Þjóðviljinn - 01.12.1990, Page 16
SPURNINGIN
Er ríkisstjórnin að
falla?
Jónatan Guðjónsson
einyrki:
Það ætla ég að vona, því hún
hefur aldrei verið að mínu
skapi.
Jón Vigfússon
vélstjóri:
Nei, það held ég ekki. Stjórnin
fer ekki frá, því hún vill ekki
breyta góðu hlutunum sem hún
hefur unnið að.
Hersir Sigurgeirsson
nemi:
Nei, ætli það. Er nokkur ástæða
til þess?
Ásta Björg Stefánsdóttir
nemi:
Ég hef ekki hugmynd um það
Miðbærinn
Skreppum
í bæinn
Svonefnt Félagið í
miðbœnum stendur
fyrir uppákomum í
Kvosinni í dag
Síðastliðið fostudagskvðld
stofnuðu fyrirtæki, félög og
einstaklingar nýtt áhugafélag
um endurlífgun gamla miðbæj-
arins. Kallast félagsskapurinn
einfaldlega Félagið í miðbæn-
um.
Einar Egilsson hefúr verið
umsjónarmaður félagsins, hann
sagði mikinn áhuga vera meðal
þeirra sem versla og eru með
starfsemi í Kvosinni, og hafi
menn látið hendur standa fram úr
ermum undanfama daga.
-Við ætlum að reyna að end-
urlífga það „að skreppa í bæinn“.
Að gamni ætlum við að minna á
árin milli stríða þegar bærinn var
litlu stærri en Kvosin, og setja
upp skraut og hluti sem voru vin-
sælir hér á ámm áður.
í dag verður sett upp jóla-
bjallan, sem margir muna kann-
ski eftir hjá Raforku við Vestur-
götu. Og Félagið í miðbænum
hefur mikinn hug á að komast að
því hvað varð um Rafskinnu, raf-
knúið tæki sem fletti auglýsing-
um teiknuðum af Halldóri Pét-
urssyni.
Ymsar uppákomur verða í
miðbænum í dag: flaggað verðUr
gömlum íslenskum fánum fyrir
framan þau hús sem tengjast sögu
þeirra á einhvem hátt. A hádegi
mun varðskipið Týr skjóta heið-
ursskotum i tilefni af fullveldis-
deginum. Kl. 13 skemmtir Gam-
anleikhúsið krökkum á Lækjar-
torgi, Skólahljómsveit Kópavogs
mun síðan leika hressileg lög í
Austurstræti. Klukkan þijú síð-
degis kemur Grýla gamla í Hlað-
varpann og flengir óþekka
krakka, og þegar skyggja tekur
um fjögurleytið geta þeir full-
orðnu fengið sér snúning á Hótel
íslands-planinu því þá leikur
Hljómskálakvintettinn létt lög.
Ekki er allt talið enn því að á
morgun kl. 13.30 gengur Páll
Líndal gamla rúntinn með fólki
og segir sögu hans. Verður lagt
upp frá áðumefndu plani, sem að
vísu kallast Hallærisplan nú á
dögum.
Félagið í miðbænum verður
með fleiri skemmtilegar uppá-
komur á laugardögum næstu vik-
umar.
BE
Happdrætti
Þióðvilians
Hulunni
svipt af
þann 7. des.
Vinningsnú >nerin í happ-
drætti Þjóðviljans verða birt í
Þjóðviljanum 7. desember.
RAFRÚN H.F.
Smíðjuvegi 11 E
Alhliða
rafverktakaþjónusta
Simi641012
... alla daga
Ö^ARNARFLUG
sJP INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - sími 29577
EVA LUNA segir frá.
Isabel Allende hefur þegar öðlast hylli íslendinga fyrir litríkar sögur sínar. Hér eru á
ferðinni tuttugu og þrjár splunkunýjar smásögur um jafnmörg tilbrigði ástarinnar.
Þetta eru sögur sem ýmist eru sóttar beint í furðulegan veruleika Suður-Ameríku eða
framkallaðar með óþrjótandi ímyndunarafli skáldkonunnar, litríkar og töfrandi.
Tómas R. Einarsson þýddi úrspænsku.
ÞJÓFURINN eftir Göran Tunström.
Skemmtileg, sorgleg og umfram allt áhrifarík frásögn um mann, sem á sér þann
draum æðstan að stela gamalli bók. Göran Tunström hlaut Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu sína Jólaóratoríuna.
Þjófurinn gefur því verki hvergi eftir enda hefur sagan notið fádæma vinsælda í
heimalandi höfundar.
Þórarinn Eldjárn þýddi bókina.
ÓDAUÐLEIKINN eftir Milan Kundera.
Eins og í bókinni Óbærilegur léttleiki tilverunnar er það aðalsmerki höfundar að tengja
fjörlega frásögn við djúpar hugleiðingar um ástina, dauðann og ódauðleikann -
mannlegt hlutskipti sem hann sér oft speglast í óvæntum hlutum. Meðal þeirra sem
leiddir eru fram á sjónarsviðið í þessari glænýju skáldsögu eru Goethe og Hemingway
- bæði lífs og liðnir!
Friðrik Rafnsson þýddi á íslensku.
Mál IMI og menning
Bœkur eru ódýrari
Laugavegi 18. Sími 15199 - 24240. Síðumúla 7-9 Sími 688577.