfinnsson messar og félagar úr kirkjukór Árbæjarsóknar syngja. * Á Torginu verður dansað í kringum jólatré kl. 14. Jóla- sveinakór 10 ára krakka úr Ár- túnsskóla syngur jólalög, Karl Jónatansson spilar á nikkuna og nokkrir íslenskir jólasveinar koma í heimsókn. Næstu tvo sunnudaga, þ.e. 9. og 16. desember verður safnið op- ið frá 13 til 17. Virka daga er skólum, dagvistarstoftiunum og félagsmiðstöðvum boðið að koma og skoða sýningamar undir leið- sögn safnkennara. Fridrik Haukur Hallsson skrifar frá Þýskalandi: Kosningar til þýska sambandsþingsins Það merkilegasta við kosn- ingarnar til þýska sambands- þingsins nú á sunnudaginn er hversu ótrúlega daufleg kosn- ingabaráttan hefur verið. Kosið verður til fyrsta þingsins í sam- einuðu Þýskalandi og er því um „sögulega“ kosningu að ræða. Hægrimenn em svo sigurvissir, að þeir rétt drattast til að hengja upp nokkrar hausmyndir af kanslaran- um við helstu gatnamót í borginni (Bielefeld), en kanslarinn sjálfúr nennir ekki að koma og halda kosningafúnd og neitar jafnvel að taka þátt í sjónvarpseinvígi við mótírambjóðanda sinn, Oskar Lafontaine. Hafa slíkir „fila- hringleikar“ (eins og þeir em yfir- leitt kallaðir af almenningi) alltaf farið fram tveim til þrem dögum fyrir kosningar síðastliðna tvo ára- tugi og verið vinsælir, en verða að falla niður að þessu sinni vegna „ónógrar þátttöku“. Tekst Helmut Kohl þar með að hafa saklaust gaman af sjónvarpsáhorfendum, því oftast léku ffambjóðendur hvum annan grátt - og var það vissulega sniðugt. Sú staðreynd að hægrimenn komast nú upp með að hundsa lýðræðislegar leikreglur á þennan hátt er einmitt dæmigerð fyrir dauðyflishátt fjölmiðlamanna og áhugaleysi kjósenda á þessari kosningabaráttu. Helstu mál kosninganna Kristilegum demókrötum (CDU/SCU) tókst löngu áður en kosningaslagurinn hófst að „eigna“ sér fagnaðarmálið sjálft, sameiningu þýsku ríkjanna. Er sama hvaða þáttur þess ér tiT um- ræðu. í hugum kjósenda er þetta þeirra mál, ef trúa má niðurstöð- um könnunar Allensbacher- rann- sóknastofnunarinnar sem birtust fyrr í þessari viku. Jafnaðarmenn lenda hér al- gjörlega utan gátta, en þeirra mál em öll af hefðbundnara sniði og yfirleitt til lítils fagnaðar, svo sem Kohl - hans er valdið. húsnæðisvandamál, skattamálin stór og smá, afvopnun þýska hers- ins og samdráttur í ríkisútgjöldum. Þeim hefúr þó tekist að ná frum- kvæðinu i umhverfismálum af Græningjum, sem hinsvegar hefúr tekist að hasla sér völl í kvenna- málunum, samkvæmt þessari könnun. Þau mál sem kjósendur telja vera dæmigerð fyrir Fijáls- lynda flokkinn em sitt úr hverri áttinni og öll heldur litlaus. í raun á þessi sérkennilegi flokkur aðeins eitt „kosningamál" sem vekur vemlega athygli, nefnilega utan- ríkisráðherrann Hans-Dietrich Genscher. Það er þó mjög gott mál, því hann er allra stjómmála- manna vinsælastur í Þýskalandi og hefúr svo verið lengi. Náttúrulögmál sameiningarinnar Strangt tekið snúast kosning- amar þó ekki um dæmigerð kosn- ingamál, eins og Allensbacher- skoðanakönnuðir töldu sjálfgefið, heldur um eins konar náttúmlög- mál. Ralf Dahrendorf (fyrrnm fé- lagsfræðiprófessor, þingmaðui fijálslyndra, rektor í frægum Lundúnaháskóla með meim) bendir á það í nýjasta heftinu af „Merkur" að þýskur almenningur hafi fylgst agndofa með samein- ingu Þýskalands eins og um stór- fenglegt sjónarspil sjálffar náttúr- unnar væri að ræða, en ekki valda- átök heimskerfanna. Hvorki hafi gætt þjóðemislegs eldmóðs né hafi sérstakra þjóðfélagslegra hræringa orðið vart á meðan á þessu stóð. Einna helst að per- sónuleg tilfinningasemi hafi náð tökum á þeim sem komust fyrstir í gegnum brotinn múrinn, en það sé nú löngu liðið hjá. Sé þessi tilgáta Ralf Dahren- dorfs rétt, þá er þar um leið komin skýringin á hvom tveggja: deyfð kosningabaráttunnar og því fylgis- hmni jafnaðarmanna, sem skoð- anakönnuðir hafa nú þegar ákveð- ið að verði. Um náttúmlögmál ríf- ast menn nefnilega ekki, þau verð- ur að umbera (eða fagna); ekkert lýðræðislegt vald fær þeim hagg- að. En takist einhveijum stjóm- málaflokki að eigna sér náttúm- lögmálið sjálft er að sjálfsögðu ljóst „að hans er valdið", sama hvað kjósendur myndu annars kjósa - í venjulegum kosningum. Jólabasar Myndlistaskólans Myndlista- og handíðaskóli íslands verður með árlegan jólab- asar sinn í Kringlunni laugardag- ana 1. og 8. desember. Á boðstól- um em ýmis lystug og listræn verk eflir þriðja árs nema í skól- anum, en þeir em að afla sér fjár til námsferðar á næsta hausti. Bókmenntir 1990 Bókmenntir 1990: Hvað gerð- ist? - Hvað gerist? er yfirskrift málþings um íslenskar bókmennt- ir, sem Félag áhugamanna um bókmenntir efnir til í dag. Þingið verður haldið í Norræna húsinu og hefst kl. 10. Erindi flytja þau Eysteinn Þorvaldsson, Jóhann Hjálmarsson, Dagný Kristjáns- dóttir, Sigurður Pálsson, Gísli Sigurðsson, Jón Stefánsson, Páll Baldvin Baldvinsson og Sjón. Siðan verða pallborðsumræður. Haustvaka í Kópavogi Norræna félagið í Kópavogi efftir til haustvöku í Þinghóli, Hamraborg 11, 3. hæð, í dag kl. 15. Sagt verður frá ferðalögum og norrænum mótum sem haldin vom i sumar í vinabæjum Kópa- vogs og fulltrúar þaðan tóku þátt í, Valdimar Lámsson leikari les upp úr nýrri bók sinni „Rjátlað við rím og stuðla“, trió úr skóla- hljómsveit Kópavogs leikur jóia- lög og sýnd verður stutt mynd um Norðurlönd og norrænt samstarf sem nefnist „Það hófst á Þingvöll- um“. Tónleikar Kammer- hljómsveitar Akureyrar. Kammerhljómsveit Akureyr- ar heldur tvenna tónleika um helgina, í Akureyrarkirkju kl. 17 í dag og í félagsheimilinu Mið- garði, Varmahlíð í Skagafirði á morgun kl. 16. Leikið verður úr Vatnasvítum eflir Handel, konsert fyrir klarinett og hljómsveit eftir Johann Stamitz, Pavane eftir Ra- vel og Trittico bottov-celliano efl- ir Respighi. Öm Óskarsson stjómar. Einleikari er Siguijón Halldórsson á klarinett. Opið hús hjá RÚV Ríklsútvarpið verður með op- ið hús í útvarpshúsinu Efstaleiti, Sjónvarpinu á Laugavegi 176 og í landhlutastöðvunum á Fjölnis- götu 3A á Akureyri, Fagradals- braut 9 á Egilsstöðum og Aðal- stræti 22 á lsafirði í dag í tilefni 60 ára afmælis Utvarpsins. Bikarmót Fimleikasam- bandsins Bikarmót Fimleikasambands Islands fer fram í Laugardalshöll á morgun og er fimleikafélagið Björk f Hafnarfirði mótshaldari. Á annað hundrað keppendur taka þátt í Bikarmótinu. Keppt verður í ftjálsum æfingum, 3. þrepi og 4. þrepi íslenska fimleikastigans. Mótið verður í tveimur hlutum og hefst fyrri hluti kl. 12 með keppni í 4. þrepi pilta og stúlkna. Síðari hluti mótsins hefst kl. 15 en þá verður keppt í 3. þrepi og ftjálsum æfingum. Félagsvist Breiðf irð- ingafélagsins Félagsvist Breiðfirðingafé- lagsins verður á morgun, sunnu- dag, kl. 14.30 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir. Bókakynning íÞjóðarbókhlöðu Bókavarðafélag íslands gengst fyrir kynningu á nýjum þókum í Þjóðarbókhlöðunni í dag kl. 13.30. Alls verða kynntar 26 bækur, sem koma út núna fyrir jólin, en kynning þessi er gerð í samvinnu við útgefendur og rit- höfunda. Erró til sölu I dag og á morgun verður sýn- ing á einkasafni Erró-mynda í Gallerí Borg við Austurvöll. Um er að ræða 24 olíumyndir, flestar frá 1983, 50x37 sm að stærð. All- ar myndimar verða til sölu. Myndimar hafa aldrei verið sýnd- ar hér á landi áður. Sýningin verð- ur opnuð kl. 14 í dag og er opin til kl. 18báðadaga. Jólabasar Sjálfsbjargar Jólabasar Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í Reykjavík og nágrenni, verður haldinn í dag og á morgun í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12 og hefst salan kl. 14 báða daga. Inngangur að vestanverðu. Mikið úrval af munum á tombóluprís, t.d. jólaskreytingar og margskon- ar aðrar jólavömr, útsaumur, pijónafatnaður, púðar, kökur og margt fleira. Einnig verður glæsi- legt happdrætti og kaffisala með hlaðborði. Ofætur funda Landsfundur O.A. samtak- anna á Islandi verður á morgun í húsi Í.S.Í. í Laugardal kl. 10 til 15.30. Kl. 16 verður svo kynning- arfúndur á starfsemi samtakanna á sama stað. O.A. samtökin em félagsskapur fólks sem á við mat- arfikn að striða. Þáttökugjald á landsfundinn er kr. 800 og er þá hádegismatur og kafli eða te inni- falið. Á kynningarfundinn em all- ir velkomnir. Raddskúlptúr í Borgarleikhúsi Nemendur annars og þriðja árs fjöltæknideildar Myndlista- og handíðaskólans flytja Þrætubálk eftir Magnús Pálsson myndlista- mann, í anddyri Borgarleikhússins á morgun kl. 15 og mánudags- kvöld kl. 20. Verkið er byggt á Illionskviðu Hómers, en höfundur lýs- ir verkinu sem raddskúlptúr, umhverfisverki úr 18 röddum, geming- ur eða konsert. Aðgangur kostar 200 kr. Laugardagur 1. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN —SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.