Þjóðviljinn - 18.12.1990, Qupperneq 1
Þriðjudagur 18. desember 1990 — 239. tölublað 55. árgangur
Islenska óperan
Bitbein stjórnmálamanna
Hörður Erlingsson, íslensku Óperunni: Málefni Óperunnar virðist orðið aukaatriðL Vil ekki
trúa öðru en að fjárhagsvandi Óperunnar verði leystur í tæka tíð
Þetta mál er orðið að pólit-
ísku bitbeini milli stjórn-
málamanna þar sem málefni
Óperunnar virðist vera orðið að
aukatriði. Hér er þó æft af full-
um krafti i þeirri góðu trú að
fjárhagur Óperunnar komist á
frían sjó fyrir frumsýninguna á
Rígólettó annan dag jóla, sagði
Hörður Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Islensku Óper-
unnar í samtali við blaðið í gær,
en Óperan þarf 35 til 40 milj-
óna króna framlag af opinberu
fé til að rekstrargrundvöllur
hennar verði tryggður á næsta
starfsári.
Samkvæmt áliti sameiginlegr-
ar nefndar fjármálaráðuneytis og
menntamálaráðuneytis, sem sett
var á laggimar til að meta fjárþörf
Óperunnar, þarf 35-40 miljóna
króna framlag til rekstrarins svo
að endar geti náð saman í rekstri
Óperunnar á næsta ári. Ríkið hef-
ur þegar gefið vilyrði fyrir hið
minnsta 25 miljóna króna ffam-
lagi á árinu, gegn því að borgin
hlaupi undir bagga með það sem á
vantar. Því hefur Davíð Oddsson
borgarstjóri vísað á bug, enda hafi
formlegt erindi þar að lútandi
aldrei borist borgaryfirvöldum.
Þá hefúr borgarstjóri látið
óánægju sína í ljósi með það, að
borgin hafi ekki átt aðild að þeirri
nefnd sem gerði fjárhag Óperunn-
ar að athugunarefhi. - Eg veit
ekki hvað telst formlegt erindi og
ekki, sagði Hörður og benti á að
Óperan hefði ekki fengið fjár-
stuðning frá borginni til þessa.
Hörður sagðist álíta að þær 25
miljónir sem rikið hefði gefið Óp-
emnni vilyrði fyrir nægðu ekki til
að halda rekstrinum gangandi. -
Þær 35 til 40 miljónir sem talað er
um að þurfi til rekstrarins á næsta
ári em aðeins miðaðar við lág-
marksrekstrarkostnað.
- Við trúum ekki öðm en að
þetta mál leysist í tæka tíð. Við
höfúm orð stjómmálamanna fyrir
því, að Óperan muni ekki verða
látin Iognast útaf og á það treyst-
um við, sagði Hörður.
Þess má geta að íslenska
Óperan nýtur á yfirstandandi
starfsári 21 miljónar króna ffam-
lags úr ríkissjóði. -rk
dagar til jpla
a u
(\GC\Qf J
J3
I dag kl. 11 kemur Hurðaskellir I
heimsókn á Þjóðminjasafnið. Helga
Þórey Eyþórsdóttir, sem býr I Upp-
sölum I Svlþjóð, sendi þessa mynd
af sveinka.
Fiskverð
Brynhildur jólatréssölukona ( portinu á Hlaðvarpanum mundar hnlfinn
góða og sker endann af grenigrein. Margir lögðu leið slna I bæinn I gær
þrátt fyrir skafrenning og kulda. Ljósmyndari Þjóðviljans lét að minnsta
kosti kuldabola ekki á sig fá og smellti af þessari jólamynd fyrir blaðið. -
Mynd Jim Smart
jólaköttinn
Lágmarksverð á botnfiskafla hœkkar um 7,33% frá 1. desember til 15.
september 1991. Sjómenn: Óbundnir afþessari ákvörðun. LÍÚ: Fisk-
verð er frjálst með gólfu Forstjóri Þjóðhagsstofunar taldi ekki ástæðu
til að taka þátt ifiskverðsákvörðuninni sem oddamaður yfirnefndar
Oskar Vigfússon formaður
Sjómannasambands ís-
lands segir að sjómenn telji sig
vera alveg óbundna á því fisk-
verði sem ákveðið var í yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í gærmorgun. Fulltrúar
sjómanna í ráðinu neituðu að
taka þátt í störfum yfirnefndar
eftir að fiskverðsákvörðuninni
var vísað þangað, þegar Ijóst
var að ekki var stuðningur við
tillögu fiskskeljenda um að gefa
fiskverð frjálst.
Hið sama gerðist í febrúar í
vetur og því hafa fúlltrúar sjó-
manna ekki tekið þátt í ákvörðun
um lágmarksverð á botnfiskafla á
þessu ári.
Verðákvörðun yfimefndar
felur í sér samtals 7,33% fisk-
verðshækkun frá 1. desember til
15. september 1991. Samkvæmt
því hækkar fiskverð um 2,83%
frá 1. desember síðastliðnum og
gildir þetta fiskverð til febrúar-
loka á næsta ári. Frá 1. mars 1991
hækkar fiskverð um 2,5% sem
gildirtil maíloka. Frá 1. júní 1991
hækkar fiskverð um 2% með
þeim fyrirvara, að hækki laun al-
mennt um meira en 2% þann 1.
júní 1991 áskilur yfimefndin sér
rétt til þess að endurskoða fisk-
verðsákvörðunina frá sama tíma.
Þeir sem tóku ákvörðun um
þessar fiskverðshækkanir vom
fúlltrúar fiskkaupenda, þeir Ami
Benediktsson og Bjami Lúðvíks-
son og Kristján Ragnarsson fúll-
trúi útgerðarmanna. Oddamaður
yfimefndar, Þórður Friðjónsson
forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sat
hjá við afgreiðslu málsins. Þórður
Friðjónsson sagðist ekki hafa séð
ástæðu til að taka þátt í afgreiðslu
málsins af þeirri einfðldu ástæðu
að samkomulag var á milli aðila í
yfimefnd um fiskverðsákvörðun-
ina. Aðspurður hvort ekki hafi
verið ástæða til að hækka fisk-
verðið enn frekar í ljósi þess hvað
afúrðaverð fiskvinnslunnar hefúr
hækkað, en í lögum um Verðlags-
ráð segir að taka eigi tillit til þess
við fiskverðsákvörðun. Þetta var
m.a. gert þegar verð á rækju var
lækkað um 5% fyrir skömmu
vegna þess að afúrðaverð hafði þá
lækkað. Þórður sagði að tillit
hefði verið tekið til ýmissa ann-
arra atriða en einungis markaðs-
verðs ss. afkomu vinnslu og veiða
og almennrar launaþróunar í
landinu. „Þegar öllu er haldið til
haga er fiskverðsákvörðunin í
samræmi við lög og venjur sem
rikt hafa,“ sagði forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar. Hann bætti því við
að fiskverðákvörðanir hefðu ekki
sömu þýðingu og þær höfðu hér
áður fýrr, vegna þess að gildandi
lágmarksverð sé orðið sjaldgæft í
viðskiptum á milli aðila.
Kristján Ragnarsson formað-
ur LIU sagði að þessi ákvörðun
yfimefndar um lágmarksverð
þýddi í raun að fiskverð væri
ftjálst með gólfi. Hann sagði að
ekki hefði verið unnt að ná sam-
komulagi um frekara frelsi vegna
þeirra skilyrða fiskkaupenda að
útflutningur á óunnum afla yrði
þá skorinn niður við trog.
Bjami Lúðvíksson fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna sagði að ef
fiskvinnslan hefði samþykkt að
gefa fiskverð ftjálst mundi það
hafa það í för með sér að vinnslan
hefði orðið að greiða hærra verð
en ella fyrir hráefnið. Bjami sagði
ef fiskverð ætti að gefa fijálst
þyrfti vinnslan að fá fleiri tonn til
að bæta nýtinguna í húsunum.
Þeir hefðu því boðið fiskseljend-
um fijálst fiskverð með því skil-
yrði að ferskfiskútflutningur yrði
takmarkaður við erlenda neyt-
endamarkaði, en því hefði verið
hafnað. -grh
Hafskipsmál
Áfrýjað til
Hæstaréttar
Páll Arnór Pálsson, sérleg-
ur saksóknari í sk. Hafskips-
máli, áfrýjaði í gær dómi Saka-
dóms Reykjavíkur varðandi
mál fjögurra þeirra sem þá
voru á sakabekk, þ.e. þeirra
Björgólfs Guðmundssonar,
Ragnars Kjartanssonar, Páls
Braga Kristjónssonar og Helga
Magnússonar til Hæstaréttar.
Nú era rétt fimm mánuðir
síðan Sakadómur kvað upp sinn
úrskurð þar sem meintir sakbom-
ingar vora sýknaðir af öllum
megin ákæraatriðum, nema hvað
þeir Björgúlfúr og Páll Bragi sem
dæmdir vora fyrir minni háttar
sakir. -rk
Frelsið í